Þjóðviljinn - 27.10.1987, Síða 10
FLÓAMARKAÐURINN
Ibúð óskast
Óska eftir að taka á leigu sem fyrst
þriggja herbergja íbúð. Leigutími
ca. eitt ár. Tilboð sendist auglýs-
ingadeild Þjóðviljans Síðumúla 6,
merkt íbúð 87-88.
Húsnæði óskast
Ungt par, háskólanemar, óskareftir
2-3 herb. íbúð á leigu. Uppl. í síma
656299 eftir hádegi.
Góður bíll til sölu
Til sölu Fiat '85. Einstaklega spar-
neytinn og þægilegur bill í topp-
standi. Vetrardekk fylgja. Til greina
koma skipti á ódýrari. Uppl. í síma
681310 kl. 9-17 og í síma 13462 e.
kl. 19.
Bráðvantar
íbúð, litla eða sióra. Erum 2 í heim-
ili, fullorðin og barn. Góðri um-
gengni og skilvísum greiðslum
heitið. Uppl. í síma 50751.
Ársgömul Lancia „skutla"
lúxusgerðin, fæst í skiptum fyrir
ódýrari bíl og peningamilligjöf.
Uppl. í síma 18054 eftir kl. 18.
Handunnar rússneskar
tehettur og matrúskur
í miklu úrvali. Póstkröfuþjónusta.
Ath. get komið meö vörurnar á t.d.
vinnustaði og í saumaklúbba ef
óskað er. Uppl. í síma 19239.
Óskum eftir 3ja herb. íbúð
frá 1. des. n.k.
Hafið samband í síma 611017 eða
688115 milli kl. 8 og 4.
Honda Accord '80
4ra dyra, 5 gíra til sölu. Hagstætt
verð. Uppl. í síma 72930 e. kl.
18.30.
Til leigu
ca. 30 m2 raflýstur bílskúr á Högun-
um, laus nú þegar. Uppl. í síma
22922 á kvöldin eða í símum 28611
og 17677 á daginn.
Til leigu
lítið risherbergi, leigist einungis
sem geymsluhúsnæði. Uppl. í síma
22922 á kvöldin eða í símum 28611
og 17677 á daginn.
Vantar
lítið svarthvítt sjónvarp. Uppl. I slma
611354.
Gítar til sölu
12 strengja kassagítar, nýr og ónot-
aður til sölu. Uppl. í síma 71184.
Snorri.
Viltu læra að
mála á silki?
Fimmtudaginn 29. okt. hefst kvöld-
námskeið í silkimálun í Hlaðvarpan-
um, Vesturgötu 3. Elín Magnúsdótt-
ir, myndlistarkona leiðbeinir. Uppl. í
síma 12342 allan daginn.
Nýlegar, Ijósar gardínur
með kappa frá Epal til sölu á mjög
góðu verði. Festingar fylgja með.
Breidd 5.40 m. Uppl. gefur Steinn í
síma 45755 miðvikud. e.kl. 16.00
og fimmtud. kl. 10 til 14.
Fender Rhodes
rafmagnspíanó til sölu. Gott hljóð-
færi á mjög góðu verði. Áður í eigu
Þursaflokksins. Uppl. gefur Steinn í
síma 45755 miðvikudag e.k. 16 og
fimmtudag kl. 10 til 14.
Góðir og velútiítandi
hlutir á vægu verði
2 Ijósarog nýlegargardínur, stangir
fylgja með. Ljós, viðarlitur bað-
skápur með speglahurðum og 2
stórir speglar. Panasonic útvarps-
og kassettutæki m/4 hátölurum,
lagaleitara, dolby systemi auk ann-
arra möguleika - gott tæki i góðu
standi. Uppl. gefur Steinn í síma
45755 miðvikudag e. kl. 16 og
fimmtudag kl. 10 til 14.
Píanó óskast
Vantar ódýrt, vel með farið píanó.
Uppi. í síma 67901 e.kl. 19.
Drengjareiðhjól
til sölu, þýskt, þarfnast nokkurrar
viðgerðar. Verð kr. 1.000.-. Uppl. í
síma 622456 kl. 5-7 í dag, þriðju-
dag.
Barnavagn og koja
Til sölu brúnn Emmaljunga barna-
vagn ásamt kerru á kr. 7.500.- ný-
leg regnhlífakerra á kr. 2.500. Einn-
ig hvít kojueining, koja með dýnu,
skápur og skrifborð ca. ársgamalt á
kr. 9.500.-. Uppl. í síma 14167.
Lítil þvottavél óskast
Upplýsingar í síma 16718 og
681720.
Óska eftir
litasjónvarpi, helst m/fjarstýringu.
Sími 17918 e.kl. 18.
Ódýr svalvagn óskast
Upplýsingar í síma 38828 e.kl. 19 á
kvöldin.
Fíat
Mig vantar vél í Fiat 128 árg. '78. Ef
þú átt Fiathræ með sæmilegri vél
skal óg losa þig við það þér að
kostnaðarlausu. Uppl. í síma
681663- Hörður.
Saab 99
árg. '71 í góðu lagi til sölu á kr.
25.000.-. Uppl. í síma 681274.
Páfagaukur
Langar voða mikið í dísapáfagauk,
„nymfhe" eða stærri. Hringið i
Garðar í lay-outi á Þjóðvilja, sími
681333.
Óska eftir
að kaupa litasjónvarp, einnig „fifti-
es“ Ijósastæði. Uppl. í síma
681936.
ísskápur til sölu
1.40x60x60. Einnig til sölu 2 rúm
90x200 cm. hvort. Verð eftir
samkomulagi. Ennfremur er til sölu
Subaru 1600 station árg. '79. Verð
samkomulag. Sími 38486 e.kl. 18.
Skoda Pardus
árg. '78 til sölu, selst mjög ódýrt.
Ekinn aðeins rúmlega 60.000 km,
bráaðbirgðaskoðun '87, sumar- og
vetrardekk á felgum, fjöldi vara-
hluta. Sími 41289 e.kl. 17.
Til sölu
rimlavagga vel með farin, verð kr.
5.000.-. Einnig til sölu 4 Volvo 245
felgur. Uppl. í síma 38984.
Handunnar rússneskar
tehettur og matrúskur
í miklu úrvali. Póstkröfuþjónusta. Afh.
get komið með vörurnar á t.d. vinnustaði
og I saumaklúbba ef óskað er. Uppl. I
slma 19239.
Dagheimilið Valhöll
Suðurgötu 39
Tvær fóstrur eöa fólk meö annars konar uppeld-
isfræöimenntun óskast til starfa strax. Önnur
staðan er í 1-2 ára deild en hin í 3-4 ára deild.
Upplýsingar gefur forstööumaður í síma 19619.
Konan mín, móðir okkar, dóttir mín og systir okkar
Svava Sigríður Guðmundsdóttir
Ásvegi 10
verður jarðsungin frá Áskirkju miðvikudaginn 28. október ki.
13.30.
Pétur Tyrfingsson
Guðmundur Pétursson
Gunnlaugur Már Pétursson
Margrét Tómasdóttir og systkini hinnar látnu
ERLENDAR FRETTIR
Kína
Efnahagsáætlun
rædd á flokksþingi
Zhao hyggst halda áfram á braut nýsköpunar. Erlendir
sendimenn íPeking segja óljóst afsetningaœðu hans á hvern
hátt ná eigi árangri í efnahagsmálum
Við setningu flokksþings Kom-
múnistaflokks Kína á sunnu-
dag flutti starfandi formaður
hans og forsætisráðherra lands-
ins, Zhao Ziyang, ræðu þar sem
hann útlistaði efnahagsstefnu
næstu fímm ára í anda nýsköpu-
narstefnunnar, lagði til að gerðar
yrðu ýmsar gagngerrar skipul-
agsbreytingar í stjórnsýslunni og
yngri menn fengnir til forystu-
starfa.
Um 2 þúsund þingfulltrúar
skipuðu sér síðan í 36 nefndir sem
eiga að fara ofaní saumana á
þeim atriðum er Zhao vakti máls
á í ræðu sinni.
Ekki er reiknað með öðru en
að þorri fulltrúa fylki sér að baki
Zhaos. „Fulltrúarnir munu að-
eins gera minniháttar breytingar
á ræðu Zhaos Ziyangs. Loka-
ályktunin mun verða nánast
óbreytt skýrsla formannsins,"
sagði ónefndur kínverskur blaða-
maður í gær.
Hann benti á þá staðreynd að
ræðan hefði sjö sinnum verið
lögð fyrir stofnanir flokksins sem
drög og lokagerðin hefði fengið
blessun miðstjórnarinnar sem í
eiga sæti 200 manns.
Flokksþingið starfar fyrir lukt-
um dyrum en í gær sýndi kín-
verska ríkissjónvarpið svipmynd-
ir frá störfum þess. Þar gaf að líta
Zhao formann með uppbrettar
skyrtuermar á kafi í rökræðum
við einhverja samherja, að öllum
líkindum um kosti ræðu sinnar.
Fjölmiðlar í Peking hafa gert
mikið úr ágæti ræðu Zhaos og
sagt að sú stefna er þar væri
mótuð í efnahagsmálum myndi
hleypa nýju lífi í hina níu ára
gömlu nýsköpunarstefnu.
Ýmsir vestrænir sendimenn í
Mikið mæðir og mun mæða á þessum herramönnum á þingi kínverska komm-
únistaflokksins. Til vinstri er Zhao Ziyang, starfandi flokksformaður, og til hægri
er agameistarinn Chen Yun.
höfuðborg Kínaveldis gjalda var-
huga við þessum fullyrðingum og
segja óvíst hvernig Zhao hafi
hugsað sér að hrinda stefnu sinni í
framkvæmd. Einum úr þeirra
hópi fórust orð á þessa leið:
„Ræðan féll umbótasinnum í geð
enda var þar fjálglega fjallað um
glæsileg markmið. Hinsvegar var
lítið sem ekkert rætt um það í
smáatriðum á hvern hátt nálgast
ætti þessi markmið."
Nú bíða menn með óþreyju
þess að lesin verði skýrsla agaeft-
irlitsnefndar flokksins en hún
lý'tur forystu hins 82 ára gamla
Chens Yuns sem á sæti í fimm
manna framkvæmdanefnd
stjórnmálaráðsins.
Chen þessi kvað vera andstæð-
ingur nýsköpunarstefnu Dengs
Xiaopings og Zhaos en er varla í
stakk búinn til að standa uppí
hárinu á þeim á þinginu því fróðir
segja hann svo veikburða að
hann verði að öllum líkindum að
fá einhvern til að lesa skýrslu ag-
anefndarinnar fyrir sig. í henni
verður að finna tillögur um valds-
svið kommúnistaflokksins í kín-
versku samfélagi. Nýsköpunar-
sinnar vilja að flokkurinn deili
valdi sínu að einhverju leyti,
einkum eru þeir áfram um að
auka vald framkvæmdastjóra fyr-
irtækja. En talið er að Chen ljái
ekki máls á neinu slíku og því
muni koma til deilna um þetta á
þinginu.
-ks.
Sovétríkin
Allt snýst um
„stjömustríðsáætlun“
Sovéskir embœttismenn segja Gorbatsjof reiðubúinn til að eigafund
með Reagan fyrir árslok ef „stjörnustríðsáœtlunin “fœst rœdd
Sovéskir embættismenn sögöu í
gær að þeir teldu enn koma til
greina að leiðtogar risaveldanna
tveggja ættu með sér fund fyrir
árslok en það ylti á því að Banda-
ríkjamenn væru reiðubúnir til
viðræðna um „störnustríðsáætl-
unina“ (SDI).
Þeir sögðu Míkael Gorbatsjof
hafa afhent utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, George Shultz,
skilaboð til Ronalds Reagans
forseta í þessa veru er hann hafði
viðdvöl í Moskvu í síðustu viku.
„Pað væri vel hægt að láta
fundinn fara fram á þessu ári ef
vilji væri fyrir hendi í Washing-
ton,“ sagði ónefndur embættis-
maður í Moskvu í gær. „En það
gerist náttúrlega ekki ef þeir
segja ekkert nema nei, nei, nei
við öllu því sem við höfum fram
að færa.“
Sem kunnugt er vildi Gorbat-
sjof ekki dagsetja þriðja fund
þeira Reagans er hann ræddi við
Shultz á föstudag. Engu að síður
kvaðst hann reiðubúinn til að
taka sér ferð á hendur til höfuð-
borgar Bandaríkjanna. „Pað sem
ég hef mestar áhyggjur af í augna-
blikinu eru hugsanlegar niður-
stöður slíks fundar,“ kvað hann
hafa sagt.
Utanríkisráðherra Sovétríkj-
anna, Eðvarð Shevardnadze,
sagði við fréttamenn að aflokn-
um tveggja daga viðræðum þeirra
Shultz í Moskvu að Sovétmenn
settu það skilyrði fyrir leiðtoga-
fundi að fyrir hann yrði lagður
rammasamningur um niðurskurð
langdrægra kjarnflauga stórveld-
anna.
Petta myndi þýða það, sam-
kvæmt áætlunum Sovétmanna,
að lokasamkomulag um fækkun
langflauganna yrði undirritað á
fyrri helmingi næsta árs á
leiðtogafundi í Moskvu.
Um þessar mundir eru fulltrú-
ar Sovétríkjanna og Bandaríkj-
anna langt komnir með frágang
fyrsta vinnuplaggs fyrir viðræður
um langdrægar kjarnflaugar. En
ágreiningur ríkir enn um tengsl
þeirra vopna við ákvæði Gagn-
flaugasamningsins (ABM) frá ár-
inu 1972 og „stjörnustríðsáform-
in“.
Sovéskur embættismaður
sagði í gær að Bandaríkjamenn
hömruðu á því að Kremlverjar
væru að reyna að koma „stjörn-
ustríðsáætluninni" fyrir kattar-
nef. „Vitaskuld geðjast okkur
ekki að henni en við vitum sem er
að henni verður haldið til streitu
á meðan Reagan fer með hús-
bóndavald í Hvíta húsinu. Því
viljum við ræða um hugsanlegar
breytingar á henni en Banda-
ríkjamenn ljá ekki einusinni máls
á því. “
-ks
14 SIÐA - ÞJÓÐVILJINN Priðjudagur 27. október 1987