Þjóðviljinn - 27.10.1987, Síða 16

Þjóðviljinn - 27.10.1987, Síða 16
Aðalsími 681333 Kvöldsími 681348 Helgarsími 681663 þiómnuiNN Þriðjudagur 27. október 1987 239. tölublað 52. órgangur Þjónusta íþínaþágu SAMVINNUBANKI ÍSLANDS HF. Loðna Ótíð og aflaleysi Ástráður Ingvarsson hjá Loðnunefnd: 17.135 tonn hafa veiðst á vertíðinni „Frá 12. október og fram að síðustu helgi veiddust aðeins 60 tonn af loðnu, vegna brælu á mið- unum sem hefur hamlað veiðum til þessa. En nú um helgina fékk Hrafn GK 450 tonn og Rauðsey AK 250 tonn af loðnu,“ sagði Ást- ráfiur Ingvarsson, hjá Loðnu- nefnd í samtali við Þjóðviljann. Mjög þungt hljóð er í loðnusjó- mönnum um þessar mundir vegna mikillar brælu sem verið hefur á miðunum sem hefur hamlað veiðum til þessa. 13 loðnuskip eru komin á skrá hjá Loðnunefnd, en ekki eru þau þó öll komin á miðin. Sum hver liggja enn í heimahöfn frá því brælukastið reið yfir. Með afla helgarinnar er heildarloðnuaflinn kominn í 17.135 tonn og er Eskifjörður með mesta magnið 4.350 tonn af loðnu. grh Rœkjuvinnslan Sjónarmiðin sameinuð Kvótatillögum rækju- vinnslustöðva skipað í nefnd Fulltrúar frá öllu helstu rækju- vinnslustöðvum landsins þinguðu í gær á Hótel Loftleiðum um það hvernig best yrði staðið að tillögum Félags rækju- og hörpudiskframleiðenda til sam- ráðsnefndarinnar um mótun fisk- veiðistefnunnar fyrir næsta ár. En rækjuvinnslustöðvar á Vest- fjörðum og á Norðurlandi eystra og vestra ákváðu á fundi á Akur- eyri fyrir skömmu að krefjast 50% af fyrirhuguðum rækju- ’kvóta verksmiðjunum til handa, þar sem rætt hefur verið um að hámarksveiðin verði 36 þúsund tonn af rækju. Að sögn Guðmundar Stefáns Maríssonar, framkvæmdastjóra Félags rækju- og hörpudiskfram- leiðenda var ákveðið á fundinum í gær að skipa nefnd sem í sitja einn fulltrúi frá hverjum lands- fjórðungi, ásamt honum, til að fínpússa tillögur félagsins til sam- ráðsnefndarinnar og einnig til þess að skoða kvótadæmið betur til þess að menn séu vissir um hvað kvótinn hefði í för með sér fyrir verksmiðjurnar út um allt land. Bjóst Guðmundur við því að annaðhvort yrðu tillögur rækjuvinnslustöðvanna birtar samráðsnefndinni á fundi hennar á morgun eða þá ekki fyrr en á föstudag, allt eftir því hvernig verkinu miðaði áfram. „Innan Félags rækju- og hörpudiksframieiðenda er breið samstaða um að ganga frá kvóta- tillögum okkar á þann veg að allir séu ánægðir, sama hvort þeir eru á Vestfjörðum, Norðurlandi eða í öðrum landsfjórðungum," sagði Guðmundur Stefán Maríasson framk væmdast j óri. grh Heimilsmenn á Kópavogshæli við störf. Þroskahjálp leggur til að dregið verði úr starfsemi hælisins á næstu árum og heimilisfólki gefinn kostur á að búa í litium sambýlum. Mynd Sig. Kópavogshœlið Ekki í anda laganna Ásgeir Sigurgestsson, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar: Sambýli heppilegra til að efla sjálfstœði ogfrumkvœði. Pétur J. Jónasson, framkvœmdastjóri Kópavogs- hœlis: Óraunhœft að efla eina tegundþjónustu meðþvíað skera aðra niður Við erum hvorki að leggja til að Kópavogshælið verði alfarið lagt niður, né að hugmyndum okkar verði hrundið í fram- kvæmd tafarlaust og án samráðs við fjölmarga aðiia, sagði Asgeir Sigurgestsson, framkvæmda- stjóri Þroskahjálpar, en á aðal- fundi samtakanna s.I. helgi var samþykkt ályktun um framtíðar- skipulag Kópavogshælis og lagt til að dregið verði úr starfsemi stofnunarinnar á næstu árum og vistmönnum fækkað úr 155 í 30 og þeim gefinn kostur á að búa í litlum sambýlum. í ályktun samtakanna segir m.a. að „núverandi skipulag og starfsemi hælisins" sé ekki í „samræmi við ríkjandi viðhorf og þjónustu við vangefna og ekki í samræmi við þær grundvallar hugmyndir sem lög um málefni fatlaðra hvfla á“. - Sambýlisformið er mun heppilegra til að efla sjálfstæði og sjálfsbjargarviðleitni þessa fólks, en þar sem það býr margt saman undir einu þaki eins og á Kópa- vogshælinu, sagði Ásgeir Sigur- gestsson. Þroskahjálp ráðgerir að koma megi upp 22 sambýlum ásamt nauðsynlegri þjónustu fyrir 290 milljónir króna. Hluta kostnað- arins segja samtökin að unnt sé að fjármagna með því selja land- skika þann sem Kópavogshælið stendur á og þær byggingar sem ekki verði lengur þörf fyrir. Pétur J. Jónasson, fram- kvæmdastjóri Kópavogshælis, sagði í samtali við blaðið, að hug- mynd Þroskahjálpar væri um margt góðra gjalda verð. Sá augljósi hængur væri þó á að gert væri ráð fyrir að of stór hluti vist- manna Kópavogshælis væri fær um að búa í sambýli. - Jafnframt finnst manni það skjóta skökku við að ætla að fjár- magna framkvæmdir sem vissu- lega eru nauðsynlegar, með því að ætla að skera niður aðra þætti í þjónustu við vangefna, sagði Pét- ur. -rk Alþingi Aldrei fleirí konur Tveir varaþingmenn konur. Samtals 15 á þingi ígœr Háhyrningar Fjórir geymdir í kvíum Verulegur ótti við aðgerðir hvalavina. Mótmæli afhent í gœrmorgun. Háhyrningaveiðar á vcgum fé- lagsins Fauna ganga vel. Skip- verjar á vélbátnum Guðrúnu GK eru búnir að fanga 4 lifandi dýr og eru þau geymd í kvíum utarlega á Seyðisfírði. Hvalavinafélagið hef- ur sent sjávarútvegsráðherra skrifleg mótmæli við veiðunum. Björgunarsveitin ísólfur á Seyðis- fírði hefur verið fengin til að standa vörð við kvíarnar. Félagið Fauna, sem mun eiga að greiða ýmsar skuldir sem stofnað var til meðan Sædýra- safnið í Hafnarfirði var rekið og féllu þá m.a. á einstaklinga, hefur fengið leyfi hjá sjávarútvegsráð- herra til að veiða fjóra háhyrn- inga. Það er skipshöfnin á Guð- rúnu GK 37 sem annast veiðarnar en þar eru vanir menn um borð því að Guðrún var hér á árum áður fengin til háhyrningsveiða. Aðstandendur háhyrnings- veiðanna eru tregir til að veita upplýsingar og er talið að þeir óttist aðgerðir íslenskra og er- lendra hvalavina. í gærmorgun afhenti Hvalavinafélagið skrifleg mótmæli í sjávarútvegsráðuneyt- inu og bar fram ýmsar spurningar um hvaða forsendur hefðu legið að baki leyfisveitingunni. Telja hvalavinir að söluverð hvers dýrs sé 1 til 1,5 miljónir bandaríkja- dala eða 40 til 60 miljónir króna. í Seyðisfirði er búið að koma fyrir sterkum kvíum út á Eyrum fram undan Hánefnsstöðum. Er talið að kaupandi háhyrning- anna, fyrirtækið Sea World, hafi lagt til fjármagn í kvíarnar. Um borð í Guðrúnu hefur ver- ið starfsmaður Hafrannsóknar, Eyþór Þórðarson. Veiðarnar eru stofnuninni óviðkomandi en samkvæmt sögn Jóhanns Sigur- jónssonar hefur stofnunin oft látið rannsaka háhyrninga á haustin. Þegar leyfi fékkst til að hafa mann um borð í Guðrúnu hafi stofnunin sloppið við að senda skip til þessara rannsókna. Aldrei áður í sögu íslenska lýð- veldisins hafa jafn margar konur sctið á þingi og nú, en í gær bættust tvær konur í hóp þing- manna þegar þær María Ingva- dóttir og Sólveig Pétursdóttir sóru þingmannaeið. Þær eru báð- ar varaþingmenn Sjálfstæðis- flokksins. Alls voru þrettán konur kjöm- ar til Alþingis í síðustu kosning- um. Konurnar á þingi urðu því 15 talsins í gær þannig að enn er langt í land að fullt jafnræði náist milli kynja, en þingmenn em samtals 63. Flestar em konurnar í Kvenna- listanum, en þingmenn hans em sex talsins. Hjá hinum flokkun- um er hlutfallið best hjá Alþýðu- bandalagi, en konur í þingliði Al- þýðubandalags em tvær. Sjálf- stæðisflokkurinn er með jafn margar konur í þingliði sínu og Alþýðubandalagið en mun fleiri þingmenn. Alþýðuflokkur, Framsóknar- flokkur og Borgaraflokkur em svo bara með eina konu hver í þingliði sínu. -Sáf

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.