Þjóðviljinn - 17.12.1987, Qupperneq 3
FRÉTTIR
Nesskip hf.
Með allt á homum sér
Guðjón Ármann Einarsson rekstrarstjóri: Pólverjará
Hvítanesinu. Betri starfskraftar en íslenskir. Helgi
Laxdal varaforseti FFSÍ: Ekkert nýtt að íslenskir
sjómenn séu rœgðir af forráðamönnum Nesskipa
að er ekkert launungarmál af
minni hálfu aS vinnuframlag
Pólverja og vinnugleði er mun
meiri en þeirra Islendinga sem við
höfum haft í vinnu um borð í
kaupskipum okkar. Meðal ann-
ars af þeirri ástæðu höfum við
ráðið Pólverja um borð í Hvíta-
nesið, sagði Guðjón Ármann Ein-
arsson rekstarstjóri Nesskipa hf. í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Þegar saltfisksflutningaskipið
Hvítanes kom til hafnar í Hafnar-
firði í fyrradag var skipt um áhöfn
þess að hluta og þeir íslendingar
sem voru um borð voru látnir fara
frá borði og í staðinn komu Pól-
verjar um borð. Af níu manna
áhöfn skipsins eru einungis skip-
stjóri og fyrsti stýrimaður íslensk-
ir. Hvítanesið siglir undir fána
Panama, en það er of gamalt til
þess að hægt sé að skrá það hér á
landi.
Þjóðviljinn bar þessi ummæli
Guðjóns undir Helga Laxdal
varaforseta farmanna- og fiski-
mannasambands íslands. Að
sögn Helga er það ekkert nýtt að
forráðamenn Nesskipa hf. séu að
rægja íslenska sjómenn og sagðist
Helgi ekki þekkja þá öðru vísi en
að þeir séu ávallt með allt á horn-
um sér. Enda sé það svo að mjög
erfiðlega gangi hjá þeim hjá Nes-
skipum hf. að ráða til sín íslenska
farmenn, og þá sérstaklega vél-
stjóra sem bjóðast betri kjör í
landi en hjá kaupskipaútgerðum.
„Þeir hafa engan skilning á því
að þeir eru að keppa við fyrirtæki
í landi sem bjóða betra kaup en
þeir bjóða. Það skilningsleysi
kemur fram í því að þeir haida að
þeir séu manna bestir en við hinir
ræflar og aumingjar," sagði Helgi
Laxdal.
— grh
Kvótafrumvarpið
Ur nefnd undir helgi
Búist við að samstaða náist um að kvóti aukist
ekki hjá skipum sem seld eru milli landshluta
Búist er við því að frumvarp
ríkisstjórnarinnar um stjórn
fikveiðanna komi úr sjávarút-
vegsnefnd efri deildar á föstudag
eða laugardag samkvæmt heim-
ildum Þjóðviljans.
Margar veigamiklar breytinga-
tillögur eru á borðum nefndar-
manna og náist samstaða um þær
er búist við að frumvarpið fái
skjóta afgreiðslu í deildum. Eitt
þeirra atriða sem jafnvel er búist
við að samstaða náist um er að
kvóti aukist ekki við sölu milli
landshluta.
Ekki er búist við að norður-
suður línan verði að hitamáli við
afgreiðslu frumvarpsins þó 36
þingmenn hafi skrifað upp á að
hún verði felld burt, náist sam-
staða um að skerða söluréttinn.
Hugmyndir hafa heyrst um að
frumvarpið verði ekki afgreitt
fyrir áramót og að núgildandi lög
verði framlengd um nokkra mán-
uði á meðan þingið samþykkir
kvótafrumvarpið. Þessi hugmynd
hefur ekki verið rædd í nefndun-
um að sögn eins nefndarmanna
og hallast menn jafnvel að því að
þessi hugmynd sé komin úr sjáv-
arútvegsráðuneytinu til að setja
þrýsting á menn við að drífa
frumvarpið í gegnum þingið.
-Sáf
Húsnæðismálin
Lánsloforð seld
Lánsloforð upp á 150 milljónir seld með 15
milljón króna afföllum.
Húsnœðisfrumvarpið úrfyrstu umrœðu íefri
deild
Alls hafa 148 einstaklingar selt
lánsloforð frá Húsnæðisstofn-
un upp á 150 milljónir króna til
verðbrcfamarkaða. Afföilin af
loforðunum eru 12 milljón krón-
ur og 3 milljónir hafa farið í sölu-
laun. Þetta kom fram hjá Jó-
hönnu Sigurðardóttur við fyrstu
umræðu um húsnæðisfrumvarp-
ið í efri deild Alþingis í gær.
Borgaraflokksins. Guðmundur
Ágústsson sagði m.a. að fé-
lagsmálaráðherra og Alþýðu-
flokkurinn vildu keyra þetta
frumvarp í gegn án umræðu.
-Sáf
Mig langar í þetta! Og mig langar í svona! Það er Ijúft að láta sig
dreyma fyrir framan búðarglugga. Jólin eru í nánd og ekki er að vita nema
draumar einhverra rætist þegar jólapakkarnir verða opnaðir. Hver veit? Mynd:
KGA.
Atvinnurekstur
Svanasöngur
Álft á réttri leið á
happdrœttismidunum.
Fálkinn úti íkuldanum?
Sjálfstæðisflokkurinn auglýsir
hausthappdrætti sitt á heilsíðu í
Morgunblaðinu í gær, en þar er
álft ein á flugi í miðju. Áhugafólk
um fugla og stjórnmál veltir því
nú fyrir sér hvort flokkurinn hafi
skipt um einkennisfugl, en þann
sess hefur fálkinn löngum skipað.
Þóra Ármannsdóttir á skrif-
stofu flokksins sagði í gær að hér
væri ekki um nýtt tákn að ræða.
Það væri ákvörðun stofunnar sem
auglýsinguna gerði að prýða hana
með ljósmynd af álft.
Umrædda ljósmynd tók Björ-
gvin Pálsson, en Hrafnhildur Sig-
urðardóttir á „Hótel Alexandra,
auglýsingastofa," útbjó auglýs-
inguna.
Álftin hefur því enn ekki byggt
fálkanum út sem flokkstákni, en
um þann síðarnefnda orti Lax-
ness einmitt í eina tíð: „Ekki lýst
oss það fagur fugl/fálki með Iærin
í skónum."
HS
Loðna
Frjálst verð
Á fundi Verðlagsráðs sjávarút-
vegsins í gær var samþykkt að
gefa frjálsa verðlagningu á loðnu
til bræðslu frá 1. janúar 1988 til
loka vertíðar á næsta vori. Það
voru seljendur, sjómenn og út-
gerðarmenn sem lögðu tillöguna
fram í verðlagsráði.
Að sögn Hólmgeirs Jónssonar
framkvæmdastjóra Sjómanna-
sambands íslands eru sjómenn að
vonum ánægðir með þessi mála-
lok, en eins og kunnugt er þá
heyktust kaupendur á að sam-
þykkja frjálst loðnuverð í byrjun
vertíðar, sem þó hafði gilt á vert-
íðinni á undan. í staðinn var sam-
þykkt lágmarksverð á loðnu til
bræðslu upp á 1600 krónur fyrir
tonnið af loðnunni.
Það sem af er vertíðinni hefur
það verð nánast aldrei verið virt
af verksmiðjunum og hafa þær
kappkostað að yfirbjóða hver
aðra til þess að fá eitthvað af
loðnu til bræðslu.
-grh
Eigið fé fyrirtækja lýmar
Brynjólfur Bjarnason, Granda hf: Verð að œtla að háir
raunvextir hér á landi sé tímabundið ástand
I umræðunni um frumvarpið
kom fram að þingmönnum þykja
breytingarnar sem gert er ráð
fyrir í frumvarpinu ekki veiga-
miklar.
Svavar Gestsson sagði að vandi
húsnæðiskerfisins væri sá sami og
hann hefði verið um árabil, það
vanti peninga. Sagði hann að því
miður breytti frumvarpið ekki
miklu, hinsvegar væri óhjá-
kvæmilegt að afgreiða málið
strax þó hann teldi að það hefði
þurft að gera miklu róttækari
breytingar á því og ekki síst á fé-
lagslega íbúðakerfinu.
Guðrún Agnarsdóttir tók í
sama streng og sagði að Kvenna-
listinn hefði viljað ganga lengra
t.d. varðandi takmörkun á sjálf-
virkni í kerfinu. Þeir Júlíus Sól-
nes og Guðmundur Ágústsson
mæltu fyrir breytingatillögum
Raunvextirnir eru háir miðað
við samkeppnislönd okkar,
það fer ekkert á milli mála, en hér
á landi er líka mikil samkeppni
um fjármagnið milli ríkis,
sveitarfélaga og atvinnufyrir-
tækja, segir Brynjólfur Bjarna-
son, framkvæmdastjóri Granda
hf; það er ekkert óeðlilegt við það
að raunvextir hækki þegar
þröngt er um fjármagnið.
- Það er hins vegar afar ó-
æskilegt að raunvextir séu hærri
hér en í samkeppnislöndum okk-
ar, en slíkt þarf ekki að koma á
óvart; um helmingur þessa er til
kominn vegna gífurlegrar þenslu
að undanförnu. En það erljóst að
síst minnkar eftirspurnin eftir
fjármagni með því að setja þak á
vexti eða hafa þá jafnvel
neikvæða eins og tíðkaðist hér
áður fyrr, segir Brynjólfur.
- Ég verð að ætla að hæð raun-
vaxta hér sé tímabundið ástand
og að jafnvægi komist á. Ef slíkt
jafnvægi kemst ekki á þá er
eitthvað að í peningastjórninni.
- Á þenslutímum eins og núna
á ríkisbúskapurinn að koma út
með afgang, en ekki bara að vera
hallalaus. Ríkisfjármálin, og
fjármál sveitarstjórna einnig, eru
eitt af hagstjórnartækjunum. Því
á hallabúskapur á ríkissjóði illa
við á þenslutímum, þar sem hann
verður til að auka enn á þensl-
una, segir Brynjólfur.
Brynjólfur var spurður hvort
hann teldi að fjármagnskostnað-
ur væri að sliga atvinnureksturinn
í landinu. Hann sagði að í mörg-
um atvinnugreinum væri rýrnun á
eigin fé fyrirtækjanna síðastliðin
5 til 6 ár alvarlegt mál, og því
væru þau með hærra hlutfall af
lánsfé í sínum rekstri en æskilegt
væri. Þetta bæri að hinum sama
brunni, að fjármagnskostnaður
væri hár hér á landi, og hærri en í
nágrannalöndunum.
HS
Flmmtudagur 17. desember 1987, ÞJÓÐVILJINN - SlÐA 3
f "