Þjóðviljinn - 11.10.1987, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 11.10.1987, Blaðsíða 11
og eignast vini Blelkl parduslnn og Villi spæta eru skemmtilegastir í sjónvarpinu. í Innansveitarkróníku segir Halldór Laxness eitthvað á þá lund að kör sé einhver merk- asta þjóðfélagsstofnun sem hafi verið fundin uþp. Aðra engu síðri hefur landinn reyndar uppgötvað hinum megináskala mannlífsvegferðarinnar, en þaðerróló-inn. foreldrar hafi ekki alltof mikinn tíma fyrir börn sín. Fólk neyðist til að vinna alltof mikið í dag. Fyrir nokkrum árum var þetta hverfi alveg dautt, og fólk flutti nánast einsog eftir færibandi upp í Breiðholt. Svo fór þetta að breytast aftur, því unga fólkið flutti í gömlu húsin hér í kring og vildi gera þau upp. En það var sorglegt að fylgjast með því, hvað fólki var gert erfitt fyrir, laun og vísitala héldust engan veginn í hendur, og margir urðu að flytja burt og selja húsin sín. Það að vinna á róló og með börnum, er afskaplega gefandi, en maður verður líka að gefa af þér, það þýðir ekki að standa hér upp á endann allan daginn. Við erum alltaf að, sinnum börnunum og leikum við þau. Aðstaðan hjá okkur er alls ekki góð og það er náttúrlega spurning fyrir borgar- yfirvöld, hvað þau vilja hlúa vel að yngstu borgurunum. Hér er til dæmis enginn sími, sem er lág- markskrafa, því alltaf getur eitthvað komið fyrir, eða veður breytist skyndilega. Það er ekki alltaf sem foreldrar geta komið hlaupandi eftir börnum sínum á 10 mínútum, ef gerir aftakaveð- ur, og því þyrfti að vera aðstaða til að lofa börnunum að koma inn og hlýja sér. En þau eru mjög indæl og dugleg. Hér á Freyjug- öturóló hefur myndast mjög harður kjarni, sem mætir alltaf.“ ekj/HS Sunnudagur 11. október 1987 'þJÓÐVILJINN - sÍÐA 11 Róluvellir eru um margt sérís- lenskt fyrirbrigði. Þeir hafa úti- vistarregluna í heiðri og vel má ímynda sér þá sem rökrétt fram- hald þeirrar hefðar að láta unga- börn sofa úti í barnavögnum í öllum veðrum. Hefð sem landinn hefur reyndar farið flatt á víða erlendis, þar sem hann hefur flutt hana með sér. Útlendingar hafa stundum kvatt til lögreglu til vemdar blessuðum börnunum, enda finnst fólki víða um lönd að það hljóti að vera hundraðogell- efta meðferð á kornabörnum að láta þau sofa úti í frosthörkum en það er reyndar allt önnur ÉfWí&t,, Ljflhiyndari og biaðamaður áttu leið á Freyjugöturóló^sW- ustu viku og stöldruðu við. Þar var líf og fjör í rólum og sandkössum. Svala, starfsmaður Freyjugöturóló, sem átti 19 ára starfsafmæli á þessu ári, gætti barnanna ásamt Önnu. „Börn hafa ekkert breyst á þessum tíma. Það eru sömu grunnþarfirnar sem þau hafa: Að leika sér og eignast vini. Mæð- umar gera hins vegar meiri kröf- ur núna og fylgjast vel með börn- um sínum, og það er mikill mun- ur á því, hvað pabbarnir sjást meira núna heldur en fyrir nokkr- um ámm. En ég ímynda mér að Vlð erum í flmlelkum og dansskóla. Hér erallt skemmtilegt og gaman að vera uppi á þaki. Stundum leikum viðvið strákana. Þeg- ar ég er heima finnstmór mestgaman að skrifa í bók- inamína, sagði stúlkan á myndinni. í rennibrautarhalarófukös. Börnunum virtist yfirleitt finnast það mest gaman, sem þau voru að gera þá stundina. Myndir: Sig. Hver skyldi vera að koma...?

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.