Þjóðviljinn - 29.09.1987, Page 15
FRÉTTIR
Úr einni af skoðunarferðunum um Sjálfsbjargarhúsið um síðustu helgi. Ólöf Ríkharðsdóttir leiðir gesti í allan sannleika
um starfsemina. Auk hennar á myndinni: Málmfríður Sigurðardóttir, Danfríður Skarphéðinsdóttir, Kristín Jónsdóttir,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Sigrún Magnúsdóttir. Mynd: Sig.
Sjálfsbjörg
Aðgengi fyrir alla
Landssambandfatlaðra, Sjálfsbjörg, stóðfyrir opnuhúsi
„Tilefnið var tvíþætt; við vild-
um vekja athygli á blaða- og
merkjasölunni sem er ein af okk-
ar helstu tekjulindum, og í annan
stað opnuðum við húsið til að
gefa almenningi kost á að sjá hvað
hann hefur lagt fé í,“ sagði Einar
Hjörleifsson sálfræðingur, starfs-
maður Sjálfsbjargar, í spjalli við
blaðið í gær, en um síðustu helgi
stóðu samtökin fyrir opnu húsi að
Hátúni 12.
Kjörorð dagsins var Aðgengi
fynr alla, og stóð það á merki
Sjálfsbjargar. Að sögn Einars
tókst vel til með að opna húsið,
og stefna félagsmenn að því að
atburðurinn verði árviss héðan í
frá.
Við spurðum Einar hvort fjöl-
mennt hefði verið í Hátúninu, og
sagði hann að um tvö hundruð
manns hafi mætt. Borgarfulltrú-
um var boðið og alþingis-
mönnum, og voru farnar skoðun-
arferðir um húsið með vissu milli-
bili og vildu sumir kalla þessar
skoðunarferðir sætaferðir með
vísan til hjólastóla. Að sögn Ein-
ars tók hver skoðunarferð um
klukkustund, og gefur það vís-
bendingu um þá viðamiklu starf-
semi sem þarna fer fram.
Framkvæmdir standa nú yfir
við viðbygginguna. Þar mun
Hjálpartækjabankinn hafa aðset-
ur, en hann er fyrirtæki sem er
rekinn af Rauða krossinum og
Sjálfsbjörgu í sameiningu. Þá
verður þar samkomusalur og
skrifstofur, og ennfremur er á-
formað að Tölvumiðstöð fatlaðra
fái þarna inni.
Að sögn Einars standa vonir til
að verkinu verði lokið í árslok á
næsta ári, og komist viðbyggingin
þá í gagnið.
HS
Jóhanna Þórhallsdóttir söng léttklassískt prógramm við undirleik Svönu
Víkingsdóttur. Mynd: Sig.
Athugasemd
Óvönduð blaðamennska
DV leiðrétt
S.dór vinur minn og blaðamað-
ur á DV fer heldur betur á skjön
við sannleikann í frásögn sinni af
fundi miðstjórnar AB um síðustu
helgi. Samkvæmt fréttaklausu
hans undir yfirskriftinni: „Guð-
rún gekk út af fundinum“ á 44.
síðu í DV í gær (mánud. 28.) „...
veittist Gunnar Guttormsson að
Guðrúnu Helgadóttur, alþingis-
manni, vegna viðtals sem birtist
við hana í DV fyrir skömmu.“
Hið rétta er að ég nefndi hvorki
nafn Guðrúnar né umrætt viðtal í
máli mínu. Mér var meira að
segja allsendis ókunnugt um
þetta viðtal og hef ekki séð það
enn.
í máli mínu á fundinum vék ég
einkum að nauðsyn þess að
landsfundurinn siðar í haust
þyrfti fyrst og fremst að snúast
um hagsmunamál almennings í
landinu og umræður um lög og
skipulag flokksins yrðu að bíða
betri tíma. Þetta væri eina leiðin
til að flokkurinn gæti endurheimt
það traust sem hann hefði verið
að glata undanfarið meðal sinna
fyrri stuðningsmanna. Ég leyfði
mér einnig að hugsa svolítið upp-
hátt um hvað það gæti verið sem
einkum hefði skaðað ásjónu
flokksins útávið. í þessu sam-
bandi lýsti ég vanþóknun minni á
því háttalagi að ýmsir forystu-
menn flokksins hefðu í seinni tíð
látið fjölmiðla hafa sig í það að
gera félaga sína tortryggilega
frammi fyrir alþjóð. Og ég átti
enga aðra skýringu á þessu en þá
að þeir félagar sem þessa iðju
stunduðu teldu slíkar starfsað-
ferðir vænlegar til að lyfta sér upp
í trúnaðarstöður fyrir flokkinn. -
Ég varð ekki við beiðni (framí-
kalli) Guðrúnar og annars
fundarmanns um að nefna nöfn í
þessu sambandi.
Það er eitt af einkennum vand-
aðrar blaðamennsku að kanna
mál frá fleiri en einni hlið. Þetta á
sérstaklega við þegar viðkom-
andi blaðamaður er ekki sjálfur
vitni að því sem fram fer og telur
ástæðu til að segja tvisvar í sömu
fréttinni (án þess að bera nokk-
urn heimildarmann fyrir) að til-
tekin persóna hafi „veist“ að ann-
arri.
Af því sem ég hef hér sagt gátu
mín fátæklegu orð á miðstjórn-
arfundinum varla gefið Guðrúnu
Helgadóttur alþingismanni (öðr-
um forystumönnum fremur) til-
efni til að ganga af fundi. í spor-
um blaðamanns hefði ég leitt get-
um að því að Guðrún hafi gengið
af fundi vegna eigin orða. Mér
fannst þau „stærri" en mín.
Gunnar Guttormsson
---------ALÞÝDUBANDALAGIÐ----------------------------
Alþýðubandalagsfélagið í Keflavík og Njarðvík
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í húsi Verslunarmannafélagsins Hafnargötu
28, næstkomandi miðvikudag 30. september kl. 20.30. Gestur fundarins
verður Ólafur Ragnar Grímsson prófessor. Allir velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir.
Stjórnin
Alþýðubandalagsfélag Selfoss og nágrennis
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haidinn 30. september n.k. að Kirkjuvegi 7,
Selfossi kl. 20.30.
Dagskrá
1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Fulltrúi frá Varmalandsnefndinni gerir grein
fyrir starfi nefndarinnar.
Margrét Frímannsdóttir mætir á fundinn.
Nýir félagar sérstaklega boðnir velkomnir.
Stjórnin
Alþýðubandalagið Norðurlandi eystra
Félagsfundir
Fundir verða í Alþýðubandalagsfélögum á Norðurlandi eystra á eftirtöldum
stöðum:
Raufarhöfn - þriðjudaginn 29. september kl. 20.30.
Kópaskeri - miðvikudaginn 30. september kl. 20.30.
Ólafsfirði - fimmtudaginn 1. október kl. 21.30. Ath. Fundartími kl. 21.30.
Á dagskrá fundanna verður m.a. kosning fulltrúa á kjördæmisþing og á
Landsfund - Stjórnmálaumræður.
Steingrímur J. Sigfússon mætir á fundina.
Nánar auglýst á hverjum stað.
Alþýðubandalagið uppsveitum Árnessýslu
AÐALFUNDUR
Aðalfundur félagsins verður haldinn í Árnesi mánudaginn 5. október kl.
21.00.
Dagskrá: 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
3) Kosning fulltrúa á Landsfund. 4) önnur mál.
Stjórnin
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn fimmtudaginn 30. september kl. 20.30 að
Selási 9 (kjallara).
Fundarefni: 1) Kosning fulltrúa á kjördæmisþing á Iðavöllum.
Hjörleifur Guttormsson alþm. kemur á fundinn og segir frá gangi
stjórnmálanna.
Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna.
Alþýðubandalag Héraðsmanna
Alþýðubandalagið Austurlandi
Aðalfundur kjördæmisráðs
Aðalfundur kjördæmisráðs verður haldinn á Iðavöllum laugardaginn 3.
október kl. 4.00 og lýkur honum kl. 16.00 næsta dag.
Dagskrá fundarins verður samkv. lögum kjördæmisráðs.
Umræða:
Lífskjör á landsbyggðinnl
Framsögu hafa: Kristinn V. Jóhannsson, Álfhildur Ólafsdóttir, Björn Grétar
Sveinsson og Hjörleifur Guttormsson.
Kvöldvaka verður á laugardagskvöldið á vegum Alþýðubandalags Héraðs-
manna. Helgi Seljan fyrrv. alþm. verður gestur kvöldvökunnar sem er öllum
opin.
Gistingu er hægt að fá í orlofshúsum ASA að Einarsstöðum.
Upplýsingar veita: Sveinn í síma 11681 og Sigurjón í síma 11375.
Stjórn kjördæmisráðs
Álfaberg: Fóstrur óskast til starfa á leikskólann
Álfaberg. Upplýsingargefur Júlíana Harðardóttir,
forstöðukona í síma 53021.
Skóladagheimilið Kattholt: Fóstrur óskast til
starfa á skóladagheimilið Kattholt. Upplýsingar
gefa Inga Þóra Stefánsdóttir og Guðrún Árna-
dóttir forstöðukonur í síma 54720.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði
Vinningstölurnar 26. september 1987
Heildarvinningsupphæð: 4.457.256
1. vinningur var kr. 2.234.364,- og skiptist hann á milli 4ra
vinningshafa, kr. 558.591 á mann.
2. vinningur var kr. 668.817,- og skiptist hann á 207 vinn-
ingshafa, kr. 3.231,- á mann.
3. vinningur var kr. 1.554.075,- og skiptist á 6.907 vinn-
ingshafa, sem fá 225 krónur hver.
Uppiýsingasimi:
685111.
Þriðjudagur 29. september 1987 ÞJÓÐVIUINN - SÍÐA 15