Þjóðviljinn - 11.10.1987, Blaðsíða 19
í dag verður ekkert fjallað um
Curiosity Kflled the Cat.
upphati
Hann læddist hljóðlega meðfram
veggnum, þrjúhundruð metra
löngum. Þetta varstórt hús. Nótt-
in var komin heim, eftir þriggja
mánaðafjarveru. Hún hafði dval-
ið við Suðursæ um sumarið.
Hann gægðist fyrir hornið og hélt
niðri í sér andanum. Sá ekkert.
Oþið haf og heiðan himin - kol-
svartan. Ekkert annað. Hann
hljóþ til baka, stökk fimlega á bak
blágráu reiðhjólinu, sem hann
hafði fengið í afmælisgjöf fyrir
skemmstu. Það lá á. Hann hjól-
aði sem óður maður meðfram
þrjúhundruðmetra veggnum,
sem hann hafði áður læðst svo
hljóðlega meðfram. Spilið (tígul-
gosi) sem hann hafði fest við hjól-
ið purraði hátt er það straukst við
teinanna í hafgolunni á fjörtíu og
tveggja kílómetra hraða. Hann
var kominn í níunda gír og hafði
gleypt hann. Hafmeyjar hlupu
upp til handa og ugga þegar
hann mætti galvaskur á jólatrés-
skemmtun starfsmeyjafélags
uggasnyrtisérfræðinga á Dorn-
banka. Þeim þótti hann býsna
undarlegur. Þær höfðu aldrei trú-
að sögunum, sem nokkrar gaml-
ar hafmeyjar, frænkurog ömmur,
höfðu sagt þeim, um landsveina,
sem höfðu eitthvað annað en
sporð niðrum sig. Og þarna var
einn slíkur lifandi kominn. Þær
ákváðu að færa honum síldar-
salat.
Stjörnubjört nóttin hýsti tvö-
hundruð manns í appelsínugul-
um anórökkum og þrjá hunda.
Þeir fundu hjólið um fjögurleytið.
Leitarstjórinn var með vasa-
diskó. Hann var að spila gamla
Rolling Stones slagara þegar
hann varð skyndilega var við ein-
hverja hreyfingu framundan.
Hann bað um að hægt yrði á
bátnum. Stýrimaður varð við ósk
hans. Þeir renndu upp að
skerinu. Þar sat hann með sælu-
bros á vör, jólasveinahúfu á höfð-
inu, litia hörpu í hægri hendinni
og blandaða sjávarrétti í þeirri
vinstri. Þetta var á annan í jólum.
Hann var nakinn, en þó var hon-
um ekki kalt. Þeirfóru með hann í
land.
Punktar
Þeir gömlu - 2
Skjaldarmerki fíflsins/gosans
er býsna undarlegt heiti á þessari
ágætu skífu unglinganna í Jethro
Tull. Þetta er 19. platan, sem út
kemur í nafni sveitarinnar, eftir
því sem ég best veit. Það gerir að
meðaltali eina plötu á ári frá því
hljómsveitin hóf feril sinn árið
1968. Og þó mönnum á borð við
Frank Zappa þyki slíkt kannski
ekki ýkja mikið, verður það þó
að teljast nokkuð vel af sér vikið,
sérstaklega ef miðað er við gæði.
Því það er enginn stöðnunarbrag-
ur yfir þessari nýju plötu að mínu
mati. Ian Anderson, sá mikli
flautukall, hefur engu gleymt, en
er þó allsendis laus við að hjakka
í sama gamla farinu. Þeir Martin
Barre (gítar) og Dave Pegg
(bassi) eru líka komnir úr felum -
eða Anderson hefur hleypt þeim
út úr skápnum öllu heldur. Þver-
flautan er ekki jafn allsráðandi og
oft áður þó hún sé að sjálfsögðu í
aðalhlutverkinu ennþá - og verði
það vonandi áfram. Ég treysti
mér ekki til að tilnefna bestu lög,
svo sem gjarnan tíðkast í popp-
skrifelsi, enda þykir mér slíkt
hinn mesti hégómi og óþarfi
svona yfirleitt. Læt mér nægja að
gefa heildareinkunina ágætt.
Á niðurleið
Sú var tíðin að mér þótti The
Smiths einhver hin ágætasta sveit
ofar moldu. Nú er búið að jarða
smiðina, einsog fram kemur ann-
ars staðar á síðunni, og er það
vel. Þetta segi ég af eintómri
væntumþykju, rétt eins og fólk
getur orðið þeirri stund fegnast,
þegar einhver hjartfólginn ætti-
ngi eða vinur hverfur yfir móð-
una miklu eftir löng og erfið veik-
indi. Veikindi Smiths hafa ekki
verið löng, en sjúkdómseinkenn-
in eru greinileg á þessari nýjustu
plötu þeirra; Strangeways, Here
We Come. Johnny Marr er
reyndar jafn góður lagasmiður og
fyrr, ef ekki betri, og hefur þróast
og þroskast sem slíkur jafnt og
þétt allan tímann sem sveitin hef-
ur starfað. Því miður er ekki
sömu sögu að segja um manninn
Morrissey. Sem söngvari hefur
hann algjörlega staðið í stað og
textum hans hefur hrakað stór-
lega. Það var gaman að hlusta á
seiðandi, undarlegu rödd hans í
fyrstu, og jafnvel allt fram á síð-
ustu plötu. En ég er bara alveg
búinn að fá nóg af honum bless-
uðum. Þessi rödd, sem áður féll
svo vel að tónlistinni, nær engan
veginn að aðlaga sig breyttum að-
stæðum - eða lögum réttara sagt.
Það gengur ekki upp að syngja
alltaf eins, sama hvað aðrir með-
limir sveitarinnar, og þá sérstak-
lega lagahöfundurinn, eru að
gera. Og textamireru ekki svipur
hjá sjón. Með góðum vilja er
hægt að heyra eitthvað meira í
þeim en sagt er berum orðum, en
setningar voru nokkuð öðru vísi
en menn áttu að venjast í ádeilut-
óniistinni. Einnig þótti rödd og
raddbeiting Morrisey tíðindum
sæta. En nýjasta platan þeirra ber
vitni um nokkra stöðnun og mesti
broddurinn virðist horfinn úr tex-
tum Morriseys. Ég kveð þessa
sveit með orðum skáldsins:
Þelr eru dauðlr, þelr dóu í gær
dálítlð elns og I svefnl,
ég vona að svefn þelrra
verðl svo vær
að þeir vakn’ ekki aftur og geri
þar með sjálfa sig að hverju öðru
sölufyrirbæri á la Status Quo,
Pink Floyd, Yes, 10 CC
o.s.frv....
í hárri elli
Hin akurnesíska stórsveita-
ballasveit Tíbrá hefur nú gefið
upp andann, södd lífdaga. Hún
var víst orðin 13 ára gömul bless-
unin þegar kallið kom, núna seint
◦f plasti
það þarf mikið til. Flest eru þetta
innantómar ambögur af verstu
gerð, eða manni finnst það svona
í ljósi þess sem áður hefur heyrst
frá þessum pilti. Marr hefur
greinilega séð að hverju stefndi
og forðað sér áður en kvalirnar
urðu óbærilegar. Morrissey hygg-
ur nú á sólóferil, og er vonandi að
hann hafi einnig gert sér grein
fyrir ástandinu og vinni sam-
kvæmt því.
Hágœða
Hugflœði
Hálfum mánuði á eftir áætlun,
eða þann fyrsta október sl. kom
út plata Harðar Torfasonar;
Hugflæði. Stafaði þetta af bilun-
um í prentsmiðju og ekkert við
því að segja. En þeir sem hlustað
hafa á plötuna ættu að vera sam-
mála um að innihald hennar bætir
töfina fyllilega upp. í viðtali við
Hörð, sem birtist á þessum vett-
vangi fyrr í haust, kom fram að
ýmsir teldu efni þessarar skífu
ganga þvert á allt það íslenska
efni annað, sem út hefur komið
undanfarið. Það er hverju orði
sannara. Það er góð stemmning í
þessari plötu. Melódíurnar eru
hver annarri betri, og textarnir
töluvert betri en gengur og gerist
um þessar mundir. Og þó Hörður
komist kannski ekki í hóp okkar
bestu textasmiða, þá er hann
býsna nálægt því. Það sem helst
er hægt að fínna að textunum er
örlítið undarlegt orðalag hér og
þar, sem hlýtur að skrifast á
reikning Danaveldis og langrar
búsetu Harðarþar. En bæði lögin
og textamir eru einlægari, sann-
ari en maður á að venjast á þess-
um síðustu og verstu tímum
froðupoppsframleiðslunnar.
Hörður hefur líka einstaklega
skemmtilega rödd sem virðist
ráða við hvað sem er, hann er
jafnvígur á bamsrödd (Línudans-
arinn), geðsjúkling (Tregi) og
bömmerbísa (Eins og barn). Ég
tala um þetta eins og einhverjar
stereótýpur, en það gefur ekki al-
veg rétta mynd af hlutunum, ég
veit bara ekki hvemig ég á að
orða þetta öðruvísi. Gítargutlari
er hann líka góður og aðstoðar-
fólk hans virðist býsna fært á sín-
um sviðum, enda valinn maður í
hverju rúmi. Sérstaklega vil ég
nefna kontrabassaleik Jörgens
Johnbeck, sem gefur tónlistinni
gífurlega mikið hvað varðar dýpt
og áferða alla. Tæknivinnan og
útsetningarnar eru einnig með
því besta sem ég hef heyrt á ís-
lenskri plötu, eða plötu íslend-
ings réttar sagt, því hún er alfarið
unnin í Danmörku. Þessi plata
verður tvímælalaust að teljast
það besta sem komið hefur frá
Herði frá upphafi, og jafnframt
ein af betri plötum sem út hafa
komið hérlendis á undanförnum
árum. Kærkomin tilbreyting frá
ísskápaframleiðslunni sem ráðið
hefur rikjum undanfarið.
i ágúst. Á æviskeiði sínu náði hún
að koma út þremur plötum,
þeirri síðustu nú rétt fyrir and-
látið. Telja sumir, sem til þekkja
að platan sú, er nefndist Yfir
Tumunum, hafi verið banamein-
ið, en það er ekki selt dýrara en
það var keypt. Þeirra mesti suk-
ksess var án efa félagsheimilin á
Snæfellsnesinu. Sveitaböll á Nes-
inu, þar sem Tíbrá spilaði, voru
villtari en almennt gengur og ger-
ist á þessum þó villta markaði,
sem íslensk sveitaböll eru al-
mennt. En nú er svo komið að
þeir Tíbræingar munu ekki trylla
troðfull félagsheimili af fleygum
og flöskum í rassvörum og kven-
mannstöskum, snæfellskir ung-
lingar og aðrir velunnarar
sveitarinnar verða að leita á
önnur mið. Jarðarförin mun hafa
farið fram í kyrrþey, og em blóm
og kransar vinsamlegast afþakk-
aðir að sögn handhafa dánarbús-
ins. Megi hún hvfla í friði.
Sunnudagur 11. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 19
REYKJMJÍKURBORG
Jlcuc&cvi Sfödcvi
Dagvist barna
Fólk með tungumálskunnáttu óskast til stuðn-
ings heyrnarskertum börnum.
Upplýsingar veita forstöðumaður á skóladagh./
leiksk. Hálsakoti, Hálsaseli 29 og Málfríður Lor-
ange sálfræðingur skrifstofu Dagvistar barna í
síma 27277.
REYKJMJÍKURBORG
Jícumcii Sfödíci
Dagvist barna
Valhöll
Fóstrur og aðstoðarfólk vantar á dagheimilið Val-
höll, nú þegar.
Upplýsingar gefa forstöðumaður í síma 19619.
|f | REYKJMÍÍKURBORG £g|
MT ^CUCteVl Sfödtw w
Þjónustuíbúðir aldraðra, Dalbraut 27.
Laust ertil umsóknar 100% starf á vakt, 2x75%
starf í eldhúsi og 2x100% starf í heimilishjálp.
Upplýsingar gefur forstöðumaður í síma 685377
alla daga.
REYKJKVIKURBORG
jlauíai Stódui
Skóladagheimili Austurbæjarskóla óskar eftir
starfsmanni hálfan eða allan daginn. Upplýsing-
ar veitir skólastjóri í síma 12681.
Laufásborg
Dagheimili v/Laufásveg
Okkur vantar starfsfólk í 100% stöðu. Vinnutími
9-17 og 75% stöðu, vinnutími 11.30-17.30.
Upplýsingar gefur Sigrún forstöðumaður í símum
17219 og 10045.
PÓST- OG
SÍMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða
verkamenn
við lagningu jarðsíma úti á landi.
Nánari upplýsingar verða veittar í síma 91-
26000.
||| Kópavogur
V Fóstrur - starfsfólk
Fóstra eða starfsmaður við uppeldisstarf óskast
til starfa að leikskólanum við Fögrubrekku. Um er
að ræða 50% starf eftir hádegi. Upplýsingar veitir
forstöðumaður í síma 42560.
Hafið samband og kynnið ykkur aðstæður.
Dagvistarfulltrúi