Þjóðviljinn - 03.12.1987, Side 15

Þjóðviljinn - 03.12.1987, Side 15
ÍÞRÓTTIR Páll Ólafsson var markahæstur (slendinga í gær og skoraði fjögur mörk. Mynd:E.ÓI. Handbolti Slæmur kafli varð íslendingum að falli Töpudufyrir heimsmeisturunum Júgóslövum ífyrsta leiknum í Lotto-mótinu í Noregi Evrópukeppni Naumt hjá Ungverjum Ungverjar máttu þakka fyrir sigur yfir Kýpur í Evrópukeppni landsliða í knattpsyrnu í gær. Ungverjar sigurðu, 1-0, en sigur- markið kom á síðustu mínútu leiksins. Kýpurbúar hafa ekki náð langt í knattspyrnu og hafa ekki enn fengið stig í riðlinum. Pað kom því mjög á óvart að þeir skyldu tapa með aðeins einu marki gegn Ungverjum á útivelli. Það var Kiprich sem skoraði sigurmark Ungverja. Kýpur var dæmdur sigur í leik gegn Hollandi, en eftir að Hol- lendingar áfrýjuðu var ákveðið að þjóðirnar skyldu leika að nýju. Sá leikur kemur til með að ráða úrslitum í 5. riðli. Staðan i 5. riðli: Holland.......6 4 2 0 8-1 10 Grikkland.....7 4 1 2 12-10 9 Ungverjaland..8 4 0 4 13-11 8 Pólland.......8 3 2 3 9-11 8 Kýpur.........7 0 1 6 3-12 1 Jafnt hjá Skotum Pað voru ekki aðeins Kýpurbú- ar sem komu á óvart í gær. Lux- emburg fékk sitt fyrsta stig með því að gera markalaust jafntefli gegn Skotum í 7. riðli. Þrátt fyrir að úrslitin í 7. riðli séu ráðin, áttu flestir von á því að Skotar ynnu stóran sigur og björ- guðu andiitinu. Með góðum sigri hefðu þeir geta komist í 2. sæti, en húka þess í stað í 4. sæti. Lokastaðan í 7. riðli: (rland.............8 4 3 1 10-5 11 Búlgaría...........8 4 2 2 12-6 10 Belgía.............8 3 3 2 12-6 10 Skotland...........8 3 3 2 7-5 8 Luxemburg..........8 0 1 7 2-23 1 Eitt laust sæti Það er aðeins einu sæti óráð- stafað í lokakeppninni. Það er í 5. riðli. Hollendingar mæta Kýpur í næstu viku og með sigri geta þeir tryggt sér sæti í lokakeppninni í Stuttgart. Þjóðirnar sem þegar eru komnar áfram eru gestgjafarnir, V-Þýskaland, Spánn, Ítalía, So- vétríkin, England. Danmörk og írland. -Ibe/Reuter Knattpspyrna Larsson til Ajax Peter Larsson, einn sterkasti varnarmaður Gautarborgarliðs- ins sem sigraði í UEFA-bikarnum í vor, er á leið til Ajax. Hann er annar leikmaður Gautaborgar sem yfirgefur fé- lagið á skömmum tíma. Glenn Hysen fór til Fiorentina á Ítalíu í upphafi keppnistímabilsins. Félögin vildu ekki gefa upp verðið, en forráðamenn Gauta- borgar sögðust vera ánægðir með samninginn. -ibe/Reuter Það var fyrst og fremst hræði- leg byrjun í síðari hálfleik sem kostaði ísienska landsliðið í hand- knattleik sigur gegn Júgóslavíu í fyrsta leik Lotto-mótsins í Noregi. Leikurinn var jafn framan af og í hálfleik var staðan 10-10. Það gekk hinsvegar ekkert hjá íslend- ingum í síðari hálfleik og fímm mörk í röð frá Júgóslövum gerðu út um leikinn. „Þetta var ömurlegt í síðari hálfleik. Við klúðruðum boltan- um hvað eftir annað og þeir skoruðu meirihlutann af sínum mörkum úr hraðaupphlaupum og það er slæmt að fá á sig svo- leiðis mörk,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, sem lék sinn 150. landsieik fyrir ísland í gær. Slæmt í síðari hálfleik Það byrjaði hræðilega hjá ís- lendingum í síðari hálfleik og þeir skoruðu aðeins eitt mark á fyrstu tíu mínútunum. Staðan þá 11-16, Júgóslövum í vil. fslendingar svöruðu fyrir sig og náðu að minnka muninn í tvö mörk, 15- 17, en þá skoruðu Júgóslavar sex mörk gegn einu. Staðan þá 16-23 og úrslitin ráðin. „Við fengum eiginlega rothögg strax í upphafí síðari hálfleiks. Þá skoruðu þeir fímm mörk eftir að við höfðum nánast gefíð þeim boltann,“ sagði Atli Hilmarsson í samtali við Þjóðviljann eftir leikinn. „Þeir voru með nýjan markvörð, Velic. Við höfðum aldrei séð hann áður og skutum vitlaust á hann. Hann varði yfír 20 skot og það er alltof mikið. Það voru þó ágætir kaflar í þessum leik, en það er erfítt að eiga við Júgóslava þegar þeir eru komnir svona yfír. Þá verðum við að taka áhættur og ef það mis- tekst þá eru þeir komnir í hraða- upphlaup eins og skot.“ Islendingar léku án lykilmanna á borð við Kristján Arason, Al- freð Gíslason og Bjarna Guð- mundsson. Júgóslavar voru einn- ig án sterkra manna, s.s. Isakovic og Vujovic. Það leit þó ekki út fyrir tap í fyrri hálfleik. íslendingar byrj- uðu vel og skoruðu fyrsta mark- ið. Eftir það var jafnt á öllum tölum, en íslendingar ávallt fyrri til að skora. Júgóslavar náðu þó forystunni, 9-10, en Páll Ólafsson jafnaði úr vítakasti á síðustu sek- úndum fyrri hálfleiks. Liðið lék vel í fyrri hálfleik. Vörnin sterk og Einar Þorvarðar- son varði vel. Sóknarnýtingin var þokkaleg. Það sama var hinsvegar ekki uppá teningnum í síðari hálfleik. Þá gekk ekkert hjá íslendingum. Hver sóknin af annarri strandaði á júgóslavnesku markvörðunum, en á sama tíma gekk allt upp hjá Júgóslövum. Það var nánast sama hvað þeir reyndu, allt small saman og þeir röðuðu niður mörkunum. íslendingar náðu að svara fyrir sig og um miðjan síðari hálfleik var munurinn aðeins tvö mörk, en þá tóku Júgóslavar við sér og gerðu út um leikinn á stuttum tíma. „Það sem ég held að hafí ráðið úrsiitum voru mistök í sókninni. Við hefðum átt að vera 4-5 mörk- um yfír í hálfleik og klúðruðum a.m.k sjö dauðafærum í fyrri hálfleik og öðru eins í síðari hálf- leik,“ sagði Guðmundur Guð- mundsson. „Mér fannst við hefð- um átt að geta unnið þennan leik. Þeir eru ekki í neitt sérstaklega góðu formi, en tókst að gera út um leikinn í síðari hálfleik. Það er þó enginn uppgjafartón í okkur og við ætlurn að sigra í hinum leikjunum og ná a.m.k. 2. sæti.“ Mörk (slands: Páll Ólafsson 4(1 v), Sigurður Sveinsson 2, Guðmundur Guðmundsson 2, Geir Sveinsson 2, Valdimar Grímsson 2, Atli Hilmarsson 2, Sigurður Gunnarsson 2 og Jakob Sig- urðsson 1. I gær voru tveir leikir til við- bótar. Hollendingar komu mjög á óvart og sigruðu Norðmenn, 23-31 og Sviss sigraði ísrael, 26- 13. -Ibe Kvennahandbolti Ítalía Tap hjá Juventus Juventus var í gær dæmdur leikur gegn Cesena tapaður. Ju- ventus sigraði í leiknum, 2-1, en einn áhorfenda kastaði hvellhettu inná völlin og leikmaður Cesena fékk taugaáfall. Stjórn ítalska knattspyrnusambandsins ákvað því í gær að Cesena skyldi dæmd- ur sigur, 2-0. Dario Sanguin, leikmaður Cesena var að ganga af velli í leikhléi þegar áhorfandi kastaði hvelljettu og hún sprakk rétt við andlit hans. Hann varð að fara á spítala með vægt taugaáfall. Ju- ventus var einnig dæmt til að greiða kr.600.000 í sekt. Með þessu tapi féll Juventus úr 3. sæti í 5., en Cesena fór úr 16. í 10. sæti. -Ibc/Reuter Frjálsar íþróttir Allir á meistaramot A ársþingi frjálsíþróttasam- bandsins, sem haldið var á Akur- eyri um helgina, var samþykkt að aðeins þeir sem tækju þátt í meistaramóti íslands kæmu til greina í landsliðið. Meistaramótið, sem á að vera stærsta mótið, hefur verið mjög dauft undanfarin ár, en þetta verður líklega til þess að hleypa fjöri í mótið. Þá var mótaskrá samþykkt. Fyrirhugaðar eru tvær lands- keppnir, gegn Skotum og írum 9. júlí og gegn Luxemburg 3-.4. september. Stjórn FRÍ var endurkjörin og Ágúst Ásgeirsson verður því áfram formaður. -Jbe I kvöld I kvöld eru tveir leikir í úrvals- deildinni í körfuknattleik, báðir á Suðurnesjum. Nágrannarnir Grindavík og Njarðvík mætast í Grindavík kl. 20. Þrátt fyrir að Njarðvíkingar séu með fullt hús geta þeir ekki verið öruggir með sigur yfir sprækum Grindvíkingum. Keflvíkingar taka á móti botn- liði Breiðbliks í Keflavík kl. 20. íslensku A-landsliðið og U-21 árs liðið verða á fullri ferð. A- liðið mætir ísrael í 2. leik liðsins í Lottó-mótinu í Noregi og U-21 árs liðið mætir Norðmönnum í fyrsta leik HM U-21 árs. HM JJ-21 árs Mæta Norðmönnum U-21 árs liðið mœtir Norðurlanda meisturunum í fyrsta leik HM íslenska landsliðið U-21 árs leikur í kvöld fyrsta leik sinn í Heimsmeistarakeppni liða yngri en 21 árs. Það eru Norðmenn sem verða andstæðingar íslands í fyrsta leik og verður leikurinn án efa erfið- ur. Norðmenn eru Norður- landameistarar og hafa leikið vel að undanförnu. Það hafa fslend- ingar reyndar einnig gert og sigr- uðu á sterku móti í V-Þýskalandi. Þar sigruðu þeirm.a. Norðmenn. Tvo sterka leikmenn vantar í íslenska liðið, stórskytturnar Héðin Gilsson og Jón Kristjáns- son. Héðinn er handarbrotinn, en Jón er í próflestri. Þrátt fyrir það ættu möguleikar íslands að teljast þokkalegir. Liðið þarf að sigra í tveim leikjum til að komast í milliriðil. ísland mætir Sovétmönnumn í 2. leik og Ungverjum í 3. leik.-lbe Spenna í Hafnarfirði Stjarnan sigraði Hauka í fjörugum leik. Öruggt hjá FH Þrátt fyrir að hafa misst Erlu Rafnsdóttir gefur Stjarnan ekkert cftir og sigraði Hauka í gær í spenn- andi leik, 20-18. Þegar rúm mínúta var til leiks- loka var staðan 19-18, Stjörnunni í vil. Þá fengu Haukar vítakast og ein Stjarnan var rekin af leikvelli. Fjóla Þórisdóttir, markvörður Stjömunnar gerði sér lítið fyrir og varði frá Margréti Theodórsdóttur, fyrmm þjálfara og leikmanni Stjömunnar. Það var svo Herdís Sigurbergsdóttir sem innsiglaði sigur Stjörnunnar. Það var nokkur spenna fyrir þennan leik og það sást á leik lið- anna. Mikið var um mistök hjá báðum liðum. Stjarnan leidi yfirleitt með 1-2 mörkum, og í hálfleik var staðan 10-11, Stjörnunni í vil. Mörk Hauka: Margrét Theodórsdóttir 9, Steinunn Þorsteinsdóttir 4, Elva Guð- mundsdóttir 2, Halldóra Mathiesen 2 og Hrafnhildur Pálsdóttir 1. Mörk Stjörnunnar: Ragnheiður Step- hensen 8, Herdís Sigurbergsdóttir 4, Drífa Gunnarsdóttir 4, Guðný Gunnsteinsdóttir 2, Hrund Grétarsdóttir 1 og Ingibjörg And- résardóttir 1. FH-ingar áttu ekki í miklum vandræðum með slaka Víkinga og sigruðu örugglega, 22-14. Yfirburðlr FH Það var aðeins í fyrri hálfleik að jafnræði var með liðunum, en í hálfleik var staðan 10-7. FH-ingar j uku svo forskotið jafnt og þétt og sigurinn aldrei í hættu. Mörk Vfkings: Inga Lára Þórisdóttir 6(4v), Eiríka Ásgrímsdóttir 3(1v), Valdis Birgisdóttir 3, Jóna Bjarnadóttir 1 og Svava Baldvinsdóttir 1. Mörk FH: Kristín Pétursdóttir 5, Hildur Harðardóttir 4, Eva Baldursdóttir 4, Inga Einarsdóttir 3, Heiða Einarsdóttir 2, Rut Baldursdóttir2(1v), Berglind Hreinsdóttir 1 og Helga Sigurðardóttir 1. -MHM Flmmtudagur 3. desember 1987 ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.