Þjóðviljinn - 29.11.1987, Blaðsíða 5
í tímans rás
punktar úr Tjarnarsögu
Fornar sagnir herma aö nykur
nokkur hafi einu sinni gert sér
bústað í Tjörninni og dvalið
þar annað hvert ár, en hitt árið
í Hafravatni. Það fylgdi sög-
unni að göng lægju á milli,
nykrinumtil hægðarauka.
Skepna þessi hefur að vísu
ekki látið á sér kræla um
nokkurt skeið, enda vísast
hlédræg og fremur ómann-
blendin. En setjum nú svo að
þessi gamli nykur sé enn á
svamli innanum endurog
gömul pylsubrauð; skyldi
honum þá ekki misbjóða svo
við fyrirhugaðar ráðhúsfram-
kvæmdir að hann flytji lög-
heimili sitt fyrir fullt og fast oní
Hafravatn?
Tjörnin í Reykjavík er ekki síst
merkileg fyrir það að hún er ekki
mannanna verk, eins og svo
margir huggulegir pollar í út-
lenskum borgum sem verða til á
teikniborðum arkitekta. Eins er
fuglalífið óvenju fjölskrúðugt;
þar verpa að staðaldri fimm teg-
undir anda, kría og æðarfugla.
Árlega leggja fuglar af 40-50 teg-
undum Ieið sína að Tjörninni -
sér til skemmtunar, brauð- og
ungaáts.
Upphaflega myndaðist Tjörn-
in sem lón innan við malarkamb-
inn þar sem miðbærinn reis. Og
sú var tíðin að hún var umfangs-
meiri, en smátt og smátt hefur
verið saumað að henni úr öllum
áttum. Þannig náði hún í eina tíð
alveg norður undir alþingishúsið;
Tjarnargata, Fríkirkjuvegur og
Vonarstræti tóku vænar sneiðar
af henni og með lagningu Skot-
húsvegar og brúarinnar var enn
að henni þrengt. Þá tók Hljóm-
skálagarðurinn sinn skerf þegar
hann var skipulagður.
Menn hafa áður deilt um
Tjörnina. Á síðustu öld bauðst
byggingameistari nokkur til þess
að fylla upp í hana, annar maður
stakk hinsvegar uppá því að
byggt yrði veitingahús úti í hólm-
anum. Sá sem stærst hugsaði var
þó Sigurður Guðmundsson mál-
ari, sem viðraði þá hugmynd að
Tjörnin yrði tengd sjónunt með
miklum skurði og þar yrði skipa-
lægi. Sennilega hefði þá orðið
brátt urn andalífið - og nykurinn
tekið sæng sína hinn fúlasti.
Mörgum er enn í fersku minni
þegar sett var upp dálítil stytta af
hafmeyju að danskri fyrirmynd í
Tjörninni árið 1960. Örlög henn-
ar urðu harmsöguleg: á gamlárs-
kvöld sama ár var styttan sprengd
í loft upp og var málið aldrei upp-
lýst.
Róttækasta hugmynd sem sett
hefur verið fram um Tjörnina
skaut upp kollinum í Útvarp
Matthildi snemma á síðasta ára-
tug. Semsagt: Fylla Tjörnina af
steinsteypu og flytja hana uppí
Árbæ. Úntsjónarmenn Útvarps
Matthildar voru, einsog þjóðin
veit, Þórarinn Eldjárn, Hrafn
Gunnlaugsson - og Davíð Odds-
son!
- *»j.
(Upplýsingar í þessa örstuttu saman-
tekt eru að mestu lcyti fengnar úr Is-
land - landið þitt)
Matthfas Elnarsson læknlr og óþekkt kona. Myndin er sennilega tekin fyrir 1908. Iðnó er lengst til hægri á myndinni, en Þórshamar er óbyggður. A.m.k. þrír bátar
sjást á myndinni. (Ljósmynd: Magnús Ólafsson)
.%
tilefni í endalausa andfúla brandara um endur-
fstaka ó Tjörninni 1910-1916. Fríkirkjan er á miðri mynd og Kvennaskólinn lengst til hægri. A milli þeirra reis vitaskuld íshús sem síðar varð Glaumbær og
verður bráðlega opnað sem Listasafn íslands. (Ljósmynd: Magnús Ólafsson)