Þjóðviljinn - 29.11.1987, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 29.11.1987, Blaðsíða 16
GBHXJ VB» SAMANBURD Valsa súkkulíkið er aldeilis tilvalið í baksturinn. Það fæst bæði Ijóst og dökkt í 400 gramma hagkvæmum sparnaðarpakkningum. Kynntu þérverðið! Skúli Óskarsson sýndi gamalkunnug tilþrif. Of margir leikir? Ég minnist þess að fyrir tveimurtil þremurárum kvart- aði Bogdan Kowalczyck landsliðsþjálfari í handknatt- leik yfir því að lærisveinar sínir fengju ekki nógu marga leiki. Landsleikir væru alltof fáir, þeim þyrfti að fjölga um helm- ing til þess að liðið öðlaðist nægjanlega leikreynslu. Eftir alþjóðlega mótið norðan heiða um síðustu helgi hafði dæmið snúist við. Bogdan sagði að liðið léki of marga leiki og fengi ekki nægilegan tíma til æfinga! Petta dæmi sýnir vel hversu mikil umskipti hafa átt sér stað í íslenskum handknattleik síðustu misseri. Bogdan kom oft inná þetta mál á blaðamannafundum hér á árum áður og var ávallt að bera ísland saman við Austur- Evrópuþjóðirnar - þær spiluðu fjörtíu landsleiki á meðan Islend- ingar væru að leika tuttugu. Á þessu hamraði hann, og fékk stundum illt auga frá stjórnar- mönnum HSÍ á þessum fundum. Þessum hugmyndum hans var tekið mátulega alvarlega, menn sáu ekki fyrir sér þann möguleika að hægt væri að koma til móts við kröfur Pólverjans nema að litlu leyti. En einmitt þetta hefur gerst. Landsliðið lék fimm lands- leiki á jafnmörgum dögum í kringum síðustu helgi og gengur í gegnum það sama í næstu viku. Árangur fslands í síðustu heimsmeistarakeppni gerir það að verkum að nú þarf HSÍ að velja úr boðum um landsleiki og hafnar mörgum. Álagið verður mikið á landsliðsmönnunum fram að heimsbikarkeppninni í Svíþjóð í janúar - og í dag á ís- land á að skipa leikreyndasta landsliði heims. En jafnvel Bog- dan er farinn að kvarta undan of mörgum leikjum og það var að heyra á sumum leikmannanna að þá skorti leikgleði og áhuga - og þá er ekki allt eins og það á að vera. Að sumu leyti stöndum við í dag jafnfætis þeim bestu, en mikið vantar.samt enn uppá að okkar landsliðsmenn búi við sömu aðstæður og kjör og kolleg- ar þeirra víða annars staðar. Enn er íslenska liðið að mestu skipað áhugamönnum sem vinna fullan vinnudag eða eru í erfiðu námi. Að mestu segi ég, því áhuga- mennsku er.orðið erfitt að skil- greina, líka hér á fslandi. Þótt lengra hafi verið gengið en áður hefur þekkst hérlendis eigum við enn langt í land miðað við margar aðrar þjóðir, t.d. Frakka sem eru þó „aðeins“ b-þjóð. Þeirra lands- Iiðsmenn munu búa allir á sama stað með fjölskyldum sínum framað b-keppninni árið 1989! Svo vikið sé að alþjóðlega mót- inu á Akureyri og Húsavík var auðvitað ánægjulegt að ísland skyldi ná að sigra, ekki síst þegar sigurmark Guðmundar Guð- mundssonar í úrslitaleiknum gegn Pólverjum var skorað á svona dramatískan hátt á síðustu sekúndunni. Guðmundur er alltaf bestur þegar mest á reynir og þetta mark er mikil upplyfting fyrir hann eftir að hafa átt frekar daufa leiki með Víkingum á fs- landsmótinu til þessa í vetur. ísland náði sem sagt að vinna Pólland tvívegis í þremur leikjum. Ekki eru allir sáttir við þá útkomu - margir kröfðust þess að sigrarnir yrðu þrír, en svona tapleikir inná milli eru hreinlega nauðsynlegir. Þeir gefa leik- mönnunum visst aðhald og halda peim og hinum óhóflega bjartsýnu íslensku handboltaá- tiugamönnum við jörðina. Manni er farin að blöskra sú umræða og „hystería" sem er komin í gang fyrir ólympíuleikana sem fram fara í Seoul eftir tæpt ár. Sumir eru farnir að tala um bronsverð- laun sem sjálfsagðan hlut og ekk- ert annað en gull eða silfur kemur til greina í hugum annarra. Hvað er að gerast? Auðvitað er spenn- andi að gera sér svona hugmyndir og vissulega er íslenska landsliðið sterkara og leikreyndara en nokkru sinni fyrr. En það er svip- að að styrkleika og 7-8 aðrar þjóðir og það er ekki hægt að full- yrða af neinni sanngirni að það standi fyllilega jafnfætis Sovét- mönnum, Austur-Þjóðverjum og Júgóslövum þrátt fyrir vaxandi gengi gegn þessum risum hand- knattleiksins á síðustu misserum. í Seoul getur allt gerst, það er eins líklegt að ísland hafni í sjö- unda sætinu og því þriðja og hvernig yrði slíkum úrslitum tekið af þeim sem hafa byggt sér loftkastala löngu fyrirfram? Akureyringar og Húsvíkingar voru ánægðir með að fá lands- leikina norður, en vonbrigði þeirra voru líka talsverð. Aðeins einn leikur af sex, úrslitaviður- eign fslands og Póllands, gat tal- ist hátt skrifaður á alþjóðlegum mælikvarða. Lið Portúgals og ís- raels sýna lakari handknattleik en gengur og gerist í 1. deildinni hér heima. Norðanmenn segja að þessir leikir hefðu verið leiknir fyrir hálftómum húsum sunnan- lands- en vonandi er þetta aðeins smjörþefurinn af því sem koma skal í flutningi leikja útá lands- byggðina. Landsliðið undir 21 árs varð fyrir miklu áfalli þegar Héðinn Gilsson handarbrotnaði í síðustu viku. Það er borin von að hann geti leikið í heimsmeistarakeppn- inni í þeim aldursflokki í næsta mánuði og það hlýtur að skerða möguleika íslenska liðsins veru- lega. En þar eru samt margir efni- legir leikmenn og óþarfi fyrir þá að leggja árar í bát þótt stór- skyttan sé úr leik. Það var ánægjulegt að sjá Skúla Óskarsson aftur í keppni í kraftlyftingum eftir fimm ára hvíld. Enn á hann erindi í þá bestu í heiminum þótt tæplega fertugur sé og vonandi stendur hann við þau orð sín að taka þátt í mótum af og til á næstunni þó til of mikils sé mælst að hann hefji keppni af fullri alvöru á ný. Sú niðurstaða í könnun þeirri sem birst hefur í fjölmiðlum síð- ustu daga að unglingar sem stunda íþróttir séu mun reglu- samari en aðrir kemur ekki á óvart. Það sem vekur hinsvegar sífellt furðu er hve stjórnvöld eru enn sinnulaus fyrir félagslegu gildi íþrótta í þjóðfélaginu. Iþróttafélögin vinna ómælt for- varnarstarf, sem sést best á niður- stöðum könnunarinnar, en það framlag þeirra er ekki metið að verðleikum - frekar er býsnast yfir fjárútlátum til íþrótta- hreyfingarinnar, og ef hún nær loksins að afla sér verulegra tekna eru þær umsvifalaust skatt- lagðar eins og frekast er unnt. Síðan er það staðreynd að íþrótt- ahreyfingin gæti náð til enn fleiri ungmenna með breyttum áhersl- um. Of margir krakkar hrökklast frá íþróttum á viðkvæmasta aldri vegna þess ofurkapps sem félög leggja á að ná árangri, vinna mót og leiki, í stað þess að útvega sem flestum viðfangsefni við sitt hæfi. IÞRÓTTASPEGILL VIÐIR SIGURÐSSON 16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 29. nóvember 1987

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.