Þjóðviljinn - 14.10.1987, Side 10

Þjóðviljinn - 14.10.1987, Side 10
Sjúkrahús á Akureyri Innanhússfrágangur Tilboö óskast í innanhússfrágang röntgendeildar í nýbyggingu Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri. Um er aö ræöa nálægt 1.100 m2 svæöi. Verktaki tekur viö húsrýminu meö múrhúðuðum útveggjum og ílögðum gólfum og skal skila því fullgerðu. Innifaliö er allt, sem til verksins þarf, þ.m.t. vatns-, skolp-, hita-, loftræsi- og raflagnir ásamt búnaði. Setja skal upp létta veggi og hengiloft, mála, leggja gólfefni o.fl. Verkinu skal skilað í tveimur áföngum, þeim fyrri skal lokiö 1. október 1988, en öllu verkinu skal að fullu lokið 1. maí 1989. Útboðsgögn verða afhent til og með 30. okt. 1987 á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Rvk. og á skrif- stofu umsjónarmanns framkvæmdadeildar I.R. Bakkahlíð 18, Akureyri, gegn 10.000.- kr. skila- tryggingu. Tilboð verða opnuð hjá Innkaupastofnun ríkisins þriðjudaginn 10. nóvember 1987 kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN RIKISINS Laus staða Staða sérfræðings við Stofnun Árna Magnússonar á íslandi er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins. Umsóknir skulu sendar menntamálaráðuneytinu fyrir 10. nóvember 1987. Umsækjendur skulu láta fylgja umsókn sinni upplýsingar um námsferil og störf, ennfremur rækilega skýrslu um vísindaverk, er þeir hafa leyst af hendi. Menntamálaráðuneytið, 9. október 1987 Hafnarfjörður == Víðivellir Stuðningsfóstra. Fóstra eða þroskaþjálfi ósk- ast í 37,5% starf. Upplýsingar gefur Þórelfur Jónsdóttir, forstöðu- kona í síma 52004. Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði Kennarar - kennarar Góðir tekjumöguleikar. Afleysingakennara vantar að Grunnskólanum Eiðum, sem er heimavistarskóli. Aðalkennslugreinar enska og danska. Allar upplýsingar gefur Sigtryggur í síma 97- 13825 eða 97-13824. Barnabílstóll - bílpúði - belti! Notar barnið þitt öryggisbúnað í bílnum? yUMFERÐAR RÁÐ ERLENDAR FRÉITIR Maó heitinn formaður á tali við bændafjölskyldu á sinni tíð. Maó var drjúgur reykingamaður, enda er sígaretta með í för. Heimilisfaðirinn fær sér smók formanninum til samlætis. Kínverjar eru meðal mestu reykingamanna í heimi. Kína Tekist á um tóbakið Skortur á „góðum“sígarettum ogþvíblómstrar braskið. 70% karla og 8% kvenna hafa ánetjast fíkninni Tíðindalaust á kínversku tó- baksvígstöðvunum í síðustu viku, eða að minnsta kosti ekkert óvenjulegt á seyði; braskari fékk lífstíðardóm, lögreglan kom upp um ólöglegar verksmiðjur og sölumiðstöðvar, og götusalar græddu stórfé á aimenningi sem ekki er of sæll með ástand tóbaks- málanna. Kínverjar eru meðal mestu reykingamanna í víðri veröld, og fylgja í þeim efnum hæpnu for- dæmi Deng Xiao Pings, sem svæl- ir í sig hverja pandasígarettuna á fætur annarri, en þessi tegund er mjög eftirsótt. Verkurinn er bara að eftirspurnin eftir bestu teg- undunum er margfalt meiri en framboðið. „í venjulegum verslunum er útilokað að verða sér úti um al- mennilegar tegundir. Þær verð- urðu að kaupa af götusölum við okurverði,“ segir leigubílstjóri nokkur, Liu Guo að nafni. „Viðskiptin blómstra, fólk er jafnvel reiðubúið að kaupa góðar sígarettur fyrir erlendan gjald- eyri,“ segir götusali einn. Hann gaf Íítið út á hvaðan hann fengi varninginn, en brosti því breiðar: „Það eru margar leiðir, en þær eru viðskiptaleyndarmál,“ sagði hann. Dagblöð í Kína varpa nokkru ljósi á þessar „mörgu leiðir.“ Til dæmis var maður nokkur í Kunming, höfuðborg Yunnan- fylkis, dæmdur til lífstíðarfang- elsis fyrir að selja ólöglega rúm- lega 800.000 pakka af sígarettum, en á þeim viðskiptum græddi hann sem svarar fjórum milljónum íslenskra króna, en sú upphæð samsvarar um 850 árs- launum venjulegs bónda. Maður þessi var háttsettur í tóbaksfyrir- tæki fylkisins og misnotaði að- stöðu sína til að múta tveimur embættismönnum til að verða sér úti um birgðirnar. Þess má geta að í Yunnan grær landsins besta tóbak. f síðasta mánuði birtu dagblöð í Kína strengilega viðvörun frá tóbakseinkasölu rikisins, en þar heitir hún svikahröppum og bröskurum því að þeirra bíði eng- in silkihanskameðferð. Ef marka má frásagnir blaðanna græða fyr- irtæki og einstaklingar ómældar fúlgur á braski með eftirsóttustu sígarettutegundirnar, sölu á eftir- líkingum, ólöglegum innflutningi tóbaks og starfrækslu neðanjarð- arverksmiðja. Svindilbrask þetta veldur neytendum ómældum skaða og mikilli óánægju, auk þess sem ríkiskassinn tapar stór- fé. Enda þótt Kínverjar rækti öðr- um þjóðum heims meira tóbak,' þá framleiða þeir ekki nóg af gæðatóbaki til að anna eftirspurn almennings sem hefur nú meira fé handa milli en áður hefur þekkst. Samkvæmt opinberum tölum reykja um 70% kínverskra karla, en aðeins um 8% kvennanna. Tó- baksiðnaðurinn halar inn um 8% skatttekna ríkisins. Stjórnvöld gera sitt til að benda á skaðsemi tó- baksreykinga og halda uppi mikl- um áróðri í þá veru. Það er þó við ramman reip að draga meðan beðið er eftir hugarfarsbylting- unni; sígarettureykingar hafa nefnilega verið stöðutákn borg- arbúa síðustu áratugi, þar sem al- menningur til sveita púar pípu. í upphafi þessa pistils var Deng Ziao Ping nefndur til þesarar sögu og neikvætt fordæmi hans. í þesum punkti er hann þó í félags- skap fjandvinar síns og forvera sem oddviti þjóðarinnar, Maós formanns. En formaðurinn gengni var ekki síður drjúgur við reykingarnar, og eru fjölmargar ljósmyndir af honum og málverk til marks um það. u« 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 14. október 1987

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.