Þjóðviljinn - 11.10.1987, Side 22

Þjóðviljinn - 11.10.1987, Side 22
KROCSGÁIA 1 2 T~ vh 5* ? $ JO )i <P 12 8 3l )3 W JS- )(c ii V 5' )8 U> 18 )t <fl Zo 2! H- 22 w 2 23 )(s> Ue // V 3í 9 f n W W Us 2> )l )é> 22 3lv 't z‘ð V 9 T~ V 2ií Ý /9 )0 V 24 2? W )/ H- 22 2/ 23 V I9 H u 23 H 23 ¥• <F 20 Y y w V 2é> )H- T~ 2i W~ 10 1/ 24 J? 22 >9 ){p II 23 d 24 2°J /f <7 10 )0 22 l 9 H II w J D 23 V V 24 )¥ 20 /4 2 2 JÝ 9 90 d W V V- 23 24 J4 V S' II H <? 23 22 )0 )0 U H- J9 9 22 )(d 22 10 V 3‘ 21 10 8 V 3 W 22 3 H- /9 )6 29 II I9- 7/ S2 “ 2/ II 2 14- 1* 32 7S Stafirnir mynda íslenskt orð eða mjög kunnugleg erlend heiti hvort sem lesið er lárétt eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og qaldurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á það að vera næg hjálp því með því eru gefnir stafir í allmörgum orðum. Það eru því eðlilegustu vinnubrögðin að setja þessa stafi í hvern sinn reit eftir því sem tölurnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram að í þessari krossgátu er gerður skýr greinarmunur á grönnum sórhljóða og breiðum, t.d. getur a aldrei komið í stað á qða öfugt. 2 21 V )0 23 13 V 3 5 Setjið rótta stafi í reitina hér fyrir neðan. Þeir mynda þá nafn á götu í Reykjavík. Sendið þetta nafn sem lausn á krossgátunni til Þjóðviljans, Síðumúla6, Reykjavík, merkt „Krossgáta nr. 588". Skilafresturerþrjár vikur. Verðlaunín verða send til vinningshafa. Ásta Jónasdóttir, Seljalandi 1, Reykjavík hlaut verðlaun fyrir krossgátu númer 586. Lykilorðið var tvídægra. Hún fær senda bókna Furður veraldar eftir Arth- ur C. Clarke. Verðlaunin að þessu sinni eru ekki af lakari endanum: Blaðið okkar- þættir úr sögu Þjóðviljans eftir Árna Bergmann. Kjörbók allra Þjóðviljavina! AÁBDÐEÉFGHIÍJKLMNOÓPRSTUÚVXYÝÞÆÖ Gottmót á Örkinni Hermann Lárusson og Hannes R. Jónsson urðu sigurvegarar á Opna Hótel Arkar-stórmótinu sem spilað var um síðustu helgi. 62 pör tóku þátt í mótinu. Með þessum sigri sínum hefur Her- mann trúlega sett met í árangri á Opnum mótum hér á landi, því þetta er fjórða mótið hans í röð, þar sem hann „hirðir" sigurinn eða jafnvirði þess. Áður sigraði hann Opna af- mælismótið sem Þjóðviljinn gekkst fyrir ’86, Opna Portorozmótið sem Samvinnuferðir/Landsýn efndu til ’86, með komu Beliadonna hingað til lands, 2. sætið í Opna Daihatsu- stórmótinu (sem gaf 100.000 kr. til parsins) og nú Hótel Arkar-mótið. Félagar hans í þessum fjórum mótum hafa verið, auk Hannesar, þeir ísak Örn Sigurðsson og undirritaður (tvö mótanna). Ferðaskrifstofu H. L. og Hannesi er óskað til hamingju með árangur- inn. í næstu 'sætum (einnig ferðavinn- inga) urðu Jón Ingi Björnsson/Her- mann Tómasson, ungir spilarar af höfuðborgarsvæðinu, þó báðir séu raunar Dalvíkingar. Og loks Guðni E. Hallgrímsson og Gísli Ólafsson, báðir frá Grundarfirði. Sannarlega gott hjá þessum pörum, enda mótið skipað „stórjöxlum" úr Reykjavík að miklum hluta. Mótið tókst vel. Góðar aðstæður eru til spilamennsku á Örkinni og þjónusta öll til fyrirmyndar. Er næsta víst að Örkin muni standa fyrir árlegu stórmóti f framtíðinni. Fullbókað er í Opna minningar- mótið um Einar Porfinnsson, sem Bridgefélag Selfoss mun gangast fyrir laugardaginn 24. október n.k. fyrir þann hluta sem BSÍ sá um (18 pör af 36). Valdimar Bragason á Selfossi annast hinn hlutann. Mjög góð aðsókn er að Bridge- skóla Guðmundar Páls Arnarsonar, sem starfræktur er tvisvar í viku, yfir haust- og vetrarmánuðina. Guð- mundur er jafnframt ritstjóri og út- gefandi Bridgeblaðsins, auk þess að vera mikilvirkur spilari, m.a. nv. fs- landsmeistari í tvímenning. Með tilvist Bridgeskólans og hlið- sjón af góðri aðsókn, er ljóst að bridge sem afþreyingarefni og íþrótt (fyrir þá lengra komnu) er stöðugt í sókn í íslensku þjóðlífi. Má í fram- haldi af þessu enn á ný vekja athygli á dauflegri umfjöllun ríkisfjölmiðla á bridgespilamennsku. Svörin á þeim bænum eru orðin landsfræg í röðum bridgefólks: „Hvað, er þetta ekki bara heppni sem veldur því hver vinn- ur?“ Heppnin í bridge fylgir engum regl- um, og sá besti getur verið pínlega óheppinn. Er hann þá sá besti? Jú, því í skipulögðum keppnisbrige, hef- ur heppnisþátturinn verið takmark- aður þannig, að útkoman er upp er staðið hefur afar lítið með heppni að gera. Sá sem framkvæmir eitthvað sem við köllum „heppni” í bridge og kemst upp með það í dag, missir niður um sig brækurnar á morgun. Pá var betra að halda sig við „teóríuna” þ.e. grundvallarlögmálin. Um það snýst máhð. Bridgeféiagið Muninn í Sandgerði gengst fyrir stórmóti, annað árið í röð, laugardaginn 14. nóvember. Fyrirkomulagið verður barometer, 2 spil milli para. Sigurvegarar síðasta ár urðu þeir Magnús Ólafsson og Páll Valdimarsson. ÓLAFUR LÁRUSSON Bridgesamband íslands stendur fyrir landsbikarkeppni (landství- menning) vikuna 19.-24. október (aðra viku). Fyrirkomulag verður með sama sniði og á síðasta ári. Tölv- ugjöfin verður send til formanna fé- laganna og þeir sjá um að gefa spU, sem síðan verða spiluð á spilakvöldi viðkomandi félags. Heimilt er að fleiri en eitt félag spili í einu og að auki er spilað um tvöfaldan „skammt“ bronsstiga í riðlunum. Skorin er síðan reiknuð út, sem landið væri einn riðill í tölvu. Efstu pörin fá guUstig auk verðlauna frá BSI. Keppnisgjald er aðeins kr 800 pr. par, sem rennur óskipt í húsa- kaupasjóð BSÍ. Formenn mega eiga von á tölvu- gjöfínni innan skamms. Allar nánari upplýsingar veitir skrifstofa sam- bandsins. Minnt er á skráninguna í fslands- mót kvenna og yngri spilara í tví- menning, sem spilað verður um helg- ina 7.-8. nóvember n.k. Skráð er hjá BSÍ. Og Reykjavíkurbikarkeppnin verður á dagskrá nú í október. Dregið verðurí 1. umferð 13. októbern.k. og verða því sveitir að hafa tilkynnt þátt- töku fyrir þann tíma. Keppnisgjald er aðeins kr. 2.000 pr. sveit. Spilað um silfurstig. Skráð ér á Bsf og Kristjáni Blöndal á kvöldin. Reykjavíkur- mótið í tvímenning verður svo sfðustu helgi í nóvember og úrslit í sama móti hálfum mánuði síðar. SKÝRT OG SKORINORT Blóma- og fluguvinafélagið i áðan flögruðu tvær grannholda hús- flugur þvert yfir herbergið; tylltu sér á stól í horninu og gáfu upp öndina. þar með vissi snati að sumrinu var lokið og grimmt og vægðarlaust haustið búið að taka völdin: hrísastelkirnir og smáfuglarnir flognir á vit suðrænnar sólar og kæmu kannski aldrei aftur. og haustið ertími morðingja og glæpamanna; fárviðra og úrhellis- rigningar- þunglyndis, fyrst og fremst þunglyndis, litli snati minn. II. og á stundum sem þessum verða dægurmál hvunndagsins skringilega lítil: hvern varðar um bankan erlenda verkamenn, halla á ríkissjóði og út- lenskar blóðsúthellingar þegar grösin og laufblöðin heyja sitt dauðastríð í miskunnarlausum krumlum haustsins. hvergeturveriðglaður þegar hæfilát skrautblóm eru tröðkuð niður af fimbulkulda og nístandi roki? ekki snati litli. það er eitt sem víst er. III. og hvar er í heimi hæli tryggt fyrir snata með ofun/iðkvæmt taugakerfi? Ijáðu mér vængi, söngdrottning, að fljúga burt með fuglunum og koma aldrei afturtil landsins sem drepur litlu, litskrúðugu blómin! og hver er sú þjóð sem velur sér slíkt morðingja- bæli að búa í? hver er sú þjóð sem fagnar þessum árstíma af því þá byrj- ar haustvertíð? IV. þær komast ekki á spjöld sögunnar, þessar tvær húsflugur; og ekki heldur blómin og skrautrunnarnir sem voru myrtir I nótt. og það má einu gilda, segir sá sem fagnar haustvertíðinni, blóm spretta alltaf aftur, en þorsk- urinn lifir aðeins einu sinni. við sem unnum fegurðinni og lífinu hugástum: við neitum að skrifa undir þetta skipu- lag heldur spyrjum: hver er sá guð sem skapar blóm sem verða að deyja aftur og oftsinnis: visna upp ótal sinn- um til þess að kvikna aftur að vori; alltaf með þá von heitasta að fá að lifa eilíflega eða þá deyja í eitt skipti fyrir öll! V. en mannfólkið stofnar félög utanum pólitík og ketti og Ijón og hvali og refi og glaða og sorgmædda - en aldrei er stofnað félag fyrir blóm eða f lugur. hver vill gæta blómanna? einn snati vigtar ekki mikið í stórum heimi: en hér með lýsir hann því yfir að BLÓMA OG FLUGUVINAFÉLAGIÐ erstofn- að! og nú skulum við berjast fyrir því að blómin fái að lifa, að flugur gefi ekki upp öndina á stól útí horni, að hrísa- stelkirnir þurfi ekki að flýja land, að sólin skíni alla daga ársins á glað- beittar plöntur og bústnar flugur. og hversu stutt verður þá ekki í frið hjá öllum mönnum: gleði og kátínu, hag- sæld og hlátrasköll. þá rekum við arma haustþræla af höndum okkar og látum þúsund blóm spretta - og litli snati verður aldrei framar þunglyndur eða leiður. 22 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. október 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.