Þjóðviljinn - 09.10.1987, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.10.1987, Blaðsíða 1
Föstudagur 9. október 1987 224. tölublað 52. örgangur Erlent vinnuafl Síldarvertídin Fáskrúðs- firðingar fyrstir Allt tilbúið til söltunar hjá Pólarsíld. Síld á Héraðsflóa „Fyrsti báturinn frá Fáskrúðs- firði fór á miðin í hádeginu í gær til síldveiða. Það var Guðmundur Kristinn SU. Hjá PólarsQd er allt tilbúið undir söltun og ef að líkum lætur kemur fyrsta sfldin á vertíð- inni hingað í dag. Að vísu hefur sfldar ekki enn orðið vart hér úti fyrir en heyrst hefur um sfld á Héraðsflóa,” segir Eiríkur Stef- ánsson, formaður verkalýðs- og sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar. Að sögn Jóns B. Jónassonar, skrifstofustjóra í sjávarútvegs- ráðuneytinu, hafa 90 bátar leyfi til sfldveiða og má hver bátur veiða 800 tonn í ár en í fyrra var kvótinn 100 tonnum minni á hvern bát eða 700 tonn. Heildar- kvótinn á vertíðinni er því um 72 þúsund tonn. Nú þegar er búið að ganga frá samningum við Svía og Finna um kaup á síld, en ekki hefur enn verið samið við Rússa, sem hing- að til hafa verið okkar stærstu sfldarkaupendur. -grh Útvegsbankinn Frelsun að utan? Erlendir bankar síðustu hugmyndir að lausn í Útvegsbankaklúðrinu „Við samþykktum að kanna af- stöðu okkar manna til hugmynda viðskiptaráðherra og ég býst við að þeirri könnun verði lokið fljót- lega eftir helgi,“ sagði Guðjón B. Ólafsson við Þjóðvfljann eftir fund sinn með Jóni Sigurðssyni viðskiptaráðherra í gær. Guðjón vildi ekki fara nánar út í hvaða hugmynd ráðherra hefði kynnt á fundinum, en þar mun meðal annars hafa verið rætt um að bjóða erlendum bönkum hlut auk SÍS og KR-inganna, auk þess sem ráðherrann er enn að kanna hvort sparisjóðirnir geti hugsað sér að koma inn í myndina. -Sáf Eyjólfur Hafstein hjá Islensku atvinnumiðluninni heldur hér á ráðningarsamningum við erlent verkafólk. (baksýn er Jón Kristleifsson önnum kafinn við að taka við fyrirspurnum og pöntunum atvinnrekenda á erlendu vinnuafli. Mynd E. Ól. Atvinnurekendur greiða ís- lensku atvinnumiðluninni sem svarar 70% af einum mánað- arlaunum hvers og eins starfs- manns sem atvinnumiðiunin út- vegar þeim. - Þetta er ívið lægra hlutfall en sambærileg fyrirtæki erlendis taka fyrir sína þjónustu, sagði Eyjólfur Hafstein hjá íslensku atvinnumiðluninni. - Vissulega finnst sumum at- vinnurekendum þetta há þókn- un, en þegar þeim er gerð grein fyrir þeim kostnaði sem er því samfara að útvega starfsmenn er- lendis frá, skilja þeir okkar sjón- armið, sagði Eyjólfur. Að sögn Eyjólfs er margvís- legur kostnaður því samfara að ráða fólk frá útlöndum til vinnu hér á landi, s.s. við auglýsingar, símtöl og kostnaður við umboðs- menn erlendis, en íslenska at- vinnumiðlunin hefur þegar ráðið sér umboðsmann á írlandi og er að sögn Eyjólfs mikill áhugi hjá atvinnulausum írum að ráða sig í vinnu hér á landi. Ráðningarsamningarnir sem íslenska atvinnumiðlunin gerir, eru til sex mánaða. Atvinnurek- andi tekur að sér að greiða flugfar fyrir viðkomandi starfsmann, að heiman og heim að ráðningatíma loknum og sér honum fyrir húsa- skjóli meðan á dvölinni stendur. Launþegi getur sagt samningnum upp með 14 daga fyrirvara, en þá fær hann ekki greidda heimferð- ina og er gert að endurgreiða at- vinnurekanda 30% af útlögðum kostnaði við ráðninguna. Ljóst er að talsverður kostnað- ur er því samfara fyrir fyrirtæki að útvega sér erlent starfsfólk með þessum hætti. Miðað við starfsmann sem ráðinn er á lág- markslaunum, sem telja núna 29.975 krónur á mánuði, greiðir atvinnurekandi 20.982 krónur fyrir hvern erlendan starfsmann. Þá er ekki meðtalinn sá kostnað- ur sem fylgir því að hýsa starfs- manninn og ferðakostnaður. Fyrir hverja 10 starfsmenn gerir þetta rúm 209 þúsund og fyrir hverja 20 tæpar 420 þúsund krón- ur. -rk Sölvhólsgata Seld í dag Kaupverð 280 milljónir Gengið verður frá kaupum rfldsins á Sambandshúsinu við Sölvhólsgötu fyrir hádegi í dag. Kaupverðið er 280 milljónir króna. Samkvæmt heimildum Þjóð- viljans var verið að fínpússa samninginn í gær og verður hann undirritaður nú fyrir hádegi. Einsog fram hefur komið í Þjóðviljanum þá leggja fjármála- ráðherra og viðskiptaráðherra mikla áherslu á að Sambandið rými húsið sem fyrst og er talið að gengið verði frá kaupum Sam- bandsins á Smárahvammslandi nú um helgina og framkvæmdir við nýtt hús hefjist mjög fljót- lega. -Sáf Tæp mánaðariaun fyrir verkamanninn Umtalsverður kostnaður við ráðningu erlends verkafólks. íslenska atvinnumiðlunin tekur 70% af mánaðarlaunum í þóknun. Eyjólfur Hafstein: Lœgra gjald en hjá erlendum atvinnumiðlunum. Verkafólk látið endurgreiða kostnaðinn að hluta segiþað upp Verkalýðshreyfingin „Skipulagslegt slys“ HrafnkellA. Jónsson: Skipulag launþegahreyfingarinnar steinrunnið. Jón Karlsson: Þarfað stokka spilin uppá nýtt Verkamannasambandsþingið mun trúlega snúast mikið til um óumflýjanlegar skipulags- breytingar. Skipulag launþega- hreyflngarinnar er slys, sem er kjarabáttunni í raun og veru fjötur um fót, sagði Hrafnkell A. Jónsson, formaður Árvakurs á Eskifirði. í tillögum skipulagsnefndar VMSÍ, sem verða innan skamms kynntar aðildarfélögunum, er gert ráð fyrir að VMSÍ verði deildaskipt eftir starfsgreinum, - starfsfólk í fiskvinnslu, bygginga- og mannvirkjagerð og hjá ríki og sveitarfélögum skipi sína deildina hvert og deildirnar hafi sjálfstæð- an samningsrétt. - Verkamannasambandið þarf að stokka spilin upp að nýju. Þetta hefði átt að vera búið löngu fyrr. Ég tel að þær tillögur að skipulagsbreytingum sem liggja fyrir geti komið að verulegu leyti til móts við ólík sjónarmið hinna ýmsu starfsgreina, sagði Jón Karlsson, formaður verka- mannafélagsins Fram á Sauðár- króki. - Ég tel að þessar breytingar gangi of skammt, sagði Hrafnkell. Hrafnkell sagði að það væri ekki nóg að gera skipulagsbreyt- ingar á Verkamannasamband- inu. - Skipulagsumræður innan ASÍ koðnuðu jafn skjótt og þær hófust hér um árið. Það virðist vera að þessar umræður strandi oft á því að með skipulagsbreyt- ingum þarf að fækka fyrirmönn- unum, sagði Hrafnkell. -rk

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.