Þjóðviljinn - 17.12.1987, Qupperneq 9
BÆKUR
Hvar fæ ég
höfði hallað?
Isaac Bashevis Singer
Isaac Bashevis Singer
Þrællinn
Hjörtur Pálsson þýddi.
Setberg 1987.
Söguleg skáldsaga er þetta og
um leið trúarleg ástarsaga. Sviðið
er Pólland á sautjándu öld, veður
öll válynd, kósakkar í uppreisn
gegn valdi pólska aðalsins og hve-
nær sem farið er yfir slétturnar
með báli og brandi er byrjað á því
að ráðast á gyðinga, brenna hús
þeirra, nauðga konunum og
henda börn á kesjum. Jakob hef-
ur sloppið undan einni slíkri
hrinu til fjalla og verið seldur í
ánauð til bónda eins. Dóttir
bónda, Wanda, ung ekkja, fellir
ástarhug til hans og hann til henn-
ar en streitist lengi á móti, því
hann vill ekki brjóta gegn trú feð-
ranna og þótt hún vilji trúa á hans
guð eins og Rut forðum, þá er
dauðarefsing við því að snúa ka-
þólskri manneskju til villutrúar
þeirra „sem drápu Krist“. Þau
geta samt ekki hvort án annars
verið og reyna nýtt líf í afskekktu
gyðingaplássi og þykist Wanda
(sem nú nefnist Sara) vera mál-
laus til að ekki komist upp að hún
kann illa jiddísku, mál gyðinga -
en einn dag verður hún að mæla
orð frá vörum og þá getur margur
háski vofað yfir.
Eins og í mörgum öðrum sög-
um sínum reiðir Isaac Bashevis
Singer hér fram sterka blöndu
hrikalegra atburða og trúarlegrar
umræðu um hinstu rök. Hann
getur verið grimmur höfundur og
er það hér. Því fer fjarri að hann
fegri sautjándu öldina og engum
er hlíft. Hvorki spilltum og fárán-
legum aðli Póllands, morðhund-
um Khmelnitskis atamans (sem
hér er kallaður Smjelnitski ein-
hverra hluta vegna) eða lúsugum
og drykkfelldum og fáfróðum
bændum. Né heldur gyðingunum
sjálfum: trúin og ástundun lög-
málsins hafa að sönnu gert þann
mann úr Jakob sem Wanda elsk-
ar og treystir - en sjálfur sér Jak-
ob vel hvernig lagakrókar og
formfesta í útvortis hlýðni við
lögmálið er meðal trúbræðra
hans látin koma í staðinn fyrir
það sem mestu varðar: réttlæti og
alúð í mannlegum samskiptum.
Og meðan Wanda leitar skjóls í
trú Jakobs getur hann sjálfur -
eftir það grimmdaræði sem yfir
fólk hans gekk - ekki elskað þann
Drottinn sem jafnt stýrir stjarna
her og gefur afl morðingjum ung-
barna.
Jakob finnur að lokum sín dýr-
keyptu svör í þeirri góðvild og
sjálfsafneitun sem eru utan við
mennsk rök og uppsker að lokum
legstað sem fyrir kraftaverk
reynist og gröf Wöndu. Einhver
ávæningur er hér kannski af sög-
unni um Tristan og ísold.
Isaac Bashevis Singer má vel
kalla einhæfan höfund í þeim
skilningi að mörg eru þau þemu
sem ganga milli bóka hans. En
hann nýtur góðs af þekkingu
sinni á furðulegum og merki-
legum söguefnum (um þennan
sama tíma samdi hann fyrstu
skáldsögu sína, Satan í Goray),
og þeirri frásagnargáfu sem ber
lesandann með sér án þess að
hann strandi á skerjum túarlegrar
umræðu, heimspekilegra vanga-
veltna og blátt áfram fróðleiks.
Persónur hans eru dregnar upp
með stekum litum, en það þarf
ekki að þýða að hann einfaldi úr
hófi fram það mannlíf sem lýst er.
Hann er meira en nógu næmur
höfundur til að vita vel af þeim
undarlegu þverstæðum sem
fylgja einnig þeim augnablikum
sem ætla mætti að gagntaki menn
einræðri tilfinningu. Til dæmis er
Jakob svo innanbrjósts þegar
hann hefur tekið það stóra skref
að hafa Wöndu á brott og dæma
þau bæði þar með til útlegðar í
mannheimum:
„Himinn, jörð og fjöll héldu
niðri í sér andanum. Jakob var
líka hljóður þó að hann væri enn
undrandi og skelfingu lostinn yfir
því sem hann hafði gert. Það var
eins og hugur hans væri stirðnað-
ur og frosinn. Honum var orðið
sama hvern endi þetta ævintýri
fengi. Örlög hans voru ráðin.
Frelsið var honum aukaatriði,
hann var bæði hann sjálfur og
einhver annar. Innra með honum
var einhver sem fylgdist sallaró-
legur með því sem hann gerði
eins og hann væri ókunnugur
maður.“
Hjörtur Pálsson hefur þýtt
bókina úr ensku og hefur þýðing-
in einhvernveginn eðlilegri og
sjálfsagðari keim en ýmsar fyrri
þýðingar hans á Singer, þar sem
maður freistaðist meir en í þess-
ari sögulegu skáldsögu hér til að
hlera eftir jiddískum blæ á bak
við tungu Egiis og Snorra.
í dag, fimmtudaginn
17. desember frá ld. 15 til 17:
Bókabúð
LMÁLS &MENNINGAR.
LAUGAVEG118, SÍMI 24240
árítar nýútkomna bók sína,
DAGAR HJÁ MÚNKUM, í bókabúð Máls
og menningar, Laugavegí 18.
Sendum einnig árítuð eintök
ípóstkröfu.