Þjóðviljinn - 09.10.1987, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 09.10.1987, Blaðsíða 13
Aðalfundur Öldrunarráðs íslands verður haldinn í dag að Borgartúni 6. Öldrunarráðið Hvað ætlar þú að gera? Þetta er spurning sem vert er að spyrja sig þegar kemur fram á miðjan aldur. Æ fleiri ná nú orð- ið háum aldri og við íslendingar verðum allra karla og kerlinga elst. Pví hafa nú mörg félagasamtök og stofnanir farið að huga æ meir að öldrunarmálum. Til að sam- hæfa aðgerðir, tryggja upplýsing- astreymi og sameina kraftana var stofnað Öldrunarráð íslands. í því eiga sæti fulltrúar þrjátíu og sjö félagasamtaka og áhugahópa. Á undanförnum árum hefur Öldrunarráð staðið fyrir víðþætt- ri starfsemi, þá fyrst og fremst námskeiðahaldi af ýmsu tagi. í dag föstudag heldur Öldrun- arráð Islands aðalfund sinn að Borgartúni 6, Reykjavík. Fund- arstörf verða fyrir hádegið en kl. 13.00 hefst ráðstefna á vegum ráðsins sem ber yfirskriftina: Virk elli. Þar munu verða flutt sex stutt erindi sem öll fjalla, hvert á sinn hátt um virka elli. Framsögumenn eru: Halldór E. Sigurðsson, fyrrum ráðherra, Gísli Halldórsson, Guðmundur Ingi Kristjánsson, Þorstcinn Ein- arsson, Þór Halldórsson og síðast en ekki síst Asdís Skúladóttir. Að loknum þessum framsögu- erindum verða almennar um- ræður og fyrirspurnum verður svarað. Með öllu þessu verða bornar fram veitingar, kaffi og meðlæti sem fæst fyrir greitt þátt- tökugjald kr. 200. Aðalfundi þessa sækja fulltrúar víða af landinu og er vettvangur þessi hinn mikilvægasti við samræm- ingu starfs með og fyrir aldraða. Þátttaka í ráðstefnunni tilkynnist til Öldrunarr. ísl. í síma 23620. Fatahönnun Hönnuðir sýna í Ópemnni Dagana 9., 10. og 11. október n.k. heldur FAT, félag fata- og textflhönnuða sína fyrstu samsýn- ingu í húsi íslensku óperunnar Gamla bíói. Þar gefst almenningi kostur á að sjá fatnað hannaðan af 18 fata- og textflhönnuðum, sem sýndur verður af bæði þekkt- um og óþekktum módelum, börn- um sem fullorðnum. Áföstudagskvöldinu9. okt. kl. 21.00 er fyrsta sýningin sem ætluð er boðsgestum. Laugardaginn 10. okt. og sunnudaginn 11. okt. eru sýningar kl. 16.00 og allir velkomnir. Aðgangseyrir er á þær sýningar, en verðinu stillt í hóf. Miðasala verður opin frá kl. 14.00. FAT, félag fata- og textíl- hönnuða er nýstofnað og er þessi sýning fyrsta sameiginlega átak félagsins, en ætlunin er að gera sýningu sem þessa að árlegum viðburði. Tilgangur sýningar sem þessarar er að vekja athygli al- mennings og forráðamanna ís- lensks iðnaðar á þeirri orku og þeim hæfileikum sem íslenskir hönnuðir búa yfir. Kristilegt starf Haustátak ’87 Haustátak hefur verið fastur Iiður í starfi nokkurra leik- mannahreyfinga innan íslensku kirkjunnar í nokkur ár og nú stendur Haustátak ’87 fyrir dyr- um. Hreyfingarnar sem að því standa eru KFUM og KFUK, Samband íslenskra kristniboðsfé- laga, Kristileg skólasamtök og Kristilegt stúdentafélag. Haustátak ’87 er samkomuröð með níu almennum samkomum fram til 1. nóvember og verður dagskrá fjölbreytt. Flutt verða ávörp og ræður, einsöngvarar og sönghópar syngja og almennur söngur verður mikill. Það sem setur mestan svip á Haustátak að þessu sinni er at- hyglisverð heimsókn frá Noregi. Hingað til lands kemur kvartett sem hefur sérhæft sig í að syngja negrasálma, Freedom Quartett. Kvartett þessi hefur ferðast víða um lönd og hvarvetna vakið at- hygli fyrir söng sinn. Mun hann syngja á samkomum Haustátaks til 10. október, auk þess sem fyrirhugaðir eru tónleikar í Bú- staðakirkju kl. 17.00 laugardag- inn 10. október. Með kvartettinum kemur ræðumaður, Geir Gundersen, sem þekktur er í heimalandi sínu og var hann m.a. erindreki Nor- ska biblíufélagsins á sl. ári þegar það stóð fyrir sérstakri út- breiðsluherferð. Aðrir ræðu- menn, söngvarar og sönghópar sem taka þátt í Haustátaki ’87 eru íslenskir. Mál Norðmannanna verður að sjálfsögðu túlkað á ís- lensku. Samkomurnar verða allar í húsi KFUM og KFUK við Amtmannsstíg 2B í Reykjavík og hefjast kl. 20.30. Fyrst eru sam- komur á hverju kvöldi dagana 7.- 11. október en síðan vikulega á sunnudagskvöldum til 1. nóvem- ber. Auk þes er samkoma laugar- daginn 31. október. KALLI OG KOBBI Hættu T Ég ætla ekki þessu Kalli að borða þú ert afar t eftirréttinn þreytandi. þessa vikuna. í lagiY Ha.ha. Hversvegna ég skal ferðu ekki og sborða J skemmtir mömmu skammtinn^þinni í smá stund. þinn. GARPURINN FOLDA Einmitt. í svona bíl er maðurinnÁ áfram það sem skiptir mestu máli. ■ APÓTEK Reykjavfk. Helgar- og kvöld- varsla lyfjabúða vikuna 9.-15. okt. 1987 er i Apoteki Austurbæjar og Lyfjabúð Breiðholts, Álfabakka 12, Mjódd. Fyrrnefnda apótekið er opið um helgar og annast nætur- vörslu alla daga 22-9 (til 10 frídaga). Sfðarnefnda apó- tekið er opið á kvöldin 18-22 virka daga og á laugardögum 9-22 samhliða hinu fyrr- nefnda. stigropin alla daga 15-16 og 18.30- 19.30. Landakots- spftali: alla daga 15-16 og 18.30- 19.00 Barnadeild Landakotsspítala: 16.00- 17.00. St. Jósefsspitali Haf narfirði: alla daga 15-16 og 19-19.30 Kleppsspítal- inn: alla daga 18.30-19 og 18.30- 19 Sjúkrahúsið Ak- ureyri: alla daga 15-16 og 19- 19.30 Sjukrahúsið Vestmannaeyjum: alladaga 15-16 og 19-19.30. Sjúkra- hús Akraness: alla daga 15.30- 16og 19-19.30. SjúkrahúsiðHúsnvik: 15-16 og 19.30-20. Hafnarfjörður: Heilsugæsla. . Upplýsingar um dagvakt lækna s. 53722. Næturvakt læknas. 51100. Garðabær: Heilsugæslan Garöaflöts. 656066, upplýs- ingar um vaktlækna s. 51100. Akureyri: Dagvakt8-17á Læknamiðstöðinni s. 23222, hjá slökkviliðinu s. 22222, hjá Akureyrarapóteki s. 22445. Keflavík: Dagvakt. Upplýs- ingar s. 3360. Vestmanna- eyjar: Neyðarvakt læknas. 1966. ingu (alnæmi) í síma 622280, milliliðalaust samband við lækni. Frá samtökum um kvenna- athvarf, sími 21205. Húsaskjól og aðstoð fyrir kon- ur sem beittar hafa verið of- beldi eða orðið fyrir nauðgun. Samtökin '78 Svarað er í upplýsinga- og ráðgjafarsíma Samtakanna '78 félags lesbía og homma á Islandi á mánudags- og fimmtudagskvöldum kl. 21 - , 23.Simsvariáöðrumtímum. Síminner 91-28539. Félageldri borgara: Skrif- stofan Nóatúni 17, s. 28812. Félagsmiðstöðin Goðheimar Sigtúni 3, s. 24822. LOGGAN Reykjavík....sími 1 11 66 Kópavogur...sími4 12 00 Seltj.nes...sími61 11 66 Hafnarfj.....sími 5 11 66 Garðabær.....sími 5 11 66 Siökkvilið og sjúkrabílar: Reykjavík....sími 1 11 00 Kópavogur....sími 1 11 00 Seltj.nes....simi 1 11 00 Hafnarfj.....sími 5 11 00 Garðabær.....sími 5 11 00 LÆKNAR Læknavakt fyrir Reykjavfk, Seltjarnarnes og Kópavog er í Heilsuverndarstöð Reykjavlkur alla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgidögum allan sólar- hringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingarog tíma- pantanir í síma 21230. Upp- lýsingar um lækna og lyfja- þjónustu eru gefnar í sím- svara 18885. Borgarspitalinn: Vakt virka daga kl. 8-17 og fyrir þá sem ekki hafa heimilislækni eða ná ekki til hans. Slysadeild Borgarsþitalans opin allan sólarhringinn sími 696600. Dagvakt. Upplýsingarumda- gvakt lækna s. 51100. Næt- urvakt lækna s. 51100. miSLEGT Bilananavakt rafmagns- og hitaveitu: s. 27311. Raf- magnsveita bilanavakt s. 686230. Hjálparstöð RKl, neyðarat- hvarf fyrir unglingaTjarnar- götu 35. Sími: 622266 opið allansólarhringinn. Sálfræðistöðin Ráðgjöf í sálf ræðilegum ef n- um. Simi 687075. MS-félagið Álandi 13. Opið virka daga frá kl. 10-14.Sími688800. Kvennaráðgjöfin Hlaðvarp- anum Vesturgötu 3. Opin þriöjudaga kl.20-22, sími 21500, símsvari. Sjálf shjálp- arhópar þeirra sem orðið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21500, símsvari. Upplýsingar um ónæmistæringu Upplýsingar um ónæmistær- SJUKRAHUS Heimsóknartímar: Landspit- alinn: alla daga 15-16,19-20. Borgarspítalinn: virka daga 18.30-19.30, helgar 15-18, og eftirsamkomulagi. Fæðing- ardeild Landspítalans: 15- 16. Feðratími 19.30-20.30. Öldrunarlækningadeild Landspitalans Hátúni 10 B: Alla daga 14-20 og eftir samkomulagi. Grensásdeild Borgarspítala:virkadaqa 16- 19.30 helgar 14-19.30 Heilsu- verndarstöðin viö Baróns- GENGIÐ 8. október 1987 kl. 9.15 . Bandaríkjadollar Sala 39,010 Sterlingspund 64,052 Kanadadollar 29,869 Dönsk króna 5,5693 Norsk króna 5,8508 Sænsk króna 6,0939 Finnsktmark 8,8983 Franskurfranki.... 6,4251 Belgiskurfranki... 1,0298 Svissn. franki 25,6451 Holl. gyllini 19,0084 V.-þýsktmark 21,3953 Itölsklíra 0,02964 Austurr. sch 3,0399 Portúg. escudo... 0,2718 Sþánskurpeseti 0,3223 Japanskt yen 0,26823 Irskt pund 57,432 SDR 50,1123 ECU-evr.mynt... 44,4558 Belgískurfr.fin 1,0256 KROSSGATAN Föstudagur 9. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 Lárétt: 1 bjargbrún 4 kústur 7 krukka 9 æviskeið 12 meyr14þannig15rölt16 skakka 19 fjallstind 20 kvabba21 varúð Lóðrétt: 2 spil 3 sæði4 megn 5 sædrif 7 rýr 8 skel 10skart11eðli13arða17 fjármuni 18gil Lausná sfðustu krossgátu Lárótt: 1 flím 4 sefa 6 art 7 sigg 9 óhóf 12 eirðu 14 aur 15 gin 16 aumka 19 býsn 20 áður21 taumi Lóðrótt: 2 lúi 3 magi 4 stóð 5 fró 7 slabbi 8 gerast 10 hugaði 11 föndra 13 róm 17 Una 18 kám

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.