Þjóðviljinn - 09.10.1987, Qupperneq 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þjóovi
Priðjudagur 6. október 1987 221. tölublað 52. órgangur
Bi Þjónusta
M íþínaþágu
^SAMVINNUBANKI ^ ÍSLANDS HF.
Hríseyingar munu ylja sér við hita úr nýju heitavatnsholunni í vetur.
Hrísey
Heitavatn^eð fundin
Siglufjörður
Húseiningar
á uppboð
Fyrirtækið tekið til
gjaldþrotaskipta í vor
Fyrirtækið Húseiningar hf. á
Siglufirði var tckið til gjaldþrota-
skipta hinn 5. maí síðastliðinn, og
mun uppboð fara fram 23. októ-
ber að sögn skiptastjóra, Árna
Pálssonar, lögfræðings á Akur-
eyri, en hann var skipaður af
skiptaráðanda.
Tvö tilboð hafa komið fram:
Bútur hf. á Siglufirði hefur sett
fram tilboð eða ósk um að semja
um yfirtöku á fyrirtækinu í heild,
og er því ekki hægt um vik að
nefna ákveðnar tölur í því sam-
bandi að sögn Árna. í annan stað
hefur Berg hf. og Sigló gert tilboð
í fasteignir fyrirtækisins, og
hljóðar það upp á rúmlega 21
milljón króna.
Allar kröfur eru komnar fram,
enda verður að lýsa kröfum innan
svokallaðs kröfulýsingarfrests,
en hann var í júlí í þessu máli.
Samtals hljóða kröfurnar upp á
66 milljónir eða svo, og er þar
meðal annars um að ræða kröfur
frá kaupendum húsa vegna upp-
setningargalla, launakröfur, og
kröfur frá viðskiptaaðilum fyrir-
tækisins, að sögn Árna. HS
Við bindum miklar vonir við
þessa holu sem boruð var nið-
ur á 400-500 metra dýpi og við
komum til með að virkja hana
fyrir hitaveituna hér. Það var
búið að bora þrjár
rannsóknarholur áður en heita-
vatnsæðin fannst og er borholan
ny'ög lífleg. En með dæluútbún-
aði má ætla að úr henni náist 50-
100 sekúndulítrar af heitu vatni.
Við stefnum að því að virkja hana
fyrir veturinn, cnda ekki vanþörf
á því fyrir Hríseyinga,” segir
Guðjón Björnsson sveitarstjóri í
Hrísey.
Allt frá því að eyjarskeggjar
fengu hitaveitu í stað olíukynd-
ingar hefur saga hitaveitunnar og
notenda hennar verið ein sam-
felld vonbrigðasaga. Vatnið sem
leitt hefur verið inn í hús eyjar-
skeggja hefur verið með þeim
ósköpum að hafa súrefni í sér sem
hefur gert það að verkum að tær-
ing í ofnum og lögnum hefur ver-
ið með einsæmum mikil. Er talið
að frá því að heita vatninu var
fyrst hleypt í ofna og lagnir hafi
Hríseyingar þurft að skipta um
allt að 1000 ofnum í sínum íbúð-
arhúsum af völdum tæringar sem
orðið hefur í þeim.
Að sögn Guðjóns er áætlað að
kostnaður við boranirnar, vega-
lagningu og byggingu nýs vir-
kjunarhúss verði um 5 milljónir
króna. Ennfremur verður að I
vernda borholuna fyrir ágangi '
sjávar þar sem hún er. Það er fyr-
irtækið ísbor hf. sem hefur haft
allan veg og vanda af borunar-
framkvæmdunum.
Ráðstefna um umhverfismál
ÍSLAND
EREKKI
EYLAND
Opin ráðstefna um umhverfismál
á vegum Alþýðubandalagsins
sunnudaginn 11. október kl. 10-17
í Gerðubergi, efra Breiðholti, Reykjavík.
Kl. 10:00 fyrirhádegi:
□ HVAR STQNDUM VID? □
Hjörieifur Guttormsson, alþingismaöur.
□ VARÐVEISLA OG
ENDURHEIMT □
LANDGÆÐA
Andrés Amalds, beitarþolsfræðingur.
□ VISTFRÆÐI
FISKIMIÐANNA
Jón Ólafsson, haffraíöingur.
□ LANDSKIPULAG OG
BYGGÐAMÁL
Stefán Thors, skipulagsstjóri ríkisins.
□ ÖRSTUTTAR ÁDREPUR L
Auöur Sveinsdóttir, landslagsarkitekt.
Björk Þorleifsdóttir, grunnskólanemi.
Svanhildur Halldórsdóttir, félagsmála- n
fulftrúi.
Tryggvi Jakobsson, landfræöingur.
Þórdís Katrín Þorsteinsdóttir, mennta-
skólanemi.
Léttur hádegisverður frá kl. 12:30-13:30
□ LOFTMENGUN
HANDAN UM HÖF
Hreinn Hjartarson, veöurfræöingur.
ER ÓSONLAGIÐ AÐ
HVERFA?
Sigurbjörg Gisladóttir, efnafræöingur.
HÆTTAN AF GEISLA-
MENGUN HAFSINS
Chris Bunyan, formaöur CADE á
Shetlandseyjum, baráttuhreyfingar
gegn stækkun kjamorkuversins og
endurvinnslustöövarinnar í Dounray á
Skotlandi.
Kaffihléfrákl. 15:30-16:00
UMHVERFIOG
SAMFÉLAG
Þorsteinn Vilhjálmsson, eölisfræöingur.
DRAUMSÝN UM ÁRIÐ
2000
Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur.
Ráðstefnustjórar: Álfheiður Ingadóttir og
össur Skarphéöinsson.
ÞÁTTTAKA TILKYNNIST í
SÍMA 91-17500.
ALLIR VELKOMNIR.
□ GESTUR RÁÐSTEFNUNNAR
Chris Bunyan, formaður CADE,
baráttuhreyfingar gegn stækkun
endurvinnslustöðvarinnar í Dounray.
Nú kraumarípottinum, því
sem ekki gengu út síðasta laugardag, leggjast
við fyrsta vinning á laugardaginn kemur.
Spáðu í það!
-milljónir, á hverjum laugardegi. Upplýsingasími: 685111. IJG A—f/