Þjóðviljinn - 11.10.1987, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 11.10.1987, Blaðsíða 7
Ástin og einsemdin... Gaui sendir frð sér sína fyrstu plötu „Skífan gaf mér ríkulegan tíma í hljóðveri og lagði mértil úrvalsmenn í undirleikinn. Ég er búinn að vera hálft ár að vinna plötuna og hef lagt mig allan fram um að árangurinn yrði sem allra bestur". Svo mælir Gaui - alias Guðjón G. Guðmundsson - sem sendi í vikunni frá sér sína fyrstu plötu. Platan heitirvitanlega Gaui-nema hvað. Gaui hefur veriö býsna dug- legur við spilamennsku síðustu fimm árin; troðið upp á konsert- um, í skólum og víðar, oftast með gítarinn einan að vopni. Og í upp- hafi ársins sendi hann forráða- mönnum Skífunnar híjóðsnældu með söng og músík. Þeir sögðu takk fyrir og buðu samning. Það eru engir aukvisar sem spila undir; Þorsteinn Magnússon á gítar, Kristinn Svavarsson á saxófón, Ásgeir Óskarsson á trommur og Tómas Tómasson spilar á hljómborð og bassa. Lögin á plötunni eru tíu talsins, öll eftir Gaua, sömuleiðis text- arnir, nema hvað tveir eru eftir Þórarinn Eldjárn. Og hvernig tónlist er þetta, með leyfi? „Hún er bæði róleg og hröð,“ segir Gaui, „og sjálfsagt ber hún keim af tveimur görpum sem ég held mikið uppá, Peter Gabriel og David Sylvian. En mér finnst að ég sé að gera eitthvað nýtt og ferskt og ég vona að fólki finnist það líka. Eg er ekki að herma eftir neinum, heldur reyni að vera sjálfum mér samkvæmur.“ - Og hvert sækirðu yrkisefni í textana? „Ég legg mikið upp úr textun- um - og það er jafnmikil vinna á bak við þá og lögin. Yfirleitt vinn ég samhliða með lag og texta út frá einni grunnhugmynd. Ég reyni að skapa sérstaka stemmningu, og ég vona að fólk setjist niður og hlusti... En text- arnir eru um ástina; um tómleik- ann í sálinni og einn er um pó- htík. Þeir eru að mestu leyti sprottnir úr eigin lífsreynslu, beint og óbeint. Yrkisefnin eru sígild en ég kem þeim til skila á minn hátt.“ - En hvernig varðst þú músík- inni að bráð í upphafi? „Ég byrjaði að koma fram í gagnfræðaskóla á skemmtunum og fljótlega var ég farinn að semja eigin tónlist. Ég fékk líka mikinn áhuga á ljóðum og tók þátt í að stofna Besta vin ljóðsins ásamt fleirum. Það var nú skemmtilegt og lærdómsríkt sam- starf, eins og þú getur ímyndað þér! En þetta hefur þróast hjá mér stig af stigi og ég finn best í tónlistinni." - Og hvað er nú framundan hjá þér? „Ég ætla að spila eins mikið og ég get og fylgja plötunni eftir. Á tónleikum kem ég fram með hljómsveitinni Gíslarnir - sem flestir þekkja raunar undir nafn- inu Centaur, en strákarnir í því bandi eru rosalega efnilegir. Nú ef allt gengur vel þá held ég vita- skuld áfram.“ - Ætlarðu að verða frægur og ríkur af þessu tiltæki? „Ég vona fyrst og fremst að mér takist alltaf að verða sjálfum mér samkvæmur í því sem ég geri og verði tónlistinni trúr. Tíminn leiðir síðan í ljós hvernig mér á eftir að vegna - en ég hef engar áhyggjur...“ -hj-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.