Þjóðviljinn - 07.10.1987, Side 1
Miðvikudagur 7. október 1987 222. tölublað 52. árgangur
Opinberir starfsmenn
Ekki framhjá okkur
Birgir Björn Sigurjónsson, hagfrœðingur BHMR: Draumórar að hœgt verði að
semjaframhjá opinberum starfsmönnum. Mikill órói vegna gífurlegslaunaskriðs
að er túlkun ýmissa forystu-
manna í launþegahreyflng-
unni að verði launaleiðréttingar á
almennum markaði fyrir áramót,
þá gefi það ekki tilefni til að
leiðrétta laun opinberra starfs-
manna sem samið hafa út árið
1988. Þarna finnst mér mjög
hættuleg hugsun vera á fcrðinni.
Það eru draumórar að hægt sé að
semja framhjá opinberum starfs-
mönnum, sagði Birgir Björn Sig-
urjónsson, hagfræðingur Banda-
lags háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna í samtali við Þjóð-
viljann í gær.
- Sá skilningur var fyrir hendi,
undantekningarlaust, þegar við
sömdum á sínum tíma, að allir
samningar á almennum vinnu-
markaði, væru bundnir út árið
1987 og að nýir samningar kæmu
ekki til fyrr en á árinu 1988. Þvi er
útí hött að líta svo á að hægt sé að
semja á almennum markaði fyrir
áramót og láta opinbera starfs-
menn missa á þann hátt af eðli-
legri hlutdeild launakökunnar.
Ég held að atvinnurekendur geri
sér þetta ljóst, enda eru þeir í
nánum tengslum við okkar at-
vinnurekendur, sagði Birgir
Björn.
Hann sagði jafnframt að stað-
an sem nú væri komin upp í
launamálum væri yfirgengileg. -
Við höfum horft upp á gífurlegt
launaskrið sem er kannski sér-
staklega bundið við ákveðnar
greinar efnahagslífsins. Þetta
hefur valdið miklum óróa meðal
opinberra starfsmanna, þar sem
við sitjum í föstum samningum út
næsta ár, sagði BirgirBjörn.
Kópavogur
SÍS flytur!
Skrifað undir um helgina
Forystumenn Sambandsins
hafa afráðið að flytja höfuðstöðv-
ar þess á Smárahvammsland í
Kópavogi, og var skrifað undir
drög að samningi SIS og land-
eigenda nú um helgina, að því er
áreiðanlegar heimildir Þjóðvilj-
ans herma.
Tilboð Reykjavíkurborgar um
að halda SIS í borgarlandinu
munu ekki hafa þótt nógu hag-
stæð, og er nú aðeins eftir að fín-
pússa kaupsamninginn við
Smárahvammslandeigendur og
bera hann upp til samþykkis í
framkvæmdastjórn SÍS.
Kaupverðið mun vera á bilinu
110-120 milljónir. -*®
Loftmengun
Lítil sem
betur fer
Sleppumvel, en
mengun berst þó í lofti.
„A Veðurstofunnj eru til
gögn um mengunarmælingar
sem hafa staðið í áratugi, sem
fáir vita um, og því hef ég
áhuga á að koma þeim fyrir
almenningssjónir,“ sagði
Hreinn Hjartarson veður-
fræðingur, einn framsögu-
manna á ráðstefnu Alþýðu-
bandalagsins um umhverfis-
mál á sunnudaginn i Gerðu-
bergi. Erindi sitt nefnir hann
Loftmengun handan um höf.
„Hér hafa verið gerðar
mælingar á geislavirkum efn-
um í úrkomu og andrúmslofti,
og eins mengunarefnum, til
dæmis brennisteini.“
Að sögn Hreins berast
Veðurstofunni oft fyrirspurn-
ir erlendis f rá, enda er gj aman
litið á ísland sem mælikvarða
á ómengað umhverfi. Hingað
berast þó mengunarefni, en
magnið er sem betur fer lítið
ef við berum okkur saman við'
Norðurlöndin. HS
Hreinn Hjartarson veðurfræðingur líturtil himins eftir mengun. A ráðstefnu AB á sunnudag fjallar hann um íslenskar og erlendar mengunarmælingar í lofti og
úrkomu. Mynd: E.ÓI.
Útvegsbankasala
Erlent verkafólk
Krístján
til Jóns
Vilja 1500 manns árlega
Ekkertgerst ífjarveru
viðskiptaráðherra
Kristján Ragnarsson oddviti
þeirra 33 sem bauð í Útvegs-
bankann gegn SÍS hefur verið
kallaður á fund viðskiptaráð-
herra í dag, og er jafnframt búist
við að ráðherra ræði við SÍS-
menn í dag eða á morgun.
Síðan Jón Sigurðsson fór til
Vesturheims fyrir viku hafa við-
ræður um málið legið niðri og
verið dauflegar þar áður. Krist-
ján Ragnarsson sagði í gær að það
væri á könnu ráðherra að hefja
þær aftur ef hann vildi, en sagðist
að öðm leyti hafa lofað Jóni að
tala ekki um málið meðan Jón
væri burtu, ,,-og ætli það gildi
ekki enn“.
Fyrsti viðræðufundurinn var
haldinn 3. september og var í
fréttatilkynningu ráðherra gert
ráð fyrir að þeim lyki fyrir síðustu
mánaðamót. -m
Islenska atvinnumiðlunin, sem
annast milligöngu um ráðningu
erlends vinnuafls til starfa hér á
landi, ráðgerir að varanleg þörf
eftir erlendu vinnuafli sé um 1500
manns. - Til skemmri tíma erum
við að tala um allt að nokkur þús-
und manns, sagði Eyjólfur Haf-
stein, hjá Islensku atvinnumiðl-
uninni.
- Fyrirtæki í fiskvinnslu, iðn-
aði, verslun og jafnvel opinberar
stofnanir hafa mikið spurst fyrir
eftir erlendu vinnuafli. Síðan við
hófum starfsemi fyrir skömmu,
höfum við útvegað um 15 manns
vinnu hér og það er ekkert lát á
fyrirspurnum og pöntunum,
sagði Eyjólfur.
- Ég sendi milli 50 og 60 manns
heim fyrstu tvo mánuði ársins og
frá því í ágúst og til september-
loka hef ég sent annan eins
fjölda. Þannig að allt í allt eru
þetta um 120 manns sem ég hef
ráðið á árinu til starfa í fiskvinns-
lunni heima. Þeir sem ég sendi
fyrr á árinu eru núna trúlega flest-
ir að búa sig til heimferðar, enda
þeirra ráðningartími á enda,
sagði Óskar Guðmundsson, hjá
söluskrifstofu SH í Grimsby, en
skrifstofan hefur annast ráðningu
erlends verkafólks til fiskvinnslu-
starfa hér á landi.
Við munum þó ekki ráða fólk
til starfa ef það er gegn vilja
verkalýðsfélaganna, sagði Ósk-
ar.
Gunnar Egilsson, hjá sjávaraf-
urðadeild SÍS, sagði að undanfar-
inn mánuð hefði skrifstofa Sam-
bandsins í London annast milli-
göngu um ráðningu 20 manna er-
lendis frá til starfa. Engar opin-
berar tölur eru til um fjölda út-
lendinga í störfum hér á landi.
Eins og kunnugt er þurfa Norður-
Iandabúar ekki atvinnuleyfi og er
því alls ókunnugt um fjölda
Norðurlandabúa á íslenskum
vinnumarkaði. Flestir þeirra sem
hafa verið ráðnir eru frá Nýja
Sjálandi, Ástralíu og Suður-
Afríku.
-rk
Bandaríkin
Bork burstaður burt
Maður Reagans í Hœstarétti bíður afhroð fyrir þingnefnd
Níu-fimm var niðurstaðan þeg-
ar dómsmálanefnd öldunga-
deildarinnar greiddi atkvæði um
Robert Bork, sem Reagan Banda-
ríkjaforseti hafði tilnefnt i Hæst-
arétt. Nefndin leggur til að þing-
deildin hafni manni forsetans, og
er það mikið áfall fyrir Hvíta hús-
ið.
Hefði Bork verið valinn hefði
komist á íhaldsmeirihluti í hinum
valdamikla Hæstarétti Banda-
ríkjanna, og hefur verið haft á
orði að slíkur meirihluti hefði
orðið áþreifanlegasti arfur Reag-
ans í bandarísku þjóðlífi, og hald-
ist frammá næstu öld.
Sjá síðu 11