Þjóðviljinn - 12.01.1988, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 12.01.1988, Blaðsíða 2
-SPURNINGIN— Áttu von á höröum átökum á vinnumarkaö- inum? Ewald Berndsen forstjóri: Ég á nú ekki von á hörðum átökum. Það hefur verið búið þannig um hnúta að verkalýður- inn hefur ekki efni á því að fara í verkföll. Sigurður Óskarsson rafvirki: Mér sýnist allt benda til þess að svo fari. Ég held að þeir ætli ekk- ert að semja. Þeir fást ekki einu sinni til þess að ræða málin. Grétar Bergmann verslunarmaður: Ég á von á þeim, já. Mér sýnist svipurinn á honum Guðmundi benda til þess. Kristján Kristjánsson eftirlaunaþegi: Já, ég á nú frekar von á hörðum átökum. Mér sýnist horfurnar vera þannig. Súsanna Svavarsdóttir blaðamaður: Nei, ég hef enga trú á að það komi til verulegra átaka. FRÉITIR Umferðin 1987 Betur má ef duga skal Fararheill ‘87:1987slösuðust 10,2% fleiri en 1986. Umferðaróhöppumfjölgaði um 10,9% á milli áranna. 24 létust í umferðinni ífyrra. Jafnmargir og árið 1986 Asíðasta ári slösuðust 10,2% fleiri í umferðinni en árið 1986.1987 voru 1038 skráðir slas- aðir, en voru 942 árið 1986. Jafnmargir létust í fyrra í um- ferðarslysum og árið þar á undan eða 24. Þá Qölgaði umferðar- óhöppum um 10,9% á milli ár- anna 1986 og 1987. í fyrra voru skráð 13,327 umferðaróhöpp hjá bifreiðatryggingarfélögunum miðað við 12,015 óhöpp í umferð- inni árið 1986, samkvæmt tölum frá Fararheill ‘87 sem fylgst hefur með þróun skráðra umferðar- óhappa hjá bifreiðatrygginarfél- ögunum á árinu 1987 og borið saman við sambærilega skrán- ingu 1986. Samkvæmt skráningu Farar- heillar ‘87 á skráðum umferðar- óhöppum og samanburði á milli áranna 1987 og 1986 verður að taka tillit til töluverðrar umferð- araukningar sem varð á milli þessara ára, en samkvæmt ný- Iegum upplýsingum frá olíufélög- unum var bensínsala um 13% meiri á síðasta ári en á árinu 1986. í frétt frá Fararheill ‘87 segir að mesta fjölgun óhappa hafi orðið á fyrsta ársfjórðungi 1987 miðað við sama ársfjórðung 1986, en mesta aukning milli ársfjórðunga varð frá þriðja tii fjórða ársfjórð- ungs 1986 eða um 27,5%. Samkvæmt tölum frá Farar- heill 87 vekur athygli hversu mikil fækkun óhappa er frá des- ember til sama mánaðar 1987, eða um 14,3% En þá er ekki tekið tillit til aukinnar umferðar. Fjölgun slasaðra var langmest í tveimur mánuðum, júlí og ágúst á síðasta ári. í þeim mánuðum slösuðust 242 eða 75 fleiri en í sömu mánuðum 1986, en þá slösuðust 167 manns. grh Gatnamálastjóri Oréttmæt gagniýni Erilsamt hefur verið að undanförnu í tollinum vegna viðamikilla tollabreytinga. Hér bíða nokkrir viðskiptavinir úrlausnar sinna mála. Mynd: Sig. Tollabreytingar Erill í tollinum Skipulagning ogskýrslugerð til endurskoðunar samfara tollabreyting- unum nokkuð er um það að þeim hafi mikið hefur þurft að leiðrétta, verið endursendar skýrslur ef sagði hún. HS Slökkvilið Reykjavíkur Útköllum fjölgaði að hefur verið mikill erill hjá okkur samfara tollabreyting- unum, ekki hvað síst vegna skipu- lagsbreytinga sem fylgt hafa í kjölfarið, sagði Elín Inga Ólafs- dóttir starfsmaður hjá tollstjóra- embættinu. Að sögn Elínar Ingu hefur þurft að endurskoða skýrslu- eyðublöð, bæði hvað varðar að- flutning og útflutning, og gildir þá einu hvort um er að ræða tölvuform eða ekki. - Þetta hefur verið mikið álag og mikil vinna, en gengið vel þeg- ar tillit er tekið til þess hve stór- vægilegar þessar breytingar eru; það er helst að skýrslugerð frá innflytjendum hafi verið áfátt, og Utköllum Slökkivliðs Reykja- víkur fjölgaði nokkuð á síð- asta ári miðað við árið á undan. í fyrra voru útköllin 683 en 564 árið 1986. Til útkalla er talin öll aðstoð Slökkviliðsins, þar sem ekki var um eldsvoða að ræða, svo sem efnaleki, vatnsleki, losun fólks úr bflflökum og fl. Útköll í eldsvoða voru 359 þar af 23 vegna sinuelda á nýliðnu ári en 330 útköll í elds- voða voru árið 1986. Sjúkraflutningum fjölgaði einnig á sl. ári, voru þá 10.532 en 10.187 árið 1986. Tveir stór- brunar í fyrra, í Lystadún og Málningu og tveir létust af völd- um eldsvoða. Gatnamálastjóri svarar Sigurjóni Péturssyni í Þjóðviljanum 5. janúar s.l. heldur Sigurjón Pétursson borg- arfulltrúi því fram að bið hafi orð- ið á því að samþykktum tillögum hans í borgarstjórn varðandi hreinsun undirgangna og lýsingar í þeim sé framfylgt og jafnvel alls ekki vegna áhugaleysis borgaryf- irvalda. í þessu sambandi vildi undirritaður láta það koma fram að borgarstarfsmenn taka vel gagnrýni og reyna ávallt að bæta úr sé hún sanngjörn og á rökum reist. Gagnrýni sem ekki er rétt- mæt særir óhjákvæmilega þá starfsmenn sem fyrir verða og sem samviskusamlega hafa unnið sín verk eftir bestu getu við hreinsun á undirgöngum og öðr- um gönguleiðum. Eftir að til- lagan um bætta hreinsun undir- gangna kom fram var gerð gangs- kör að úttekt í þeim efnum, bæði hvað snertir hreinsun og lýsingu gangnanna. Þessu hefir verið fylgt eftir og miklum fjármunum verið varið í endurnýjun ljósa- búnaðir í undirgöngum sem liggur undir sífelldri skemmdar- starfsemi. Verður ekki betur séð en að þessum málum sé vel borg- ið. Stöðugt er verið að setja upp hindranir á gangstíga til að hindra skellinöðruakstur, einnig út við akbrautir þar sem þær þvera gangstíga til að koma í veg fyrir að börn fari sér að voða. Þetta þarf að meta í hverju tilfelli fýrir sig hvað rétt og hægt er að gera, því tæki þurfa að komast eftir þessum stígum til hreinsunar, viðhalds og vegna aðkomu sorp- bfla. Virðingarfyllst Ingi Ú. Magnússon gatnamálastjóri 2 S(ÐA — ÞJÓÐVILJINN Þrlðjudagur 12. janúar 1988

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.