Þjóðviljinn - 12.01.1988, Blaðsíða 10
Viðskiptafræðingur/
skattendurskoðun
Skattstjóri Austurlandsumdæmis vill ráöa viö-
skiptafræðing til starfa viö álagningu og endur-
skoöun framtala og ársreikninga einstaklinga og
félaga í atvinnurekstri. Til greina kemur aöili með
sambærilega þekkingu á bókhaldi og reiknings-
skilum.
Um er að ræða krefjandi og áhugavert starf og
tækifæri til þess að öðlast þekkingu og reynslu í
skattskilum og skattarétti í framkvæmd. Jafn-
framt gefst tækifæri til þess að vinna við og eiga
þátt í mótun hins nýja staðgreiðslukerfis skatta.
Laun eru samkvæmt launakerfi starfsmanna
ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist skattstjóra Austur-
landsumdæmis, Selási 8, 700 Egilsstöðum fyrir
31. janúar nk.
Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd
gatnamálastjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboð-
um í gerð 7 heimtraða, þ.e. gatnagerð og lagnir
við Heiðargerði í Reykjavík. Utboðsgögn eru af-
hent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík,
gegn kr. 15.000 skilatryggingu. Tilboðin verða
opnuð á sama stað fimmtudaginn 21. janúar kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Sími 25800
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hafn-
arstjórans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í eftir-
talin verk:
1. KIeppsbakki - lenging
Gerð hafnarbakka
Verkið erfólgið í rekstri á stálþili í 141 m langan
bakka og 23 m langan gafl, bindingu og stögum
þils og fyllingu bak við þil.
Helstu magntölur:
1. Rekstur stálþils alls 165 m.
2. Uppsetning stagbita.
3. Uppsetning akkerisstaga og akkerisplatna,
86 stk.
4. Fylling: 24.000 m3
2. Kleppsbakki - lenging
Kantbiti og kranabraut
Verkið er fólgið í rekstri á steyptum staurum
undir kranabraut, byggingu kranabrautar og
kants á hafnarbakka, uppsetningu kranaspora,
lagningu vatns- og frárennslislagna svo og
lagning ídráttarröra fyrir raflagnir.
Helstu magntölur:
1. Rekstur á steyptum staurum, lengd 12-17
m,
alls 123 stk.
2. Mótafletir 2200 m2
3. Steypumagn 800 m3
4. Járnamagn 80 tonn
5. Regnvatnslögn 500 m
6. Vatnslagnir 150 m
7. ídráttarrör 1000 m
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri að
Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 15.000.-
skilatryggingu fyrir hvort verk um sig.
Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðjudaginn
26. janúar 1988 kl. 11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 Simi 25800
IÐNTÆKNISTOFNUN
Eftirtalin námskeið verða haldin á næstunni hjá Iðntækni-
stofnun:
Fræðslumiðstöð iðnaðarins
25.-30. jan. Flísa- og steinlögn. Haldið á Rannsóknastofn-
un byggingariðnaðarins. Ætlað múrurum. Flísa-
lögn. Viðgerðir, fúgur. Steinlögn. Terrassolögn.
Staðlar. Heilbrigðismál. 30 kennslustundir.
1 .-5 . feb. Steypuskemmdir. Haldið á Rannsóknastofn-
un byggingariðnaðarins. Steypuskemmdir, eðli
og orsakir. Greining skemmda. Viðgerðir á
frostskemmdum, alkalískemmdum ofl.
Sprautusteypa. Viðgerðir með fljótandi steypu.
Verk- og efnislýsingar. Fyrirlestrar, verkefni og
skoðunarferð. 60 kennslustundir.
2.-4 . feb. Gluggar og glerjun. Ætlað húsasmiðum.
Haldið á Rannsóknastofnun byggingariðnaðar-
ins. Gluggar, gluggaefni, gagnvörn. Lögun,
stærðir og gerðirglugga. ísetning. Endurbætur
ofl. Glerjun: Efnisfræði glers, fúguefni. ísetning-
araðferðir og viðgerðir á einangrunargleri. 18
kennslustundir.
15.-17. feb. Hljóðeinangrun. Unnið af starfsmönnum
Rannsóknastofnunar byggingariðnaðarins og
haldið þar. Undirstöðuatriði. Hljóðísog og ein-
angrun. Hljóðeinangrun steinsteyptra húsa,
timburhúsa, einingahúsa. Endurbætur á eldri
húsum. - Einkum ætlað iðnaðarmönnum, einn-
ig gagnlegt hönnuðum og húseigendum. 18
kennslustundir.
15. feb. Niðurlögn steinsteypu. Haldið hjá Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins. - Eigin-
leikar steinsteypu. Niðurlögn og aðhlynning. íb-
löndunarefni. - Ætlað þeim, sem fást við niður-
lögn og meðferð steinsteypu á byggingarstað. 8
kennslustundir.
Sjálfvirknideild
25.-27. jan. Örtölvutækni I. Grundvallarhugtök örtölvu-
tækninnar. Hvernig vinnur örtölvan? Kynning á
forritun á véla- og smalamáli 8088 örgjörvans.
Hagnýt forritunardæmi. 30 kennslustundir.
Rekstrartæknideild
25.-30. jan. Stofnun og rekstur fyrirtækja. Ætlað konum.
Haldið á kvöldin og fyrir hádegi á laugardegi.
Námskeiðinu er ætlað að auka skilning þátttak-
enda á því, hvað atvinnurekstur útheimtir, hvað
þarf að athuga og hvað þarf að varast.
Verkstjórnarfræðslan
18.-19. jan. Verktilsögn og vinnutækni. Farið er yfir skipu-
lagða verktilsögn, móttöku nýliða og starfs-
mannafræöslu, vinnuvistfræði, líkamsbeitingu
við vinnu.
20.-21. jan. Stjórnun breytinga. Farið er yfir stjórnun
breytinga, hvernig er unnið að breytingum.
Starfsmannaviðtöl, hvernig virkja má starfs-
menn til að leysa vandamál o.fl.
22.-23. jan. Verkefnastjórnun. Undirstaða verkefnastjórn-
unar. Hlutverk verkefnisstjóra, myndun verk- |
efnishópa, vöruþróunarverkefni o.fl.
25.-26. jan. Framleiðslustjórnun. Farið er meðal annars
yfir undirstöðuatriði í framleiðslustjórnun,
innkaup o.fl.
27.-28. jan. Gæðastjórnun. Farið er meðal annars yfir
hvað eru gæði og hvernig er best að viðhalda
þeim. Gæðaeftirlit með hráefni o.fl.
29.-30. jan. Undirstaða vinnuhagræðingar. Farið er yfir
undirstöðu vinnuhagræðingar á vinnustöðum
og helstu hjálpartæki.
25.-26. jan. Verkáætlanir. Haldið á Akureyri. Farið er yfir
undirstöðu í áætlanagerö og verkskipulagn-
ingu, CPM-framkvæmdaáætlun, Gantt-áætlun
á mannafla og aðföngum.
22.-23. jan. Multiplan-forrit og kostnaðaráætlanir. Hald-
ið á Austurlandi. Farið er yfir undirstöður áætl-
anagerðar með PC-tölvu, kennd notkun á töflu-
reikniforritinu Multiplan.
Vinnuvélanámskeið
Námskeið fyrir stjórnendur þungavinnuvéla.
20.-30. jan. Haldið í Reykjavík.
2.-12. feb. Haldið á Egilsstöðum
Námskeið í Reykjavík eru haldin í húsakynnum
Iðntæknistofnunar, nema annað sé tekið fram.
Nánari upplýsingar og innritun hjá stofnuninni í
síma (91)68-7000, Fræðslumiðstöð iðnaðarins
í síma (91 )68-7440 og Verkstjórnarfræðslunni í
síma (91)68-7009.
Geymið auglýsinguna!
Moskva -
Peking
Mikhail Gorbatsjov lýsti því
yfir í viðtali við kínverskt viku-
blað sem út kom í gær, að tíma-
bært væri að hann ætti fund með
Deng Tsjaoping flokksleiðtoga í
Kína. „Slíkur leiðtogafundur
væri að okkar mati rökrétt fram-
hald, og ættu báðir aðilar að sjá
hlutlæga nauðsyn hans,“ hefur
blaðið eftir Gorbatsjov.
Leiðtogafundur Kína og Sovét-
ríkjanna hefur ekki verið haldinn
síðan Khrútsjov hitti Mao Tset-
ung 1959 og væri því sögulegur
viðburður.
Fréttaritarar telja þó ólíklegt
að af slíkum fundi geti orðið í
bráð, og bent er á að ekki er lið-
inn nema rúmur mánuður síðan
Deng hafnaði slíkri hugmynd.
Helstu hindranirnar í bættri
sambúð Kína og Sovétríkjanna
eru herseta Víetnama í Kampúts-
eu, hernaður Sovétmanna í Afg-
hanistan og andúð Kínverja á
liðssafnaði Sovétmanna á landa-
mærum ríkjanna.
Sambúð Sovétmanna og Kín-
verja fór kólnandi þegar árið
1960, og var þá deilt bæði um
hugmyndafræði og stefnu í utan-
ríkismálum. Deilan á milli Víet-
nama og Rauðu khmeranna í
Kampútseu varð svo til þess að
dýpka ágreininginn, þar sem Sov-
étmenn hafa stutt Víetnama en
Kínverjar gerðu hins vegar innrás
í Víetnam til þess að „veita Víetn-
ömum lexíu“ vegna innrásar
þeirra í Kampútseu.
í viðtalinu hældi Gorbatsjov
núverandi valdhöfum í Kína fyrir
að hafa náð góðum árangri í efna-
hagsmálum og sagði að Kína léki
lykilhlutverk í efnahagsmálum
heimsins. „Það er langt frá því að
við séum þeirrar skoðunar, að
allir hlutir í heiminum - að
sambúð austurs og vesturs með-
talinni - séu einungis undir Mos-
kvu og Washington komnir,
sagði Gorbatsjov.
Þótt óvissa ríki um leiðtoga-
fund þjóðanna á næstunni, þá
hefur samkomulagið um eyðingu
meðaldrægra vopna og bættar
líkur á brottför Sovétmanna frá
Afghanistan á þessu ári aukið lík-
ur á að af slíkum fundi geti orðið á
árinu.
Reuter/ólg
Myndbandastríð
Sony-verksmiðjurnar í Japan
hafa viðurkennt ósigur sinn í
stríðinu við JVC um myndbanda-
tæknina. Sony-verksmiðjurnar
hafa framleitt myndbandstæki af
gerðinni Betamix, en JVC hafa
framleitt svokölluð VHS-tæki,
sem eru tæknilega frábrugðin.
Þótt margir hafi haldið því
fram að Betamix-tæknin væri
fullkomnari, þá hefur markaður-
inn snúist á sveif með VHS-
tækjunum, en að sögn eru nú yfir
90% seldra myndbandstækja á
heimsmarkaði af þeirri gerð.
Sony-verksmiðjurnar hafa því
ákveðið að hefja sölu á VHS-
tækjum í Evrópu í apríl
næstkomandi og í Japan á seinni
hluta ársins.
Forstöðumaður Sony-verk-
smiðjanna sagði að það væru
vinsældir hinna svokölluðu „súp-
er VHS“ myndbandstækja sem
hefðu fyllt mælinn, en tæki þessi
geta tekið upp og sent út mynd-
gæði sem eru betri en frá hefð-
bundinni sjónvarpsútsendingu.
Við höfum verið þvingaðir til
þess að fara eftir markaðnum,
sagði forstöðumaðurinn, en hann
bætti jafnframt við að fyrirtækið
myndi halda áfram fullri þjón-
ustu við eigendur Betamix-tækja,
þar sem þau væru nær einráð á
markaðnum í sumum löndum,
einkum í 3. heiminum.
Reuter/ólg