Þjóðviljinn - 29.11.1987, Síða 3

Þjóðviljinn - 29.11.1987, Síða 3
Magnús Þón Ég œlla að syngja Magnús Þór Sigmundsson tónlistarmaður er þessa dag- ana erlendis á vegum Bókaút- gáfunnarörn og Orlygurog leggur þar síðustu hönd á barnalagaplötu sem kemur á markað í byrjun desember. Platan hefur að geyma sjö þekkt íslensk barnalög og einnig sex ný eftir Magnús sem hann hefursamiðvið þekktar þulur og barnatexta. Platan nefnist Eg ætla að syngja. Flytjendur auk Magnúsar eru Akureyri: Helgi Vilberg í Glugganum Nú um helgina opnar Helgi Vilberg sýningu á nýjum mál- verkum í Glugganum, Gler- árgötu 34, Akureyri. Helgi er Akureyringur, fæddur árið 1951 í sporðdrekamerkinu. Á sýningunni verða rúmlega tuttugu akrýlmálverk, flest mál- uð á þessu ári. Sýningin mun standa til 6. desember. Þeir sem Pálmi Gunnarsson, Jón Ólafsson (Bítlavinafélaginu) og tíu stúlkur úr kór Verslunarskólans. Hljóð- færaleikarar eru Pálmi Gunnars- son á bassa, Jón Ólafsson á hljómborð, Rafn Jónsson á trommur og slagverk, Porsteinn Magnússon og Arnar Sigur- björnsson á gítar, Helgi Guð- mundsson á munnhörpur. Jó- hann Helgason aðstoðaði við raddir. Platan var tekin upp í Glaðheimum og hljóðblönduð með stafrænni tækni en unnin að öðru leyti í Bretlandi. Undirbúningur að töku þessar- ar plötu var á rnargan hátt með nýstárlegum hætti og m.a. voru fóstrur og börn af dagheinrilum fengin til þess að aðstoða við efn- isval. Lögin á plötunni eru: Ein sit ég og sauma, Ein stutt og ein löng, Skóarakvæði, Foli fótlipri, Ut um mó, Mamma borgar, Bíum, bíum banrbaló, Úllen dúll- en doff, Ég ætla að syngja, Vatn- ið, Kökurnar hennar Gerðu, Kalli átti káta mús og Fingraþula. guða vilja á Gluggann skulu upp- lýstir um að galleríið er opið dag- lega frá klukkan 14 til 20, nema hvað lokað er á mánudögum. Góð er gulli' etn.. en án tramkvæmdar veröur hún engum til gagns. Bók Iðntæknistofnunar íslands „Vöru- jrróun — Markaössókn" er handbók fyrir þá sem vilja hrinda góöum hugmyndum í fram- kvæmd. 1 bókinni er að finna ýtarlegar leið- beiningar um hvernig á aö skipuleggja vöru- þróun, leita aö hugmyndum og leggja mat á þær. Og ekki síst hvernig standa á aö fram- kvæmdinni þannig aö hún taki sem stystan tíma og kosti sem minnst. Fæst í bókaverslunum. Verð kr. 1290 fl IÐNTÆKNISTDFNUN ■ I ÍSIANDS VÖRUÞRQUN MARKftDSSÓKN Af gíröffum Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að gefa sig að lista- gagnrýni í blöðin. Það fékk Halldór Björn Runólfsson að reyna þegar fréttabréf Gallerí Borgar kom út fyrir skemmstu. Þar er í ómerktri klausu fjallað um dóm Háll- dórs um sýningu í hans eigin galleríi - Svart á hvítu. Haft er eftir Halldóri að listamaðurinn sem hann skrifar um eigi heil- mikið sameiginlegt með meistara Kjarval og annað er eftir því. Síðan segir orðrétt í frétta- bréfinu: Sjálfum fannst mér ég sjá hann Posa minn í sporum unga, nýgraða gíraffans í dýr- agarðinum í Dublin, sem féll til jarðar og klof rifnaði þegar kýr- in hætti við að leyfa honum það á síðustu stundu og hljóp undan honum. Hann, gíraffinn ungi, var síðan hífður upp með krana, saumaður saman, náði sér fullkomlega og hefur síðan getið nokkra kálfa. Ég vona, bæði Halldórs míns Björns vegna og mynd- listarinnar í landinu, að það megi takast að hífa drenginn upp, sauma hann saman svo hann nái heilsu á nýjan leik.B Skólanefnd Margir Tómasar Heimdallar ■- kallaðir Fjölbrautaskólinn við Ármúla - sími 84022 Innritun fyrir vorönn 1988 lýkur föstudaginn 11. desember. Skrifstofa skólans er opin frá kl. 8-16 og veitir allar nánari upplýsingar um námsbrautir og námstilhögun. Skólastarf vorannar hefst þriöjudaginn 5. janúar kl. 11. Skólameistari. Heimdallur er félag fyrir unga sjálfstæðismenn í Reykjavík. Þar er margt gott íhaldsungviðið sem áreiðan- lega á eftir að láta að sér kveða í framtíðinni - eða lang- ar a.m.k. til þess. Heimdallur tekur sjálfan sig alvarlega og til marks um það eru ótal nefn- dir og ráð um flest mál milli himins og jarðar. Skólanefndin. Ein nefnd Heimdallar heitir því hlutlausa nafni Skólanefn- din. Á dögunum efndi hún til umræðufundar undir yfir- skriftinni „Erstjórnarskráin úr- elt?“ Eins og sæma þykir auglýsirskólanefndin þennan merka fund í Morgunblaðinu. Þar var líka birt mynd af skóla- nefnd Heimdellinga. Skóla- nefndin heitir Hannes Hólmsteinn Gissurarson ...!■ í vikunni kom út hjá Svart á hvítu skáldsagan umtalað Tungumál fuglanna" eftir Tómas Davíðsson. Umtöluð er hún vitanlega fyrst og fremst útá nafnleynd höfund- ar, sem enginn virðist vita hver er. Hins vegar munu margir kannast við ýmsa þá atburði sem lýst er í bókinni - úr heimi blaða, stjórnmála og viðskipta. Eins og eðlilegt er velta menn vöngum yfirTómasi og hafa böndin einkum borist að mönnum sem vinna eða hafa unnið blaðamennsku. Þannig hafa sumir bendlað Mörð Árnason við bókina, en Ingólfur Margeirsson, Hall- dór Halldórsson og Sig- mundur Ernlr Rúnarsson, fyrrverandi og núverandi HP- menn hafa einnig verið nefn- dir til sögunnar. Kandídatar með ögn færri atkvæði eru menn eins og Egill Helgason, ritstjórnar- fulltrúi á HP, Ólafur Ragnar Grímsson (!) og Magnea Matthíasdottir. Ekki mun ætlunin aö gefa upp hið rétta nafn höfundar - hvorki nú né síðar. En Tómas Davíðsson - hver sem það nú er - unir þessum vangavelt- um áreiðanlega dável, enda vekja þær athygli ...■ c IANDSV1RKJUN Blönduvirkjun - Forval Landsvirkjun efnir til forvals á verktökum vegna úndirbúnings grunna fyrir stíflur Blönduvirkjunar, þ.e. Blöndustíflu, Kolkustíflu og Gilsárstíflu. Verkið nær til bergþéttunar undir stíflunum og nauösynlegs graftar í því sambandi, auk hreins- unar á klapparyfirborði. gerö varnarstífla o.fl. Helstu magntölur eru áætlaöar samtals: Gröftur 140.000 m3 Borun 14.000 m3 Efja 600 m3 Varnarstíflur 12.000 m3 Útboösgögn eru á ensku og veröa tilbúin til af- hendingar í lok janúar 1988. Verkið hefst í vor og skal því lokið haustið 1988. Forvalsgögn eru á ensku og verða afhent frá og með mánudeginum 30. nóvember 1987 á skrif- stofu Landsvirkjunar, Háaleitisbraut 68, 103 Reykjavík. Útfylltum og undirrituðum forvalsgögnum skal skila á sama stað eigi síðar en miðvikudaginn 6. janúar 1988. Reykjavík 27. nóvember 1987 Sunnudagur 29. nóvember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.