Þjóðviljinn - 20.11.1987, Page 7
Pólland
umbótahugmyndir
Þann 29. nóvemberfer fram þjóðaratkvœðagreiðsla í Póllandi um
ýmsar nýjungar í efnahagslífi og samfélagi en ráðamenn gerðu
almenningi grein fyrir þeim í fyrradag
Leiðtogar Póllands gáfu í fyrra-
dag út plagg sem hefur að
geyma upplýsingar um ýmsar
þeirra nýjunga er þeir hyggjast
brydda uppá á næstunni í samfé-
lagi og efnahagslífi.
Þar er að finna yfirlýsingar um
að borgaraleg réttindi almenn-
ings verði aukin, umbætur verði
gerðar á kosningalögum og valdi
dreift. Einnig er því lýst yfir að
brýn nauðsyn sé á að menn temji
sér „nýja hugsun" um kommún-
íska hugmyndafræði.
í plagginu segir að „stjórnvöld
hafi í miklum mæli glatað trúnaði
almennings" á undanförnum
árum og að íhaldssöm öfl hafi
staðið í vegi fyrir því að ýmsar
brýnar úrbætur væru gerðar.
Höfundar viðurkenna að lög
hafi verið brotin á fólki af gerræð-
isfullum embættismönnum og
segjast styðja þá hugmynd að
settar verði á laggirnar óháðar
mannréttindanefndir.
„Við erum þeirrar skoðunar að
hugmyndir um að skipa nefndir
til að standa vörð um mannrétt-
indi séu bæði gagnlegar og at-
hyglisverðar. í þeim ættu sæti
einstaklingar er njóta virðingar
alþjóðar.
Leiðtogi Póllands, Wojciech
Jaruzelski hershöfðingi, sagði við
vestræna blaðamenn í fyrri viku
að öll efnisatriði úr hugmyndum
stjórnar sinnar yrðu rædd ítarlega
á miðstjórnarfundi kommúnista-
flokksins er hefst á miðvikudag-
inn kemur.
Það vekur athygli að ráðamenn
virðast hafa dregið ýmsar um-
bótahugmyndir til baka er for-
sætisnefnd flokksins viðraði í síð-
asta mánuði. Kunnugir telja að
þær hafi leitt til heiftarlegra
deilna í æðstu stjórn lands og
flokks. Pá vakti sérstaka athygíi
að leiðtogar flokksins skoruðu á
þá félaga er yfirgáfu hann þegar
herlög voru sett árið 1981 að
sækja um aðild að nýju og leggja
hönd á plóginn við mótun um-
bótastefnu.
En í nýja plagginu er engu að
síður ýmislegt sem þykir tíðind-
um sæta. Til að mynda er það
skoðun höfunda að brýna nauð-
syn beri til að endurskoða fyrir-
komulag ráðninga í mikilvæg
embætti. Ekki sé æskilegt að ein-
skorða val í embætti við félaga
flokksins, væri sú venja lögð fyrir
róða myndi það hleypa nýju lífi í
efnahags- og stjórnkerfi.
Höfundar leggja áherslu á að
allar breytingar í stjórnkerfi og
þjóðlífi séu órjúfanlega tengdar
nýmælum í efnahagslífi sem ætlað
er að bæta afleitt efnahagsástand
í landinu.
Jaruzelski freistar þess að fá almenning til liðs við umbótahugmyndir sínar.
í plagginu er vikið að þjóðarat-
kvæðagreiðslunni sem fram fer í
lok mánaðarins en þá hyggjast
ráðamenn freista þess að fá al-
menning til fylgis við áætlun sína:
„Væntanlegar umbætur eru svo
viðamiklar að nauðsynlegt er að
almenningur láti álit sitt í ljós.“
Vestrænir sendimenn í Pól-
landi líta svo á að með því að birta
almenningi hugmyndir sínar í
tíma vonist pólskir ráðamenn til
þess að hann gjaldi þeim jáyrði í
atkvæðagreiðslunni. -ks.
Júgóslavía
Olga um land altt
Verkamenn íJúgóslavíu hafa efnt til verkfalla í mótmœlaskyni við efnahagslög ríkisstjórnarinnar
Leiðtogar í fátækasta héraði
Júgóslavíu, Makedóníu, hafa
skorað á Branco Mikulic forsæt-
isráðherra að taka til endurskoð-
unar þá ákvörðun sína að setja
þak á verð- og launahækkanir í
kjölfar verkfalls þúsunda verka-
manna þar um slóðir á síðustu
dögum.
Valdsmenn í Makedóníu fund-
uðu á miðvikudagskvöld og
kröfðust þess að ríkisstjórnin í
höfuðborginni Belgrað efndi
þegar í stað til neyðarfundar um
ólguna er efnahagslögin hafa
valdið víðsvegar um landið.
Verðbólga er nú um 135 pró-
sent í Júgóslavíu og hyggst Mikul-
ic ráða niðurlögum hennar með
því að banna launa- og verð-
hækkanir fram að lokum næsta
árs. Engu að síður lét stjórnin
verða sitt fyrsta verk eftir að lögin
gengu í gildi að hækka verð á ým-
issi nauðsynjavöru unt 70 af
hundraði og bar því við að um
„leiðréttingu" hefði verið að
ræða.
Ríkisfréttastofan Tanjug
greindi frá að minnsta kosti tólf
verkföllum í Makedóníu frá því
lögin voru samþykkt um síðustu
helgi. Mörg þeirra voru leyst með
því að laun verkamanna voru
hækkuð í trássi við vilja ráða-
manna í Belgrað. Ennfremur var
sagt frá því að til vinnustöðvana
hefði komið í öllum öðrum hér-
uðum landsins. Til dæmis hefðu
Branco Mikulic, forsætisráðherra Júgóslavíu. Harðar efnahagsaðgerðir hans hafa valdið reiði verkamanna og vfða hefur
komið til verkfalla.
verkamenn við strætisvagna-
verksmiðju í höfuðborginni lagt
niður vinnu.
Zivko er maður nefndur Seraf-
imovski og kvað vera varavinnu-
málaráðherra héraðsstjórnar
Makedóníu. Hann sagði við
fréttamenn í gær að stjórn sín
teldi sig ekki eiga annars úrkosta
en að hækka lágmarkslaun verka-
fólks í héraðinu úr 39,500 dín-
örum í 84 þúsund dínara á næst-
unni til að lægja öldurnar.
Sérstaka reiði hefur það
ákvæði nýju laganna vakið er
kveður á um að laun verkafólks í
fyrirtækjum er ekki skila arði
skuli lækkuð um heil tíu prósent.
Stjórnin í Belgrað sagði í yfirlýs-
ingu í gær að hún fylgdist grannt
með gangi mála „og myndi eftir
atvikum grípa til ráðstafana til
aðstoðar fyrirtækjum er stæðu
höllum fæti.“
Sem kunnugt er felldi Mikulic
gengi dínarsins um 24,6 af hundr-
aði á þriðjudaginn í von um að
það myndi auka vöruútflutning.
Júgóslavar skulda erlendum lán-
ardrottnum hvorki meira né
minna en 20 miljarða bandaríkja-
dala.
-ks.
Bretland
Starfsfólk
varaði við
eldhættu
Breska stjórnin
hyggst látafarafram
ítarlega rannsókn á
orsökum brunans í
King‘s Cross
brautarstöðinni
Breska stjórnin hefur fyrir-
skipað að ítarleg rannsókn fari
fram á orsökum eldsvoðans í
King‘s Cross neðanjarðarbraut-
arstöðinni í Lundúnum er varð 30
manns að fjörtjóni og slasaði 20 i
fyrradag.
Enn er á huldu hvað brunanum
olli en slökkviliðsforingjar segja
að eldurinn hafi kviknað í stiga-
lyftu úr tré en á örskammri
stundu hafi gangur við miðasölu
orðið eitt bálandi eldhaf.
Eldsvoðinn hefur vakið
áhyggjur Lundúnabúa um örygg-
ismál í öðrum neðanjarðar-
brautarstöðvum höfuðborgar-
innar. Einkum velta menn vöng-
um yfir því hví eldurinn hafi get-
að breiðst út með slíkum ógnar-
hraða. Ennfremur staðhæfa sjón-
arvottar að fólki hafi verið hleypt
niður í stöðina eftir að eldur varð
laus.
Frank Dobson er þingmaður
Verkamannaflokksins og er
King's Cross stöðin í kjördæmi
hans. Hann sagði í umræðum á
breska þinginu í gær að starfsfólk
brautarstöðvarinnar hefði fyrir
skemmstu dreift bæklingum þar
sem fullyrt var að mikil eldhætta
væri í stöðinni en yfirmenn þess
hefðu hótað því brottrekstri ef
það héldi slíku áfram!
í umræðunum var því haldið
fram að starfsmönnum brautar-
stöðvarinnar hefði verið fækkað
fyrir nokkru vegna sparnaðarráð-
stafana ríkisstjórnarinnar og
hefði það átt sinn þátt í því hve
illa fór því brunavarnir hefðu ver-
ið í lágmarki. Thatcher og sam-
göngumálaráðherra hennar, Paul
Channon, vísuðu því á bug að
samhengi væri þar á milli. _ks.
Ráðamenn viðra
Föstudagur 20. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7