Þjóðviljinn - 11.10.1987, Qupperneq 15

Þjóðviljinn - 11.10.1987, Qupperneq 15
„Þetta var allt meint í góðu, GUNNAR!" Á fslandi stendur hár klettur, og liggur grænn dalur allt í kringum hann, forðum vaxinn skuggsælum kjarrskógi, þar sem maður gat legið í makind- um og hlustað á og séð mann- inn sem talaði ofan af klettin- um. Á dögum Þjóðólfs var þessi staður nefndur Lög- berg, og þangað komu menn til samkomu í byrjun vors ell- egar á öðrum tímum til að ráða ráðum sínum um lands- ins gagn og nauðsynjar. Því að eyja þessi var á þessum tíma fríríki, og almenningur hlýddi í einu og öllu ráðum kosinna löggjafa, sem nefnd- ustlögmenn. Einnig á þessu ári sátu og stóðu hinir glæsilegu íslendingar á þingi þessu, allir saman vel vopnum búnir, svo sem hinum göfugu og hugrökku mönnum sýndist best sóma, svo að blikaði á spjótsodda milli trjánna, og margur fínpúss- aður skjöldurinn glitraði í græn- gresinu við fætur herra sinna. Nokkrir höfðu líka meðferðis veiðihunda sína. Þarna var marg- ur stór og litskrúðugur hundur, sem hljóp í kringum kappana, slóttugir fálkar sátu á herðum þeirra eða flugu kringum höfuð þeirra í hnitmiðuðum og velút- færðum sveig. Þannig stóð líka Þjóðólfur í flokknum og hafði tryggan fálka sinn á öxlinni og úlf sinn í bandi, í koparkeðju sem hann gæti leyst hvenær sem honum þóknaðist. Hann hafði ekki kært sig um ann- að fylgdarlið, því að hann hugði frænda sinn of gamlan og varfær- an til margra þeirra atvika sem hér kynni að bera uppá; ef Pietro hefði orðið samferða, hefði Malgherita litla grátið úr sér augun; og hvað snerti stríðs- kappa af lægri stéttinni var hann betur stæður einsamall en með þeirra hjálp. Hann leit sannar- íega svo á, að hann kynni betur að hjálpa öðrum en þeir honum, og þrátt fyrir hinn glæsta flokk skyldmenna, vina og skuldu- nauta, sem Gunnar hinn auðgi hafði umkringt sig með, var það hreint ekki svo, að deiluaðilar stæðu ójafnt að vígi. En íslend- ingar allir horfðu í þetta sinn á unglinginn, bæði flóttalegir og niðurlútir, kjarklausir með öllu vegna þess óréttar sem hann þótti beittur. Þá gekk Gunnar á Lögberg og mælti mörg skynsamleg orð um þann auma óskunda sem Þjóðólf- ur hafði unnið honum, og verri óskunda hefði hann gert þessari kæru eyju, sem forfeðurnir hefðu leitað athvarfs á, svo þeir gætu í ærusemd og ró losnað við geð- þótta hrokafulls konungs á Norð- urlöndum. Gætu menn þá kallað það ærusemd og góða siði, að hver afvegaleiddur unglingur mætti brjóta lögin rænandi og ruplandi af hjartans lyst? Ætti ekki að refsa þeim fyrir slíkt ódæði; ætti Þjóðólfur ekki þegar í stað að bjóða bætur fyrir verknað sinn? Ætlaði hann að bæta með silfri, vopnum eða hestum ellegar jörðum, eða láta dæma sig í út- legð í mörg ár? Að-lokinni ræðu Gunnars (en hún var alllöng), ætlaði hann að ganga niður af berginu svo Þjóð- ólfur kæmist að, en Þjóðólfur kallaði þangað upp: „Stattu þarna uppi sem lengst. Við kom- umst báðir fyrir þarna uppi, og söguna skal segja til enda.“ - Gunnar virtist eiga von á blóðugum úrslitum, því að hann festi brynju sína með lás og lag- færði stríðshjálminn á höfði sér, og mælti síðan, en var augsýni- lega brugðið: „Komdu bara hing- að upp, villti óvinur, ég bíð eftir þér.“ Þjóðólfur vafði úlfsbandið. fast um eikarbol, skipaði villidýrinu að hafa sig hægt, og vatt sér um- svifalaust upp að hlið Gunnars á klettinum. Fálkinn hnitaði hringa um þá báða. „Hefur þú lokið máli þínu?“ spurði unglingurinn eins og gal- gopi, og þegar andstæðingur hans játaði með semingi, hló hann hátt og glaðlega, og sagði: „Það er aldeilis ágætt, því að nú hefur þú mælt þau ónytjuorð, sem aldrei verða þér að gagni í lífinu. - „Heyrið þér þetta, íslendingar? Heyrið þér, hversu hann hæddi mig og lög yðar?“ Þetta hrópaði Gunnar grimmilegri röddu ofan af Lögbergi, og þá heyrðist reiði- muldur frá þingheimi, sem brátt mundi verða að öskri. En Þjóð- ólfur stappaði niður fæti svo að dvergmálaði í berginu, og kallaði með hvassri stríðsmannsröddu né skræmta, og úlfurinn þagnaði líka, sem hafði ýlfrað hátt og reiðilega, en hann var seinn fyrir, svo að herra hans kallaði til hans: „Haltu kjafti líka. Þetta mál kem- ur þér ekkert við, fremur en öðr- um. - Þá lagðist hann skömm- Þjóðólfur sér hina fögru Isold í Karþagó. sinni ofan til almúgans: „Þögn“. Og enginn maður heyrðist æmta te-Fouque og Þjóðólfi Eftir Koibein Þorieifsson Höfundur þessa sögukafla, Friedrich Baron de la Motte- Fouque (1777-1843) var brautryðjandi alls íslands- áhuga í Þýskalandi á 19. öld. Hann er lítt kunnur hér á landi, en Bjarni Thorarensen var látinn yrkja drápu honum til heiðurs á vegum hins ís- lenska bókmenntafélags. Þar var hann kallaður „íslands riddari". Motte-Fouque þýddi og endursagði Gunnlaugs sögu ormstungu á þýsku, og er það eina bókin eftir hann sem til er á íslenskum söfn- um, erfjallarum íslenskefni. Hann var höfundur ævintýrs- ins um hafmeyna Úndínu, sem SteingrímurThorsteins- son þýddi. Ýmsar bækur hans urðu efni í frægar óperur, svo sem sagan af Sigurði Fáfnis- bana, hinni norrænu hetju, hjá Wagner, og Úndína hjá Lortzing. Áseinastaskírdegi flutti Ríkisútvarpið dagskrá um Motte-Fouque í umsjá Art- húrs Björgvins Bollasonar, þarsem meðal annars var lesið úr Úndínu og gerð grein fyrir bókum hans um Sigurð Fáfnisbana. Hér er aftur á móti um sjálf- stætt skáidverk að ræða, og er söguhetjan Þjóðólfur Ásmundar- son (Þjóðólfur íslendingur). Hann er granni hins mikla höfð- ingja Gunnars hins auðga á Hlíð- arenda, lendir í málaferlum við hann sem honum tekst að vinna, eins og frá er sagt í þessum kafla. Síðan fer Þjóðólfur í víking og lendir í mestu ævintýrum, sem einkum snúast um systur frá Marselju-borg og greifans Pietro frá Castelfranco í Toscana. Ber hann m.a. til Karþagó og Kon- stantínópel. í riti þessu eru kveðnir ýmsir söngvar, sem um sumt minna á „Fjallið Skjald- breiður“ eftir Jónas, Völuspá og Hávamál, auk pflagrímssöngsins „Fögur er foldin“: „Kynslóðir koma, kynslóðir fara, allar sömu ævigöng.“ Þessi saga (útg. 1815) eftir Motte-Fouque hefur fengið held- ur óblíðar móttökur hjá bók- menntafræðingum, sennilega vegna þess að hann fer heldur frjálslega með sannfræðina í þessari hreinræktuðu skáldsögu. Hann þræðir heldur ekki eins og þræll íslenskar heimildir, heldur skáldar af hjartans lyst. Sumir kaflar bókarinnar eru hinir skemmtilegustu aflestrar, t.d. hjálagður kafli, þótt sumum þyki kappinn Gunnar á Hlíðarenda fá heldur slæma meðferð í þetta skipti. ustulegur niður í grasið og hnipr- aði sig saman eins og hlýðinn rakki. „Landsmenn," sagði Þjóðólf- ur. „Þið megið ekki fara strax að skamma mig, þótt ég taki upp á því að hlæja í annað sinn. Því sjá- ið til, hláturslaust get ég ekki rifj- að upp hina löngu ræðu hins auðuga og spakvitra manns. Hann hefur lagt í hana mikla vinnu og fyrirhöfn; en mér var sem ég sæi hann heima á bæ sín- um, er hann bangaði hana sam- an, og æfði síðan yfir hjúum sín- um og jafnvel gestum svo allir dáðust að henni og lærðu hana utanbókar, og gætu því hlaupið honum til hjálpar er hann ræki í vörðurnar. Og nú klifrar hann virðulegur upp á Lögberg og flytur speki sina, og öll fyrirhöfn- in og umstangið er til einskis. - Börnin góð! Þetta er sannarlega aðhlátursefni, og sýnið mér ofur- litla biðlund, þá skal ég sanna yður, hversu mjög hann hefur of- reynt sig.“ Enn skellti hann upp úr, og eins og eldur í sinu breiddist æsk- ugleðin um alla samkomuna, svo að smám saman gat enginn varist hlátri, ekki einu sinni þeir sem fylgt höfðu Gunnari að málum. Þá espaðist sækjandi málsins enn meir, og otaði atgeir sínum að Þjóðólfi. En unglingurinn hafði þegar náð traustataki um handlegg andstæðings síns, og hrópaði: „Gættu þín, maður, að æsa mig ekki til reiði. Ég gæti auðveidlega brotið í þér hvert bein, og það þætti mér verst á þessari virðulegu samkomu, en sökin lægi samt á þér. Hvernig fór fyrir bjarndýrinu sem uxinn hafði á hornum sér? - En hugsa þig nú vel um, opnaðu augun, og mæl þá sjálfur, hvort atgeir þessi banni ekki þér sem hverjum öðrum að bera á mig sakir?“ í þeim töluð- um orðum sýndi hann andstæð- ingnum bjartan og mölbrotinn at- geirsoddinn, bretti upp ermar sínar svo um munaði, og sýndi ör sín, sem sönnuðu ljósiega, að það var hann sjálfur, sem Gunnar hafði forðum sæst við með hátíð- legu nautsblóti í augsýn margra vitna. Sækjandinn leit undrandi og skömmustulegur til jarðar. Loks lýsti hann því yfir um leið og hann roðnaði af reiði og blygðun, að leikið hefði verið á hann, og alit málið væri þar með úr sögunni. Varla hafði hann sleppt orð- inu, þegar Þjóðólfur faðmaði hann og kjassaði af hjartans lyst, og sagði: „Vertu nú ekki að erfa þetta við mig, elskulegi herra. Ég hefi alls ekki verið með neina undirhyggju í þessu máli, heldur gerðist þetta allt af sjálfu sér. Ný- lega hitti ég Mörð gamla víking í fjöru, þegar ég ætlaði að fiska, og sló ég hann til bana með stríðsöxi minni.“ Nú kvað við fagnaðaróp frá al- menningi, því að það var einmitt Mörður víkingur sem var ógnvaldur eyjarskeggja, og eng- inn hafði treyst sér að standast honum snúning. Einstaka rödd heyrðíst spyrja, hvers vegna ung- lingurinn hefði þagað svo lengi yfir fagnaðarboðskapnum. En þá stappaði Þóðólfur enn fæti sínum í Lögberg, svo að þrumugnýr heyrðist, og hrópaði: „Þögn!“ - „Hvað er eiginlega um að tala,“ hélt hann áfram, „þótt einn stríðsmaður drepi annan, svo hann standi ekki upp aftur? Það gerist oft, og mun æ oftar gerast í heimi hér. Þegar ég hafði reist ísagrím gamla hauginn og lagt hann til hvflu, datt mér í hug, að bæri ég langa og gráa skeggið hans, þekkti mig enginn aftur; ég skar því af honum brúskinn og bjó mér til skegg á staðnum, dró bjarnarfeldinn yfir höfuðið, og ætlaði fyrst að skemmta mér við að erta góðu konuna frá Próvinsu sem nú dvelur heima hjá okkur. En af því að ég hafði þá þegar næstum hrætt úr henni líftóruna með bellibrögðum mínum - því að hún er ekki sterk að eðlisfari - hugsaði ég með mér: Reyndu þetta einu sinni heima hjá Gunn- ari. Kannski getur þú gert honum einhvern greiða, sem hann launar þér seinna. Gangi það ekki - jæja, þá sætti ég mig við það, þeg- ar ég verð einhvern tímann út- lægur ger í nokkur ár að Lög- bergi. Ég þrái ævintýri. - Síðan hefur allt gengið að óskum, eins og Gunnar sjálfur getur best vott- að. Og elskulegi Gunnar, verið bara ángæðir. Þetta var allt sam- an meint í góðu.“ Bamsleg einlægni unglingsins gerði það að verkum, að fórnar- lamb gamanleiksins fyrirgaf hon- um greiðlega, og vegna sigurs hans á Merði víking fylgdu allir göfugustu bændur á Islandi Þjóð- ólfi með hornablæstri og fagnað- arópum heim á leið. Sunnudagur 11. október 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.