Þjóðviljinn - 05.01.1988, Síða 9
Rósa, Bjartur og Blesi á leið í búskapinn: Hann hafði hlakkað til að sýna henni Við dys Gunnvarar: Fari hún margniðurnegld, helvítis kerlingin.
bæinn úr fjarska, einmitt héðan úr heiðardrögunum.
SJÁLFSTÆTT
Sjálfstætt fólk kom út á kínver-
sku á útmánuðum 1983 í þýð-
ingu Xue hongshi, starfs-
manns bókmenntadeildar
Kínversku vísindaakademí-
unnar. Þettaerkiljuútgáfa
eins og mjög tíðkast í Miðrík-
inu, en útgefandinn hefur
fengið kínverskan myndlistar-
mann til að teikna í bókina og
er slíkur íburður óvenjulegur
þar í landi þegar erlendar þýð-
ingareigaíhlut.
Fyrir bragðið má hér sjá hvern-
ig Bjartur, Rósa, Finna, Gvend-
ur og fleiri persónur sögunnar
koma drátthögum Kínverja fyrir
sjónir. Og reyndar einskorðast
teikningarnar ekki við mannfólk-
ið; bústofn Bjarts getur hér einn-
ig að líta: rollurnar, Búkollu,
Blesa og tíkina Títlu.
Nýstárlegt sjónarhorn
Sjálfstætt fólk er hinn ásjáleg-'
asti söfnuður eins og myndirnar
bera berlega með sér. Helst að
manni detti í hug lýsingin á
Skarphéðni Njálssyni - herði-
breiður og miðmjór - þar sem
þeir Sumarhúsafeðgar eru annars
vegar, og kann að koma flatt upp
á landann sem trúlega sér þessa
ágætu menn fyrir sér í jarðbundn-
ara kargaþýfisljósi.
Allt um það er hér teiknað af
elskusemi og virðingu fyrir per-
sónunum, en hins saknar maður
að teiknarinn skuli ekki leita
víðar fanga; það hefði til dæmis
verið fróðlegt að fá kínverska út-
gáfu af Rauðsmýrarmaddömunni
á mynd, eða séra Guðmundi sem
Bjartur bar meiri virðingu fyrir
en flestum mönnum öðrum sakir
síns ágæta sauðfjárkyns sem við
hann var kennt og kaliað sérag-
uðmundarkynið.
Kannski ekki heiglum hent að
festa þvílíkan mann á mynd, en
um hann segir í bókinni: Hann
var óútreiknanlegur í andstæðum
sínum eins og landið, þessi prest-
ur: trúmaður af þrjósku við and-
lausa sauðamenn og hunda,
fjárkynbótamaður vegna fyrir-
litníngar á sauðkindinni, íslensk-
ur prestur samkvæmt þjóðsögum
í þúsund ár.
Hvað er erfiðast
að teikna?
Sem aftur leiðir hugann að
gamalli kínverskri sögu um hvað
sé erfitt að teikna: Maður nokkur
leitaði svars við þessari spurningu
hjá spekingi einum, en sá svaraði
að bragði að erfiðast væri að
teikna hunda og ketti, hænsn og
hesta og fleiri þvílík kvikindi.
Spyrillinn vill þá vita hvað
Myndskreytt þýðing
áskáldsögu Halldórs
Laxnessgefinútí
Peking fyrirfjórum
árum. Biyatuerbóndi
íSumarhúsum,
AsidaSuolieliya og
alltþað fólkséðmeð
augum kínversks
listamanns
auðveldast sé að eiga við: Það eru
draugar og forynjur og hverskon-
ar frík, var svarið.
- Það er vegna þess, sagði sá
vísi, að allir þekkja þessi dýr sem
ég nefndi. Ef þú gerir hin minnstu
mistök þá blasa þau við hverjum
manni. Öðru máli gegnir um for-
ynjur og vofur: enginn hefur
nokkru sinni séð þesskonar fyrir-
bæri og því geturðu teiknað þau
eins og þig lystir án þess að eiga
aðfinnslur á hættu.
Ef maður tekur móralinn í
þessari sögu sem góða og gilda
vöru þá leyfir maður sér að sakna
þess að kínverskur teiknari
Sjálfstæðs fólks skuli ekki hafa
leyft sér að eiga við mótíf á borð
við Albogastaðafjandann í Heiði
sem gat brugðið sér í allra kvik-
inda líki og gerði útslagið með
sjálfstæðisvafstur Sumarhúsa-
bóndans.
Fleira hangir líka á þessari kín-
versku spýtu; til dæmis virðist
teiknarinn hafa orðið sér úti um
áhrif úr ólíklegustu áttum og má
benda á myndina af Rósu þar sem
hún sefur við Gunnudys og Bjart-
ur er mættur með tíkina: Þarna er
ýmislegt sem minnir ekki á annað
meira en amerískar teiknimynd-
ir.
- Ég hlaut mikla hjálp fjöl-
margra félaga við þýðinguna, og
var hún ljúflega látin í té, segir
þýðandinn í formála, og bætir við
af þeirri skyldugu hæversku sem
er lenska meðal landsmanna: Á
hinn bóginn eru vankantarnir á
verki mínu fjölmargir, enda ekki
hæfninni fyrir að fara. Því vænti
ég þess að lesendur hlífist ekki
við að koma með viðeigandi
ábendingar.
Þýðing þessi er gerð eftir
enskri þýðingu Alfred A. Knopf,
en hún kom út árið 1946 í Banda-
ríkjunum. Að auki kann Xue
hongshi sitthvað fyrir sér í
rússnesku, enda af þeirri kynslóð
menntamanna sem nam það mál í
skóla meðan samskipti Kína og
Sovétríkjanna stóðu með blóma.
Fyrir vikið nýtur hann og góðs af
8 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Þriðjudagur 5. janúar 1988
ws1
ækýrin: Ég veit að guð sér fyrir henni Búkollu okkar, sagði konan með tár á auga
strauk kúnni ennþá blíðara en fyr.
íiís-ifeiitTílíS
Aðkoman í fjárhúsunum: Síðan þreif hann skrokk af skrokk, rannsakaði áverkana
og sálgaði þeim sem voru í fjörbrotunum.
Séraguðmundarkynið bítur í gras: Síðan skildi konan höfuðið frá skrokknum og lét
leka áfram úr strjúpanum niðrí lækinn, það var dálítið blóð í grasinu.
FÓLK
fjölskrúðugum Laxnessþýðing-
um á rússnesku.
Upplag bókarinnar kann að
þykja lítilfjörlegt miðað við þessa
frægu höfðatölu, en af fyrstu út-
gáfu voru prentuð 28 þúsund ein-
tök. Ekkert efamál að kollegar
Bjarts eru fleiri fyrir austan en
þessari tölu nemur. Á hinn bóg-
inn lágu þýðingar fagurbók-
mennta sem og annars lesmáls
niðri í Kína um nærfellt tíu ára
skeið, eða meðan öfugmælið
Menningarbylting var pólitískt
stikkorð númer eitt í landinu.
Síðan hefur grettistökum verið
lyft í þessum efnum, enda áhuga-
samir lesendur á hverju strái. En
pappír til bókagerðar er ekki
ótakmarkaður og því er sú leið
gjarnan farin að prenta fyrsta
upplag bókar í litlu upplagi og sjá
hvernig viðurtektirnar verða;
risaupplögin fylgja svo í kjölfarið
ef þannig æxlast.
Sjálfstætt fólk er síðasta Lax-
nessþýðingin yfir á kínversku svo
ég viti til, en ýmislegt var komið á
undan. Atómstöðin var þýdd
fljótlega eftir að hún kom út hér á
landi, og koma svo skjót við-
brögð vart á óvart miðað við út-
reiðina sem amerískur imperíal-
ismi fær í því skrifinu; óvinur Kín-
verja öðrum illskæðari. En það
var nú þá. Að auki hefur nokkuð
af smásögum Halldórs verið þýtt.
Brauðfætur
bókmennta-
þekkingarinnar
Sá sem hér krotar var við nám í
Kína á árunum 1976 til 1981, og
rak sig fljótlega á að landsmenn
vissu heilmikið um ísland og hluti
því tengda. Oft miklu meira en
ýmis önnur Evrópuríki af smærri
sortinni, og kom meira en lítið á
óvart. Einasta sennilega skýring-
in á þessu fannst mér vera - eftir á
að hyggja - að meðan þorska-
stríðin geisuðu við landið fengu
þau dágóða umfjöllun í kínver-
skum blöðum, og þá í besta
dæmisögustíl af uppbyggilegu
gerðinni: Þarna er smáþjóð sem
stendur á sínum rétti og uppi í
hárinu á erlendri stórþjóð; takið
þið nótís af því, lesendur góðir.
En fyrir bragðið var eins og mað-
ur og maður fengi áhuga á ýmsu
því sem snerti þessa fjarlægu
þjóð, þar á meðal tiltækilegu les-
efni. Þetta vildu menn síðan
gjarnan ræða við mann að
heiman.
Ein var þó sú bók sem mér var
algerlega fyrirmunað að koma
fyrir mig. Sú fjallar um sjó-
mennsku við ísland og hver-
skonar vesöld og harðræði sem
veiðunum fylgdu. „Og er þetta
skáldsaga?“ spurði ég alveg
blankur, og gat ómögulega látið
mér detta í hug hver bókin væri.
Helst að eitthvað eftir Jónas
Árnason kæmi til greina, en fljót-
lega varð ljóst að það fékk ekki
staðist.
Eftir langa mæðu rann það svo
upp fyrir mér að þetta var alls
ekki íslenskur höfundur heldur
franskur: hver annar en fjandinn
hann Pierre Loti, en bókin hans
kallast Á íslandsmiðum. Sú bók
var snemma þýdd á kínversku og
naut mikilla vinsælda þar sem
sums staðar annars staðar. En
þeir viðmælendur mínir sem ég
vísa hér til voru augsýnilega ekki
að gera sér neina rellu út af þjóð-
erni bókarinnar; hún gerist á ís-
landsmiðum og það var þeim
nóg. HS
FÉLAGSMÁLASTOFNUN
• £a REYKJAVÍKURBORGAR
Leiðbeinandi í sambýli
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar auglýsir
eftir leiðbeinanda í sambýli fólks með geðræn
vandamál. Starfið felst í félagslegum stuðningi
við íbúa og aðstoð við heimilishald og er unnið í
samvinnu við Félagsmálastofnun og félagsráð-
gjafa og iðjuþjálfa á geðdeild Landspítalans. Um
hlutastarf er að ræða (ca. 40-50 st. á mán.).
Starfið er laust f.o.m. janúar 88. Nánari upplýs-
ingar hjá eftirtöldum aðilum:
Rannveigu Guðmundsdóttur félagsráðgjafa,
geðdeild Landspítalans, sími: 29000/503, 271,
619.
Sylvian Pétursson iðjuþjálfa, geðdeild Landspít-
alans, sími: 29000/651.
Ingibjörg Flygenring félagsráðgjafa, Félags-
málastofnun Reykjavíkur, sími 74544.
Umsóknareyðublöð fást hjá Starfsmannahaldi
Reykjavíkurborgar í Pósthússtræti 9 og skal um-
sóknum skilað þangað fyrir 10. jan. 88.
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
St. Jósefsspítalinn Landakoti býður ákjósan-
legan vinnustað í hjarta borgarinnar. Góðar
strætisvagnaferðir í allar áttir. Þar getur þú fundið
eitthvað við þitt hæfi. Okkur vantar starfsfólk í hin
ýmsu störf innan spítalans, svo sem
Hjúkrunarfræðinga
á eftirfarandi deildir:
Svæfingu, vöknun. Dagvinna.
Móttöku ll-C, engar næturvaktir.
I- B, einu augndeild landsins.
II- B, litla almenna handlækningadeild.
III- B almenna handlækningadeild.
Barnadeild - Þar er líf og fjör.,
Boðið er upp á aðlögunarkennslu áður en starfs-
menn fara á sjálfstæðar vaktir.
Við reynum að gera öllum kleift að sækja nám-
skeið og ráðstefnur.
Við erum opin fyrir öllum nýjungum og viljum að
starfsfólk fái að njóta sín.
Sjúkraliða
á eftirtaldar deildir:Handlækningadeildir ll-B og
lll-B.
Við þörfnumst ykkar í fullt starf eða hlutastarf.
Deildarritara
vantar á deild lll-B sem er handlækningadeild.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt fyrir þann sem
hefur áhuga á að hafa nóg að gera.
Upplýsingar gefnar á skrifstofu hjúkrunarfor-
stjóra í síma 19600/220 og 19600/300.
Umsóknareyðublöð er hægt að fá á staðnum.
Ræstingafólk
Engin stofnun gengur án ræstingafólks. Okkur
vantarfólktil ræstingaíhúsið. Upplýsingarásamt
umsóknareyðublöðum fást á skrifstofu ræstinga-
stjóra á 5. hæð, A-álmu. Upplýsingar ekki gefnar í
síma.
Reykjavík 30.12.1987
Vistunarheimili
á Reykjavíku rsvæð i n u
Okkur vantar heimili fyrir unga stúlku utan af landi
vegna skólagöngu hennar í Reykjavík.
Upplýsingar hjá félagsráðgjafa Öskjuhlíðarskóla,
sími 689740.