Þjóðviljinn - 11.10.1987, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 11.10.1987, Qupperneq 3
Sljömuspádómar eru út í hött Ragna Sigttrðardóttir: Sólskinsbrautin Grátt malbikið er þakið svörtum örum. Sveigð í boga þvert yfir veginn. Beint í varnarriðið. Út í svarta sólblómaakrana. Stálið beyglað. Verksummerki. Ekkert sást fyrir rigningunni. Rauð Ijósin á trukknum horfin í flauminn. Stöðugt flautað fyrir aftan. Hún gaf í. Tíminn hœgði á sér um leið og hún jók hraðann. Stóð í stað þegar hún missti stjórn á bílnum. Sá ekkert nema trukkinn þvers á veginum. Gult og rautt vörumerkið og nálœgt. Sprenging. Vatn blóð og glerbrot. Olían flœddi úr trukknum. Gylltur foss niður á veginn. Brákin á vatninu í öllum regnbogans litum. Bílarnir blindaðir af rigningunni. Eldur. Malbikið logaði. Sovétríkin Fídó í fótspor Jónasar Alkunna er að Jónas dvaldi í þrjá daga og þrjár nætur í iðrum hvals- ins og varð síður en svo meint af volkinu. Nú hafa borist fréttir af því austan úr Sovét að hundspott eitt hafi fetað í fótspor hans og í engu látið á sjá. Maður nokkur stóð á eystri bakka Pechoraár í Síberíu fyrir skömmu og var að bjástra við að varpa veiðineti sínu. Hundur hans var á vappi á vesturbakkanum, kom auga á húsbónda sinn og hugðist synda til hans yfir ána. A miðri leið hvarf hann skyndi- lega sjónum eigandans. Sá taldi hvutta af og skömmu síðar dró hann fengþungt net sitt uppá þurrt land. Aflinn reyndist vera risastór gedda, 1,8 metrar að lengd og 52 kíló að þyngd, en svo einkennilega vildi til að út á milli samanbitinna vara hennar stóð loðið skott. Veiðimann grunaði von bráðar hverskyns var, brá sveðju sinni á loft og risti gat á kvið stórfisksins. Út sté Fídó litli, gelti glaðiega og sveiflaði rófunni í gríð og erg. -ks. Rithöfundar ðsakaðir um anarkisma Stört úthlutunarnefndar bókmenntaverðlauna Nóbels gagnrýnd í nýútkominni bók Hvers vegna var Leo Tolstoy, Thomas Hardy, Graham Greene og fleiri ágætum höf- undum hafnað af hálfu sænsku bókmenntaakademí- unnar nóbelsku, á meðan minni spámönnum á borð við TheodorMommsen, Paul Heyse og Miguel Angel Ast- rias, voru veitt verðlaunin. Þessum spurningum leitast Kjell Epsmark við að svara i ný- útkominni bók, sem skrifuð er í tilefni þess að nú hafa skjöl sænsku bókmenntaakademíunn- ar verið birt almenningi og hægt að sjá, af hvaða ástæðum sumum höfundum var hafnað, en öðrum ekki. Alfred Nóbel setti það sem skilyrði fyrir veitingu, að höfund- ur hefði skrifað framúrskarandi og helst frumlegt verk, til að vera verðlaunanna verður. Lengi framan af fór úthlutunarnefndin alls ekki eftir þessum reglum, og Epsmark heldur því fram að störf hennar hafi gengið þvert á þesi fyrirmæli og endurspeglað hræðslu og íhaldssemi. Og tekur sem dæmi að árið 1902, þegar Tolstoy var tilnefndur, var hon- um hafnað á þeim forsendum að hann þótti prédika anarkisma í verki sínu, „Stríð og friður". Þess í stað voru verðlaunin veitt Theo- dor Mommsen, sem hafði skrifað verk um sögu Rómar, og honum lýst sem „frábærum höfundi til að skrifa sögulegar skáldsögur“. Þannig var Thomas Hardy hafn- að, 1910, „því að persónur hans þótti skorta bæði trú og siðferðis- þrek“. Emile Zola var ýtt útí kuldann, „vegna þess að hann þótti opinbera kaldan raunveru- leika með hæðnislegu ívafi". Henrik Ibsen þótti einfaldlega „neikvæður", Strindberg kom náttúrlega aldrei til greina, Her- mann Hesse þótti anarkistískur, 1930, en fékk reyndar verðlaunin 16 árum seinna, eftir að hann fékk þá einkunn „að hafa haldið merki húmanismans á lofti“. Margir af nóbelshöfundum eru mjög lítt þekktir, segir Epsmark, Hver er sá að hann hafi ekki litið á stjörnuspádóma sér til gamans? Án þess að taka mark á þeim að ráði nema þá í tengslum við hálfvolga per- sónulega hjátrú. Ólíklegt reyndarað stjörnuspár haldi fyrir mjög mörgum vöku - þó er þaðmikill iðnaðuraðfram- leiða stjörnuspár og arðbær. Og þeir eru vafalaust til sem líta á stjörnuspár, eða „stjörn- uspeki" eins og þetta fær að heita í daglegum dálki í Morg- unblaðinu, sem einskonar vísindi, gott ef ekki skilgetna systur sjálfrar stjörnufræðinn- ar. Þeir vantrúuðu hugsa náttúr- lega sem svo, að heilbrigð skyn- semi útiloki þann möguleika að staða himintungla á fæðingardegi bams gefi einhverjar marktækar upplýsingar um líf þess og feril síðarmeir. Þeir eru þá spurðir kannski: en hvernig getið þið sannað það að stjörnurnar skipti ekki máli fyrir lífshlaup manna? Hugguleg þoka K. B. Madsen heitir danskur sálfræðiprófessor sem hefur tekið að sér að svara þessu fyrir sinn hatt. Og það er kannski ómaksins vert á þeim kukltímum sem við nú lifum, að endursegja í stuttu máli það sem hann hefur helst við stjörnuspekina að athuga og hennar tilkall til að fara með „rétt“ mál. Madsen segir á þessa leið í ný- legri grein í Information: Lýsingar stjörnuspekinga á persónuleika manna eru afskap- lega ónákvæmar og þokukennd- ar. Oftast nær eru þær á þessa leið hér: „Þú ert vingjamleg mannes- kja og þægileg í umgengni, en ef þér er troðið um tær þá ertu fær um að berjast fyrir rétti þínum.“ Athugull lesandi tekur strax nema í mjög þröngum hópi og tekur Henrik Pontoppidan, Sully Pradhomme og Maurice Maet- erlinck sem dæmi. Um 1930 virð- ist nefndin taka þá stefnu að „poppa upp“ verðlaunin og veitir þau vinsælum höfundum á borð við John Galsworthy, Pearl S. Buck, og á þeim tíma var meira að segja höfundur „Gone with the wind“ tilnefndur. Það er svo ekki fyrr an á stríðs- áranum að nefndin fer að vinna af einhverju viti, segir Epsmark, en þá voru Hesse, André Gidé, T.S. Eliot og William Faulkner heiðraðir. En hinir nýju straumar innan nefndarinnar komu of seint fyrir höfunda einsog Joyce, Kaf- ka, D.H. Lawrence og Proust, sem þá vora allir farnir til guðs. Eftirstríðsárin einkenndust af því að ýmsir framkvöðlar á bók- menntasviðinu hlutu náð fyrir augum nefndarinnar Heming- way, Camus og Beckett. Um 1970 tók nefndin sér það bessaleyfi að endurtúlka orð Nó- bels, sagði það skipta meira máli eftir þrem einkennum slíkrar um- sagnar: 1. Hún er svo óljós að hún get- ur átt við svo til hvem sem er. 2. Seinni hluti setningarinnar dregur svo rækilega úr því sem sagt er í fyrri hluta hennar að um- sögnin í heild verður sjálfsagður hlutur, tugga (eins og „annað- hvort rignir hann eða rignir ekki“). 3. Úmsögnin er höfð það já- kvæð að menn eiga ekki í neinum erfíðleikum með að heimfæra hana upp á sjálfa sig. Hver verður morðingl? Fyrir utan lýsingar á persónu- leika taka stjörnuspámenn sér það fyrir hendur að segja fyrir um ævi manna, örlög þeirra. Þegar menn hafa reynt að setja stjöm- uspekina undir próf hafa menn notað staðreyndir um dauða menn, safnað upplýsingum um fæðingardag og dánardag og ótal margt annað og fóðrað á þeim tölvur - og látið gera stjörnuspár Hvaða einkunn hlaut Jorge Luis Borges? að vekja athygli á athyglisverðum en óþekktum höfundum, sem þyrftu meira á verðlaununum að halda, en höfundar sem þegar höfðu hlotið heimsathygli. í því tilviki nefnir Epsmark höfunda á borð við Patrick White og Wole Soyinka, I.B. Singer og Czeslaw Milosz og fleiri. William Golding og Márquez, vora undantekning- ar á þessum tíma. Nú hafa margir höfundar verið tilnefndir en val nefndarinnar verður birt í lok þessa mánaðar. Max Frisch, Gunther Grass, Octavio Paz, Carlos Fuentes og fleiri hefur verið spáð Nóbelnum, en nefndin gæti allt eins komið umheiminum á óvart með því að velja alls óþekkt ljóðskáld frá Sovétríkjun- um, með tilliti til ofangreindra þátta. Reuter - endursagt einnig um sama fólk. Til dæmis hefðu menn mátt búast við því, að stjórnuspámenn gætu sagt fyrir um það hvort menn mundu láta lífið fyrir eigin hendi, eða við aftöku eða á friðsamlegri hátt. Til dæmis voru teknir til meðferðar á þann hátt sem að ofan greinir 311 bandarískir sjálfsmorðingjar og 311 manneskjur aðrar og gerðar vora 622 stjörnuspár. Ekkert kom út úr þeim samanburði og þeim stjömuspám annað en rakið verði til hreinna tiviljana. Það var enginn skráanlegur munur á hóp- unum tveim. Alveg eins fór fyrir franskri rannsókn á 623 morðingjum sem allir létu lifið undir fallöxinni. Stjórnumerkin gátu ekkert mark- tækt sagt um þá, þeas ekkert um- fram það sem annað úrtak Frakka gat gefið tilefni til. Eins hefur farið með tilraunir til að prófa samhengið milli fæð- ingardags og atvinnu. Aftur á móti geta menn rakið saman viss tengsli milli mann- legra viðbragða og sólbletta, sem valda ýmsum rafsegultraflunum og veðurfarsbreytingum. En það er, segir K. B. Madsen, allt önnur Ella.... (áb tók saman) Margrét Jónsdóttir sýnir í FÍM-sal Margrét Jónsdóttir sýnir í FÍM-salnum, Garðastræti 6, 9.-25. október 1987. Margrét stundaði nám í Myndlista- og handíðaskóla ís- lands 1970-1974. Framhalds- nám við Saint Martin’s School of Art í London 1974-1976. Hún var einn af stofnendum Gallerí Suðurgata 7 og starfaði við það árin 1977-1981. Margrét hefur tekið þátt í fjölda sýninga bæði hér heima og erlendis og má þar t.d. nefna sýningar í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Ítalíu, Englandi, Póllandi og Bandaríkjunum. í FÍM salnum sýnir Margrét olíumálverk öll máluð á þessu ári. Ég dansa við þig... Gífurleg aðsókn hefur verið að sýningu íslenska dansflokksins á dansverki Jochens Ulrich, Ég dansa við þig... Nú um helgina er allra síðasta tækifærið til að sjá þessa hugljúfu og vinsælu sýn- ingu, en í næstu viku verða hinir ágætu gestadansarar Athol Farmer og Philippe Talard komnir aftur til starfa sinna við Tanz-Foram flokkinn í Köln. Átti lokasýning verksins að vera laugardagskvöld (10. okt). Seinni aukasýningin verður sunnudags- kvöld, 11. október. Sunnudagur 11. október 1987 |>JÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.