Þjóðviljinn - 09.10.1987, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 09.10.1987, Blaðsíða 3
nÖRFRÉTTIRMH Stórfelld söluaukning hefur orðið hjá lceland Seafood, dótturfyrirtæki Sambandsins í Hull í Bretlandi. [ september seldi fyrirtækið fyrir um 350 miljónir ís- lenskar sem er mesta sala í ein- um mánuði frá því fyrirtækið tók til starfa fyrir 6 árum. Alls voru seld í mánuðinum tæp 2.500 tonn sem er ríflega 20% sölu- aukning miðað við sama mánuð í fyrra. Reykjavík - fundarstaður framtíðarinnar, er yfirskrift ráð- stefnu sem Ferðamálanefnd Reykjavíkurborgar gengst fyrir á sunnudag í Holiday Inn hótelinu. Aðalræðumaður ráðstefnunnar verður Frank Mankiewicz frá Bandaríkjunum sem mun fjalla um hvernig aðrar þjóðir hafa markvisst byggt upp ferða- og ráðstefnuþjónustu á fáum árum. Dagblaðið Dagur á Akureyri hefur opnað skrifstofu í Reykjavík að Öldugötu 27 þar sem starfsmaður blaösins í höf- uðborginni, Andrés Pétursson hefur aðsetur. Dagur kemur nú út daglega í 6 þúsund eintökum. Breiðholtsbúar sem taka hraðleiðirnar 13 og 14 hjá SVR ættu að aðgæta að frá og með næstu viku hætta þessir vagnar að aka Bústaðaveg og Listabraut um kvöld og helgar, heldur halda sig alfarið við Miklu- brautina. íslenski vodkinn Eldurís hefur fengið góöar við- tökur í kynningarherferð sem staðið hefur yfir í Kentucky og Baltimore í Bandaríkjunum síð- ustu vikurnar. í gær var haldin sérstök kynning á þessari nýju útflutningsafurð í höfuðborginni Washington. Jón ísleifsson cand. theol, verður vígður til prestþjónustu í Sauðlauksdals- prestakalli við guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 11.00 á sunnu- dag. Söfnuðurnir í Sauðlauksdal hafa kallað Jón til starfa næstu tvö árin. Útflutningsráð hefur tekið saman og gefið út skrá yfir helstu vörusýningar á næsta ári í Evrópu og N-Ameríku. Alls eru í skránni upplýsingar um á fjórða hundrað sýningar. Ólafsvík Ogætilegt orðalag í frétt í Þjóðviljanum í gær um bæjarstjórn Ólafsvíkur mátti misskilja texta þarscm talað var um að Kristján Pálsson bæjar- stjóri „tengdist fjárhagsstöðunni (þ.e. stöðu bæjarsjóðs Ólafsvík- ur) persónulega“. Tekið skal fram að hér er eng- an veginn átt við eða gefið í skyn að bæjarstjórinn hafi gerst sekur um fjárpretti eða nokkurskonar ólöglegt athæfi, og biður Þjóð- viljinn Kristján og aðra hlutað- eigendur afsökunar á þessu ógætilega orðalagi. Ritstj. FRÉTTiR SAL erlendis? Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna 50 milljarðar. Tvöfaldast á næstu sjö árum. Aðalfundur SAL ígœr. Hugmyndir um að lífeyrissjóðirnirfjárfesti erlendis kynntar áfundinum. Viðskiptaráðherra telurslíkt eðlilegt. Benedikt Davíðsson kjörinn formaður SAL Ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna er um 50 milljarðar nú og áætlað er að það tvöfaldist að raungildi á næstu sjö árum. Þetta kom fram á aðalfundi SAL í gær. Á fundinum komu einnig fram róttækar hugmyndir í erindi Sig- urðar Stefánssonar hagfræðings, um að lífeyrissjóðirnir ættu í framtíðinni að leita með hluta af ráðstöfunarfé sínu á erlenda fj ármagnsmarkaði. Sigurður rökstuddi mál sitt með því að dreifa þyrfti fjárfest- ingaráhættunni og að íslenskur fjármagnsmarkaður væri alltof viðkvæmur til þess að allt ráð- stöfunarféð væri bundið á hon- um. Sagði Sigurður að fjárfest- ingar lífeyrissjóðanna væru alltof einhæfar. Auk þess sem aukið ráðstöfunarfé lífeyrissjóðanna á næstu árum verður til þess að markaðurinn mun mettast. Ástæða þess að ráðstöfunarféð mun aukast þetta mikið er að ið- gjaldatekjur munu aukast um 10% fyrir hvert ár 1987 til 1990 þar sem í áföngum á að taka upp iðgjaldagreiðslur af öllum tekj- um en ekki bara dagvinnutekjum einsog hingaðtil. Hugmyndir Sigurðar fengu mjög mismunandi viðbrögð og voru af ýmsum taldar alltof rót- tækar, en flestir virtust sammála um að þær væru athyglisverðar, þar sem sú staða er að koma upp að lífeyrissjóðirnir verða að fara að skoða betur hvernig þeir binda fé sitt. Benedikt Davíðsson var kjör- inn formaður SAL til næstu tveggja ára og Þórunn Sveinbjörnsdóttir, formaður Sóknar, kom ný inn í stjórn. -Sáf Flugleiðamennirnir, Þórður Jónsson til vinstri og Sveinn Sæmundson brosa breitt í dag sem endranær, enda verður afmælissýningin vegna 50 ára afmælis flugs á Islandi opnuð á Hótel Loftleiðum klukkan 16. (Mynd: Sig.) Afnuelissýning Atvinnu- flug í 50 ár Afmælissýning vegna 50 ára at- vinnuflugs á íslandi verður opn- uð formlega í dag klukkan 15 fyrir gesti að Hótel Loftleiðum, en klukkutíma seinna fyrir al- menning. Hún stendur yfir alla helgina og opin frá klukkan 16- 20. í tilefni sýningarinnar lækka Flugleiðir innanlandsfargjöld til Reykjavíkur um heiming. Áð sögn Sveins Sœmundssonar hjá Flugleiðum, sem borið hefur hitann og þungann af uppsetn- ingu afmælissýningarinnar, eru mestu gersemarnar Waco- flugvélin TF Örn sem keypt var til landsins 1937 og Stinson Re- liant flugvél, sams konar og sú sem Loftleiðir keyptu hingað um áramótin 1943/1944. -grh Fiskeldi 20 stóritvíar við Reykjavík Atvinnumálanefnd borgarinnar vill aukafiskeldi íKollafirði. Össur Skarphéðinsson: Bestu skilyrðin semfyrirfinnast ílandinu Bestu skilyrðin fyrir stórkvía- eldi eru tvímælalaust hér í Faxaflóa og Kollafirði. Hér koma hlýir straumar og sjórinn er mjög hreinn og aðstæður allar hinar bestu, segir dr. Össur Skarphéð- insson ritsjóri og fiskeldisfræð- ingur. Atvinnumálanefnd Reykjavík- ur hefur boðað til ráðstefnu í lok næstu viku um fiskeldi við Reykjavík. Á ráðstefnunni verð- ur fjallað um kosti og galla fisk- eldis og þá einkum með tilliti til aðstöðunnar við Reykjavík. Fjórar stórar eldiskvíar eru nú á Kollafirði en ef þær væru 20 eins og Össur telur vel framkvæman- legt og hver gæfi af sér um 200 tonn á ári yrði framleiðsluverð- mætið um 1.6 miljarðar á ári. Á ráðstefnunni mun m.a. írski fiskeldisfræðingurinn Barney Wheelan, flytja erindi um stór- kvíar en hann er manna fróðastur um rekstur slíkra kvía, enda hef- ur hann umsjón með 6 eldisstöðv- um á írlandi sem írsku orku- veiturnar reka, en þær eiga 9 stór- kvíar. Þá verður fjallað um reynsluna af fiskeldi við Reykjavík, sjúk- dóma í sjávareldi, hugsanleg áhrif á náttúrulega laxagengd í ám á Reykjavíkursvæðinu og ým- isiegt fleira. Að undirbúningi ráðstefnunn- ar hafa unnið auk Össurar þeir Barði Friðriksson og Eggert Jónsson borgarhagfræðingur. H.C. Andersen- verðlaunin Guðrún og Brian tilnefnd Guðrún Helgadóttir og Brian Pilkington hafa verið tilnefnd fyrir Islands hönd til hinna virtu H.C. Andersen barnabókaverð- launa. Verðlaunin eru veitt fyrir framlag til barnabókaritunar annars vegar og myndskreytingar hins vegar. H.C. Andersen verðlaunin hafa verið kölluð „Litlu nóbels- verðlaunin” og eru æðstu alþjóð- legu verðlaun sem veitt eru fyrir barnabækur. En þetta er í fyrsta sinn sem íslengingar eru tilnefn- dir til þessara verðlauna, sem verða veitt í Osló í september 1988. -ekj -*g- Þingforseti Framsókn vill bara Þorvald Aþingflokksfundi í dag gera Sjálfstæðismenn útum það hvort þeir halda Þorvaldi Garð- ari Kristjánssyni í forsetastóli sameinaðs alþingis eða senda þangað konu, annaðhvort Ragn- hildi Helgadóttur fyrrverandi ráðherra og eittsinn forseta neðri deildar eða Salóme Þorkelsdóttur forseta efri deildar á síðustu þing- um. Konur í flokknum þrýsta mjög á um að Þorvaldur Garðar víki fyrir annarri hvorri konunni og benda á karlaval í ráðherrastól- um flokksins. Þorvaldur Garðar mun hins- vegar staðráðinn í að láta hvergi undan, og í gær kom Tíminn hon- um til hjálpar með því að upplýsa að Framsóknarmenn hefðu sett framhaldsveru hans í embættinu að skilyrði fyrir því að Sjálfstæð- ismenn fengju forseta þingsins. Allajafna er forseti sameinaðs al- þingis ekki samflokksmaður for- sætisráðherra samkvæmt vinnur- eglum íslenskra samsteypu- stjórna. Innan þingliðsins eru skiptar skoðanir um forsetaframbjóð- enduma en helst hallast menn að því að Þorvaldur Garðar haldi tign sinni, ekki síst vegna þess að þær Ragnhildur og Salóme hafa ekki komið sér saman og ráðast því að Þorvaldi með tvísýnni tangarsókn. -m Föstudagur 9. október 1987 [ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.