Þjóðviljinn - 03.12.1987, Blaðsíða 6
FLÓAMARKAÐURINN
Lelrbrennsluofn
Notaður leirbrennsluofn til sölu á
góðu verði. Uppl. í síma 21981 og
29734.
Ýmsir lelrmunir
til sölu á góðu verði vegna flutn-
inga. Lítið við í Ingólfsstræti 18 eftir
hádegi. Sími 21981.
Jólatrésskemmtanir
Tek að mér að spila og stjórna
söngvum á jólaböllunum. Sann-
gjarnt verð. Nánari uppl. í síma
667250.
Saab 900
til sölu. Blá-sans, 4ra dyra, bein-
skiptur. Skoðaður '87. Góður bíll.
Uppl. í síma 71858.
Saab-bílar og varahlutir
Til sölu Saab 99 árg. '75, sjálf-
skiptur og Saab 99 árg. 77 bein-
skiptur. Einnig varahlutir í Saab,
m.a. vélar og gírkassar. Hagstætt
verð. Uppl. í síma 44503 á kvöldin
og um helgar.
Viltu læra spænsku
eða katalónsku?
Spænskur nemi við Háskóla fs-
lands vill kenna fólki spænsku og/
eða katalónsku. Vinsamlegast haf-
ið samband við Jorde á herbergi nr.
2 á Nýja Garði, sími 625308.
VW Derby árg. 78
til sölu. Ekinn 110 þús. km. Bíll í
góðu standi fyrir lítið verð, 45.000.
Uppl. í síma 621633.
ísskápur gefins
Notaður ísskápur fæst ókeypis.
Uppl. í síma 39083.
Au Pair í Svíþjóð
fslenska fjölskyldu í Uppsölum
vantar barngóða stúlku til aðstoðar
við barnagæslu og heimilisstörf frá
áramótum og fram á sumar. Ekki
yngri en 18 ára. Uppl. í síma 82249.
Píanó til sölu
Nýlegt Zimmerman píanó til sölu.
Verð 100.000. Uppl. í síma 12712.
Til sölu
vel með farið hjónarúm með áföst-
um borðum. Selst ódýrt. Uppl. í
síma 23195.
Vegna breytinga til sölu
hvítt baðkar, tvöfaldur stálvaskur
með blöndunartækjum, furuhillur,
tekkkommóða, Happy skápur, hill-
ur og skúffur, sófasett 3+1+1,
tekksófaborð og tekkhjónarúm án
dýna. Selst ódýrt. Uppl. í síma
41039, vinnusími 641202.
Mjög ódýrt
Sófi, 2 stólar og borð til sölu. Uppl. í
síma 34136.
Til sölu
Z gardínubrautir, lengd 2,10 m.
Einnig stórt gólfteppi. Uppl. í síma
29545.
Til sölu ódýrt
saumavél og Bosch heimilis-
strauvél í borði. Uppl. í síma 13289.
Gítar - ritvél
Klassískur gítar óskast og ódýr raf-
magnsskólaritvél til sölu. Skipti
möguleg. Uppl. í síma 52842.
Til sölu
22“ Xenon litsjónvarpstæki (árs-
gamalt) og AEG Turnamat þvotta-
vél. Uppl. í síma 75875 eftir kl. 18.
Til sölu
Sófasett 3+2+1 í góðu standi til
sölu ódýrt. Uppl. í síma 32123.
Gefins
gamalt baðkar og handlaug. Sími
26503.
Vélritari óskast
til að slá inn tölvutexta af miðils-
fundum. Uppl. í síma 12014.
Til sölu ódýrt
Lundia furuhillur, Candy þvottavél,
furuhjónarúm með náttborðum,
barnaburðarrúm, stór körfustóll og
Pioneer segulband. Uppl. í síma
43686 eftir kl. 19.
Til sölu
gullfallegt austurlenskt hnifapara-
sett (144 stk.) í tekkkassa. Gott
verð. Uppl. í síma 16457.
Húsnæði óskast
Samvinnuferðir-Landsýn óska eftir
3 herbergja íbúð fyrir fjölskyldu
starfsmanns fyrirtækisins. Reglu-
semi og skilvísum greiðslum heitið.
Uppl. í síma 79319 eftir kl. 19.
ísköld mjólk
Traustur Westinghouse ísskápurtil
sölu á 5000 kall. Auðvelt er að
breyta honum í frystikistu bara með
því að breyta um stillingu. Töfrandi
antikgripur með fullt notagildi. Uppl.
í síma 681333 (Elísabet).
Til sölu
ný, ónotuð Benetton vetrar-
gallakápa á góðu verði. Uppl. í síma
12062.
Vantar ykkur
jólahreingerningu?
Við erum tvær stúlkur sem tökum
að okkur að gera hreint fyrir jól.
Uppl. í síma 12062 og 12364.
Gefins!
Þarf ekki einhver að losna við elda-
vél úr geymslunni? Mín bræddi úr
sérfyrir viku. Vinsamlegast hringið í
síma 19506.
Vantar svalavagn
góðan og ódýran. Uppl. í síma
641141.
Korg Poly 61
hljómborð til sölu. Góð taska fylgir.
Uppl. í síma 41450 eftir kl. 19.
Stúdíóíbúð
í hjarta Parísarborgar
nánar tiltekið í 5. hverfi fæst til leigu
frá oa með 20. des. n.k. til 4. jan.
’88. (búðinni fylgir eldhús og bað.
Uppl. í síma 19719.
Til sölu
stór, amerísk, 4ra hella eldavél til
sýnis að Hverfisgötu 17, Hafnar-
firði. Uppl. í síma 27698 eftir kl. 20.
Óska eftir að kaupa
saumavél, skrifborð og PC tölvu.
Sími 38587.
Vandaðir og vel útlítandi
hlutir næstum gefins
Nýr Ross Big Mouth 100 w bassa-
magnari með equalizer, Ijós, viðar-
litur baðskápur með speglahurðum
og baðspegill meðfestingum. Uppl.
í síma 45755 um helgina.
Húsnæði óskast
Óska eftir húsnæði í ódýrari kantin-
um. Reglulegar greiðslur. Uppl. í
síma 78376 eftir kl. 18.
Olíumálverk á striga
eftir Ólaf Magnússon Kgl. Ijós-
myndara, málað 1945, stærð
100x140 cm og í góðum ramma er
til sölu. Sími 23435 eftir kl. 19.
Til sölu
lagerhillur. Bráðskemmtilegar og
auðuppsetjanlegar stálhillur í
geymsluna, bílskúrinn eða á lager-
inn. Gott verð. Sími 686925 á dag-
inn og 34065 á kvöldin.
Gamalt en i góðu lagi
Frystiskápur, 140x60 cm, ísskápur,
140x68 cm, Rafha eldavél, hvít.
Þurfum að losna við þetta sem fyrst.
Verðið er aukaatriði. Uppl. í síma
44430.
Til sölu
handunnar rússneskar tehettur og
matrúskur (babúskur) í miklu úrvali.
Góðar gjafir á góðu verði. Uppl. i
síma 19239.
Sjúkrahúsið í Húsavík sf.
H j úkru narf ræði ngar
- sjúkraliðar
óskast til starfa frá áramótum. Upplýsingar gefur
hjúkrunarforstjóri í síma 96-41333.
LANDSBYGGÐIN
Stíflan í Fljótum var frábærlega fögur sveit, sem trauðla gleymist þeim, sem sáu hana í sumarklæðum. Henni var sökkt
undir vatn þegar Skeiðsfoss var virkjaður. Síðan hafa sumir forðast að fara þar um veginn.
Skagafjörður
Sameinast
Fljótahreppamir?
Atkvœði verða greidd um það innan skamms
Á síðari árum hefur verið
nokkur hreyfíng uppi um það
víðsvegar um land að sameina hin
fámennari sveitarfélög. Þykja
ýmis rök hníga að því að svo sé
gert. Varla er þó valdboð skyn-
samleg aðferð i þessum efnum.
íbúarnir þurfa sjálfír að fínna
þörfína á breytingu. Þá gerist hún
líka.
Það munu nú vera 90 ár síðan
Fljótunum í Skagafirði var skipt í
tvö sveitarfélög, Haganess- og
Holtshrepp. Til þess lágu ýmis
rök, sem þá voru í fullu gildi. Nú
eru þau yfirleitt ekki lengur fyrir
hendi, m.a. vegna fólksfækkunar
í dreifbýli, bættra samgangna og
breyttra þjóðfélagshátta.
Og nú er það komið á dagskrá
að sameina Fljótahreppana á ný.
Við næst síðustu sveitarstjórn-
arkosningar voru atkvæði greidd
um það hvort að því skyldi stefnt.
Fyrir því reyndist vera meirihluti
í báðum hreppunum. Síðan hefur
málið að mestu legið í salti.
Seinnipart s.l. vetrar komst
það svo aftur á dagskrá. Og nú
stendur til að almennir sveita-
fundir verði innan skamms
haldnir um málið. Enn hafa þeir
þó ekki verið dagsettir. Á þessum
fundum er ætlunin að fram fari
endanleg atkvæðagreiðsla um
sameininguna, enda mun fremur
hafa verið litið á hina fyrri sem
skoðanakönnun.
íbúar Holtshrepps eru nú um
100 og hefur íbúatalan nokk-
urnveginn staðið í stað s.l. 10 ár. í
Haganeshreppi eru íbúar um 80
og hefur heldur farið fækkandi.
Ríkharður Jónsson, bóndi á
Brúnastöðum í Holtshreppi - en
frá honum höfum við þessar frétt-
ir úr Fljótunum - taldi trúlegt að
formlega yrði gengið frá samein-
ingu hreppanna um næstu ára-
mót.
Á undanförnum árum hafa
hrepparnir haft samvinnu um
ýmis stærri mál svo sem rekstur
skólans á Sólgörðum í Haganes-
hreppi. Þar er nú nýbyggt skóla-
hús. Þar fer fram kennsla upp í
sjöunda bekk og eru nú um 30
böm í skólanum.
Öllu sauðfé í Fljótum hefur nú
verið fargað vegna riðuveiki og
eru bændurfjárlausir. Ríkharður
áleit vafasamt að allir þeir bænd-
ur, sem áður ráku sauðfjárbú-
skap, hefji hann á ný.
Þrátt fyrir þetta ríkir engin
svartsýni á framtíðina í Fljótum.
Þar eru nú tvær fiskeldisstöðvar,
Fljótalax á Reykjahóli og Mikli-
lax á Lambanes-Reykjum, og við
þær vinna 16-20 menn. Munar
um það í ekki fjölmennari byggð-
um.
Slysahætta
Sex boðorð
Nýliðar í hœttu
Þótt mörg störf séu þannig að
þeim fylgi stöðug slysahætta fyrir
alla, sé ýtrustu varkarni og regl-
um ekki fylgt, þá eru þó „nýlið-
ar“, í starfí, sem oftar en ekki er
ungt fólk í sérflokki. Það þekkir
ekki hætturnar, veit ekki hvað
varast ber. Þetta liggur raunar í
augum uppi, enda staðfest af at-
hugunum, sem gerðar hafa verið.
Það ætti að vera undantekning-
arlaus regla að þeir, sem taka á
móti nýliðum á vinnustað og
segja þar fyrir verkum, kynni
þeim þegar í upphafi alla þá þætti
sem stuðla að öryggi. Þar er
auðvitað af mörgu að taka en
minna má á þetta:
1. Fikta ekki í vélum og tækj-
um.
2. Láta þau áhöld og tæki, sem
unnið er með hverju sinni aftur á
sinn stað.
3. Spyrja ef eitthvað er óljóst
um vinnubrögð og notkun tækja
og áhalda.
4. Kynna sér leiðbeiningar um
efni, vélar og áhöld, sem unnið er
með.
5. Nota ekki tæki, sem sýnast
gölluð, t.d. með skemmdum raf-
leiðslum.
6. Gleyma aldrei nauðsynlegri
aðgát.
- mhg
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 3. desember 1987
Fljótamenn voru aðsópsmiklir
við hákarlaveiðar meðan sá at-
vinnuvegur var ennþá stundaður.
Nú hafa þeir horfið að útgerð á ný
og halda úti þremur til fjórum
bátum á grásleppuveiðar.
Auðvitað grípa þeir þá annan fisk
um leið, sem þeir verka í salt. Og
þá kemur hið gamla sláturhús
Kaupfélagsins í Haganesvík í
góðar þarfir.
-mhg
Tímarit
Æskan
Vel farið afstað inn á
tíunda áratuginn
Út er komið 8. tbl. Æskunnar í
ár. Þar er að sjálfsögðu sagt frá
90 ára afmæli blaðsins, sem
minnst var með fjölmennu hófí
þann 5. okt. s.l. Sr. Björn Jóns-
son á Akranesi ritar ágæta grein
um skáldið og lækninn, Sigurð
Júl. Jóhannesson, fyrsta ritstjóra
Æskunnar.
Þá er og þama að finna viðtöl
við knattspyrnukappann Pétur
Ormslev og hina 10 ára gömlu
sjónvarpsstjörnu, Unni Berg-
lindi. Meðal sagna í blaðinu má
nefna síðari hluta sögunnar um
Hönnu og Tóta, eftir Jóhönnu
Steingrímsdóttur og kafla úr
nýrri bók eftir Eðvarð Ingólfs-
son. í samkeppni um unglinga-
skáldsögur, sem Stórstúka ís-
lands efndi til í tilefni barnaárs
1985, bar Hrafnhildur Valgarðs-
dóttir sigur úr býtum. Hlaut hún
100 þús. kr. verðlaun fyrir sögu
sína, Leðurjakkar og spariskór, -
hin hæstu, sem veitt hafa verið
fyrir barna- og unglingabækur.
Nú birtist þessi saga í Æskunni.
Egill fer í veislu nefnist saga eftir
Iðunni Steinsdóttur, og svo er
það framhald sögunnar Baldur í
Skuggadal eftir nemendur í
Húsabakkaskóla.
Loks eru það allar myndasög-
umar og þættirnir, gamalkunn-
ugt efni en þó alltaf nýtt.
-mhg