Þjóðviljinn - 05.01.1988, Blaðsíða 16
Aðalsími
681333
Kvöldsími
ms 681348
Helgarsími
681663
ÐUIUINN
Þriðjudagur 5. janúar 1988. 1. tölublað 53. örgangur
Þjónusta
íþínaþágu
SAMVINNUBANKI
ÍSLANDS HF.
Smábátar
Tívolíbombur
Heimildir rýmkaðar
Meirihlutinn kemur til móts við smábátaeigendur. Engar
aðrar meiriháttar breytingar lagðar til. Matthías Bjarnason
Alþýðubandalag og Borgaraflokkur með sitthvert sérálitið
Meiri hluti sjávarútvegsnefnd-
ar neðri deildar Alþingis
mun leggja til að heimildir til
veiða smábáta verði rýmkaðar og
að gildistíma Iaganna verði breytt
til samræmis við það að þau voru
ekki samþykkt fyrir áramót, en
annars verði frumvarpið um
stjórn fiskveiðanna samþykkt
óbreytt.
Sjávarútvegsnefnd kom saman
í gærmorgun og aftur síðdegis í
gærdag og átti að afgreiða frum-
varpið úr nefndinni í gærkvöldi.
Matthías Bjarnason formaður
nefndarinnar skilaði séráliti.
í fyrsta lagi telur Matthías að
frumvarpið eigi að gilda í tvö ár í
stað þriggja einsog gert er ráð
fyrir. Þá mun Matthías hafa ýmis-
legt út á rækjukvótann að setja og
vill að vinnslan hafi helming
kvótans, og í þriðja Iagi er hann
þeirrar skoðunar að inn í lögin
eigi að koma ákvæði um byggða-
lög sem hafa orðið hart úti vegna
kvótans og að inn í þau ákvæði
komi mál þeirra 10 skipa sem fór-
ust skömmu áður en kvótinn var
settur á. Þá mun Matthías vilja
hafa aðra samsetningu á endur-
skoðunarnefndinni.
Hjörleifur Guttormsson, full-
trúi Alþýðubandalagsins, skilaði
séráliti þar sem gerð er grein fyrir
breytingartillögum Alþýðu-
bandalagsins, sem ganga út á það
að hluti kvótans sé tengdur
byggðalögunum, og fulitrúi
Borgaraflokksins skilaði séráliti
en Borgarar aðhyllast gamla
skrapdagakerfið. Kvennalistinn
hefur haft áheyrnarfulltrúa í
nefndinni og skilar því engu áliti.
í gær var búist við því að fisk-
veiðistefnan kæmi til annarrar
umræðu í neðri deild í dag en tæp-
ast er búist við að málið verði
afgreitt í dag því gert er ráð fyrir-
heitum umræðum um frumvarp-
ið- -Sáf
Sinfóníuhljómsveit
œskunnar
Æftaf
kappi
Námskeið fyrir hljóðfœr-
anemendur aföllu
landinu stendur yfir
Nemendur í hljóðfæraleik af
landinu öllu sækja nú námskeið á
vegum Sinfóníuhljómsveitar
æskunnar, og er æft í Hagaskóla.
Námskeiðið stendur yfir í hálf-
an mánuð og eru þátttakendur á
aldrinum 11 til 25 ára. Æft er allt
frá 5 tímum og upp í 8 tíma á dag.
Hófst námskeiðið hinn 28. des-
ember, en því lýkur með tón-
leikum að kvöldi föstudags - kl.
20.30 - og verða þeir haldnir í
Menntaskólanum í Hamrahlíð.
Á efnisskránni er sinfónía nr.
103 eftir Haydn og sinfónía nr. 3
eftir Schumann. Stjórnandi Sin-
fóníuhljómsveitar æskunnar er
Paul Zukofsky.
HS
Hljóðfæranemendur af landinu öllu sækja nú námskeið á vegum Sinfóníuhljómsveitar æskunnar, og er æft í Hagaskóla,
en þar var þessi mynd tekin í gær. Námskeiðinu lýkur með tónleikahaldi í Menntaskólanum í Hamrahlíð á föstudags-
kvöldið. Mynd: Sig.
Allt efthiit
hert
Þrír liggja illa slasaðir í
andliti og augum. Mis-
brestur á varúðarmerk-
ingum. Böðvar Braga-
son, lögreglustjóri:
Nauðsyn á hertu eftirliti.
Landssamband hjálpar-
sveitaskáta: Fluttum inn
50þúsund bombur. Allt
uppselt
„I Ijósi þessara alvarlegu slysa
sem urðu á gamlárskvöld af völd-
um tívolíbomba, verður að herða
allt eftirlit með því að þessar
vörur séu vel merktar, en á því
virðist hafa orðið einhver mis-
brestur sem ekki má endurtaka
sig. Einnig er sú spurning áleitin
hvort ekki eigi að prófa þessa
hluti áður en þeir fara í sölu, eins
og gert var hér fyrr á árum,“ segir
Böffvar Bragason, lögreglustjóri í
samtali við Þjóðviljann í gær.
Á gamlárskvöld voru sex
manns fluttir á augnlækninga-
deild Landakotsspítala eftir að
hafa orðið fyrir slysum af völdum
flugelda og tívolíbomba. Þrír
fengu tívolíbombur í andlitið og
slösuðust þeir mjög mikið og
varð að fjarlægja auga úr einum
þeirra strax. í tveim þessara til-
vika, þar sem tívolíbomba átti í
hlut, var um ómerkta bombu að
ræða. En í leyfisveitingu fyrir
sölu á þessum hlutum er skýrt
tekið fram, að merkja þær vel og
vandlega til að koma í veg fyrir
slys af vankunnáttu.
Að sögn Björns Hermanns-
sonar, framkvæmdastjóra Lands-
sambands Hjálparsveita skáta,
olli ein tívolíbomba frá þeim al-
varlegu slysi, en hún var vel
merkt. Björn sagði að fyrir þessi
áramót hefðu þeir flutt inn 50
þúsund tívolíbombur og væru
þær allar uppseldar. Hann sagði
að þeir hefðu flutt þær inn í átta ár
og á þeim tíma ættu menn að vera
farnir að þekkja á þær. En öðru
máli gegndi þegar um ómerktar
bombur væri að ræða. Það væri
vítavert kæruleysi af viðkomandi
söluaðila að hafa ekki merkt þær
sem skyldi. - grh
Kjaramál
Hörð átök framundan
Kjaramál í biðstöðu. Beðið eftir vœntanlegum efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinnar
Lögreglan
Erfið áramót
Elstu menn í lögregluliði
Reykjavíkur muna varla eftir
annarri eins nýársnótt og þeirri
síðustu. Geysimikil ölvun og
skrflslæti voru í miðbænum og í
Breiðholti. Fjölmargar rúður
voru brotnar og þá voru fanga-
geymslur lögreglunnar fleytifull-
ar eins og vanalega.
Áramótin fóru hinsvegar mun
rólegar fram á öðrum stöðum á
landinu þrátt fyrir mikla ölvun
víðast hvar. - grh
Mér sýnist ráðleysið og stjórn-
leysið svo mikið af hálfu
stjórnvalda að þau stefna málum í
mikinn háska og fyrirsjáanleg
átök, sagði Benedikt Davíðsson
formaður sambands byggingar-
manna um stöðuna í kjaramálum
í dag, en ríkisstjórnin hefur fram
til þessa lítið gefið upp um þær
efnahagsráðstafanir sem hún
hyggst grípa tii vegna fyrirsján-
legrar versnandi afkomu þjóðar-
búsins.
Benedikt sagði að staðan í
kjaramálaumræðunni innan sam-
bandsins væri því fremur daufleg
um þessar mundir. Það væri hins
vegar spá verkalýðshreyfingar-
innar að miðað við óbreyttar að-
stæður yrði verðbólgan á næsta
ári á bilinu 30-40% og það væri
ljóst að ef halda ætti sama kaup-
mætti og um áramótin þyrftu
launin að hækka að sama marki.
Þá yrði 9-10% launahækkun að
koma til strax á fyrstu mánuðum
ársins.
Alþýðusambandið mun standa
fyrir kjaramálaráðstefnu í lok
mánaðarins þar sem gengið verð-
ur væntanlega frá þeim kröfum
sem sambandið mun halda uppi.
Að sögn Benedikts verður tíminn
fram að ráðstefnunni nýttur til
umræðu um það hvaða leiðir séu
vænlegastar til þess að knýja fram
lagfæringar á launum félags-
manna.
, þJÓOVILIINN Happdrætti Þjóðviljans
I 1. - j CD cn 4- co Enn er hœgt að greiða gíróseðlana.
Dregið verður 15. janúar. Styrkjum blaðið okkar.