Þjóðviljinn - 29.11.1987, Page 24

Þjóðviljinn - 29.11.1987, Page 24
I íihhi »KftSÍÍÍ£ t'TZ "mrr 'HW - »«*«• (‘*ur frr> £Z22Z, ,'k tn **-'M ........ a»* iw 1" ;«>"»« «•» *> #■«.» ***» - /Wi^.nnía*. /1 /tr*l.») ■ //«i»<io,«/*lír.//reti/»T*f«m*«„m.v ZSK’ <M*‘ ' 4*W)H r/«/n»i ,M|. írf/ /.iw, „ UUm'rrlt. //'.,.) /),w)r t,„ lww ^Uí|| :áíP^ : tlÓhiinná Swlnsdoitlr i smnvlmw \íð f’urídl 1‘iilstlouur FORLAGIÐ KYNNIR iinwi . Matthías Viðar Sœmundsson MINNINGAR BARNALÆKNIS - Lífssaga Björns Guðbrandssonar Björn barnalæknir hefur séð tímana tvenna og komið víða við. Rifjuð eru upp æskuárin í Skagafirði þegar örþreyttir sveitalæknar riðu um héruð og börn hrundu niður úr barna- sjúkdómum, sagt frá dvöl hans í Þýskalandi og kynnum af forsprökkum nasista þegar Evrópa rambaði á barmi heimsstyrjaldar. Björn er í Saigon á síðustu dögum Víetnamstríðsins og í Tokyo á dögum Kóreustríðsins og kemst þar í kynni við mannlegar hörmungar og ógnir styrjalda. Björn lýsir af hreinskilni baráttuþreki og dauðastríði sjúklinga, gleði þeirra og raunum. Dregnar eru upp minnisstæðar myndir úr læknisstarfinu, sagt frá stefnumótum við dauðann - sorgum og sigrum. Jóhanna Sveinsdóttir - Þuríður Pálsdóttir Á BESTA ALDRI Breytingaskeið kvenna - hvenær hefst það, hvenær lýkur því? Hverjir eru helstu fylgikvill- arnir? Hvað er beinþynning? Henta hormóna- gjafir öllum konum? Hér er spurt spurninga sem varða allar konur sem komnar eru yfir fertugt. Mikill hluti kvenna á þessum aldri á langt líf fram undan sem gæti verið hamingjuríkasta tímabilið í lífi þeirra ef þær kunna að takast á við vanda breyt- ingaskeiðsins. Það er skoðun höfundanna að engin ástæða sé til að óttast breytingaskeiðið ef konur vita hvað þær eiga í vændum og kunna að takast á við það af sjálfsöryggi og þekkingu. Bókin er byggð á reynslu fjölda kvenna og stuðst er við þekkingu erlendra og innlendra kvenlækna og annarra sérfræðinga. KVOSIN Byggingarsaga miðbæjar Reykjavíkur Hér segir frá því hvernig höfuðborg íslands byggðist og fjallað um hús, byggingarlist og byggingarhefðir í Reykjavík frá upphafi til okkar daga. Fjallað er um elstu húsagerð bæjarins, fyrstu verslunarhúsin og hvernig byggingar breyttust við afnám verslunarhafta og með tilkomu nýrra verslunarsambanda. Hér er lýst þeim breyting- um sem ný byggingarefni höfðu í för með sér, og hvaða áhrif nýjar stefnur í byggingarlist höfðu á húsagerð 1 miðbænum. í bókinni eru um 500 ljósmyndir og teikningar. Nýjar ljósmyndir eru af nánast öllum húsum miðbæjarins og auk þess úrval gamalla ljós- mynda úr helstu ljósmyndasöfnum landsins. *«*» ***** **,lr ‘*« *'fl'*í>*U Bertolt Brecht KVÆÐI OG SÖNGVAR 1917-56 Bertolt Brecht er eitt af mestu Ijóðskáldum þess- arar aldar. Hér gefst ís- lenskum lesendum tæki- færi til að kynnast úrvali ljóða hans í búningi sextán íslenskra þýðenda. Þorsteinn Þorsteinsson annast útgáfuna, þýðir mikinn hluta Ijóðanna og ritar inngangsorð. Meðal annarra þýðenda má nefna Halldór Laxness, Sigfús Daðason, Þorgeir Þor- geirsson, Þorstein frá Hamri og Þórarin Eldjárn. Auður Haralds UNG, HÁ, FEIG OG LJÓSHÆRÐ Af sinni alkunnu hug- kvæmni segir Auður Haralds söguna um ungu og einföldu sveitastúlkuna, hvernig hún kynnist hörku lífsins og neyðist til af láta að þeim siðferðilegu kröf- um sem hún gerir til sjálfrar sín. Þetta er ljúfsár saga um ástir og vonbrigði, grimmd og samviskuleysi, kærleik og kristilegt hugarfar. Guðbergur Bergsson TÓMAS JÓNSSON METSÖLUBÓK Meistaraverk Guðbergs Bergssonar kom fyrst út haustið 1966. Bókin seldist upp á örskömmum tíma og hefur síðan verið ófáan- leg. Menn skiptust í flokka með eða móti skáldverkinu og margir sökuðu höfund- inn um niðurrifsstarfsemi. Aðrir tóku Tómasi Jóns- syni afburða vel og spáðu nýjum tímum í íslenskum bókmenntum. Fay Weldon ÆVI OG ÁSTIR KVENDJÖFULS Þessi eldfjöruga og ill- kvittna ádeila kom fyrst út árið 1985 og hlaut afbragðs undirtektir. Hvað gerir heiðarleg húsmóðir þegar eiginmaðurinn kallar hana kvendjöful og hleypst á brott með annarri konu? Hvað getur hún gert - ófríðari en amma skrattans - með undurfagra skáld- konu að keppinaut? Elísa Björg Þorsteinsdóttir þýddi. < FORLAGIÐ FRAKKASTÍG 6A, S.91-25188

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.