Þjóðviljinn - 03.12.1987, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 03.12.1987, Qupperneq 10
HEIMURINN Útboð Almenn umslög og röntgenumslög Tilboö óskast í almenn umslög og röntgenum- slög fyrir Innkaupanefnd sjúkrastofnana og fleiri ríkisstofnanir. Tilboðin verða opnuð föstudaginn 8. jan. 1988 í viðurvist viðstaddra bjóðenda. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Borgar- túni 7, Reykjavík. Innkaupastofnun ríkisins INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7, PÓSTHÓLF 1450, 125 REYKJAVÍK. Dagheimilið Foldaborg Okkur vantar 2 fóstrur eða þroskaþjálfa í 50% stuðningsstarf eftir hádegi frá og með 1. janúar 1988. Einnig vantar okkur fóstru í 100% starf frá og með 1. janúar. Við á Foldaborg getum státað af góðu uppeldis- starfi og góðum starfsanda. Lysthafendur vin- samlegast hafið samband við forstöðumann í síma 673138. Vináttufélag VÍK Mun 3b, I- ua. F Stjó íslands og Kúbu iö aðalfundinn í Hlaðvarpanum, Vesturgötu d. 20.30 í kvöld. Gylfi Páll segir frá Nicarag- -réttir af okkar manni í Havana. Mætum öll. rnin J]|Íyi| Frá Menntamálaráðuneytinu: Laus staða: Við Fósturskóla íslands er laus til umsóknar staða stund- akennara í næringafræði á vorönn 1988. Umsóknir sendist skólastjóra Fósturskóla íslands, við Laugalæk, 105 Reykjavík fyrir 10. desember 1987. Menntamálaráðuneytið P Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd Hitaveitu Reykjavíkur, óskar eftir tiltDoðum í af- hendingu og uppsetningu á raf- og fjarskiptabún- aði í birgðaskemmu verkkaupa á Nesjavöllum. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirku- vegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000 skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 15. desember kl. 11.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKÚRBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 ALPÝÐUBANDALAGIÐ Menningarnefnd AB Fundur fimmtudag 3. desember kl. 17.00. Alþýðubandalagið Akranesi Fullveldishátíð Hin árlega og vinsæla Fullveldishátíð Alþýðubandalagsins á Akranesi fer fram föstudaginn 4. desember í Rein kl. 21.00. Par mæta m.a. Guðrún og Jónas Árnason, Össur Skarphéðinsson, Árni Bergmann, Kristján Elís, Jensína Waage, Tin Knapet, Guðmundur Norð- dahl, Birgir Einarsson, Flosi Einarsson og fl. og fl. og við öll hin. 1. des.-nefndin. Alþýðubandalagsfélag Selfoss og nágrennis Jólaglögg Jólaglögg í risinu í Inghól, föstudaginn 4. desember kl. 20.30. Skemmtilega deildin og við hin höldum uppi fjörinu. - Allir velkomnir. Stjórnin. Tal, töframaðurinn frá Riga, í þungum þönkum. Hershöfðingi á vígvelli ræðir ekki um hinn dapra dauða Helgi Olafsson rœðir við Tal, fyrrverandi heimsmeistara, í Sevilla, þar sem heimsmeistaraeinvígið stendur nú yfir Af þeim fjölmörgu stórmeistur- um sem komið hafa til Sevilla til að fylgjast með einvíginu eru fáir jafnvinsælir og galdramaður- inn frá Riga, Mikael Tal, fyrrum heimsmeistari í skák. Hann hefur meðal annars haft þann starfa með höndum að skýra skákirnar hér, og svo einkennilega vildi til að þegar 18. skákin fór fram fékk hann sér til aðstoðar Viktor Kortsnoj, fornan fjandvin. Kortsnoj hefur löngum haft í flimtingum það ógnartak sem hann hefur haft á Tal, en í seinni tíð hefur Tal heldur betur rétt hlut sinn. Þannig minnast menn viðureignar þeirra á IBM-mótinu í Reykjavík, en þar bar Tal sigur úr býtum eftir geysispennandi viðureign. Kannski er þessi „nýja hugs- un“ eitthvað annað og meira en orðin tóm. Leiðir hafa opnast fyrir flóttamenn frá Sovét. Ball- ettdansarinn Nuriev fær nú leyfi til að heimsækja ættmenni sín í Sovétríkjunum, tuttuguogfimm árum eftir að hann yfirgaf fóstur- jörðina. Kannski fer Kortsnoj heim á ný, þrátt fyrir allt. Tal gengur hér undir nafninu hershöfðinginn. Það skýrist af því að þegar Kasparov virtist í tap- hættu í 17. einvígisskákinni vatt spænskur blaðamaður sér að Tal og spurði hann hvort það væri hugsanlegt að Karpov næði for- ystu í einvíginu. „Hershöfðingi á vígvelli ræðir ekki um hinn dapra dauða,“ svaraði Tal að bragði. Ég hitti Tal einn daginn á veitingastað þar sem hann sat yfir fremur óvenjulegum hádegis- verði ásamt júgóslavneska ljósm- yndaranum Knesevits. Sá komst í fréttimar í fyrra þegar sovésk yfirvöld neituðu honum um vega- bréfsáritun þegar seinni hluti ein- vígis Kasparovs og Karpovs fór fram í Leningrad. Tal var í ljóm- andi skapi og kvaðst hlakka til að tefla í Reykjavík að ári þegar World Cup mótið fer fram. „Það vita það fáir, en ég hef ekki tapað einni einustu skák á íslandi. Þó hef ég teflt þar á fjórum mótum; Stúdentamótinu 1957, Reykja- víkurmótinu 1964, Reykjavíkur- mótinu 1986 og á IBM-mótinu í ár.“ Faðir minn, sem er hér með mér í Sevilla, minntist þess að þeir hefðu hist í veislu hjá Kristni Andréssyni árið 1964, þegar Reykjavíkurmótið stóð yfir. Tal er stálminnugur og kannaðist strax við föður minn. Hann kvaðst hafa lent í samræðum við Nóbelsskáldið Halldór Laxness. „Við ræddum um bókmenntir. Maður sagði nú ýmislegt gáfu- legt,“ sagði meistarinn og hló á sinn sérkennilega hátt. „Kasparov stendur sálfræði- lega betur að vígi núna,“ sagði hann skyndilega. „Hann tefldi 17. skákina ósköp heimskulega og var kominn í bullandi tap- hættu. Karpov virtist rannsaka biðskákina fremur illa.“ Talið barst að bók Kasparovs, Child of Change. Skákirnar hans eru nú betri, sagði Tal og glotti. Hann kvaðst kannast við Vladim- irovits sem Kasparov ásakar um njósnir fyrir Karpov. „Það er al- gerlega útilokað að hann hafi gert nokkuð slíkt,“ sagði hann. Ferill Tals er einn hinn glæsil- egasti sem skáksagan kann frá að greina. Á árunum 1957 til 1960 sigraði hann tvisvar á Skákþingi Sovétríkjanna, kornungur mað- urinn, varð efstur á millisvæða- mótinu í Portoroz 1958 og sigraði svo í áskorendamótinu 1959. Hann vann sér þar með rétt til að skora á heimsmeistarann, Mikael Botvinnik, og sigraði, 12,5 vinn- ingar gegn 8,5. Þar með varð hann yngsti heimsmeistari í skák frá upphafi. En ári síðar endur- heimti Botvinnik titilinn, og töfr- ar Tal hafa aldrei verið hinir sömu síðan. Við ræddum um hraðskák, en hann var á sínum tíma heimsins magnaðasti hraðskákmaður. „í dag er Kasparov sá besti,“ sagði hann. „Hér á árum áður var Tig- ran Petrosjan einn sá alharðasti í þessari grein. Hann gat teflt hverja skákina á fætur annarri án þess að gera sig sekan um hin minnstu mistök, og notaði sjaldn- ast meira en 3 mínútur á skákina. „Árið 1970 var haldið óopin- bert heimsmeistaramót í hrað- skák. Meðal keppenda var Bobby Fischer. Ég hafði teflt við hann með góðum árangri áður, og bjóst við að keppnin um efsta sætið mundi standa milli mín, Kortsnojs og Petrosjan, en Fisc- her stakk okkur alla af og hlaut 19 vinninga af 22 mögulegum og varð langefstur. Þetta kom mjög á óvart. Þá minntist Tal á hraðskákmót Búnaðarbankans sem haldið var í fyrra, en þar sigraði hann með 13,5 vinninga af 15. 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Flmmtudagur 3. desember 1987

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.