Þjóðviljinn - 29.09.1987, Page 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUINN
Þriðjudagur 29. september 1987 215. tðlublað 52. ðrgangur
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Kvikmyndahátíð
Bygging verkamannabústaða
Fækkun hjá Alexander
Lánveitingar úr Byggingarsjóði verkamanna drógustmjög
saman ífélagsmálaráðherratíð Alexanders Stefánssonar.
Leiguíbúðum fjölgar. Helmingi meiri lán til Suðurlands en til
Reykjanesumdœmis
Aðsókn
stígandi
„Aðsókn að Kvflonyndahátiðinni
hefur verið góð og stígandi dag frá
degi,“ sagði Rut Magnússon, fram-
kvæindasfjóri IJstahátíðar við Þjóð-
vfljann i gaer, en Kvikniyndahátíðinni
Kkur í dag.
Alls hofðu um 12 þúsund manns
sótt kvikmyndasýningar á hátíðinni á
sunnudagskvöldið, en um 15 þúsund
manns þurfá að koma til að endar nái
saman. Verði halli á hátíðinni lendir
hann á Listahátíð að sögn Rutar.
Þær kvikmyndir sem hafa fengið
mesta aðsókn eru Komið og sjáið og
Down by law, sem var einungjs sýnd
á sunnudaginn, en rúmlega þúsund
manns hafe séð báðar þessar kvik-
myndir. Hlébarði Lárusar Ýmis hef-
ur fengjð sæmilega aðsókn en er þó
ekki í hópi þeirra mynda sem landinn
virðist hafe mestan áhuga á að sjá.
-Sáf
Lánveitingar úr Byggingarsjóði
verkamanna drógust mikið
saman í tíð Alexanders Stefáns-
sonar sem félagsmálaráðherra
samanborið við fjöldann næstu
tvö árin á undan.
Árið 1981 voru veitt lán til 205
íbúða og árið 1982 til 304 íbúða.
Árið 1983 fækkaði íbúðunum í
158 en árið 1984 fjölgaði þeim í
verkamannabústöðum aftur og
voru þá 174. Næstu tvö árin voru
byggðar um 150 nýjar íbúðir í
Verkamannabústaðakerfinu.
1985 og ‘86 var einnig nokkuð um
að keyptar væru íbúðir á al-
mennum markaði, 14 fyrra árið
og 95 seinna árið.
í ár er búist við að gerðir verði
nýir framkvæmdalánssamningar
vegna 222 íbúða í verka-
mannabústöðum og 187 leigu-
íbúða.
Undanfarin ár hefur orðið
mikil aukning á lánveitingum
vegna leiguíbúða. Þannig voru
samþykkt 41 lán til leiguíbúða
árið 1986 og samanlagt einungis
17 lán árin 1983, 1984 og 1985.
1. ágúst sl. lágu fyrir 422 um-
sóknir til bygginga leiguíbúða og
445 til bygginga verkamanna-
bústaða.
Árið 1986 skiptust lánveitingar
úr Byggingarsjóði verkamanna
þannig eftir landshlutum að rúm
60% fóru til Reykjavíkur en að-
eins 7,7% fóru til Reykjaness. Til
Suðurlands fóru hinsvegar rúm
13% og Norðurland vestra fær
nærri jafn mikið í sinn hlut og
Reykjanes eða 6,1%.
Að sögn Sigurðar E. Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Húsnæðisstofnunar er það fyrst
og fremst undir sveitarfélögunum
sjálfum komið hversu mikið
kemur í hlut hvers og eins. Á
Reykjanesi hafa tvö sveitarfélög
staðið mjög framarlega hvað
verkamannabústöðum viðvíkur,
en það eru Kópavogur og Hafn-
arfjörður. Sveitarfélögin á
Suðurnesjum hafa hinsvegar ekki
staðið sig sem skyldi og lítið sem
ekkert verið byggt af félagslegum
íbúðum þar.
-Sáf
Hátt í 2 þúsund manns mættu á útifund við Hlógarð á sunnudag þegar Ibúar Mosfellsbæjar kröfðust úrbóta í umferðaröryggismálum á Vesturlandsvegi.
Mynd: Sig.
Afvopnun
Ráðum litlu um höfin
Steingrímur Hermannsson: Fagna þessu litla skrefi í viðræðum
risaveldanna. Erfylgjandi kjarnorkuvopnalausum Norðurlöndum
Ymsir ráðamenn á Norður- laup ó jaðarsvæðunum svoköllu-
löndum óttast að nú sé í upps- ðu, þar á meðal í Norðurhöfum,
iglingu aukið vígbúnaðarkapph- ef samið verður um eyðingu allra
Hvalveiðar
Vertíð lokið
Hvalvertíðinni lauk um helg-
ina. Á sunnudag komu Hval-
ur 8 og Hvalur 9 til hafnar með
sex síðustu sandreyðarnar og þar
með lauk þessari umdeildu vert-
íð. í dag er búist við að verkun á
plani ljúki.
Alls voru veidd hundrað dýr í
sumar, þar af 80 langreyðar og 20
sandreyðar. Áformað hafði verið
að veiða 40 sandreyðar en þegar
ljóst var að slíkt stofnaði við-
skiptum íslendinga í Bandaríkj-
unum í hættu skar ríkisstjómin
kvótann niður um helming.
-Sáf
meðaldrægra eldflauga í Evrópu.
„Það má vera að menn hafi
áhyggjur af þessu,“ sagði
Steigrímur Hermannsson, utan-
ríkisráðherra við Þjóðviljann í
, gær-
Menn hljóta samt sem áður að
fagna þeim áfanga sem nú virðist
vera að nást. Hann er kannski
ekki stór en þýðir þó að það er
í snúið af braut framleiðslukapph-
laupsins og farið að draga saman
kjarnavopn.
Aðalatriðið er samt að eftir
þetta fyrsta skref, sem er satt að
segja sáralítið, kannski 3-4% af
kjarnorkustyrkleikanum, þá
þurfa að fylgja önnur og það sem
fyrst.“
Steingrímur sagðist telja að öll
rfki ættu að þrýsta á að framhald
yrði á samkomulagi risaveld-
anna. Hvað varðaði hugmyndina
um kjamorkuvopnalaus Norður-
lönd, þá sagðist hann fylgjandi
henni, en sá hængur væri á því að
Norðurlöndin fengju tæpast
neinu ráðið um vígbúnaðinn i
Norðurhöfum. „Það er mjög ól-
íklegt að við getum nokkm ráðið
um það hvað gerist í hafinu á milli
okkar.“ -Sáf
Sjá bls. 10
Vesturlandsvegur
Munum fylgjast
grannt með
„Þátttaka íbúa Mosfellsbæjar I
þessum grasrótaraðgerðum okk-
ar var miklu meiri en bjartsýn-
ustu menn þorðu að vona í upp-
hafi og ég er ekki frá því að á
útifundinum hafi verið um 2 þús-
und manns eða meira en helming-
ur bæjarbúa. Seinna í vikunni
verða málefni Vesturlandsvegar
rædd meðal bæjar- og skipulags-
yfirvalda og við munum fylgjast
grannt með því hvað yfirvöld
hyggjast gera f framhaldi af okk-
ar aðgerðum,“ segir Birgir D.
Sveinsson, skólastjóri í Mosfells-
bæ.
áíðastliðinn sunnudag lokuðu
ibúar Mosfellsbæjar hluta Vest-
urlandsvegar til að vekja athygli á
nauðsynlegum úrbótum sem
brýnt er að gera á veginum, þar
sem hann liggur í gegnum bæinn.
En á síðustu misserum hafa orðið
á veginum þrjú banaslys með
stuttu millibili. í lok útifundarins
var starfandi samgönguráðherra,
Birgi tsleifi Gunnarssyni, afhent
ályktun fundarins þar sem skorað
er á yfirvöld að hlutast til um
breytingar á veginum til aukins
umferðaröryggis. - grh
Margeir hefur
forystu
í gærkveldi var tefld tiunda umfcrð
f landsliðsflokki á Skákþingi íslands á
Akureyri. Mikill baráttuhugur var f
mönnum svo sem ráða má af úrslitum
þvf ekki var samið um skiptan hlut f
neinni viðureignanna!
Úrslit urðu sem hér segir: Margeir
Pétursson vann Dan Hansson, Helgi
Ólafsson sigraði Jón G. Viðarsson,
Hannes H. Stefánsson vann Ólaf
Krístjánsson, Karl Þorsteins sigraði
Áskel Ö. Kárason, Davíð Ölafsson
lagði Gunnar Frey og Þröstur Þór-
halisson vann Sævar Bjamason. Skák
Þrastar Ámasonar og Gylfa Þórhalls-
sonar var ólokið er tíðindi bámst en
sá fyrmefndi var talinn standa til
vinnings.
Margeir er enn efstur jvegar þrem
umferðum er ólokið, hefur 9 vinn-
inga. í öðm sæti er Helgi með 8 v.
Hannes hefur 6 og hálfan en í 4.-5.
sæti em Karl og Davíð með 6 vinn-
inga.___________________-ks.