Þjóðviljinn - 06.01.1988, Blaðsíða 11
HEIMURINN
Unglingar skotnir til
bana á Gaza-svæðinu
Israelskir hermenn skutu tvo palestínska unglinga á Gaza-svœðinu ígœr.
Fórnarlömbin orðin25. Fundur í Öryggisráði S.P. í dag
I
sraelskir hermenn skutu tvo
palestínska unglinga, 15 og 18
ára gamla, til bana á Gaza-
svæðinu í gær. Sjö aðrir særðust í
átökunum sem áttu sér stað eftir
að unglingar vörpuðu grjóti að
ísraelskum hermönnum í nám-
unda við Khan Yunis flóttamann-
abúðirnar á Gaza-svæðinu, sem
ísraelsmenn hafa hersetið síðan
1967.
Par með er fjöldi þeirra sem
fallið hafa í óeirðunum á hinum
herteknu svæðum ísraelsmanna
frá 9. desember kominn upp í 25
og fjöldi særðra orðinn um 200 og
handtekinna hátt á annað þús-
und.
Óróleikinn á herteknu svæð-
unum magnaðist upp við þá
ákvörðun Israelstjórnar að vísa 9
Palestínumönnum frá herteknu
svæðunum úr landi vegna þátt-
töku þeirra í mótmælum gegn
hersetunni. Ákvörðun þessari
hefur verið mótmælt, meðal ann-
ars af Bandaríkjastjórn.
Aðfarir ísraelska hersins hafa
vakið reiði um heim allan, og
hafa mótmæli meðal annars verið
borin fram bæði af David Mellor,
utanríkisráðherra Breta, sem nú
er í opinberri heimsókn í ísrael,
og einnig af Vesturþjóðverjanum
Hans-Júrgen Wiswchnewski,
sem sendi Simon Perez utanríkis-
ráðherra harðort bréf í nafni Al-
þjóðasambands Jafnaðarmanna.
Breski utanríkisráðherrann,
sem heimsótti flóttamannabúðir
Palestínumanna á herteknu
svæðunum, sagði eftir heimsókn-
ina að sér væri brugðið og að að-
búnaður flóttamannanna væri „í
hróplegri andstöðu við sið-
menntað gildismat“.
Ummælin vöktu reiði meðal ís-
raelskra yfirvalda og búist er við
stormasömum fundi með þeim
Mellor og Shamir og Peres í dag.
Bresk stjórnvöld hafa hins veg-
ar látið í ljós stuðning við yfirlýs-
ingar ráðherrans, sem séu í sam-
ræmi við þá stefnu Breta, að
ferðis Israelshers á herteknu
svæðunum. Verður fundurinn
trúlega haldinn í dag.
Þann 22. desember sl. sam-
þykkti Öryggisráðið með 14 at-
kvæðum gegn einu atkvæði
Bandaríkjamanna harðorða á-
lyktun gegn stefnu ísraelsstjórn-
ar í málefnum Palestínuaraba og
framferði ísraelshers gagnvart
varnarlausum íbúum flóttamann-
abúðanna og herteknu svæðanna
á vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu. Gaza-svæðið tilheyrði
Egyptalandi fyrir 7 daga stríðið
1967, en Vesturbakkinn er jór-
danskt landssvæði.
Óeirðirnar undanfarna daga
eru þær mestu sem orðið hafa síð-
an landssvæði þessi voru hertekin
fyrir 2 áratugum.
í gær hvatti málgagn Palestínu-
manna á hernumdu svæðunum
þá 1,4 miljón Palestínumanna
sem búa undir ísraelskri her-
stjórn til að neita að greiða skatta
til ríkisins eða vinna í ísrael og
kaupa ísraelskar vörur. Þá voru
Palestínumenn á hernumdu
svæðunum hvattir til þess að í-
klæðast svörtum sorgarfötum
vegna fórnarlambanna 25, sem
fallið hafa fyrir ísraelska hernum
undanfarna daga.
-Reuter/ólg.
ísraelsmenn eigi að yfirgefa her-
numdu svæðin.
Mótmæli voru höfð í frammi
víða í ísrael og á hernumdu svæð-
unum í gær. Á meðan varð ráð-
herranefnd íslamskra ríkja að
fresta fyrirhuguðum ráðherra-
fundi um ástandið í ísrael og á
herteknu svæðunum um 8 daga
vegna veikinda Hassans, kon-
ungs Marokko. Talið er að á
fundinum muni Jasser Arafat
fara fram á aukinn stuðning ara-
baríkja við PLO, og að þessi ríki
veiti ekki Palestínumönnunum 9,
sem ísraelsmenn hyggjast vísa úr
landi, landvistarleyfi.
í gær fór Jórdanía fram á sér-
stakan fund í Öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna vegna fram-
Filipseyjar
V'itni
fundið
Hermaður skaut
Benigno Aquino
Einn af þeim þrem hcrmönnum
sem fylgdu Benigno Aquino niður
landgöngubrúna þegar hann kom
til Filipseyja úr útlegð í ágúst
1983 skaut hann með skamm-
byssu í hnakkann.
Flugvallarstarfsmaður, sem sá
atburðinn gerast, hefur rofið
fjögurra ára þögn sína um málið
og borið vitni fyrir rétti, sem ekki
hefur fundið ástæðu til þess að
vefengja framburðinn, þrátt fyrir
langar yfirheyrslur.
Morðið leiddi endanlega til
falls Marcosar einræðisherra á
Filipseyjum, en talsmenn hans
höfðu áður sakfellt meintan
kommúnista fyrir morðið, og var
hann tekinn af lífi skömmu
seinna.
Á valdatíma Marcosar hafði
dómstóll áður sýknað 26 hinna
ákærðu um aðild að morðinu. Sá
dómur hefur hins vegar verið ó-
gildur og nú eru 36 hermenn og
fjórir óbreyttir borgarar ákærðir
fyrir morðið í nýjum réttarhöld-
um, sem hófust í apríl síð-
astliðnum. Meðal ákærðu eru
fyrrverandi innanríkisráðherra í
stjórn Marcosar, Ver, fyrrver-
andi yfirmaður herafla Filips-
eyja, og fyrrverandi yfirmaður í
flughernum, og eru þessir þrír
höfuðpaurar í málinu allir í út-
legð í Bandaríkjunum.
Vitnisburður flugvallarstarfs-
mannsins markar þáttaskil í rétt-
arhöldunum, en hann sagði að
samviska sín hefði ekki leyft hon-
um að þegja lengur, þótt hann
óttaðist nú um líf sitt. Reuter/Ó|g
Gro Harlem Brundtland:
Víð viljum kjamorioi-
vopnalaus Norðurlönd
Liður í víðtœkara samkomulagi
U sætisráðherra Noregs, sagði
nýverið að samkomulag um
kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd
gæti orðið mikilvægt framlag til
bættrar sambúðar austurs og
vesturs, og taldi hún að slíkt sam-
komulag ætti að vera þáttur í víð-
tækara samkomulagi á milli
Austur- og Vesturevrópu. Sagði
Brundtland að ákvörðun þar að
lútandi yrði að vera samkomul-
agsatriði á milli Varsjárbanda-
lagsins og NATO, og að Norður-
löndin gætu ekki verið ein aðili að
slíku samkomulagi.
Brundtland sagði í viðtali við
fréttamann Reuters, að hernað-
aruppbygging stórveldanna á
Norðurheimskautssvæðinu væri
orðin yfirþyrmandi og að sam-
komulag um minnkandi spennu
yrði að vera innan ramma hern-
aðarbandalaganna.
Bandaríkin hafa jafnan lagst
gegn hugmyndinni um kjarnork-
uvopnalaus Norðurlönd, en
Reuter-fréttastofan segir að hug-
myndin, sem njóti víðtæks stuðn-
ings á öllum Norðurlöndunum,
hafi hlotið nýjan byr undir vængi
þegar Mikhail Gorbatsjov lagði
til í ræðu sem hann flutti í október
sl., að dregið yrði úr flotaupp-
byggingu og flugæfingum yfir
Norðurhöfum.
í næstu viku mun Nikolai
Ryzkhov forsætisráðherra So-
vétríkjanna koma í opinbera
heimsókn til Noregs, þar sem
þessi mál verða meðal annars á
dagskrá.
Reuter/ólg
Miftvikudagur 6. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
Auglýsing frá borgarskipulagi
Reykjavíkur
TILLAGA AÐ DEILISKIPULAGI:
Reitur sem markast af Bankastræti og Laugarvegi, Smiðjustíg, Hverfiagötu og Ingóffsstrsati
Eldri byggingar s«m standa skv. tillögunni
Ný- eða breyttar byggingar skv. tillögunni
Gangstígar og torg
Tillaga aö deiliskipulagi reits sem markast af Laugavegi, Bankastraeti, Ingólfs-
• i• i i.____t:__"x. ____o____:i:. /m mlwrNf r>oml/\i 1 7 nn 1 H flV
stræti, Hverfisgötu og“ Smiðjustíg er hér með auglýst samkv. 17. og 18. gr.
skipulagslaga nr. 19/1964.
Uppdráttur, skýringarmyndirog greinargerð verðuralmenningi til sýnisfráog með
miðvikudeginum 6. jan. til miðvikudagsins 17. febr. 1988 hjá Borgarskipulagi
Reykjavíkur, Borgartúni 3, frá kl. 8.20-16.00 alla virka daga.
Athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags eigi síðar en kl. 16.00, 2.
mars 1988.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni.
Reykjavík, 6. jan. 1988