Þjóðviljinn - 09.10.1987, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 09.10.1987, Blaðsíða 5
Ar frá leiðtogafundi Ar frá leiðtogafundi Ar frá leiðtogafundi Ar frá ieiðtogafundi Nú um helgina er ár liðið síðan leiðtogar risaveldanna mættust á fundi í Reykjavík. Bandaríkjaforseti lenti að kvöldi fimmtudagsins 9. okt- óber, leiðtogi Sovétríkjanna degi síð- ar, fundur þeirra hófst laugardaginn 11. október. Reykjavíkurfundurinn hefur mark- að spor í samtímasögunni, og hann hefur ekki síður haft áhrif á íslenskt samfélag. Nú, ári síðar, ræddi Þjóð- viljinn við nokkra áhugamenn og á- hrifamenn í friðar- og afvopnunar- málum og frammámenn í viðskiptum og spurði um áhrif leiðtogaíundar- ins, heima og heiman. „i^aðvönum við öir Friðarfundur í kvöld Rlsaveldin í Reykjavík Hundrað herbergi takk Þingsætunumallt! I2. Samkomulag að feðast? Ronald Reagan og Mikaíl Gorbatsjof á tröppum Höfða í upphafi fyrsta viðræðu- fundarins. (Mynd: EÓI) Merkasli leiðtoga- fundur í aldarfjórðung Ólafur Ragnar Grímsson: Nafn Reykjavíkur orðið tákn raunhœfra vona um afvopnun og heim án kjarn- orkuvopna Þegar landsmenn höfðu horft daglangt á hurðarhúninn á Höfða og beðið í mikilli eftirvæntingu urðu niðurstöður leiðtogafundar- ins fyrir ári nokkur vonbrigði fyrir marga, þeir Reagan og Gorbat- sjof héldu brott án þess að hafa undirritað formlegt samkomulag, sagði Óiafur Ragnar Grímsson prófessor og formaður alþjóð- legu þingmannasamtakanna PGA. - Nú ári síðar er ljóst og al- mennt viðurkennt meðal forystu- manna í alþjóðamálum að Reykjavíkurfundur Reagans og Gorbatsjofs er í reynd merkasti fundur leiðtoga stórveldanna síð- asta aldarfjórðunginn. - Það er einkum þrennt sem hefur gert fundinn að slíkum tímamótaatburði. Það hafði ríkt hættuleg spenna í samskiptum stórveldanna í næstum áratug, en margt bendir til að nú sé hafið slökunartímabil með auknum samskiptum stórveldanna á margvíslegum sviðum. Nýtt tíma- bil bættrar sambúðar virðist hafa hafist í Reykjavík fyrir ári. - í öðru lagi var þá lagður grundvöllur að samningi sem nú virðist nær fullgerður um fækkun kjarnavopna í Evrópu. Þetta er fyrsti samningur stórveldanna um raunverulega afvopnun, allir aðrir samningar hafa fjallað um að hafa hemil á aukningu í vopna- búrunum. Það á eftir að hafa margvísleg áhrif á viðhorf til víg- búnaðar og afvopnunarmála þeg- ar fjölmiðlar flytja fréttir um að verið sé að flytja vígtólin burt og Framhald á síðu 6 Ahrif til lengri tíma Erna Hauksdóttir, framkvœmdastjóri Sambands veitinga- oggistihúsa: Besta og ódýrasta landkynn- ingin „Leiðtogafundurinn og skák- einvígið eru þeir tveir atburðir sem hafa kynnt ísland best er- lendis," sagði Erna Hauksdóttir, framkvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsa, þegar Þjóðviljinn spurði hana hvaða áhrif hún teldi að leiðtogafundur- inn hefði haft á ferða- mannaiðnaðinn hér á landi. Erna sagði að það væri erfitt að segja nákvæmlega um það hvaða áhrif fundurinn hefði haft á ferð- amannastrauminn til landsins þar sem engin könnun hefði verið gerð á því. „Það er t.d. ómögulegt að segja hvaða bókanir hingað tengjast fundinum beint en fyrst eftir fundinn veit ég að það bárust margar fyrirspurnir til gistihúsa. Að sögn Ernu var traffíkin á hótelum í Reykjavík í sumar lítið meiri en í fyrra og nýting gisti- rýmis í svipuðu hlutfalli bæði árin. Á það ber þó að líta að gist- irými jókst töluvert á árinu. „Hinsvegar eru allir sammála um að þetta var gífurlega góð landkynning, og sennilega sú ódýrasta sem kostur er á og ég er handviss um að þetta á eftir að skila sér þó seinna verði. Fólk í nágrannalöndum okkar skipu- leggur yfirleitt sumarfrí sín ár fram í tímann þannig að áhrifin af leiðtogafundinum geta verið Iengi að skila sér.“ -Sáf

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.