Þjóðviljinn - 05.01.1988, Qupperneq 11
ERLENDAR FRÉTIIR
Sovétríkin
Eitt frægasta klaustur Rússlands
opnað á nýjan leik
Glasnost ítrúmálum: virðum andlegan arfþjóðarinnar í öllum hans fjölbreytilegu myndum
Merkileg tíðindi frá Moskvu:
Optina Pústin verður aftur
klaustur. Hér er um að ræða citt
merkilegasta klaustur rússneskui
kirkjunnar sem lokað var
skömmu eftir byltingu. Klaustur
þetta á sér merkilega sögu sem
tengist m.a. nöfnum stórmenna
rússneskra bókmennta eins og
Dostojevskí og Tolstoj, og þegar
það nú verður opnað ber það
bæði vott um breytingar á opin-
berri stefnu gagnvart kirkjunni
og ýmislegt fleira.
Blaðið Moskvufréttir, eitt
helsta málgagn „glasnost" Gor-
batsjovs, skýrði frá væntanlegri
opnun Optinaklausturs í grein
sem er óvenjulega jákvæð í garð
rússnesku kirkjunnar og þess
hlutverks sem hún hefur gegnt í
sögu þjóðarinnar.
I greininni er á það minnt, að
nú sé þegar langt komið að gera
upp hús Danilovklausturs í Mos-
kvu og verði það tilbúið til notk-
unar þegar haldið verður upp á
þúsund ára afmæli kristnitöku í
Rússlandi nú í sumar. Þess er get-
ið um leið að Rússneska
réttrúnaðarkirkjan hafi endur-
heimt Tolgskíklaustrið í hinni
fornu borg Jaroslavl, rætt sé um
að endurreisa múnklífi á
Solevetskí-eyjum (þar voru um
langt skeið illræmdar fangabúð-
ir), að gamlar kirkjur hafi verið
opnaðar í nokkrum bæjum og
nokkrar nýjar kirkjur hafi verið
reistar. Eins og blaðið segir þá
eru þetta nýmæli mikil - lengst af
hafa stjórnvöld einkum staðið í
því að loka kirkjum og klaustrum
á þeim forsendum að trúin væri
illur hjátrúararfur fortíðarinnar
og ósæmilegur fólki á vísindaöld.
Að vísu var stundum slakað á,
stundum fékk kirkjan að opna
nokkur guðshús sem áður var
lokað (til dæmis á heimsstyrjald-
arárunum þegar sameina skyldi
allt sem rússneskt var í slagnum
við Hitler). En margt hefur verið
tekið aftur af því sem kirkjan
fékk og nýjar borgir hafa risið án
þess að ein einasta kirkja fengi að
rísa þar.
Kreddumenn hræddir
Greinarhöfundur Moskvu-
Optinaklaustur - hingað komu ótal Rússar, frægir og nafnlausir, „til að leita að siðferðilegum stuðningi"
frétta segir að „kreddumenn" séu
felmtri slegnir yfir þessu „undan-
haldi“ frá byltingararfinum. Séu
þetta menn sem ekki skilji að það
sé hættulegt að byggja samskipti
ríkis og kirkju á herskáum fjand-
skap þar sem „sá hefur réttinn
sem valdið hefur".
Minnt er á það, að Optina-
klaustur var bækistöð merki-
legrar hreyfingar sem kennd var
við öldunga (startsi). Öldungar
voru múnkar sem þóttu fram úr
skara að lærdómi og innsæi og
leituðu til þeirra háir sem lágir
með vandamál sín „í von um að
finna siðferðilegan stuðning"
eins og í Moskvufréttum segir.
Skáld í sálarangist
Lögð er mikil áhersla á það í
greininni að í Optinaklaustri hafi
dvalið miklir lærdómsmenn sem
báru merkilegan persónuleika.
Mest segir af föður Amvrosí, sem
var fyrirmynd að öldungnum Zo-
síma í hinni þekktu skáldsögu
Dostojevskís, Karamazofbræð-
urnir. Dostojevskí heimsótti
föður Amvrosí árið 1878,
skömmu eftir að eftirlætisbarn
rithöfundarins lést úr flogaveiki.
Amvrosí leist vel á Dostojevskí,
hann er iðrandi sál, segir hann í
dagbók sinni. Og Dostojevskí
gerði hann í skáldsögu sinni að
manni sem hafði séð svo mörg
hjörtu opnast fyrir sér og tekið til
sín svo margar játningar og sorg-
ir, að hann „þurfti ekki annað en
líta í andlit ókunnugs manns sem
til hans kom til að skynja til hvers
hann var kominn og hver sú ang-
ist var sem sál hans mæddi“.
Tolstoj heimsótti Optina-
klaustur fimm sinnum. Hann hef-
ur skráð það hjá sér eftir fyrstu
heimsókn sína, að faðir Amvrosí
hafi haldið því mjög að sér að
fullkomnun mætti aðeins finna í
fátæktinni og að hennar ætti hinn
frægi greifi og skáld að leita með
kirkjunni. En Tolstoj hafði þá
þegar komist að þeirri niðurstöðu
fyrir sjálfan sig að kirkjan væri
óþarfa milliliður milli guðs og
manns og hélt sínu striki með
„Gagnrýni á dogmatíska guð-
fræði". Og Amvrosí sagði um
hinn fræga gest: „Hann er of
drembilátur". Hitt er svo fróðlegt
að á sínum fræga flótta frá heimili
sínu í Jasnaja Poljana rétt fyrir
andlátið kom Tolstoj við í Opt-
inaklaustri - en menn vita ekki
hvers hann leitaði þar, um það
þegja bækur.
Lifi umburðarlyndið
En hvort sem sú saga er rakin
lengur eða skemur þá vekur það
mesta athygli með hve jákvæðum
hætti er fjallað um kirkjulegí
menningarsetur eins og Optina-
klaustur í Moskvufréttum.
Greinarhöfundur, Alexandr
Nézjnij, lýsir því, hve dapurlegt
honum þótti að koma jjangað
fyrir nokkru og sjá sögulegar
byggingar í niðurníðslu eða að
falli komnar, en aðrar notaðar
fyrir heimavistarskóla og líka illa
farnar. í framhaldi af þessu spyr
greinarhöfundur:
„Hverjir erum við? Hefur okk-
ur loksins tekist að ala upp í okk-
ur andlega víðsýni, umburðar-
lyndi og skilning á eilífu gildi
margbreytileikans í birtingar-
formum menningar lands okkar?
Hefur lotning aftur orðið til í
hjörtum okkar eða heldur kann-
ski tortímingarástríðan áfram að
blinda okkur sem fyrr? Og
skiljum við, að með því að skila
aftur hinum sögulegu mannvirkj-
um því sem þeim heyrir þá mun-
um við skjóta dýpri og traustari
rótum í jarðvegi okkar þjóðern-
is?
Að lokum er frá því skýrt að
þegar hafi mikið starf verið unnið
í klaustrinu. Bráðabirgðaathug-
un sýni að til að endurreisa
klaustrið þurfi að safna 15-20
miljónum rúblna og hefur
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan
sjálf tekið það að sér. Mítrópó-
litinn Sergíj hefur lýst því yfir að
innan tíðar verði aftur múnklífi í
Optina pústin.
áb tók saman.
Sovétríkin
Aralhafið að Iwerfa
Aralhafið hefur minnkað umþriðjung á undanförnum tuttugu árum.
Stórfellt vistfrœðislys í uppsiglingu
Aralhafið í Mið-Asíu hefur
minnkað um þriðjung á
tveimur síðustu áratugum, og að
sögn sovéska vikuritsins Ogonyok
er stórfellt vistfræðislys í uppsigl-
ingu fyrir vikið.
Árnar Amudarya og Syrdaria
hafa verið nýttar ótæpilega í
áveituskyni, og fyrir bragðið hef-
ur Aralhaf hörfað um ríflega
hundrað kflómetra, auk þess sem
yfirborðið hefur lækkað um að
minnsta kosti tólf metra. „Ef við
verðum ekki vitni að meiri háttar
kraftaverki á næstunni munu
þessar breytingar hafa stórfellt
vistfræðiáfall í för með sér,“ segir
í grein blaðsins, en hana ritar
Abdizhamil Nurpeisov.
Nurpeisov skellir skuldinni á
mannlega skammsýni; vistfræði-
legt jafnvægi svæðisins hafi verið
rofið þegar ráðist var í umfangs-
miklar áveituframkvæmdir í
auðnum Kazakhstan og Uzbek-
istan, milli ánna Amudarya og
Syrdarya.
í krafti áveitnanna tókst að
drífa upp mikla hrísgrjóna- og
baðmullarrækt, ýmisskonar
þungaiðnaði var komið á fót og
nýir bæir urðu til. Hitt kipptu
menn sér ekki upp við að árnar
tvær gegna afgerandi hlutverki
fyrir endurnýjun Aralhafsins.
- Vistfræðilegt jafnvægi alls
þessa svæðis er farið veg ailrar
veraldar, segirNurpeisov: Illvígir
stormar sandblása nú suður- og
austurströnd hafsins. Á myndum
sem teknar hafa verið í geimnum
má sjá að milljónir tonna af sandi
og salti hafa fokið yfir víðáttu-
mikil landsvæði.
í greininni segir að fiskveiðar
og skipasmíði hafi lagst af við Ar-
alhaf; það sé orðið of salt til að
fiskurinn þrífist, og of grunnt
fyrir skipin, og á ljósmyndum
sem greininni fylgdu má enda sjá
skipsskrokka á þurru landi, nán-
ar til tekið sand- og saltauðnum.
Akrarnir sem eiga allt sitt
undir áveitunum eru einnig farnir
að láta á sjá vegna saltsins frá
Aralhafi sem spillir uppskerunni.
Þetta hefur aftur sitt að segja upp
á heilsufar íbúanna; þaulmengað
áveituvatn af baðmullarökrunum
hefur komist í vatnsból og pestir
grassera.
Greinarhöfundur krefst að-
gerða og segir að leita verði allra
færra leiða til að bjarga Aralhafi,
sem skipti sköpum um veðurfar í
Kazakhstan og Mið-Asíu allri.
HS
FLÓAMARKAÐURINN
Trommusett
Notað trommusett óskast. Hringið í
síma 11773.
ísskápur fæst gefins
Sími 34125 eftir hádegi.
Til sölu eikarsófaborð
15 ára gamalt
selst mjög ódýrt. Sími 622456.
Óska eftir að kaupa
barnakojur, kommóðu, stóra dýnu
og ódýrt litsjónvarp. Uppl. í síma
10633 eftir kl. 17.
Eldhúsinnrétting
með AEG helluborði, ofni og viftu
ásamt tvöföldum stálvaski til sölu
ódýrt. Uppl. í síma 79508 frá kl. 16-
20.
Ung kona
"með 1 barn óskar eftir 3ja herb.
íbúð í Vogahverfi. Uppl. í síma
672698 eftir kl. 17.
Vil selja lítið ekinn
Skoda árg. ’85
í toppstandi. Selst á góðum kjörum.
Uppl. í síma 44465.
Ritvél til sölu
Lítil rafmagnsritvél með tösku og
leiðréttingaborða. Nýyfirfarin og
lítið notuð. Tilvalin fyrir mennta-
skólanema. Sími 78512.
Notaður leirbrennsluofn
til sölu
Sími 21981 og 29734.
íbúðaskipti
Kaupmannahöfn - Reykjavík. 3ja
herb. íbúð á góðum stað í Kaup-
mannahöfn fæst í skiptum fyrir íbúð
í Rvík. í 6 mán. til heils árs. Uppl. í
síma 21733.
Ertu að taka upp
gólfteppið?
Okkur bráðvantar notað gólfteppi til
bráðabirgða á kaldan steininn hjá
okkur. Er ekki einhver sem vill losna
við gamla gólfteppið? Við þiggjum
það með þökkum, fyrir litið eða gef-
ins. Vinsamlegast hringið í síma
656661.
Til sölu
Konica myndavél með aukalinsum.
Amerískt litsjónvarpstæki með At-
ari tölvuspili og Sinclair tölvu. Dyn-
aco hljómflutningstæki og Olympia
rafmagnsrituel. Selst ódýrl. Uppl. í
síma 39236.
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Guðrún Bjarnadóttir
Kópavogsbraut 63
sem andaðist 16. desember sl. verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju þriðjudaginn 5. janúar kl. 13.30
Bjarni R. Jónsson
Björgvin Jónsson
Þórdís Eggertsdóttir
og barnabörn
Eiginmaður minn
Gísli Guðmundsson
Akurgerði 19, Akranesi
sem andaðist 2. janúar verður jarðsunginn frá Akraneskirkju
laugardaginn 9. janúar kl. 11.30.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minn-
ast hans er bent á dvalarheimilið Höfða.
Lára Jónsdóttir
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15