Þjóðviljinn - 11.10.1987, Blaðsíða 3
Sljömuspádómar
eru út í hött
Ragna Sigttrðardóttir:
Sólskinsbrautin
Grátt malbikið er þakið svörtum örum.
Sveigð í boga þvert yfir veginn. Beint í
varnarriðið. Út í svarta sólblómaakrana.
Stálið beyglað. Verksummerki.
Ekkert sást fyrir rigningunni. Rauð
Ijósin á trukknum horfin í flauminn.
Stöðugt flautað fyrir aftan. Hún gaf í.
Tíminn hœgði á sér um leið og hún jók
hraðann. Stóð í stað þegar hún missti
stjórn á bílnum. Sá ekkert nema trukkinn
þvers á veginum. Gult og rautt vörumerkið
og nálœgt. Sprenging. Vatn blóð og glerbrot.
Olían flœddi úr trukknum. Gylltur foss niður
á veginn. Brákin á vatninu í öllum regnbogans
litum. Bílarnir blindaðir af rigningunni.
Eldur. Malbikið logaði.
Sovétríkin
Fídó í fótspor
Jónasar
Alkunna er að Jónas dvaldi í þrjá
daga og þrjár nætur í iðrum hvals-
ins og varð síður en svo meint af
volkinu. Nú hafa borist fréttir af því
austan úr Sovét að hundspott eitt
hafi fetað í fótspor hans og í engu
látið á sjá.
Maður nokkur stóð á eystri
bakka Pechoraár í Síberíu fyrir
skömmu og var að bjástra við að
varpa veiðineti sínu. Hundur hans
var á vappi á vesturbakkanum,
kom auga á húsbónda sinn og
hugðist synda til hans yfir ána.
A miðri leið hvarf hann skyndi-
lega sjónum eigandans. Sá taldi
hvutta af og skömmu síðar dró
hann fengþungt net sitt uppá þurrt
land. Aflinn reyndist vera risastór
gedda, 1,8 metrar að lengd og 52
kíló að þyngd, en svo einkennilega
vildi til að út á milli samanbitinna
vara hennar stóð loðið skott.
Veiðimann grunaði von bráðar
hverskyns var, brá sveðju sinni á
loft og risti gat á kvið stórfisksins.
Út sté Fídó litli, gelti glaðiega og
sveiflaði rófunni í gríð og erg.
-ks.
Rithöfundar ðsakaðir
um anarkisma
Stört úthlutunarnefndar bókmenntaverðlauna Nóbels
gagnrýnd í nýútkominni bók
Hvers vegna var Leo Tolstoy,
Thomas Hardy, Graham
Greene og fleiri ágætum höf-
undum hafnað af hálfu
sænsku bókmenntaakademí-
unnar nóbelsku, á meðan
minni spámönnum á borð við
TheodorMommsen, Paul
Heyse og Miguel Angel Ast-
rias, voru veitt verðlaunin.
Þessum spurningum leitast
Kjell Epsmark við að svara i ný-
útkominni bók, sem skrifuð er í
tilefni þess að nú hafa skjöl
sænsku bókmenntaakademíunn-
ar verið birt almenningi og hægt
að sjá, af hvaða ástæðum sumum
höfundum var hafnað, en öðrum
ekki.
Alfred Nóbel setti það sem
skilyrði fyrir veitingu, að höfund-
ur hefði skrifað framúrskarandi
og helst frumlegt verk, til að vera
verðlaunanna verður. Lengi
framan af fór úthlutunarnefndin
alls ekki eftir þessum reglum, og
Epsmark heldur því fram að störf
hennar hafi gengið þvert á þesi
fyrirmæli og endurspeglað
hræðslu og íhaldssemi. Og tekur
sem dæmi að árið 1902, þegar
Tolstoy var tilnefndur, var hon-
um hafnað á þeim forsendum að
hann þótti prédika anarkisma í
verki sínu, „Stríð og friður". Þess
í stað voru verðlaunin veitt Theo-
dor Mommsen, sem hafði skrifað
verk um sögu Rómar, og honum
lýst sem „frábærum höfundi til að
skrifa sögulegar skáldsögur“.
Þannig var Thomas Hardy hafn-
að, 1910, „því að persónur hans
þótti skorta bæði trú og siðferðis-
þrek“. Emile Zola var ýtt útí
kuldann, „vegna þess að hann
þótti opinbera kaldan raunveru-
leika með hæðnislegu ívafi".
Henrik Ibsen þótti einfaldlega
„neikvæður", Strindberg kom
náttúrlega aldrei til greina, Her-
mann Hesse þótti anarkistískur,
1930, en fékk reyndar verðlaunin
16 árum seinna, eftir að hann
fékk þá einkunn „að hafa haldið
merki húmanismans á lofti“.
Margir af nóbelshöfundum eru
mjög lítt þekktir, segir Epsmark,
Hver er sá að hann hafi ekki
litið á stjörnuspádóma sér til
gamans? Án þess að taka
mark á þeim að ráði nema þá í
tengslum við hálfvolga per-
sónulega hjátrú. Ólíklegt
reyndarað stjörnuspár haldi
fyrir mjög mörgum vöku - þó
er þaðmikill iðnaðuraðfram-
leiða stjörnuspár og arðbær.
Og þeir eru vafalaust til sem
líta á stjörnuspár, eða „stjörn-
uspeki" eins og þetta fær að
heita í daglegum dálki í Morg-
unblaðinu, sem einskonar
vísindi, gott ef ekki skilgetna
systur sjálfrar stjörnufræðinn-
ar.
Þeir vantrúuðu hugsa náttúr-
lega sem svo, að heilbrigð skyn-
semi útiloki þann möguleika að
staða himintungla á fæðingardegi
bams gefi einhverjar marktækar
upplýsingar um líf þess og feril
síðarmeir. Þeir eru þá spurðir
kannski: en hvernig getið þið
sannað það að stjörnurnar skipti
ekki máli fyrir lífshlaup manna?
Hugguleg þoka
K. B. Madsen heitir danskur
sálfræðiprófessor sem hefur tekið
að sér að svara þessu fyrir sinn
hatt. Og það er kannski ómaksins
vert á þeim kukltímum sem við
nú lifum, að endursegja í stuttu
máli það sem hann hefur helst við
stjörnuspekina að athuga og
hennar tilkall til að fara með
„rétt“ mál.
Madsen segir á þessa leið í ný-
legri grein í Information:
Lýsingar stjörnuspekinga á
persónuleika manna eru afskap-
lega ónákvæmar og þokukennd-
ar. Oftast nær eru þær á þessa leið
hér: „Þú ert vingjamleg mannes-
kja og þægileg í umgengni, en ef
þér er troðið um tær þá ertu fær
um að berjast fyrir rétti þínum.“
Athugull lesandi tekur strax
nema í mjög þröngum hópi og
tekur Henrik Pontoppidan, Sully
Pradhomme og Maurice Maet-
erlinck sem dæmi. Um 1930 virð-
ist nefndin taka þá stefnu að
„poppa upp“ verðlaunin og veitir
þau vinsælum höfundum á borð
við John Galsworthy, Pearl S.
Buck, og á þeim tíma var meira
að segja höfundur „Gone with
the wind“ tilnefndur.
Það er svo ekki fyrr an á stríðs-
áranum að nefndin fer að vinna
af einhverju viti, segir Epsmark,
en þá voru Hesse, André Gidé,
T.S. Eliot og William Faulkner
heiðraðir. En hinir nýju straumar
innan nefndarinnar komu of seint
fyrir höfunda einsog Joyce, Kaf-
ka, D.H. Lawrence og Proust,
sem þá vora allir farnir til guðs.
Eftirstríðsárin einkenndust af því
að ýmsir framkvöðlar á bók-
menntasviðinu hlutu náð fyrir
augum nefndarinnar Heming-
way, Camus og Beckett.
Um 1970 tók nefndin sér það
bessaleyfi að endurtúlka orð Nó-
bels, sagði það skipta meira máli
eftir þrem einkennum slíkrar um-
sagnar:
1. Hún er svo óljós að hún get-
ur átt við svo til hvem sem er.
2. Seinni hluti setningarinnar
dregur svo rækilega úr því sem
sagt er í fyrri hluta hennar að um-
sögnin í heild verður sjálfsagður
hlutur, tugga (eins og „annað-
hvort rignir hann eða rignir
ekki“).
3. Úmsögnin er höfð það já-
kvæð að menn eiga ekki í neinum
erfíðleikum með að heimfæra
hana upp á sjálfa sig.
Hver verður
morðingl?
Fyrir utan lýsingar á persónu-
leika taka stjörnuspámenn sér
það fyrir hendur að segja fyrir um
ævi manna, örlög þeirra. Þegar
menn hafa reynt að setja stjöm-
uspekina undir próf hafa menn
notað staðreyndir um dauða
menn, safnað upplýsingum um
fæðingardag og dánardag og ótal
margt annað og fóðrað á þeim
tölvur - og látið gera stjörnuspár
Hvaða einkunn hlaut Jorge Luis
Borges?
að vekja athygli á athyglisverðum
en óþekktum höfundum, sem
þyrftu meira á verðlaununum að
halda, en höfundar sem þegar
höfðu hlotið heimsathygli. í því
tilviki nefnir Epsmark höfunda á
borð við Patrick White og Wole
Soyinka, I.B. Singer og Czeslaw
Milosz og fleiri. William Golding
og Márquez, vora undantekning-
ar á þessum tíma. Nú hafa margir
höfundar verið tilnefndir en val
nefndarinnar verður birt í lok
þessa mánaðar. Max Frisch,
Gunther Grass, Octavio Paz,
Carlos Fuentes og fleiri hefur
verið spáð Nóbelnum, en nefndin
gæti allt eins komið umheiminum
á óvart með því að velja alls
óþekkt ljóðskáld frá Sovétríkjun-
um, með tilliti til ofangreindra
þátta.
Reuter - endursagt
einnig um sama fólk. Til dæmis
hefðu menn mátt búast við því,
að stjórnuspámenn gætu sagt
fyrir um það hvort menn mundu
láta lífið fyrir eigin hendi, eða við
aftöku eða á friðsamlegri hátt. Til
dæmis voru teknir til meðferðar á
þann hátt sem að ofan greinir 311
bandarískir sjálfsmorðingjar og
311 manneskjur aðrar og gerðar
vora 622 stjörnuspár. Ekkert
kom út úr þeim samanburði og
þeim stjömuspám annað en rakið
verði til hreinna tiviljana. Það var
enginn skráanlegur munur á hóp-
unum tveim.
Alveg eins fór fyrir franskri
rannsókn á 623 morðingjum sem
allir létu lifið undir fallöxinni.
Stjórnumerkin gátu ekkert mark-
tækt sagt um þá, þeas ekkert um-
fram það sem annað úrtak
Frakka gat gefið tilefni til.
Eins hefur farið með tilraunir
til að prófa samhengið milli fæð-
ingardags og atvinnu.
Aftur á móti geta menn rakið
saman viss tengsli milli mann-
legra viðbragða og sólbletta, sem
valda ýmsum rafsegultraflunum
og veðurfarsbreytingum. En það
er, segir K. B. Madsen, allt önnur
Ella....
(áb tók saman)
Margrét Jónsdóttir
sýnir í FÍM-sal
Margrét Jónsdóttir sýnir í
FÍM-salnum, Garðastræti 6,
9.-25. október 1987.
Margrét stundaði nám í
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands 1970-1974. Framhalds-
nám við Saint Martin’s School of
Art í London 1974-1976.
Hún var einn af stofnendum
Gallerí Suðurgata 7 og starfaði
við það árin 1977-1981. Margrét
hefur tekið þátt í fjölda sýninga
bæði hér heima og erlendis og má
þar t.d. nefna sýningar í Noregi,
Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi,
Ítalíu, Englandi, Póllandi og
Bandaríkjunum. í FÍM salnum
sýnir Margrét olíumálverk öll
máluð á þessu ári.
Ég dansa við þig...
Gífurleg aðsókn hefur verið að
sýningu íslenska dansflokksins á
dansverki Jochens Ulrich, Ég
dansa við þig... Nú um helgina er
allra síðasta tækifærið til að sjá
þessa hugljúfu og vinsælu sýn-
ingu, en í næstu viku verða hinir
ágætu gestadansarar Athol
Farmer og Philippe Talard
komnir aftur til starfa sinna við
Tanz-Foram flokkinn í Köln.
Átti lokasýning verksins að vera
laugardagskvöld (10. okt). Seinni
aukasýningin verður sunnudags-
kvöld, 11. október.
Sunnudagur 11. október 1987 |>JÓÐVILJINN - SÍÐA 3