Þjóðviljinn - 12.01.1988, Side 1
Tjarnargata 20
Öryrkjar
andmæla
Öryrkjabandalagið leitast við aðfá úrþví
skorið hvort borgaryfirvöld hafi hunsað
byggingarreglugerð. Bygginganefnd hefur
ekkifengið umsókn um breytta notkun á
Tjarnargötu 20. Húsið fullnœgir fráleitt
aðstöðufyrir hreyfihamlaða. Arnþór
Helgason: Ónothœft að öllu leyti
Oryrkjabandalagið hefur ósk-
að eftir svari frá byggingafull-
trúa Reykjavíkurborgar við því
hvort borgaryfirvöld hafi fengið
samþykki bygginganefndar á
breyttri notkun húsnæðisins að
Tjarnargötu 20 þar sem áður var
til húsa fræðslustjóraembættið og
sálfræðideild skóla og sem fyrir-
hugað er að nýta undir starfsemi
ellimáladeildar og heimilis-
hjálpar Félagsmálastofnunar.
Samkvæmt athugun á bygging-
arreglugerð sem bandalagið hef-
ur látið gera ber borgaryfirvöld-
um að leita slíks samþykkis. Að
sögn Gunnars H. Gunnarssonar
fulltrúa Alþýðubandalagsins í
bygginganefnd hafa borgaryfir-
völd ekki leitað eftir samþykki
nefndarinnar.
Samkvæmt faglegri athugun,
sem Öryrkjabandalagið fól
Baldri Andréssyni arkitekt og
stjórnarfulltrúa félagsmálaráðu-
neytisins í samstarfsnefnd um
ferlismál að gera á byggingar-
reglugerð, ber þeim sem æskja
breytingar á notkun húss að
sækja um heimild til þess til bygg-
inganefndar. Það sé nefndarinn-
ar að meta hvort breytt notkun
húss sé í samræmi við gerð húss-
ins, þ.e hvort húsið uppfylli m.a.
skilyrði laga og reglugerða. í
greinargerð Baldurs segir m.a. að
þar sem nota eigi Tjarnargötu 20
undir miðstöð fyrir aldraða og því
oft hreyfihamlaða og þeirra sem
þurfi á heimilisþjónustu að
halda, leiki varla nokkur vafi á
því að fyrirmælum 3. málsgreinar
4. greinar byggingalaga hafi m.a.
verið ætlað að ná til húsnæðis af
þessu tagi. Fyrirmælunum er
annars vegar ætlað að tryggja
möguleika hreyfihamlaðra til at-
vinnuþátttöku og stjórnsýslu-
þátttöku og hins vegar rétt hreyfi-
hamlaðra til þess að sækja opin-
bera þjónustu til jafns við aðra.
í greinargerð sinni vekur Bald-
ur athygli á því að 8 steintröppur
liggi að aðalinngangi hússins og
hindri m.a. hjólastólaumferð. Þá
sé engin lyfta í húsinu, en starf-
semin fer fram á báðum hæðum
hússins. Þá fullnægi salernisað-
staða ekki hreyfihömluðum, né
heldur annar innri umbúnaður
hússins.
„Húsið verður að dæmast að
öllu leyti óhæft til þess að geyma
þá starfsemi sem því er ætlað,“
sagði Amþór Helgason formaður
Öryrkjabandalagsins. Arnþór
Ingveldur Sigurðardóttir kemst ekki lengra í húsnæði ellimáladeildarinnar og heimilishjálparinnar að Tjarnargötu 20,en
Öryrkjabandalagið hefur harðlega gagnrýnt valið á húsnæðinu. Þá hefur verið bent á að samþykkis bygginganefndar
hafi ekki verið leitað á breyttri notkun húsnæðisins. Mynd E.ÓI.
sagði að ákvörðun um frekari framhaldi af svari byggingafull- Málið verður tekið fyrir á fundi
meðferð málsins yrði tekin í trúa. borgarráðs í dag. -K.ÓI.
Þýskalandsmarkaður
Ormafárið erliðið hjá
VigriREsettinýttsölumet íBremerhaven ígœr. Almennurfiskskortur á markaðnum
Togarinn Vigri RE setti nýtt sö-
lumet í Þýskalandi í gærmorg-
un þegar hann seldi 155,6 tonn af
blönduðum afla í Bremerhaven
fyrir 14,3 milljónir króna. Meðal-
verðið sem fékkst fyrir aflann var
91,75 krónur. 87 tonn af aflanum
voru karfi og seldist kflóið af hon-
um á hvorki meira né minna en á
102,75 krónur sem er hreint ótrú-
legt verð.
f síðustu viku setti Hoffellið
SU einnig nýtt sölumet þegar
skipið seldi 166 tonn, sem mest
var þorskur, fyrir 16,2 milljónir
króna í Hull á Englandi. Meðal-
verð sem fékkst fyrir aflann var
97,60 krónur kflóið.
Að sögn Vilhjálms Vilhjálms-
sonar, hjá Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna, er aðal-
ástæðan fyrir þessum sölumetum
á mörkuðunum erlendis að al-
mennur fiskskortur er á þeim. En
þrétt fyrir það eru menn agndofa
yfir þessu háa verði sem fæst fyrir
fiskinn. Vilhjálmur sagði við
Þjóðviljann að eftirspurn á
Þýskalandsmarkaði væri nú kom-
in í 80% af því sem hún var fyrir
ormafárið sem geisaði á honum í
sumar, eins og frægt var. Þá kæmi
það íslensku skipunum vel að
bæði Norðmenn og Danir settu
mjög lítið á markaðinn og afli
heimamanna væri mjög tregur.
Landssamband íslenskra út-
vegsmanna skipuleggur sölur
skipanna nú 5 vikur fram í tímann
og næstu vikur munu 2 skip að
jafnaði selja á mörkuðunum.
grh
Garðabœr
Réttindamissir
Húsasmíðameistari
sviptur réttindum. Sam-
hljóða ákvörðun bygg-
inganefndar
Bygginganefnd Garðabæjar
hefur ákveðið að svipta Svein V.
Jónsson húsasmíðameistara rétt-
indum til að standa að fram-
kvæmdum sem húsasmíðam-
eistari í sveitarfélaginu, vegna ítr-
ekaðra brota á byggingareg-
lugerð.
Ákvörðun þessi var tekin á
fundi nefndarinnar 5. janúar, og
að sögn byggingafulltrúa Garða-
bæjar, Agnars Ástráðssonar, var
hún samþykkt samhljóða. I byg-
ginganefnd bæjarins eiga sæti
fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Al-
þýðuflokks og Alþýðubandalags.
Að sögn Agnars er sviptingin
til komin vegna ítrekaðra brota á
byggingareglugerð, nú síðast
hvað varðar breytingar á verslun-
arsamstæðunni að Garðatorgi 1.
Áður hefur byggingafulltrúi veitt
Sveini áminningu, með bréfum
dagsettum 10. 10. 1984 og 8. 10.
1986. HS
r Sjónvarpið
Olafur Ragnar gegn
að reynir fyrst og fremst á
vopnfimi formannanna í orð-
um og rökum í þessari umræðu og
ég vona að þetta verði líflegur og
skemmtilegur þáttur, sagði Ingvi
Hrafn Jónsson fréttastjóri Sjón-
varpsins sem stýrir í kvöld nýjum
umræðuþætti sem nefnist „Mað-
ur á mann“.
Þeir sem takast á í þættinum í
kvöld sem hefst kl. 21.30 eru
Ólafur Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalagsins og
Þorsteinn Pálsson forsætisráð-
herra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins.
Þorsteini
- Hugmyndin er að vera með
þessa þætti einu sinni til tvisvar í
mánuði og það þótti ekki úr vegi
að láta forystumenn höfuðfylk-
inga í stjórnmálunum ríða á vað-
ið, eins og mál standa nú í
efnhags- og kjaramálum, sagði
Ingvi Hrafn.