Þjóðviljinn - 03.12.1987, Side 7

Þjóðviljinn - 03.12.1987, Side 7
Á leið til Þýskalands í leit að vinnu og ævintýrum, en um 100 þúsund Danir lögðu leið sína til Þýskalands nasismans á _ Kvikmynd I vinnu hjá nasistum Therkel Strœde: Fólk hefurþakkað okkur mikiðfyrir myndina. Segir að nú getiþað horfst íaugu við minningarnar án sektarkenndar og sársauka í kvöld verður sýnd athyglis- verð mynd í Ríkissjónvarpinu um atvinnuþátttöku Dana í Þýskalandi nasismans, en talið er að á þeim tíma sem Danmörk var hersetin af Þjóðverjum hafi um 100 þúsund Danir starfað við ýmiss konar störf í Þýskalandi. At vinnuþátttaka Dana í Þýskalandi nasismans hefur allt fram á þenn- an dag verið afar viðkvæmt mál í Danmörku. Faestir sem fóru þá til Þýskalands vilja kannast við for- tíðina, enda hefur sá orðrómur viljað loða við þátttakendur að einhvers staðar í hugarskotunum hafi þeir gælt við nasismann. 1 myndinni sem sýnd verður í kvöld er hins vegar leitt getum að því að hlutfall þeirra sem voru nasism- anum hliðhollir í þessum hópi var engu hærra en hlutfallið almennt meðal dönsku þjóðarinnar sem talið er hafa verið á bilinu 2-4 %. Einn þeirra sem áttu ríkan þátt í gerð myndarinnar, Therkel Stræde sagnfræðingur, var stadd- ur á íslandi nýverið. Við fengum hann í stutt spjall um efni mynd- arinnar og gerð hennar. Therkel sagði að hugmyndin að umfjöllun um þetta efni hefði fyrst komið upp þegar hann og félagi hans Karsten Matthiasen hefðu verið að vinna í verksmiðju fyrir nokkrum árum, en þar hefðu þeir kynnst nokkrum mönnum sem höfðu starfað í Þýskalandi á tímum nasismans. „Þeir sögðu okkur ótrúlegar sögur þessir menn, hreint ótrú- legar sögur frá reynslu sinni í Þýskalandi og í Danmörku eftir að þeir komu til baka. Uppúr þessu fórum við Karsten að velta því fyrir okkur hvort ekki væri kominn tími til að safna einhverj- um upplýsingum saman um þetta farandverkafólk. f Danmörku hefur ekkert efni verið tekið sam- an um það, enda þykir þetta afar viðkvæmt mál og það er helst ekkert á það minnst. Við Karsten fórum í verkefnið og út úr því kom bók og þessi kvikmynd sem við gerum í samvinnu við aðra. Það gekk í upphafi mjög erfið- lega að komast í samband við fólk sem hafði verið í Þýskalandi á þessum tíma. Margir eru auðvit- að látnir og þeir sem eftir lifa hafa margir hverjir grafið þetta tíma- bil ævi sinnar kyrfilega í skúm- askot sálarlífsins. Fyrir þá er tímabilið hreint „trauma" og það er ekkert um það rætt. Smám saman fjölgaði þeim sem treystu sér til þess að leysa frá skjóðinni, sumir að vísu nafnlaust í gegnum síma, en myndina byggjum við að mestu á viðtölum við þetta fólk.“ Therkel sagði að straumur vinnuafls til Þýskalands hefði fyrst komið til vegna gífurlegs atvinnuleysis í Danmörku árið 1940, en þá var atvinnuleysið tæp 24 % meðal þeirra sem áttu aðild að stéttarfélögum. Atvinnuleysið hafi í raun verið meira því í þess- um hópi teljast þeir ekki með sem ekki voru enn komnir í stéttarfé- lag. Flestir þessara áttu ekki í önnur hús að venda en til Fé- lagsmálastofnunar. Þar hafi fólk ekki fengið nema fyrir allra brýn- ustu lífnauðsynjum og ekki hafi allir þolað þá niðurlægingu sem því fylgdi að standa þar í löngum biðröðum eftir nokkrum krón- um. Þá hafi ýmsir aðrir þættir spilað inní. Þýskalandsvinnan hafi t.d. verið tækifæri til þess að komast úr landi og kynnast ein- hverju nýju og ungt fólk sem sá enga leið úr foreldrahúsum í atvinnuleysinu, sá fram á mögu- leika til þess að öðlasta sjálfstæði. Therkel sagði að helmingur þeirra sem fóru til Þýskalands hefði verið ófaglært verkafólk en aðrir hafi komið úr ýmsum starfs- stéttum, s.s. hjúkrun, skrifstof- ustörfum og störfum sem kröfðust háskólamenntunar. Flestir voru karlmenn en konurn- ar voru á bilinu 10-12 þúsund. „Þetta fólk komst í nánari snert- ingu við nasismann en aðrir Dan- ir. Það lifði með honum daglega og eftir að það kom til baka þurfti það að lifa með nasistastimpilinn á sér jafnvel þó svo að fæst þeirra hefðu aðhyllst nasismann." Myndin sem sýnd verður í Sjónvarpinu í kvöld undir nafn- inu í vinnu hjá nasistum fjallar um líf þessa fólks, þær félagslegu aðstæður sem það bjó við. Mynd- in er heimildarmynd með leiknum atriðum en í henni er einum farandverkamanninum fylgt eftir frá því hann fer til Þýskalands. Therkel sagði að í Danmörku hefði myndin fengið árum hersetunnar í Danmörku. „Margir þeirra Dana sem unnu í Þýskalandi á árum nasismans hafa verið stimplaðir nasistar allt fram á þennan dag. Rannsóknir okkar hafa hins vegar gefið til kynna að hlutfall þeirra sem aðhylltust nasismann í þessum hópi var hverfandi," segir Therkel Stræde. Myndin er úr kvikmyndinni I vinnu hjá nasist- Therkel Stræde: (Danmörku hefur myndin um vinnu Dana í Þýskalandi nasis- mans fengið sterk viðbrögð, en lítið sem ekkert hefur verið fjallað um þetta fyrirbæri af dönskum sagnfræðingum. Fyrirbærið hefur verið tabú fram til þessa. Mynd Sig. mjög sterk viðbrögð. Vikuna eftir að hún var sýnd hefði símt- ölum til þeirra Karsten ekki linnt, sérstaklega frá fólki sem hafði verið í Þýskalandsvinnunni. „Viðbrögðin voru á ýmsa vegu. Sumir voru reiðir og sögðust ekki kannast við ýmislegt í myndinni, en flestir þökkuðu okkur mikið fyrir og sögðu að myndin hefði gert það að verkum að hægt væri að horfast í augu við minningarn- ar án sektarkenndar eða sárs- auka.“ -K.ÓI. Flmmtudagur 3. desember 1987 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.