Þjóðviljinn - 12.01.1988, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 12.01.1988, Blaðsíða 8
Lágfóta Hvítrefir kringil- fættari Meira en 30 ára gamlar athuganir Theodórs frá Bjarmalandi staðfestar Árið 1955 kom út bókin „Á refa- slóðum“ eftir Theodór Gunn- laugsson frá Bjarmalandi í Öxar- firði. Þar segir m.a.: „Hvítrefir virðast mun kringil- fættari og klær þeirra ganga meira á ská Ennfremur: „Fætur blárefanna eru aftur á móti sporöskjulagaðri, og miðað við sömu stærð á dýri virðast mér þeir heldur minni ummáls.“ The- odór telur framfætur blárefa oft nauðalíka og á hvítum tófum en afturfótalögunin sé talsvert ólík, fæturnir áberandi sporöskjulag- aðri. í nýútkomnu fréttabréfi veiði- stjóra, Páls Hersteinssonar, er frá því greint að hann hafi, ásamt Stefáni Aðalsteinssyni og Eggert Gunnarssyni, rannsakað hvort þessar athuganir Theodórs stæð- ust í raun. Niðurstöður urðu í stuttu máli þær, að mælingar á fótlögun refa staðfesti skrif Theo- dórs en séu „þó um leið í merki- legu ósamræmi við þau. Okkar niðurstöður benda til þess, að hvít dýr séu með kringlóttari framloppur en mórauð dýr. Aft- ur á móti sé munur á afturloppum minni eða enginn.“ Theodór tel- ur hinsvegar að munurinn sé fyrst og fremst á afturfótunum. Þrátt fyrir þetta ósamræmi telja þeir félagar að niðurstöður þessara frumathugana beri „ótví- rætt vitni einstakri athyglisgáfu Theodórs Gunnlaugssonar frá Bjarmalandi, sérstaklega þegar haft er í huga að meðaltalsmunur á breidd framfóta hvítra og mó- rauðra dýra nemur aðeins 7% samkvæmt okkar mælingum." - mhg. ✓ A Ivershópurinn Bræðsla hugsan- legahagkvæm Starfshópur iðnaðarráðherra mœlir með athugun á 180þús. tonna verksmiðju 180 þús. tonna álbræðsla sem byggð yrði í áföngum á árunum 1991-1994, gæti orðið hagkvæm í rekstri, eru niðurstöður starfs- hóps iðnaðarráðherra sem und- anfarna mánuði hefur unnið að hagkvæmnisathugun á byggingu nýs álvers í Kapelluhrauni fyrir ofan Hafnarfjörð. Starfshópurinn, sem er nær óbreytt fyrrum álviðræðunefnd ráðherra, telur að áhuga á þátt- töku í rekstri slíkrar verksmiðju hérlendis sé fyrst og fremst að finna í Evrópu og einkum þá meðal Efnahagsbandalagsþjóða. Þjóðviljínn hefur áður bent á áhuga fjölþjóðafyrirtækisins Rio Tinto Zink á eignaraðilda í ál- verksmiðju á íslandi, en fyrirtæk- ið hætti í fyrra við áform um byggingu Kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði. I fréttatilkynningu sem iðnað- arráðherra sendi til fjölmiðla í gær, segir að frumhagkvæmnisat- huganir starfshópsins verði kynntar á næstunni fyrir álfyrir- tækjum í Evrópu sem lýst hafa áhuga sínum á málinu og að könnunarviðræður gætu farið í gang á næstu mánuðum. Segist ráðuneytið stefna að því að ákvörðun um stofnun hugsanlegs undirbúningsfélags verði tekin fyrir mitt þetta ár. Hvergi kemur fram hvaða raf- orkuverð liggur til grundvallar áðurnefndri hagkvæmnisathugun en vísað til hugsanlegs samdrátt- ar í álframleiðslu í Evrópu á næsta áratug vegna hækkandi orkuverðs. -|g. Kvosarskipulagið Úrskurður ráð- hena í vikunni Jóhanna Sigurðardóttir: ákveðin atriðiþurfa nánari skoðunar við útfrá lagalegri hlið Eg á von á því að úrskurður félagsmálaráðuneytisins liggi fyrir um miðja viku, um það hvort ráðuneytið staðfesti Kvos- arskipulagið, sagði Jóhanna Sig- urðardóttir félagsmálaráðherra við Þjóðviljann ■ gær. Jóhanna sagði að niðurstöður borgarstjórnar hefðu borist ráðu- neytinu fyrir helgi og það tæki ráðuneytið einhvern tíma að kanna þær áður en ákvörðun um staðfestingu væri tekin. „Ég hygg að niðurstaðan verði sú að þarna séu ákveðin atriði sem þurfi nánari skoðunar við út frá lagalegri hlið málsins.“ Hvað varðaði ummæli borgar- stjóra um að staðfesting ráðherra á skipulaginu væri formsatriði, sagði hún alveg ljóst að þar sem fram hefðu komið alvarlegar at- hugasemdir við form og efnisatr- iði málsins væri það skylda ráð- herra að sjá til þess að í einu og öllu væri farið að lögum og reglu. „Það er mjög 'einkennilegt ef borgarstjóri og borgarlögmaður geta ekki verið sammála því að það sé verkefni ráðherra að at- huga lögformlega hiið málsins,“ sagði Jóhanna. - Sáf. Matarskatturinn 30.000 á ári 500 krónum meira í helgarinnkaupin eftirskatt. Dilkakjöt íheilum skrokkum, nýmjólk og óhrært og óblandað skyr hækkar ekki. Öll önnur matvara hœkkar Ljóst er að hinn alræmdi matar- skattur á eftir að létta verulega pyngjur launamanna. Harðast mun hann leggjast á þá lægst- launuðu og barnmargar fjöl- skyldur, sem verja hlutfallslega stærri hluta tekna sinna í kaup á nauðþurftum en hinir sem tekju- hærri eru. í kjölfar gildistöku laga um söluskatt á matvælum hækkar öll matvara, önnur en ný- mjólk, óblandað og óhrært skyr, sem og dilkakjöt í heilum skrokk- um. Að vísu leggst söluskatturinn af misjöfnum þunga á einstakar vörutegundir - ailt eftir því hve mikla meðhöndlun matvaran hef- ur hlotið áður en hún kemur á borð neytenda. Um helgina birti Alþýðublaðið verðkönnun, sem þar sem verð- lag „hefðbundimia helgar- innkaupa“ var borið saman í tveimur stórmörkuðum í Reykja- vík. Samkvæmt verðlagskönnun Alþýðublaðsins, reiknast svo til að helgarinnkaupin hafi verið rétt rúmar 3000 krónur áður en verslunareigendum gafst svigrúm til að verðmerkja vöruna uppá nýtt, með áorðnum verðhækkun- um samfara söluskattinum. Þjóðviljinn fór í gær í spor þeirra Alþýðublaðsmanna og kannaði verð sömu „innkaupa- körfu“ í öðrum stórmarkaðanna, eftir að söluskatturinn var skol- linn á. Eftir söluskatt kosta helgarinn- kaupin rúmum 500 krónum meira en áður, eða 26000 króna útgjaldaauka á ári þegar miðað er við 52 helgar ársins. Þrátt fyrir margorðar yfirlýs- ingar Jóns Baldvins Hannibals- sonar, ráðherra matarskatts og annarra skatta, á þingi og víðar, leiðir söluskattsálagning á mat- væli til verðhækkana á lítt unnum mjólkur-, kjöt- og fiskvörum, litlu síður en fullunnum matvör- um. Ef tekin eru nokkur dæmi úr „innkaupakörfunni" um verð- hækkanir í kjölfar matarskatts- ins, dylst engum að verðhækkan- irnar eru meiri en góðu hófu gegnir. Fyrir skatt kostaði kílóið af nautahakkinu 389 krónur, en kostar nú 437 krónur. Kílóið af ódýrasta fiðurfénaði, smáum kjúklingum, kostaði 369 krónur en nú 437. Egg voru fyrir skatt á krónur 199 kílóið en nú 219. Kartöflukílóið er nú 56 en var 45 krónur. Hvað ávöxtum viðkemur, gæt- ir söluskattsins ekki síður en á afurðum hefðbundins landbún- aðar. Kílóverð tómata er eftir skatt 249 en var 199 krónur. Ban- anar hafa hækkað úr 98 krónum í 123 og rauð epli hækka úr 49 krónum í 61. Matarskatturinn Manneldissjónarmið sniðgengin Jóhannes Gunnarssonformaður Neytendasamtakanna: Föllumst ekki á neina neyslustýringu nema hún hafi manneldissjónarmið að leiðarljósi. Meiri verðhœkkanir en gert var ráð fyrir Við hjá Neytendasamtökunum bendum á að með matarskatt- inum eru manneldissjónarmið gersamlega sniðgengin; það er til dæmis engin hæfa að hollustu- vörur á borð við ávexti og græn- meti skuli hækka en verð á smjöri haldast óbreytt, sagði Jóhannes Gunnarsson, formaður Neyt- endasamtakanna, að loknum stjórnarfundi samtakanna í gær- kvöldi. - Hér er að auki á ferðinni ák- veðir. neyslustýring, og við hjá Neytendasamtökunum föllumst ekki á neina slíka stýringu nema hún hafi manneldissjónarmið að leiðarljósi, en matarskatturinn er ekki þannig til kominn, sagði Jó- hannes. Þá sagði hann að verðhækkanir vegna söluskattsins væru meiri en ráð hefði verið gert fyrir: „Hækk- un á svínakjöti og kjúklingum er meiri en ég bjóst við, og eins átti ég ekki von á hækkun á niður- brytjuðu kindakjöti. “ - Það er ljóst að verðhækkan- irnar vegna söluskattsins koma fram strax með fullum þunga. Verðlækkanir vegna tolla- breytinga skila sér hins vegar síð- ar, og þá smátt og smátt, sagði Jóhannes. Fjarðarkaup Matvara á gamla verðinu Sveinn Sigurbergsson: Dýrtað breyta verðmerkingum. Seljum matvöruna á gamla verðinu meðan birgðir endast Eigendum verslunarinnar þótti brotaminna að selja upp þær birgðir sem til voru án þess að verðmerkja þær uppá nýtt og borga því einfaldlega söluskattinn sjálfir í stað neytendanna, sagði Sveinn Sigurbergsson, verslunar- stjóri Fjarðarkaupa, en viðskipt- avinir verslunarinnar hafa haft ærna ástæðu til að gleðjast yfir matarinnkaupunum í versluninni að undanförnu þar sem matvaran er á sama verði og fyrir söluskatt- sálagninguna. * Að sögn Sveins hefði það haft mikla fyrirhöfn í för með sér og nokkurn kostnað að verðmerkja vöruna uppá nýtt. - Það hefði þurft að hafa lokað einhvern tíma og láta starfsfólkið vinna svo og svo mikla yfirvinnu. - Nýja verðið tekur svo við smátt og smátt um leið og vöru- birgðir endurnýjast. Nýja verðið er þegar komið á allnokkrar vörutegundir sem minnstar birgðir lágu fyrir af, sagði Sveinn. Soðningin hœkkar í verði þrátt fyrir ádrátt um hið gagnstœða; eitt kíló af þeim algenga mat ýsuflökum kostar nú 304 krónur í Miklagarði, og hefur hækkað um 10%. Söltuð þorskflök kosta 364 krónur, og hafa einnig hœkkað um 10%. Þá kostar kíló af lúðusneiðum nú hálft fimmta hundrað krónur og velþað, og steinbítskílóið fer í317 krónur. Nýmjólkurlítrinn kostar nú 47,90 krónur, og hefur ekki hækkað í verði með söluskattsbreytingunni. Sama gildir um hreint skyr; 200 grömm afþví kosta 18 krónur, hér eftir sem hingað til. Aftur á móti hœkkar ávaxtaskyr í 32 krónur hver 150 gramma dós, enda leggst söluskattur á allt nema mjólkina sjálfa. Svo dæmi sé tekið af ostategund er smásöluverð eins camemberthrings nú 166 krónur í einum stór- markaða borgarinnar eftir að söluskatturinn bætist við. Kótilettur hækka óverulega í verði; kostuðu áður 527 krónur hvert kíló, en leiðbeinandi smásöluverð er nú 531,40 krónur. Sama verður ekki sagt um þœr kjötvörur sem meira eru unnar, og telja kaupmenn sem rætt var við í gœr að til dœmis pylsur og bjúgu muni hækka um20% við söluskattshœkkunina: Sölu- skattur leggst á vinnsluna, sem og umbúðirnar. 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Þriðjudagur 12. janúar 1988 Þriðjudagur 12. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN -- SÍÐA 13 Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Bygg- ingadeildar, óskar eftir tilboðum í ýmiss konar málningarvinnu innanhúss á íbúðum aldraðra hjá Reykjavíkurborg. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, að Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000.- skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 28. janúar kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR _______ Fríkirkjuvegi 3 - Sími 25800 PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða fólk til póstafgreiðslustarfa. Um er að ræða vaktavinnu. Upplýsingar eru veittar hjá skrifstofu póstmeistara, Ármúla 25 og í síma 687010. Umboðsmenn happdrættis Þjóðviljans Reykjavík: Afgreiðsla Þjóðviljans Síðumúla 6. Opið 9-17 virka daga. Opið 9-12 laugar- daga. Skrifstofa Alþýðubandalagsins, Hverfisgötu 105, 4. hæð. Opið 9-5 virka daga. Suðurland: Vestmannaeyjar: Jóhanna Njálsdóttir, Hásteinsvegi 28, simi 98-1177. Hveragerði: Ingibjörg Sigmundsdóttir, Heiðmörk 31, sími 99-4259. Selloss: Sigurður R. Sigurðsson, Lambhaga 19, simi 99-1714. Þorlákshöfn: Elín Björg Jónsdóttir, Haukabergi 6, sími 99-3770. Eyrarbakki: Jóhann Þórðarson, Sunnutúni, sími 99-3229. Stokkseyrl: Jóhann Þórðarson, Sunnutúni, sími 99-3229. Laugarvatn: Torfi Rúnar Kristjánsson, simi 99-6153. Hella: Guðrún Haraldsdóttir, Þrúðvangi 9, simi 99-5821. Vlk í Mýrdal: Magnús Þórðarson, Austurvegi 23, sími 99-7129. Norðurland eystra: Ólafsfjörður: Sæmundur Ólafsson, Vesturgötu 3, sími 96-62267. Dalvík: Þóra Rósa Geirsdóttir, Hólavegi 3, simi 96-61411. Akureyri: Haraldur Bogason, Norðurgötu 36, sími 96-24079. Húsavík: Aðalsteinn Baldursson, Baughóli 31 b, sími 96-41937. Raufarhöfn: Angantýr Einarsson, Aðalbraut 33, sími 96-51125. Þörshöfn: Dagný Marinósdóttir, Sauðanesi, sími 96-81166. Austurland: Vopnafjörður: Gunnar Sigmarsson, Miðbraut 19, sími 97-31126. Egilsstaðir: Guðlaug Ólafsdóttir, Sólvölium 10, sími 97-11286. Seyðisfjörður: Óttarr Magni Jóhannsson, Langatanga 3, slmi 97-21525. Neskaupstaður: Kristinn Tvarsson, Blómsturvöllum 47, sími 97-71468. Eskifjörður: Hjalti Sigurðsson, Svínaskálahlið 19, simi 97-61367. Reyðarfjörður: Þorvaldur Jónsson, Hæðargarði 18, sími 97-41159. Fáskrúðsfjörður: Anna Þóra Pétursdóttir, Hlíðargötu 37, sími 97-51283. Stöðvarfjörður: Ingimar Jónsson, Túngötu 3, sími 97-58894. Breiðdalsvík: Guðrún Þorleifsdóttir, Felli, sími 97-56679. Homafjörður: Benedikt Þorsteinsson, Ránarslóð 6, sími 97-81243. Norðurland vestra: Hvammstangi: Flemming Jessen, Kirkjuvegi 8, sími 95-1368. Blönduós: Guðmundur Kr. Theódórsson, Húnabraut 9, simi 95-4196. Skagaströnd: Edvald Hallgrímsson, Hólabraut 28, sími 95-4685. Sauðárkrókur: Sigurður Karl Bjarnason, Víðigrund 4, sími 95-5989. Siglufjörður: Hafþór Rósmundsson, Hlíðarvegi 23, sími 96-71624. Vesturland: Akranes: Jóna K. Ólafsdóttir, Jörundarholti 170, sími 93-11894. Borgarnes: Sigurður Guðbrandsson, Borgarbraut 43, sími 93-71122. Stykkishólmur: Kristín Benediktsdóttir, Ásaklifi 10, sími 93-81327. Grundarfjörður: Matthildur Guðmundsdóttir, Fagurhólstúni 10, sími 93-86715. Ólafsvfk: Margrét Jónasdóttir, Túnbrekku 13, sími 93-61197. Helllssandur og Rif: Arnheiður Matthíasdóttir, Bárðarási 6, simi 93-66697. Búðardalur: Gísli Gunnlaugsson, Gunnarsbraut 7, sími 93-41142. Vestfirðir: Patreksfjörður: Einar Pálsson, Laugarholti, sími 94-2027. Bfldudalur: Halldór Jónsson, Lönguhlíð 22, sími 94-2212. Þlngeyri: Davíð Kristjánsson, Aðalstræti 39, sími 94-8117. Flateyri: Hafdís Sigurðardóttir, Þórustöðum, sími 94-7658. Suðureyri: Þóra Þórðardóttir, Aðalgötu 51, sími 94-6167. fsafjörður: Bryndís Friðgeirsdóttir, Aðalstræti 22a, simi 94-4186. Bolungarvfk: Kristinn Gunnarsson, Hjallastræti 24, sími 94-7437. Hólmavík: Jón Ólafsson, Brunnagötu 7, slmi 95-3173. Reykjanes: Garður: Kristjón Guðmannsson, Melbraut 12, sími 92-27008. Keflavfk: Jóhann Björnsson, Hringbraut 75, simi 92-12275. Njarðvfk: Jóhann Björhsson, Hringbraut 75, simi 92-12275. Grindavfk: Steinþór Þorvaldsson, Staðarvör 2, sími 92-68354. Hafnarfjörður: Hafsteinn Eggertsson, Norðurvangi 10, simi 651304. Garðabær: Þórir Steingrímsson, Markarflöt 8, sími 44425. Álftanes: Kári Kristjánsson, Túngötu 27, sími 54140. Kópavogur: Sigurður Flosason, Kársnesbraut 54, simi 40163. Seltjarnames: Sæunn Eiríksdóttir, Hofgörðum 7, sími 621859. Mosfellsbær: Kristbjörn Árnason, Borgartanga 2, sfmi 666698.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.