Þjóðviljinn - 20.11.1987, Síða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
Föstudagur 20. nóvember 1987 260. tölublað 52. örgangur
Þjónusta
íþína þágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Bygginganefnd
Frestun var frestað
Hilmar Guðlaugsson: Flutningur hússins Tjarnargötull á lóðina
Túngötu 12 verðursettur ígrenndarkynningu. Samkvœmtfundargerð
var málið afgreittáfundi bygginganefndar en Hilmar segir að því hafi
verið frestað, sem mannleg mistök leiðréttu svo í afriti
Flutningur hússins Tjarnarg-
ötu 11 að Túngötu 12 verður
sett í grenndarkynningu þegar er-
indið kemur aftur fyrir í byg-
ginganefnd, sagði Hilmar Guð-
laugsson, formaður byggingan-
efndar við Þjóðviljann í gær.
Hús það sem hér um ræðir þarf
að víkja fyrir ráðhúsi Davíðs og í
Morgunblaðinu í gær heldur
Hilmar því fram að kæra sem bor-
ist hefur frá íbúum í Grjótaþorpi
til félagsmálaráðherra, vegna
þessa flutnings, sé byggð á mis-
skilningi.
„Málið var ekki afgreitt á fundi
bygginganefndar 29. október,"
sagði Hilmar í gær, „og því er
kæran byggð á misskilningi. Það
eina sem var samþykkt á fundin-
um var að húsið yrði flutt frá
Tjarnargötu 11. Hinsvegar lágu
ekki fyrir viðunandi teikningar af
staðsetningu hússins á lóðinni
Túngötu 12 og því var erindinu
frestað.“
Einsog Þjóðviljinn hefur greint
Viðtalsbók
Inga
Laxness
„í aðal-
hlutverki“
Eftir helgina kemur út „í aðal-
hlutverki Inga Laxness“ viðtals-
bók við Ingibjörgu Einarsdóttur.
Inga er 79 ára og hefur átt litríka
ævi. Hún er dóttir Einars Arnórs-
sonar, sem síðastur gegndi emb-
ætti íslandsráðherra, og Sigríðar
Þorláksdóttur Johnson.
Sextán ára kynntist hún Hall-
dóri Laxness á Þingvöllum, trú-
lofaðist honum bréflega meðan
hann var í Ameríku og eftir að
þau giftust ferðuðust þau saman
vítt um heim. Þegar leiðir þeirra
skildi varð hún fyrsti nemandi í
leiklistarskóla Lárusar Pálssonar
og hoppaði beint upp á svið í Nit-
ouche 1941. Hún lærði líkaíBret-
landi og Bandaríkjunum, lék,
leikstýrði og þýddi leikrit um
tveggja áratuga skeið.
Mál og menning gefur bókina
út en skrásetjari Ingu er Silja Að-
alsteinsdóttir.
Ingibjörg Einarsdóttir
frá var á síðasta bygginganefn-
darfundi deilt um það hvort vél-
rituð fundargerð af fundinum 29.
október væri í samræmi við frum-
gerð fundargerðar. í vélritaða
afritinu var því bætt inn í fundar-
gerðina að erindinu hefði verið
frestað, en svo var ekki í frumrit-
inu.
„Það voru mannleg mistök sem
þar áttu sér stað,“ sagði Hilmar,
en meirihluti bygginganefndar lét
undan og leiðrétti fundargerðina
í upprunalegt form eftir að full-
trúar minnihlutans höfðu hótað
að bera upp tillögu um að fundar-
gerðin yrði leiðrétt.
En þýðir það ekki að erindinu
hafi ekici verið frestað?
„Nei, því var frestað. Ég tók
það skýrt fram á fundinum 29.
október," svaraði Hilmar í gær.
Samt er það ekki í upprunalegu
fundargerðinni og á henni er ekki
annað að sjá en að erindið hafi
verið samþykkt, með þeim fyrir-
vara þó að fullnægjandi teikning-
ar verði lagðar fram, og mun það
einsdæmi, að slíkt erindi sé sam-
þykkt án þess að fullnægjandi
teikningar liggi fyrir.
„Það gleymdist að setja í fund-
argerðina að málinu hefði verið
frestað," sagði Hilmar.
Seinna skýtur orðið svo upp
kollinum í vélrituðu afriti fundar-
gerðar, og þá eru það mannleg
mistök! Frestuninni virðist því
hafa verið frestað þar til afrit af
fundargerð var gert.
-Sáf
Fóstrufélag íslands
Framtíð
bamsins
Að búa börn betur undir lífið og
kenna þeim mannleg sam-
skipti verður eitt af aðalumræðu-
efnum á ráðstefnu sem Fóstrufé-
lag íslands mun gangast fyrir í
aprfl á næsta ári. Af því tilefni eru
f gangi starfsdagar þar sem rædd-
ur er undirbúningur hennar og
fleira henni tengt.
Auk undirbúnings ráðstefn-
unnar er markmið starfsdaganna
að efla umræðu í þjóðfélaginu um
dagvistun barna. Og það er ekki
lengur bara spurning um hvort
byggja eigi dagvistarheimili,
heldur hvernig reka skuli þessi
heimili með velferð og framtíð
barnsins í huga. Af þessu tilefni
var boðið á starfsdagana fulltrú-
um frá menntamálaráðuneyti og
stjórnmálaflokkum. -ns.
Þeir Hannes Hlifar Stefánsson og Helgi Ólafsson, tveir efstu menn skákmótsins í Stapanum, áttust við á miðvikudag og
gerðu jafntefli. (Mynd: E.ÓI.)
Njarð víkurskákin
Vertíðarlok
í dag
Englendiugurinn David Norwo-
od, skaut öðrum keppendum ref
fyrir rass í 10. umferð á alþjóðlega
skákmótinu í Njarðvíkum, er hann
bar sigurorð af Sigurði Daða f
viðureign þeirra í gær.
Úrslit annarra skáka voru þessi:
Þröstur Þórhalls og Hannes Hh'far
skildu jafnir, Jóhannes vann Weld-
on, Guðmundur Sigurjónsson vann
Jacobs og Björgvin Jónsson lagði
Davíð Ólafsson. Er blaðið fór í
prentun var viðureign Pyhala og
Helga Ólafssonar ekki enn til lykta
leidd, en Pyhala var sagður hafa
rýmri stöðu.
Röð efstu manna fyrir lokaum-
ferð mótsins sem tefld verður í dag,
er þessi: Norwood er efstur með sjö
og hálfan vinning, Helgi og Hannes
Hlífar með sjö vinninga og Þröstur
og Björgvin eru með sex og hálfan
vinning. _rk
Flokkafylgi
Ut og suður í senn
Ólíkar niðurstöður úr skoðanakönnunumfrá sömu helginni.
Framsókn fœr 29 prósent í annarri, 19 í hinni
Helgarpósturinn birti í gær
skoðanakönnun Skáíss um
fylgi flokkanna, og vekur hún
helst athygli fyrir að sýna allt aðr-
ar niðurstöður en samskonar
könnun DV í vikunni. Báðar
kannanirnar voru gerðar um síð-
ustu helgi.
Niðurstöðutölur Skáíss-könn-
unarinnar í Helgarpóstinum voru
rangar, en eftir leiðréttingu er
flokkafylgi í könnuninni þetta
(kjörfylgi í apríl í sviga):
Alþýðuflokkur 15,4% (15,2),
Framsóknarflokkur 18,9%
(18,9), Sjálfstæðisflokkur 29,8%
(27,2), Alþýðubandalag 11%
(13,3), Kvennalisti 14,8% (10,1),
Borgaraflokkur 6,7% (10,9),
Þjóðarflokkur 1,8% (1,3), aðrir
1,6. Rúmur þriðjungur þeirra
sem í náðist tók ekki afstöðu.
Munurinn á niðurstöðutölum
DV og Skáíss er einkum mikill
hjá Framsókn, sem fær 18,9%
öðrumegin og 29,8% hinumegin
og munar tæpum 11 prósentum.
Alþýðubandalagið fær hjá DV
minnsta fylgi í könnunum eftir
kosningar (7,3%), en hjá Skáís
bestu kannanaútkomu eftir kosn-
ingar (11%). Sama er að segja
um Alþýðuflokkinn (11,1 og
15,4%). Minni munur er á fylgi
hinna, 3,4% hjá Sjálfstæðis-
flokki, 2,5% hjá Kvennalista,
1,2% hjá Borgurum.
Skáís spurði einnig um vin-
sældir stjómmálamanna og nýtur
Steingrímur Hermannsson sam-
kvæmt könnuninni mestrar lýð-
hylli. Fylgi Framsóknar á
Reykjanesi, hinu nýja kjördæmi
leiðtogans, virðist þó ekki draga
dám af þessu; í Skáíss-könnun-
inni fær Framsókn 11 prósent á
Reykjanesi en fékk tæp 20 í kosn-
ingunum.
I Skáíss-könnuninni var einnig
spurt um viðhorf til ríkisstjórnar-
innar. Stuðningsmenn eru tæp 56
prósent þeirra sem tóku afstöðu,
andstæðingar rúm 44, sem er
j heldur minni
ráðherrana en
undanförnu.
stuðningur við
í könnunum að
-m
Sjá leiðara síðu 4
Jarðvarmi
Stóraukin notkun
Orkuspárnefnd reiknarmeð 40% í notkun jarðvarma
á næstu árum. Mest aukning í snjóbræðslu ogfiskeldi
Notkun jarðvarma mun vaxa
um 40% til næstu aldamóta og
um 60% til ársins 2015, frá því
sem hún er í dag, standist nýjasta
spá orkuspárnefndar sem kynnt
var í gær.
Orkuspárnefnd gerir ráð fyrir
að mesta aukingin í notkun jarð-
varma verði í fiskvinnslu og við
snjóbræðslu. Þá gerir nefndin
einnig ráð fyrir að á þessum tíma
náist mun betri nýting en er í dag
á bakrennsli frá ofnakerfum húsa
og verði affallið fyrst óg fremst
notað til snjóbræðslu.
Hlutur húsahitunar er í dag um
82% af allri jarðvarmanotkun en
orkuspárnefnd reiknar með að
það hlutfall verði komið niður í
66% árið 2015. -Ig.