Þjóðviljinn - 17.12.1987, Page 4
LEIÐARI
Hvar liggur ábyrgðin?
í dag eöa á morgun veröur á alþingi tekin fyrir
tillaga þingmanna Alþýöubandalagsins um aö
þingiö skipi rannsóknarnefnd til aö kanna hver
beri ábyrgö á því aö kostnaður viö flugstöðvar-
bygginguna á Vellinum fór eins glæfralega úr
böndum og raun ber vitni.
Það er ekkert smotterí sem verið er að tala um
í peningum. Ríkisendurskoöun segir aö hlutur
ríkissjóðs hafi oröið 871 milljón frammyfir upp-
haflega kostnaðaráætlun, sem í sjálfu sér var
nógu há, - og var á sínum tíma réttlætt meö því
aö ef ekki yröi ráöist í þessa dýru byggingu
fengist bandaríski herinn ekki til aö vera meö í
púkkinu. Þaö er raunar sérstakt athugunarefni
hver kostnaöur varö af því sérstaklega að ís-
lensk stjórnvöld ákváöu aö byggja flugstööina
sem bandarískt hernaöarmannvirki því líkur
benda til að tvöföld hönnunarvinna og tvöfalt
staölaviömið eigi sinn þátt í þessu ævintýri.
Sú 871 milljón sem eytt var af íslensku fé
umfram háa áætlun er meira fé en borgarstjórn-
armeirihlutinn í Reykjavík ætlar sér aö eyða í
nýtt ráöhús viö Tjörnina og þykir þó mörgum
nóg um. Umframkostnaðurinn viö flugstööina
er meiri en kaupverð Útvegsbanka þegar SÍS
og KR-ingar buðu í hann í sumar sællar minn-
ingar. Fyrir 871 milljón mæti byggjasvo margar
íbúðir aö næmi sæmilega myndarlegu sjávar-
þorpi á landsbyggðinni. Og þessi upphæö ein
er um fimmtungur þess fjár sem Jón Baldvin
Hannibalsson ætlar aö draga í ríkissjóð meö
blóöi, svita og tárum gegnum nýja matarskatt-
inn.
Byggingarnefnd flugstöðvarinnar hefur svar-
aö skýrslu Ríkisendurskoðunar meö því aö vísa
málinu frá sér til yfirmanna sinna, ráöherranna.
Eðlileg viðbrögö þjóðþingsins í þessari stöðu er
aö kanna á hvaöa stigi framkvæmdavaldsins
ábyrgðin liggur, - og þaö er ekkert leyndarmál
að augu manna beinast einkum aö síöasta
utanríkisráöherra, Matthíasi Mathiesen, og
fjármálaráðherranum fyrrverandi, Þorsteini
Pálssyni. Hér skal ekkert um þaö fullyrt að ann-
ar hvor þeirra eöa báöir beri í raun ábyrgö á því
hneyksli sem skýrsla Ríkisendurskoðunar leiöir
í Ijós, hvort sú ábyrgð hvílir á embættismönnum
eöa á forverum þessara manna í ráöherrastóli.
Þessir tveir og samþingmenn þeirra nú geta
Laumuspil m
Þær fréttir berast aö nú sé á alþingi veriö aö
lauma inní fjárlög um þaö bil sex milljónum í
viðbót til að halda áfram að hanna nýtt þinghús í
miðbænum, hús sem vegna útlits síns og um-
hverfisáhrifa milli Austurvallar og Tjarnarinnar
hefur í munni almennings fengiö nafnið þing-
kassinn.
Svo viröist aö þingmenn hafi aldrei gert form-
lega upp hug sinn til þessa máls, hvort yfirhöfuð
eigi að byggja í miðbænum þinghús af þessari
stærö eöa hvort halda skuli áfram á grunni
þeirrar tillögu sem nú er helst gælt við.
Hættan er auðvitað sú aö hinir kjörnu fulltrúar
fái aldrei tækifæri til slíkrar umræöu vegna þess
hinsvegar ekki skorist undan því aö efna til
rannsóknar.
Einkum vegna þess að allt kapp var lagt á aö
Ijúka flugstöðinni, aö minnsta kosti á ytra borði,
fyrir kosningarnar í vor, þarsem einmitt þeir
Matthías Á. Mathiesen og Þorsteinn Pálsson
reiknuðu sér flugstööina tekjumegin í uppgjöri
sínu til kjósenda, meöal annars í flenniaug-
lýsingum í helstu fjölmiölum.
Nema enn einu sinni komi upp sú staða að
enginn ber ábyrgö og hver vísar á annan og allir
á engan. Og 871 milljón veröi einsog hver önnur
SKiptimynt í samtryggingarmattador kerfisflokk-
anna.
íð þingkassa
aö þegar aö hinni formlegu afgreiðslu kemur
verði verkiö svo langt fram gengið aö erfitt verði
að leggjast gegn því.
Þessvegna hljóta þingmenn að taka til hend-
inni nú um kassann nýja, ekki síst þeir átján sem
Reykvíkingar hafa kosiö til þess meðal annars
I aö gæta hagsmuna höfuöborgarinnar.
Umhverfi á einum viðkvæmasta staö í
Reykjavík hlýtur aö skipta þessa átján meira
máli en metnaður gamals stjórnmálamanns
vestan af fjörðum, jafnvel þótt sá hafi fengið aö
vera forseti sameinaðs alþingis nokkur síöustu
ár sín í pólitík.
- m
KLIPPT OG SKORID
Flugstöövarbrella
Það er gaman að fletta gömlum
blöðum og leyfa sér að undrast
þann hugsunarhátt og málefna-
áherslur sem þar er að finna.
Blöð þurfa ekki að vera mjög
gömul til að vekja undrun og kát-
ínu. Fyrir níu mánuðum, eða sex
dögum fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar, gáfu Sjálfstæðismenn í
Hafnarfirði út 3. tölublað Ham-
ars. Þar er að finna þessa skrýtnu
klausu um flugstöðina á Kefla-
víkurflugvelli:
„Vígsla hinnarnýju flugstöðvar
hefur farið óskaplega fyrir brjóst-
ið á kommum og krötum og öðr-
um andstœðingum Sjálfstœðis-
flokksins. Lengi var því haldið
fram að byggingin væri hið mesta
bruðl og óþarflega stór. Pegarsvo
Ijóst varð að svo var ekki, var
blaðinu snúið gjörsamlega við og
ákaft skammast yfir því að hún
vœri oflítil. Pegarsvo tilkynnt var
að flugstöðin yrði vígð fyrir kosn-
ingar var sem vinstri menn hefðu
himin höndum tekið. Hér var
vitaskuld um kosningabrellu
Sjálfstæðisflokksins að ræða.
Hvað annað? ... Hemar getur
heilshugar tekið undir það að hin
stórglæsilega flugstöðvarbygging
sem kostað hefur einn og hálfan
milljarð að koma upp, sé ekki
annað en kosningabrella - ef
menn vilja nota það orð yfir það
frekar en eitthvað annað. “
Þettavar núí„dentíð“. Nokkr-
um dögum síðar vissu jafnt Sjálf-
stæðismenn f Hafnarfirði sem
aðrir að byggingarkostnaðurinn
var ekki 1,5 miljarður heldur nær
3 miljarðar. En það er önnur
saga.
Talnaglöggur
fjármálaráðherra
Alþýðublaðið eyðir í gær stór-
um hluta af takmörkuðu plássi
sínu til að útskýra að aukin skatt-
heimta Jóns Baldvins verður ekki
10 miljarðar á næsta ári heldur
aðeins 5 miljarðar. Birtir blaðið
sérstaka greinargerð frá ráðherr-
anum um málið. Þar er beitt
nokkuð sérstakri reikningsaðferð
sem rétt er að sem flestir kynni
sér. Gengur hún út á það að telja
auknar tekjur einskis virði ef
þeim er eytt jafnóðum. Þetta er í
sumum tilfellum ugglaust ágæt
hagfræði. Samkvæmt henni getur
maður með 150 þúsund króna
mánaðarlaun talist tekjulaus ef
hann eyðir öllu kaupinu sínu.
Ráðherra rekur fyrstu aðgerðir
ríkisstjórnarinnar á síðastliðnu
sumri en þá var ,rsöluskattsstofn-
inn víkkaður með fœkkun undan-
þága, meðal annars á ýmsum ma-
tvælum, tölvum og sérfræðiþjón-
ustu. Pá var einnig lagt sérstakt
gjald á bifreiðar og erlendar lán-
tökur auk þess sem kjarnfóður-
gjald og ríkisábyrgðargjald voru
hœkkuð. Með þessum fyrstu að-
gerðum var talið að brúttótekjur
ríkissjóðs myndu aukast um 3.700
miljónir króna miðað við heilt ár
og verðlag 1988.“
Þetta er skýrt og greinilegt:
Fyrstu aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar þýddu aukna skattheimtu um
3,7 miljarða króna á ári. En bíð-
um við, allt í einu fer ráðherrann
út í aðra sálma og fer að tala um
að ellilífeyrir hafi verið hækkaður
sérstaklega um 320 miljónir
króna og barnabótaaukinn um
240 miljónir króna. „Nettótekju-
öflun af þessum fyrstu aðgerðum
nam þannig 3.140 miljónum
króna. “
Á augabragði hafa horfið 560
miljónir króna og 3.700 miljónir
eru orðnar að 3.140 miljónum.
Með ámóta reikningskúnstum
tekst ráðherranum að reikna sig
niður í að auknar skattaálögur
ííkisstjórnarinnar nemi 5 milj-
örðum króna en ekki 10 miljörð-
um.
Leiðinlegir
vælukjóar
Víkurblaðið á Húsavík birti
fyrir skömmu leiðara sem kallað-
ist „Kveðum landsbyggðarvælið í
kútinn". Þar segir m.a:
„Pað er alkunna að vœlukjóar
og spangólarar koma oftast litlu
til leiðar ogná sjaldnast markmið-
um sínum, nema auðvitað þegar
vœlið og spangólið er markmið í
sjálfu sér, s.s. í poppbransanum.
Við landsbyggðarmenn höfum
verið einhverjir mögnuðustu
vælukjóar á landi hér hin síðari
ár, og næsta víst að Reykvíkingar
eru fyrir löngu búnir að fá leið á
þessu eymdarinnar gauli ...
En misrétti hefur aldrei verið
leiðrétt með því að kveinka sér og
kvarta. Við gólum ekki fjármagn-
ið til baka eða fjárveitingarnar frá
alþingi og snúum ekki við fólks-
flóttanum úrstrjálbýli með vælinu
einu saman nema síður sé. Pað
nenna fáir að hlusta á kjökur til
lengdar og enn fœrri að taka
nokkurt mark á því.
Við verðum sem sagt að taka
, upp nýjan stíl eins og Alþýðu-
flokkurinn forðum. Við verðum
að leggja af bölsýnisbarlóm, vœl
og víl og upphefja
bjartsýnissöngva. Láta þjálfaðar
karla- og kirkjukóraraddir glað-
beittra sveitamanna kyrja óðinn
til uppbyggingar á landsbyggð-
inni svo að glymji suður yfir
heiðar og undir taki í Esjunni. “
Hinn nýi stíll
Og þá getum við sett hefann í
borðið og drunið dimmum karla-
rómi: hingað og ekki lengra! Og
við sendum óteljandi lúðrasveitir
landsbyggðarinnar suður og
látum þœr blása við borgarmúr-
ana, líkt og aðrir lúðraþeytarar
blésu við múra Jeríkó fyrir margt
löngu. Og þá munu milliliðirnir
og málaliðar Mammons í borg
Davíðs skelfast og spyrja: Munu
þetta þeir er áður gólu svo ámátt-
lega? Og milliliðirnir og málalið-
arnir munu senda möppudýr til
að opna sjóði og hirslur og fjár-
magnið mun renna í stríðum
straumum út í dreifbýlið.
Og borgarhliðin munu opnast
fyrir ungum athafnamönnum og
konum, og þau munu þeysa á tra-
böntunum sínum og skódunum
sínum út í dreifbýlið þar sem
bjartsýnin ríkir ein.“
þJOÐVILJINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Utgefandi: Útgáfufélag Þjóöviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Mörður Árnason, Óttar Proppé.
Fróttastjóri: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Elísabet K. Jökulsdóttir, Guðmundur RúnarHeiðarsson,
Hrafn Jökulsson, HjörleifurSveinbjörnsson, Kristín Ólafsdóttir,
Kristófer Svavarsson, Logi Bergmann Eiðsson (íþróttir). Magnús H.
Gíslason, ólafur Gíslason, Ragnar Karlsson, SigurðurÁ.
Friðþjófsson, Vilborg Davíðsdóttir.
Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar, Hildur Finnsdóttir.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Siguröur Mar Halldórsson.
Útlitateiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason, Margrét
Magnúsdóttir.
Framkvæmdastjóri: Hallur Páll Jónsson.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Auglýslngastjóri: Siaríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglyslngar: Unnur Ágústsdóttir, Olga Clausen, Guðmunda Krist-
insdóttir.
Simavarsla: Hanna Ólafsdóttir, Sigríður Kristjánsdóttir.
Bílstjórl: Jóna Sigurdórsdóttir.
Utbreiðslu-og afgreiðslustjóri: HörðurOddfríðarson.
Utbreiðsla: G. Margrétóskarsdóttir.
Afgreiðsla: Halla Pálsdóttir, Hrefna Magnúsdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ÓlafurBjörnsson.
Utkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 55 kr.
Helgarblöð:65kr.
Askriftarverð á mánuði: 600 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 17. desember 1987