Þjóðviljinn - 17.12.1987, Qupperneq 20
Aðalsími
681333
Kvöldsími
681348
Helgarsími
681663
þJÓÐVIUINN
Fimmtudagur 17. nóvember 1987 283. tölublað 52. órgangur
—
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
HÓLMGARÐI 34, REYKJAVÍK Simar: 672400 - 672401 - 31599
Skjaldboré
Happdrætti Þjóðviljans
Enn er hægt að greiða gíróseðlana.
Drætti hefur verið frestað til 15. janúar.
Styrkjum blaðið okkar.
þJÓÐVILIINN
Ij'.t,
111:). Ir
rlelfl isyn
370.000.00
Tónlistarskólar
Vara
við slysi
Rúmlega sjötíu manns, flestir
listamenn eða nátengdir menn-
ingarstarfi, hafa skorað á alþingi
að fallast ekki á áform um að færa
rekstur tónlistarskóla frá ríki til
sveitarfélaga, sem margir óttast
að muni draga verulega úr þrótti
tónlistarlífs um landið.
í áskoruninni er Iýst áhyggjum
„vegna ráðgerða um að fella úr
gildi lög um ríkisstuðning við tón-
listarskóla. Pað er á allra vitorði
hver lyftistöng þau hafa verið
tónlistaruppeldi í landinu og
menningu þjóðarinnar. Við vilj-
um vara við því voðalega slysi
sem hlotist gæti af að hnekkja í
flaustri lögum sem allir kunnugir
eru á einu máli um að orðið hafi
til gæfu.
Undir áskorunina rita Thor Vil-
hjálmsson, Einar Bragi, Leifur Þór-
arinsson, Sigurjón B. Sigurðsson
(Sjón), Bragi Asgeirsson, Sigurður
Pálsson, Þorsteinn frá Hamri,
Tryggvi Ólafsson, Hringur Jóhannes-
son, Hjalti Rögnvaldsson, Jón Har-
aldsson, Agnar Þórðarson, Magnús
Kjartansson, Þorsteinn Ö. Steph-
enssen, Magnús Tómasson, Hörður
Ágústsson, Jón Óskar, Kristín Jóns-
dóttir, Matthías Johannessen, Karl
Sighvatsson, Valgeir Guðjónsson,
Erlingur Gíslason, Hjörleifur Sig-
urðsson, Áskell Másson, Jóhannes
Geir Jónsson, Sigfús Daðason, Sig-
urður Þórir, Helgi Gíslason, Kristján
Karlsson, Knut Odegaard, Þorgerður
Ingólfsdóttir, Inga Bjarnason, Bríet
Héðinsdóttir, Helgi Skúlasdn, Vigdís
Grímsdóttir, Árni Ibsen, Arnór Be-
nónýsson, Sveinn Einarsson, Sigurð-
ur Á. Magnússon, Jón Ásgeirsson,
Daði Guðbjörnsson, Bera Nordal,
Gylfi Þ. Gíslason, Jakob Benedikts-
son, Bjarni Guðnason, Árni Sigur-
jónsson, Guðmundur Andri Thors-
son, Silja Aðalsteinsdóttir, Páll Vals-
son, Örnólfur Thorsson, Jón Arnarr,
Árni Óskarsson, Halldór Guðmunds-
son, Sverrir Kristinsson, Elín Pálma-
dóttir, Jóhann Páll Valdimarsson,
Oddur Ólafsson, Stefán Jón Haf-
stein, Björn Jónasson, Ásgeir Hann-
es Eiríksson, Davíð Scheving Thor-
steinsson, Árni Johnsen, Þórarinn
Þórarinsson, Garðar Gíslason, Einar
Laxness, Sigmar B. Hauksson, Hall-
dór Hansen, Hannes Pálsson, Jón
Þórisson, Guðmundur Guðmunds-
son, Hrafn Jökuisson, Bjarni Daní-
elsson.
Flugvellir
[ öðru sæti
Sænska vikuritið Veckans Aff-
arer birti á dögunum úttekt á
bestu flugvöllum heims og lenti
Keflavíkurflugvöliur í öðru sæti.
Flugvöllunum var skipt í tvo
flokka; annars vegar þeir flug-
vellir sem þjóna yfir 6 miljón
flugfarþegum á ári og þar lenti
Kaupmannahöfn í fyrsta sæti.
Hins vegar flugvellir sem þjóna
minna en 6 miljón flugfarþegum
á ári, og þar varð Mílanó í fyrsta
sæti en Keflavík í öðru.
Búist er við að 760 þúsund
farþegar fari um Keflavíkurflug-
völl í ár, en það er 65% aukning
frá 1983. -ns.