Þjóðviljinn - 14.10.1987, Page 3
FRETTIR
Alþýðusamband Norðurlands F
Skipulag ASI
komið í eindaga
Þóra Hjaltadóttir, formaður Alþýðusambands Norðurlands:
Breytingar á skipulagi verkalýðshreyfingarinnar eru óhjá-
kvœmilegar. ASI verði byggt upp á starfsgreinasamböndum
Verkalýðshreyfingin er komin í
eindaga með að breyta skipu-
lagi sínu. Við leggjum til að
skipulag ASÍ verði tekið til
gagngerrar endurskoðunar og
byggt upp með starfsgreinasam-
böndum, sem aftur verði grund-
völluð á starfsgreinafélögum eða
deildarskiptum verkalýðsfé-
lögum þar sem við á, eins og á
minni stöðum, sagði Þóra Hjalta-
dóttir, formaður Alþýðusam-
bands Norðurlands, en á þingi
sambandsins um helgina var á-
Stúdentakjallarinn
Háskólastefna
íslenskt háskólastefna? er yfir-
skrift fundar sem Félag vinstri
manna gengst fyrir í Stúdenta-
kjallaranum í kvöld, og verður
rætt um þróun háskólamála á
landinu.
Frummælendur verða Birgir
ísleifur Gunnarsson mennta-
málaráðherra, Eyjólfur Kjalar
Emilsson starfsmaður heim-
spekistofnunar háskólans og Jón
Torfi Jónasson dósent. Fundur-
inn er öllum opinn og hefst kl.
20.30.
Jafnrétti
Launamunur
jafnaður
Nú er að fara í gang sérstök
samanburðarkönnun á launum
karla og kvenna á vegum forsæt-
isráðuneytisins og hefur verið
skipuð til þess framkvæmda-
nefnd sem á að skila af sér fyrir
nóvemberlok.
Nefndin á að sjá um úrtak-
skönnun í framhaldi af rannsókn-
um á Þjóðhagsstofnun, og á að
finna úr hver launamunur kynja
er, í hverju hann felst og hverjar
séu skýringamar.
Nefndina skipa Hallgrímur
Snorrason hagstofustjóri, Esther
Guðmundsdóttir þjóðfélagsfræð-
ingur, tilnefnd af Jafnréttisráði,
og Sigurður Snævarr hagfræðing-
ur, tilnefndur af Þjóðhagsstofn-
un.
lyktað um skipulagsmál verka-
lýðshreyfingarinnar.
Þóra sagði að þing Alþýðusam-
bands Norðurlands legði ein-
dregið til að breytingar á skipu-
lagi Alþýðusambands íslands
næðu fram að ganga á næsta þingi
ASÍ, sem haldið verður að ári.
- Það bendir flest til þess að
hliðstæðar breytingar nái fram að
ganga innan Verkamannasam-
bandsins á þingi þess um næstu
mánaðamót og það er vel. En við
teljum að þær breytingar einar
sér dugi skammt ef skipulagi ASÍ
verður ekki einnig breytt, sagði
Þóra.
- í sjálfu sér virðast flestir hafa
verið á þessari skoðun lengi, en
það er alltaf eins og málið strandi
þegar kemur að framkvæmdinni.
Það verður að kynna skipu-
lagsmálin mun betur en gert hef-
ur verið úti í félögunum svo að
menn viti hvað um er að vera þeg-
ar komið er á Alþýðsambands-
þing. Því leggjum við það til að
ASI skipuleggi og hrindi af stað
erindrekstri út um land þar sem
skipulagsmálin verði kynnt og
rædd ofan í kjölinn, sagði Þóra.
-rk
Austurland
Fyrirlestrar
fráVSÍ
HrafnkellA. Jónsson: Framkvœmdastjóri
VSÍ lasfyrir okkur valda kafla úrþjóðhags-
spá. Kröfugerðinni vísað á bugsem fjarstœðu
Það fór tiltölulega vel á með
mönnum, enda reyndi tæp-
lega á annað. Framkvæmdastjóri
VSÍ las fyrir okkur valda kafla úr
þjóðhagsspánni og sýndi línurít á
glærum. Atvinnurekendur höfn-
uðu okkar kröfugerð, en lögðu
ekkert annað á borðið. Þannig að
allar okkar kröfur standa enn,
sagði Hrafnkell Jónsson, formað-
ur verkalýðsfélagsins Árvakurs á
Eskifirði, er hann var inntur eftir
málalyktum á fyrsta viðræðu-
fundi atvinnurekenda og Alþýðu-
sambands Austurlands um nýja
kjarasamninga, sem haldinn var
á Egilstöðum í fyrradag.
- Þórarinn hefur seint og
snemma talið sér sæma að tala
um þessar tillögur okkar sem rugl
og annað verra, sem feli í sér 40 til
70% hækkun á launum fiskverka-
fólks. Það sýnir nokkuð þann hug
sem menn bera á þeim bænum til
launakrafna sem eru á bilinu 16
til 26%, sagði Hrafnkell.
- Það er hreint ótrúlegt að á
sama tíma og atvinnurekendur
telja okkar kröfur hreina fjar-
stæðu, fáum við fregnir af því að
íshúsfélag ísfirðinga greiði
51.700 dagvinnulaun á mánuði,
sem er hærra en hæsti taxti sem
við gerum kröfu um, sagði
Hrafnkell.
-rk
Kirkjuþing
Betra aðgengi
Mjög víða mun á það bresta að
fatlaðir eigi greiðan aðgang
að kirkjum landsins. Líku máli
gegnir þegar inn í kirkjurnar er
Mötuneytaskatturinn
Jón Baldvin bakkar
Enginn söluskattur á skólamötuneyti og
sjúkrahús. Fjármálaráðuneytið:
Misskilningur
Fjármálaráðuneytið er hætt við
að innheimta söluskatt af
skólamötuneytum, matseld á
sjúkrahúsum, fangelsum og í
skipum.
í tilkynningu sem ráðuneytið
sendir frá sér í gær segir að sá
skilningur að söluskattur hafi átt
að leggjast á þessa starfsemi sé
„misskilningur". Skattinn átti að
greiða frá og með 1. október og
hefur því sýnilega dregist nokkuð
hjá ráðuneytinu að leiðrétta mis-
skilninginn þrátt fyriröldu mót-
mæla frá meðal annars skóla-
mönnum og sveitarstjórnum.
„Að mati skattyfirvalda jafn-
gildir umrædd matargerð matseld
í heimahúsum," segir í tilkynn-
ingu ráðuneytisins og hafi því
aldrei komið til greina að skatt-
gja þessa matseld.
t tilkynningunni segir einnig að
ekki sé um tvísköttun að ræða í
þessum mötuneytisefnum þar-
sem heimilt sé að draga hráefnis-
innkaup frá skattskyldri veltu
áður en söluskattur er reiknaður.
-m
komið. Þar verður t.d. fólk í
hjólastólum að vera á ganginum
milli bekkja eða framan við
fremstu bekkina, og þannig mjög
áberandi, sem sumum finnst
óþægilegt.
í tillögu sem Kristján Þorgeirs-
son flutti á Kirkjuþingi er bent á
þá leið til úrbóta, að tveir eða þrír
bekkir í kirkjunni verði styttir
þannig að rúm myndist fyrir hjól-
astóla við enda bekkjarins.
Kirkjuþing afgreiddi tillögu
Kristjáns Þorgeirssonar þannig
að beina því til safnaða landsins,
að fötluðum verði auðveldaður
aðgangur að kirkjum og gert fært
að taka fullan þátt í kirkjulegum
athöfnum. Jafnframt sé það haft
hugfast, að „kirkjur eiga að vera
lifandi heimili safnaða, enda þótt
verndunarsjónarmið beri jafn-
framt að virða, og getur því verið
nauðsynlegt að breyta því, sem
fyrr þótti hæfa“. Söfnuðum er
bent á að hafa fullt samráð við
ferlinefnd fatlaða um þessi mál.
Kirkjuráði er falið að koma
þessari samþykkt til sóknar-
nefnda.
- mhg
Lögreglan
Lífleg störf í boði
Lögreglustöður í Reykjavík auglýstar stíft
ví er ekki að neita að það er
hörgull á lögregluþjónum.
Óvanalega margir lögregluþjón-
ar eru við nám í Lögregluskólan-
um í vetur og okkur vantar því 15
til 20 manns til starfa fram að
áramótum, sagði Steinþór Nigor,
lögregluvarðstjóri í Reykjavík.
Lögreglustjóraembættið í
Reykjavfk hefur að undanförnu
auglýst stíft eftir fólki til lögreglu-
starfa. Samkvæmt auglýsingu
embættisins eru lífleg störf í boði
fyrir þá sem „vilja kynnast lög-
reglustarfinu og öllum þeim
mannlegu samskiptum sem það
býður upp á“.
Ástæða þess að óvenju margir
lögregluþjónar sitja í vetur á
skólabekk, er einkum sú að und-
anfarin ár hefur verið nokkuð um
endurnýjun innan lögreglunnar,
og nýjum mönnum er umhugað
að vinna sér inn fastráðningu og
launaflokkshækkanir með því að
fara í gegnum Lögregluskólann.
Að sögn Steinþórs Nigors hafa
margir spurst fyrir um auglýst
störf. - Mér sýnist mjög álitlegur
hópur manna, bæði karla og
kvenna, hafa sótt um, sagði
Steinþór.
Einkum er sóst eftir fólki til
starfa á aldrinum 20 til 30 ára, eða
- fólki sem ætti að vera búið að
hlaupa af sér homin, eins og
Steinþór Nigor orðaði það.
-rk
Miövikudagur 14. október 1987 [þjÓÐVIUJINN - SÍÐA 3