Þjóðviljinn - 03.12.1987, Blaðsíða 11
ERLENPAR FREITIR
El Salvador
Friður eða
vargöld?
Duarte safnar glóðum elds að höfði sér með
þvíað hafa íhótunum við leiðtoga
dauðasveitanna. Leiðtogar vinstrimanna
farnir úr landi að nýju
Pólitísk þróun í E1 Salvador
hefur verið með þeim hætti að
landið stendur nú að vissu leyti á
tímamótum að sögn vestrænna
stjórnmálaskýrenda. Þeir telja að
annaðhvort muni stjórnmálaá-
standið batna verulega eða að
skáimöld hefjist á ný í líkingu við
þá er ríkti á ofanverðum áttunda
áratugnum.
Þrír frægir einstaklingar hafa
verið í sviðsljósinu að undan-
fömu, einn þeirra er látinn fyrir
nokkru en tveir sneru heim úr út-
legð á dögunum en eru báðir
farnir aftur úr Iandi þar eð þeir
töldu sér ekki vært í landinu.
Heimkoma tveggja þekktra
leiðtoga vinstrimanna, Rubens
Zamora og Guillermo Ungo, úr
sjö ára útlegð, öryggi þeirra og
athafnafrelsi, áttu að vera próf-
steinn á það hve mikið
stjórnmálafrelsi í raun ríkir í
landinu og hvort stjórn Napo-
leons Duartes forseta tekst að
halda aftur af dauðasveitunum
alræmdu. En Ungo hélt af landi
brott á sunnudaginn og Zamora
fetaði í fótspor hans í gær. Við
brottförina sagði Zamora:
„Kringumstæðurnar em ekki enn
með þeim hætti hérlendis að við
getum beitt okkur að fullu í
stjórnmálastarfi.“
Böðlar dauðasveitanna kunna
að hugsa forsetanum þegjandi
þörfina því stjórnin hefur gert því
skóna að svo geti farið að hún
muni innan skamms sækja leið-
toga hægriöfgamanna og meintan
foringja hryðiuverkasveita
þeirra, Roberto DÁubuisson, til
saka fyrir að hafa gefið fyrirmæli
um morðið á erkibiskupi San Sal-
vador, Oscari Arnulfo Romero,
sem myrtur var við messugjörð
árið 1980.
Atburðir þessir gerast á sama
tíma og stjórn Duartes stendur
höllum fæti og verður máttlausari
með hverjum deginum sem líður
að sögn stjórnmálaskýrenda og
erlendra sendimanna í höfuð-
borginni.
Margt veldur því en ýmsir
bandarískir embættismenn sem
ekki vilja láta nafns síns getið
staðhæfa að traust Reagans-
stjórnarinnar á Duarte dvíni
óðum og þyki Bandaríkjamönn-
um sem þeir sjái lítil merki þess
að öllum dalamiljónunum sem
þeir hafa ausið til E1 Salvador sé
varið til framfara í landinu. Upp-
haflegur og yfirlýstur tilgangur
Leiðtogar pólitískra samtaka vinstrimanna, Ungo til vinstri og Zamora, veifa stuðningsmönnum sínum við heimkomuna.
Þeir eru nú famir aftur úr landi.
stóraukinnar efnahagsaðstoðar
ráðamanna í Washington við kol-
legana í suðri mun hafa verið sá
að skapa einskonar fyrirmyndar-
samfélag þar sem allir gætu séð
með eigin augum yfirburði E1
Salvador yfir Nicaragua.
„Fínu fötin forsetans eru næsta
gagnsæ,“ sagði vestrænn sendi-
maður fyrir skömmu. „Hann er
fangi hægrimanna og herforingja
og þar við bætist að þriðjungur
landsins er utan lögsögu hans.
Fólk er mjög spennt í landinu um
þessar mundir og við vitum það af
reynslu að þegar ástandið er slíkt
hérlendis fara hausar brátt að
fjúka."
Það líður aldrei svo dagur í E1
Salvador að ekki séu vopnavið-
skipti einhversstaðar í landinu og
má þá einu gilda hvort leiðtogar
vinstrimanna og ráðamenn hafa
hug á að ræða saman um vopna-
hlé einsog kveðið er á um að þeir
geri í friðaráætlun fimm forseta
Mið-Ameríkuríkj a.
Ráðamenn í San Salvador lýstu
fyrir skemmstu yfir einhliða
vopnahléi en þrátt fyrir það hélt
stjórnarherinn áfram að troða
illsakir við skæruliða Þjóðfrelsis-
fylkingar Farabundo Marti sem
guldu líku líkt.
Vitanlega voru þeir Zamora og
Ungo mjög í sviðsljósinu meðan
á dvöl þeirra stóð í E1 Salvador.
Þeir flúðu úr landi árið 1980 þeg-
ar vargöldin stóð sem hæst og
áttu fótum fjör að launa því
dauðasveitirnar voru á hælum
þeirra.
Þeir félagar voru á einu máli
um það að lítið hefði breyst til
batnaðar í landinu á þeim sjö
árum sem þeir hafa dvalið er-
lendis. Zamora réðst harkalega á
Duarte fyrir að leggja höfuðá-
herslu á þarfir hersins en skeyta
ekki hætishót um að bæta hag
berfætlinga í landinu er lifa við
sult og seyru.
Zamora og Ungo neituðu að
slíta tengsl stjórnmálasamtaka
sinna við skæruliða og sagði Du-
arte þá að þótt heimkoma þeirra
væri til marks um lýðræði þá
hefðu þeir einsett sér að tortíma
lýðræðinu!
Sumir telja Duarte hafa verið
að reyna að stela senunni frá
þeim Zamora og Ungo þegar
hann í fyrri viku sagði að nýjar
sannanir væru fyrir því að
DÁubuisson hefði fyrirskipað
morðið á Romero árið 1980.
Embættismenn í utanríkisráðu-
neyti Bandaríkjanna hrósuðu
forsetanum í hástert fyrir „djarfa
tilraun til þess að draga leiðtoga,
dauðasveitanna til ábyrgðar á
gjörðum sínum og hefta starfsemi
hægriöfgamanna.“ En margir eru
þeirrar skoðunar að þetta sé tóm
sýndarmennska hjá Duarte sem
þori ekki fyrir sitt litla líf að
skerða hár á höfði DÁubuissons
og snata hans. -*“•
SKÁK
19. einvígisskákin
Karpov stendur betur
En þó er líklegt að skákinni Ijúki með jafntefli
Nftjánda einvígisskák Anatólís
Karpovs áskoranda og Garrís
Kasparovs heimsmeistara fór í
bið í gærkveldi eftir 40 leiki.
Karpov er peði yfir í hróksenda-
tafli og hefur nokkra vinnings-
möguleika þótt sérfræðingar hér í
SeviUa hallist flestir að því að
jafntefli verði niðurstaðan.
Karpov kom heimsmeistaran-
um á óvart þegar í 14.1eik með
nýjung og setti þá þegar mikla
pressu á Kasparov. A tímabili
virtist útlitið mjög svart hjá
heimsmeistaranum en hann fann
bestu vörnina og berst nú fyrir
jafntefli í sérkennilegu hróks-
endatafli þar sem allir hrókarnir
eru enn eftir á borðinu.
Karpov forðaðist að taka af-
gerandi ákvörðun rétt fyrir bið og
eru því línur ekki farnar að
skírast að ráði. Viktor Kortsnoj
telur Kasparov öruggan um jafn-
tefli og að Karpov hafi enga vinn-
ingsmöguleika. Þekktii stórmei-
starar hafa tekið í sama streng.
Fjarvera Mikhaels Tals fyrrum
heimsmeistara frá blaðamanna-
herberginu og mótsstaðnum hér í
Sevilla hefur vakið mikla athygli.
Hann var um langt skeið aðstoð-
armaður Karpovs en greinilega
hefur slest uppá vinskapinn því
nú ber svo við að áskorandinn
hefur sakað hann um að gefa
heimsmeistaranum góð ráð og
óstaðfestar heimildir greina frá
því að Karpov hafi kært hann til
sovéska skáksambandsins. í öllu
falli hefur Tal yfirgefið Sevilla og
dvelur í Madríd næstu þrjá daga
og bíður eftir flugi heim. Er talið
öruggt að Karpov og hans menn
hafi krafist þess að Tal yrði send-
ur heim.
Svo vikið sé að skákinni þá er
hún í röð mikilla baráttuskáka.
Karpov er staðráðinn í að endur-
heimta titilinn og hefur teflt af
mikilli hörku undanfarið. í við-
tali við spænska sjónvarpið
kvaðst Kasparov hafa misst af
góðum færum í átjándu skákinni.
Einsog staðan er núna eru örlög
Karpovs vitaskuld ráðin takist
Kasparov að vinna eina skák. En
sigri Karpov er staða heimsmeist-
arans geysilega erfið sé horft til
þess hve stutt er til loka einvígis-
ins.
19.einvígisskák
Anatólí Karpov-
Garrí Kasparov
Drottningarbragð
1. Rf3
(Karpov kom aðeins of seint en
lék samstundis. Kasparov hugs-
aði sig um í dágóða stund og af
svarleik hans má ráða að hann
hafi ákveðið að beita þeirri póli-
tík í lokaþætti einvígisins að
koma andstæðingi sínum á
óvart.)
1. ...d5
2. d4 Rf6
3. c4 eó
4. Rc3 Be7
5. Bg5 0-0
(Oftar er leikið 5...h6 en mun-
urinn er ekki merkilegur.)
6.e3 h6
7. Bh4 b6
8. Be2 Bb7
9. Bxf6 Bxf6
10. cxd5 exd5
11. 0-0
(Flestir bjuggust við 11. b4
samanber átjándu skákina en í
henni lenti Karpov í talsverðum
erfiðleikum.)
11. ...Rd7
(Kasparov gefur Karpov kost á
að leika 12.b4 með sömu stöðu og
í 18.skákinni. Algengara er
11.. .C5.)
12. b4 c5
13. bxc5 bxc5
14. Db3
(Karpov var fljótur að leika
þessu og yfirgaf síðan sviðið. Á
því er ekki hinn minnsti vafi að
■ Kasparov var hér lentur í heima-
rannsóknum áskorandans. Það
þarf varla að taka það fram að
áður var hér leikið 14.Hbl.)
14. ...cxd4
15. Rxd4 Bxd4
16. exd4 Rb6
(16....RÍ6 kom einnig til
greina. Staðan er þegar orðin
jafnteflisleg en þó er ekki þar
með sagt að jafntefli verði niður-
staðan, Karpov unir sér mjög vel
í stöðum sem þessum.)
17. a4 Hb8
18. a5
(Karpov sendi Kasparov sitt
fræga augnaráð eftir að hafa
leikið þessu, stóð upp og yfirgaf
sviðið. Það lá í loftinu að Kaspar-
ov myndi fórna peði með
18.. .Rc4 þó að 18...Rd7 komi
einnig til greina.)
18. ... Rc4 (tími: 1,07)
(18....Rc8 gengur ekki vegna
19. a6 og vinnur. Hinsvegar var
18.. ..Rd7 fyllilega mögulegt því
19. Rxd5 strandar á 19....Ðg5
20. Re3 Ba6 og svo framvegis.)
19. Bxc4 (0,52) dxc4
20. Dxc4
, .KwlS' ■
: !§ i§ Wáö
Helgi Ólafssonl
20. ...Dd6 (1,36)
(Af fjölmörgum möguleikum
velur Kasparov einn öruggasta
leikinn. Til greina kom 20...Hc8
21. Dd3 Df6 með hótuninni 22.
...Ba6. Annar möguleiki var
20.. ..Dg5 eða jafnvel 20...DÍ6.
Jafnvel má leika 20...Dh4.
„Svartur hefur 50-80 prósent bæt-
ur fyrir peðið,“ sagði Viktor
Kortsnoj er skýrði þessa skák út
fyrir áhorfendum.)
21. Dc5 Dxc5
(Án efa besti möguleikinn, því
eftir 21.Dg6 22.d5! hefur svartur
engar bætur fyrir peðið. Nú bíður
Kasparovs erfitt endatafl, peði
undir. Það var þó álit flestra að
hann ætti góða jafnteflismögu-
leika.
22. dxc5 Hbc8
23. a6 Ba8
24. Rb5!
(24.Ha5 kom einnig til greina
en þetta er mun skarpari leikur.)
24. ...HxcS
25. Rxa7
(Kasparov virtist afar tauga-
óstyrkur eftir þennan leik.
25.. ..Bxg2 gengur ekki: 26.Kxg2
Ha8 27.Hfbl Hxa7 28.Hb7 Ha8
29.a7 Hcc8 30. Habl og hvítur
hefur vinningsstöðu þótt jafnt sé
á peðum.)
25. ...Be4
(Endataflssérfræðingurinn
Averbakh taldi þetta besta
möguleika svarts en kvað uppúr
með að staða Kasparovs væri afar
erfið. Kortsnoj stakk uppá
25.. ..Hb8 en eftir 26.Hfbl eða
26. Hfcl er svarta staðan afar erf-
ið.)
26. f3 Ha8
(Án efa besti möguleikinn.
26. Bxf3 strandar á sama afbrigði
og rakið var hér á undan. Nú
kemur upp hróksendatafl sem
gefur Karpov allgóðar vinnings-
líkur. Ef skiptist uppá hrókum
væri staða Kasparovs vonlaus en
það er einmitt tilvist allra hrók-
anna sem gefur honum jafnteflis-
möguleika.)
27. fxe4 Hxa7
28. Ha4 Hc6
29. Hfal Kf8
30. Kf2 (1,55) Ke7 (2,13)
31. Ke3 Ke6
32. Ha5 Hd6
33. Hla2 Hc6
34. h4
(Það er ljóst að Karpov getur
ekki þróað stöðu sína frekar og
verður að leita færa með peða-
framrás á kóngsvæng.)
34. ...Hdó
35. Kf4 (2,12) Hb6 (2,19)
36. H2a3 Hc6
37. He5+ Kf6
38. Hf5+ Ke6
39. Hfa5 Hb6
40. He5+ Kf6
Tímamörkunum hefur verið
náð. Karpov hefur ekki tekið
neinar stórar ákvarðanir í þessu
hróksendatafli og hefur kosið að
endurtaka leiki til þess að geta
rannsakað stöðuna heima. Hins-
vegar sýnist manni hann vera í
nokkurri hættu vegna þess hversu
oft sama staðan hefur komið upp.
Staðan:
Kasparov 9 - Karpov 9.
Flmmtudagur 3. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11