Þjóðviljinn - 05.01.1988, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 5. janúar 1988 1. tölublað 53. órgangur
Síld
13 bátar
fá leyfi
Leifsstöð
Fíkjutréð
nakið
Pétur Guðmundsson,
flugvallarstjóri: Ekki
óeðlilegtað tréfelli lauf
eftir flutning. Gróðurinn
látið á sjá í vetur. Bót í
máli að hann er í ábyrgð
- Mér þykir annað fíkjutrcð
orðið all nakið og bert, sagði Pét-
ur Guðmundsson, flugvallar-
stjóri Keflavíkurflugvallar og
húsbóndi í flugstöð Leifs Eiríks-
sonar, en flugfarþegar hafa að
undanförnu merkt að annað fíkj-
utrjánna sem keypt var í flugstöð-
ina frá Flórida fyrir hálfa miljón
króna, fær ekki lengur skýlt nekt
sinni.
Að sögn Péturs mun það ekki
vera ótítt að tré felli laufið eftir að
hafa verið slitin upp með rótum
og flutt hreppaflutningum eins og
Flórídatrén.
- í-vetur hafa verið nokkur af-
föll á gróðri flugstöðvarinnar, en
hann er í ábyrgð og nýjar plöntur
koma í stað þeirra sem deyja,
sagði Pétur, en gróðurinn í Leifs-
stöð er í ábyrgð Lambhaga/
Blómalistar, sem einnig annast
vökvun, áburðargjöf og umpott-
un í flugstöðinni.
- rk
13 síldveiðibátar sóttu um leyfi'
til sjávarútvegsráðuneytisins um
að fá að vera með á sérstakri
aukvertíð nú í upphafí ársins.
Ráðuneytið hefur veitt öllurn
þessum bátum heimild til veiða
en alls verða veidd um 4000 tonn
af síld upp í viðbótarsamning við
Sovétmenn, um 30 þúsund tunn-
ur. Veiðarnar eiga að hefjast ekki
síðar en 10. janúar n.k.
Jóni Baldvin Hannibalssyni, fjármálaráðherra hefur tekist að koma einu helsta baráttumáli sínu, matarskattinum, í gegn. Mynd E.OI.
Söluskatturinn
Matarskattur í dag
Matarskatturinn að lögum ídag. Steingrímur J. Sigfússon:
Eitthvert versta pólitíska óhappaverk semframið hefur verið
um langt árabil. Stjórnarandstaðan deildi hartá
matarskattinn á Alþingi ígær
Ljóst var í gærkvöldi að þriðju
umræðu um matarskattinn
yrði lokið seint í gærkvöldi eða í
nótt en óvíst var hvort atkvæða-
greiðslu um söluskattsfrumvarp
fjármálaráðherra yrði frestað
þar til í dag. Ljóst var hinsvegar í
gær að matarskatturinn yrði lög-
festur í dag eða á miðnætti í nótt
og taka lögin þegar gildi.
„Það er algjör óhæfa að leggja
svona háan skatt á lífsnauðsynjar
einkum og sérflagi á matvæli,“
sagði Steingrímur J. Sigfússon
við Þjóðviljann í gær.
Steingrímur sagði að það hefði
komið í ljós að í flestöllum
löndum er yfirleitt um mjög lága
eða enga skattlagningu á matvæli
að ræða.
„Þessi ofboðslega skattlagning
leggst ofan á matvöru sem fyrir er
með þeirri dýrustu sem þekkist
og þetta kemur þeim mun verr
við fólk sem launin eru lægri.
Þetta er að mínu mati einhvert
versta pólitíska óhappaverk sem
framið hefur verið um langt ára-
bil. Skattar sem einusinni hafa
verið lagðir á hverfa seint en hlið-
arráðstafanirnar eiga eftir að
gufa upp einsog fjármálaráð-
herra hefur sjálfur bent á. Þetta
er því hnefahögg framan í land-
búnaðinn þegar fram líða stund-
ir,“ sagði Steingrímur.
Harðar umræður voru um
frumvarpið í neðri deild í gær.
Það var Hreggviður Jónsson sem
hóf umræðuna með því að benda
á að gleymst hafði að gera ráð
fyrir að vélar og varahlutir í fiski-
skip yrðu undanþegnar söluskatti
og flutti hann breytingartillögu
þar að lútandi.
Hjörleifur Guttormsson benti
á að af nágrannalöndum okkar
væri Danmörk eina landið sem
væri með eitt skattstig á vörur en
allsstaðar annarsstaðar væru
minnst tvö skattstig og bæði Bret-
ar og írar væru með stóran hluta
nauðsynjavara undanþeginn
skatti.
Kristín Halldórsdóttir sagði að
afleiðingarnar væru ekki ein-
göngu stórfelldar álögur á heimil-
in, heldur væri verið að blása í
glæður verðbólgunnar með þessu
og auka á þungann í kjarakröfum
launafólks.
Breytingartillögur stjórnar-
andstöðunnar gengu út á það að
fella niður söluskatt á matvæli
auk þess sem ýmis íþróttastarf-
semi og heilsuræktarmiðstöðvar
yrðu undanþegnar söluskatti. Þá
var lagt til að aðgöngueyrir í ís-
lenskar kvikmyndir yrði undan-
þeginn söluskatti. Ljóst var að
allar þessar tillögur yrðu felldar.
-Sáf
Sjá bls. 5
Landsbankinn
Evrópuskákin
Þröstur
Sverrír út í kuldann
nálgast
titilinn
Þröstur Árnason er skrefi nær
Evrópumeistaratitli unglinga 16
ára og yngri í skák, eftir j afntefli við
Svíann Appel í gær. Þröstur þarf
ekki nema hálfan vinning í síðustu
umferð mótsins, sem tefld verður í
dag, til að tryggja sér Evróputitil-
inn.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir
náði jafntefli í gær og er nú í fjórða
sæti í kvennaflokki með fimm vinn-
inga.
-rk
EyjólfurK. Sigurjónsson: Styð Tryggva Pálsson. Er óbundinn afþví hvernégstyð.
Samkomulag stjórnarflokkanna um ráðningu Sverris Hermannssonar út umþúfur.
Akvörðunfrestað. LúðvíkJósepsson: Reynt að berja í brestina
Eg er alveg óbundinn hvern ég
kýs að styðja sem banka-
stjóra. Af þeim tveimur mönnum
sem tillögur hafa komið fram um,
hef ég ákveðið að styðja Tryggva
Pálsson fremur en Sverri Her-
mannsson, sagði Eyjólfur K. Sig-
urjónsson, fulltrúi Álþýðuflokks-
ins í bankaráði Landsbankans.
En á fundi bankaráðs þann 30.
desember ákvað Pétur Sigurðs-
son, formaður bankaráðs og full-
trúi Sjálfstæðisflokksins, að
fresta ákvörðun um ráðningu nýs
bankastjóra Landsbankans til 15.
febrúar, þegar Ijóst var að ein-
hugur ríkti ekki meðal fulltrúa
stjórnarflokkanna í bankaráði
um ráðningu Sverris, í stað Jón-
asar Haralz sem sagt hefur starfi
sínu lausu.
- Á bankaráðsfundinum dag-
inn áður komu fram tvær tillögur
um eftirmann Jónasar. Pétur Sig-
urðsson, bar fram tillögu um
Sverri og Árni Vilhjálmsson,
hinn fulltrúi Sjálfstæðisflokksins,
lagði til að Tryggvi Pálsson yrði
ráðinn. Ég lýsti því þá yfir að ég
myndu styðja þann síðarnefnda.
Ég tek það þó fram að ég er ekki á
neinn hátt að bera brigður á hæfi-
leika Sverris til að gegna emb-
ættinu, sagði Eyjólfur.
Lúðvík Jósepsson, sem situr í
bankaráði Landsbankans fyrir
hönd Alþýðubandalagsins, sagði
í samtali við blaðið að engin at-
kvæðagreiðsla eða nafnakall
hefði farið fram í bankaráði um
val eftirmanns Jónasar Haralz,
þótt tillögur hefðu verið gerðar
um eftirmann hans.
- Það er þó vitað að það er
óeining í hópi stjórnarliða í
bankaráðinu um að Sverri Her-
mannssyni verði veitt bankastjór-
aembættið, eins og mun hafa orð-
ið að samkomulagi ríkisstjórnar-
flokkanna. Afgreiðslufresturinn
er sjálfsagt hugsaður til að berja í
brestina meðal stjórnarliða,
sagði Lúðvík.
-rk