Þjóðviljinn - 11.10.1987, Side 2

Þjóðviljinn - 11.10.1987, Side 2
SPURNING VIKUNNAR Er jafnrétti í Sjálf- stœðisflokknum? Þorvaldur Garðar Kristjánsson, fjórði þingmaður Vestfjarða- kjördæmis: Já, alltaf fyrir hverjar einustu kosningar! Hefurðu ekki lesið stefnuskrána okkar? Hún er sko skemmtileg... Dóndimaður vikunnan Þorvaldur Garðar Kristjánsson, fyrrverandi forseti Sameinaðs alþingis: Auðvitað! Mér finnst t.d. að bæði Ragnhildur og Salóme séu gasa- lega sætar stelpur. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, nýkjörinn forseti Sameinaðs alþingis: Puh! Eg segi nú bara eins og Jón Baldvin: Ég hefi fáar kvensur en þær eru margra manna makar. Þannig að samanlagt og deilt með tveimur er fullkomið jafnrétti í Sjálfstæðisflokknum. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, annar maður á lista Sjálfstæð- isflokksins í Vestfjarðakjör- dæmi: Við höfum nú vit á því fyrir vestan að vera ekki með einhverjar kon- ur á listanum. Enda losuðum við okkur við Sigurlaugu. Þorvaldur Garðar Kristjánsson, forseti: Já, vitaskuld er jafnrétti í Sjálf- stæðisflokknum. En við förum mjög leynt með það. Ekki segja neinum. Plís. Eg held með Denna Ég, Skaði, á í vandræðum. Eins og þið vitið hefi ég alltaf veriö góður Sjálfstæðismaður og hollur mínum foringjum. En nú er Albert farinn og Steini svo skelfing leiðinlegur og hvar á ég þá höfði að halla? Satt að segja er þetta svo mikið mál fyrir mér, að ég hef leiðst út í þólitískt framhjáhald sem ég tel öllu framhjáhaldi verra. Ég stend mig að því eins og Haraldur Blöndal flokksbróðir minn og meira að segja Kratablaðið, að hallast að Steingrími Fram- sóknarhöfðingja. Við erum reyndar skólabræður við Denni, en það nægir ekki til að hreyfa við prinsípmanni eins og mér. Ég er blátt áfram svo hrifinn af því hve sóþar að manninum, jafnvel svo mjög að ekki sér handa skil um allan heim fyrir því ryki stöðnunarinnar sem upp þyrlast hvar sem hann fer. Ég hitti Denna af tilviljun í sundi þegar hann var að koma frá Ítalíu og spurði hann tíðinda. Þú hefur ekki hitt páfann? spurði ég. Nei, sagði Steingrímur. En ég fékk hjá honum skilaboð um það, hvort SÍS vildi ekki kaupa Banka Heilags Anda í staðinn fyrir Útvegsbankann. Þeir eru í einhverjum vandræðum með bankann, karlagreyin. Hinsvegar hitti ég utanríkisráðherrann, Andreotti heitir hann víst Hvað sagði hann gott? Það voru tveir hlutir sem ég þurfti að útskýra fyrir honum. Annað er það, að við megum ekki láta Rússa komast upp með það að vera svona andskoti duglegir í afvopnunarmálum. Hitt var það að salfiskur er alltaf hauslaus, hvað sem innflutnings- tollum líður. Hann var alveg sammála mér um Gorbatsjov og sprengjuna og það, en saltfiskurinn stóð eitthvað í honum, enda hagsmunamál. Svo ég gerði hann heimaskítsmát og baunaði þessu með saltfiskinn á hann á latínu. Piscis salsus semper sine capite est, sagði ég. Fiskur saltur ávallt án höfuðs er. Og hvernig tók hann þessu? Þetta hreif náttúrlega. ítalir hafa nefnilega samviskubit út af því að vera búnir að gleyma latínu forfeðranna. Ætli það endi ekki á því, að við þurfum að taka það að okkur að geyma hana og varðveita fyrir heiminn eins og íslenska tungu og heimsf- riðinn. Vel á minnst heimsfriðinn. Þú varst líka í Ameríku Denni Víst kom ég þangað. Hittirðu Reagan? Já, ég þurfti að segja eitt orð við hann um hvalveiðar, en það þýddi ekkert. Hvalveiðahvað? sagði hann. Jájá, Moby Dick. Gregory Peck fékk það hlutverk, en ég hefði leikið það miklu betur. Þeir ná aldrei Moby Dick með svoleiðis gaur í aðalhlut verki. Svona þusaði hann lengi. Ég sá að þetta þýddi ekkert svo ég sagði við karlinn: Heyrðu Ronnie, nú skal ég gera þér greiða. Hver er hann? spurði foretinn. Ég skal lofa að láta Tímann hætta að skrifa um að þú sért af íslenskum ættum. Það er skelfilega sætt af þér, sagði Reagan. En í staðinn tökum við Sameinuðu þjóðirnar og flytjum til íslands, sagði ég. Hótel Örk stendur auð yfir veturinn. Denni, sagði Reagan og viknaði við, ég hefi alltaf vitað að þú værir næs gæi. Ég er orðinn hundleiður á þessu Sameinuðu- þjóðapakki sem alltaf er með kjaftinn uppi. Mér þykir þú segja fréttirnar, sagði ég. Heldurðu að maður sé að skemmta sér í útlöndum? sagði Steingrímur og horfði á mig brosandi og umburðarlyndur. En segðu mér eitt Denni. Hefurðu ekki heyrt neitt í Gorba nýlega? Jújú. Hann hringdi um daginn. Hann var eitthvað í vand- ræðum með þessa perestrojku sína og vildi vita hvað mér fyndist. Og hverju svaraðir þú? Ég sagði við Gorba: Heyrðu Misha, þú skalt bara hætta öllum öfgum. Kapítalisminn er náttúrlega ekki hægt fyrir ykkur og kommúnisminn ykkar er í klessu. Hafðu mín ráð og fáðu þér stóra og mikla samvinnuhreyfingu eins og SÍS. Og hvað sagði hann? Hann sagðist skyldi athuga það. SKAÐI GULLKORN VIKUNNAR „Ungum var mér kennt hvernig börnin verða til. Það er þegar karlmaður og kona koma saman. Ekki karlmaður og karlmaður eða kona og kona.“ - Halldór Gröndal, sóknarprestur í Grensássókn. Mbl. 4. okt. „Hér áður fyrr var talað um að hesturinn væri dyggasti þjónn mannsins. En hvað um fæturna?" - Jórunn Karlsdóttir, Mbl. 4. okt. „Hvernig getur það verið hagur „almenningsins" að dagheimili séu til fyrir öll börn? Allur almenningur á ekki börn á forskó- laaldri. Til dæmis eiqa þessi börn, sem um er rætt, ekki börn sjálf!“ - Jóhannes í lesendabréfi til DV í vikunni þar sem hann kvartar yfir leiðara Þjóðviljans um dagvistarpláss fyrir öll börn. „Ég náði nú aldrei nafninu hans... en hann hreinsaði svo £g te| upp að þremur _ og þá byrja allir að kitla!" sannarlega til í þessum bæ . 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. október 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.