Þjóðviljinn - 03.12.1987, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 03.12.1987, Qupperneq 1
Fimmtudagur 3. desember 1987 271. tölublað 52. árgangur Mitsubishi/Subaru : * í i s í Flóðbílar seldir til Islands Hátt í600 nýir japanskir bílar semlentu ísjó- og vatnsflóði íDrammen íNoregi í október seldir til íslands. Bannað að selja þá annars staðar á Norðurlöndum. Hekla búin að selja starfsmönnum og bílaleigum 356 bíla. Ingvar Helgason œtlar að reyna að stöðva sölu á Subaru bílum sem lentu íflóðinu. FÍB segir ísland ruslakistufyrir ónýtar vörur Bifreiðaumboðið Hekla hefur keypt af umboðsaðila Mitsu- bitshi bifreiða í Noregi 362 bif- reiðar af árgerð 1987 og 1988 sem lentu í miklu vatns- og sjóflóði í október sl. þar sem þeir voru til geymslu á hafnarsvæðinu í Dram- men í Noregi. Þá eru einnig vænt- anlegir til landsins 200 Subaru bflar sem lentu í sama flóði í Drammen, en bæði Subaru verksmiðjur og umboð þeirra hérlendis, Ingvar Helgason hf., hafa lagst harðlega gegn innflutn- ingi bifreiðanna hingað til lands vegna hættu á að þær hafl skemmst í flóðinu. 670 Toyota bíl- ar sem lentu í flóðinu verða settir í brotajárn. Norska blaðið Drammens tid- ende skýrir frá máli þessu í opnu- grein í gær, en á öllum Norður- löndum nema íslandi gilda strangar reglur um að bannað sé að selja bifreiðar sem lent hafa í saltbaði. 100 fyrstu bílarnir af þeim 362 sem Hekla hf. flytur inn frá Drammen fara um borð í skip í dag að sögn Sigfúsar Sigfússonar framkvæmdastjóra fyrirtækisins, en Hekla seldi alla bflana 362 í gær starfsmönnum fyrirtækisins og ættingjum þeirra og nokkrum stærstu bflaleigum landsins. f Noregi mátu tryggingafélög verð- mæti bifreiðanna á þriðjung upp- runalegs verðs, en að sögn Sigfús- ar verður bifreið sem kostar um háifa miljón seld á um 340 þús. kr. - Við sendum tvo menn til Noregs til að skoða bflana og þeir lögðu til að við keyptum þá. Við treystum þeirra dómi og við hefð- um ekki verið að kaupa þá ef við óttuðumst um öryggisbúnað bifr- eiðanna, sagði Sigfús. Store Brand tryggingafélagið keypti Subaru bifreiðarnar sem lentu í vatnsflóðinu og seldi þær síðan aftur til bresks/bandarísks fyrirtækis sem sérhæfir sig í end- ursölu útflutningsvara. I sölu- skilmálum var tekið fram að óheimilt væri að selja bifreiðarn- ar á Norðurlöndum en í upptáln- ingu landanna láðist að nefna ís- land á nafn. Forsvarsmenn Store Brand segja að þar hafi átt sér stað mistök. Florida, seldi síðan til íslands 200 Subaru bifreiðar af þeim 234 sem lentu í flóðinu og eru bflarnir væntanlegir til landsins innan tíð- ar. Ingvar Helgason hf. sem hef- ur umboð fyrir Subaru hérlendis hefur brugðist hart við þessum fréttum og ætlar fyrirtækið að reyna að koma í veg fyrir sölu bifreiðanna hérlendis. - Þetta er með ljótari neytend- amálum sem ég hef upplifað. Okkur hefur aldrei dottið í hug að selja bifreiðar sem eru ekki fullkomlega öruggar. Við vitum vel hvaða áhrif salt hefur á bremsukerfi og rafkerfi bifreiða. Umboðið mun ekki ganga í ábyrgð fyrir þessum bflum og við munum láta stöðva sölu þeirra hér ef við getum, enda eru verks- miðjurnar í Japan alfarið á móti því að þessir bflar verði seldir, sagði Júlíus Vífill Ingvarsson framkvæmdastjóri hjá Ingvari Helgasyni í gær. Jónas Bjarnason formaður FÍB sagði í samtali við Þjóðvilj- ann í gær að félagið myndi mót- mæla sölu á bflum sem hefðu orð- ið fyrir skemmdum. Aðrar þjóðir vildu ekki þessa bfla og Island væri notað sem ruslakista. -Þetta er hneisa fyrir okkur og okkar viðskiptasiðferði, sagði Jónas. -Ig./grh. Ég hef séð mynd af blaðamanni í Næturbókinni. Hann var syfjaður rauður og hrútinn, sagði einn gestanna, pjakkur með lofsverðan orðaforða en dálítið reikull í framburði á bókstafnum þorn. En hann er nú ekki nema fjögurra ára gamall. Börn og fóstrur barnaheimilisins Óss heimsóttu Þjóðviljann í gær og skoðuðu hvernig dagblað verður til. Ósarar gera víðreist um bæinn þessa dagana og heimsækja vinnustaði foreldranna, og var Þjóðviljainnlitið liður í því. Eins gott að vita hvað þetta fullorðna fólk er að gera allan daginn! - Hér eru það Jón Gunnar, Steinunn, Elín María, Bylgja og Kári sem hlusta andaktug á myndvörð Ijósmyndasafnsins. Mynd: Atli. Kúffiskur Veiðamar ganga vel Endursölufyrirtækið Twinnjay sem hefur aðalbækistöðvar á Tal rek- inn heim! Anatolí Karpov, sem nú etur kappi við Garrí Kasparov um heimsmeistaratitilinn í skák, hef- ur sakað Mikael Tal, fyrrum að- stoðarmann sinn, um að leka upplýsingum í fjanda sinn. Töframaðurinn frá Riga bíður nú eftir flugi til síns heima að kröfu sovéskra skákyfirvalda. Sjá viðtal Helga Ólafssonar við Talá síðu 10, og skýringar við 19. skákinaáll. síðu. Ísíðasta mánuði aflaði Villi Magg ÍS um 500 tonna af kúf- fiskskel og hefur hann komið með að landi að jafnaði um 35-38 tonn úr hverjum róðri. Nýtingin af hverju tonni er um 16-18%. Bát- urinn fer út snemma morguns og kemur að landi um kvöldmatar- leytið. Um borð eru 5 manns,“ sagði Arnór Stefánsson fram- kvæmdastjóri Bylgjunnar hf. á Suðureyri við Súgandafjörð í samtali við Þjóðviljann í gær. Að sögn Arnórs hafa veiðarnar gengið vonum framar eftir að lag- færingar voru gerðar á kúffisks- plógnum. Þær voru meðal annars fólgnar í því að plógurinn var þyngdur að framan og þá voru dísurnar, sem dæla sjónum niður í sjávarbotninn, einnig færðar framar. Ennfremur var dráttará- takinu á plógnum breytt. Bestu kúffisksmiðin til þessa eru í Aðal- vík og sagði Arnór það vera með ólíkindum hvað skelin þaðan væri matarmikil. Aðrir góðir veiðistaðir eru sjálfur Súgandafj- örðurinn, Önundarfjörður, Hæl- avík og Jökulfirðirnir. Það sem af er kúffisksvinns- lunni er aðaláherslan lögð á að vinna hann í beitu og sagði Arnór það vera hráa vinnslu. Með því að beita gufuþrýstingi á skelina losnar fiskurinn úr henni á auðveldan máta. Kúffiskurinn er seldur út um allt land sem beita Ingi Björn Albcrtsson þingmað- ur Borgaraflokksins hefur beð- ið læknastéttina á íslandi afsök- unar á orðum sem hann lét falla á opnum fundi Borgaraflokksins 24. sept. sl. þar sem hann sagði að „konu, sem kæmi til læknis til að láta skoða í sér hálskirtlana, væri boðið upp á fóstureyðingu áður en hún gæti sagt erindi sitt.“ f afsökunarbeiðni sinni, sem birtist í Læknablaðsinu, segir Ingi Björn að þó hann áiíti að í vissum tilvikum fari læknar full frjálslega með þessi málefni gefi það hon- um ekki tilefni til slíks málflutn- ings. -ns. Arnór Stefánssonframkvæmdastjóri: Eftir lagfœringar áplógnum small allt í liðinn. Villi Magg ÍS veiðir að jafnaði 35-38 tonn hvern dag og líkar flestum vel. Þó er mis- mönnum finnst um hann og hvað jafnt eftir stöðum hvað sjó- hann festist vel á öngli. - grh Læknar Ingi Bjöm afsakar

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.