Þjóðviljinn - 12.01.1988, Page 7
Húsakynni Rannsóknastofnunarinnar á Keldnaholti.
Guðrún Rögnvaldsdóttir hugar að sínum verkefnum.
Það er að mörgu að hyggja í þessum sal.
Rannsóknastofnun landbúnað-
arins hefur nýlcga birt starfsáætl-
un sína fyrir árin 1988-1992,
(Fjölrit RALA nr. 128). í trausti
þess að lesendur blaðsins yfirleitt
iáti sig þessi mál einhverju skipta,
þykir rétt að birta hér áætlunina
ásamt þeim formála, sem fyrir
henni er hafður.
Starfsmarkmið
Landbúnaðarrannsóknir á ís-
landi miða að öflun og prófun
nýrrar þekkingar og um leið er
eldri þekkingu haldið við. Rann-
sóknir eru mikilvæg undirstaða
þess að unnt sé að stunda arðbær-
an landbúnað án þess að gengið
sé á landgæði. Rannsóknirnar
eiga að geta bætt markaðsað-
stöðu búvöru innanlands og
stuðlað að því að einstakar afur-
ðir vinni markað erlendis. Farsæl
stefnumótun í landbúnaði byggist
að verulegu leyti á niðurstöðum
rannsókna.
Hinar öru breytingar á mark-
aðsstöðu landbúnaðarins ásamt
fjölgun búgreina hafa orðið til
þess, að nú þarf að stefna að fleiri
markmiðum í rannsóknum en
áður. Vaxandi kröfur eru um
rannsóknir á landgæðum, bæði í
þágu almennings og landbúnað-
ar. Þótt nokkur samdráttur hafi
orðið í hefðbundnum búgrein-
um, eru þær eftir sem áður uppi-
staðan í landbúnaði þjóðarinnar.
Pörfin á rannsóknum í þeirra
þágu hefur ekki minnkað, þvert á
móti vekja ný viðhorf nýjar
spurningar.
Starf Rannsóknastofnunar
landbúnaðarins mun á næstu
fimm árum beinast að eftirfar-
andi markmiðum.
1. Landnýting
- að rannsaka orsakir gróðurs-
og jarðvegseyðingar, læra að
verjast þeim og leita heppilegra
og hagkvæmra plantna og að-
ferða til landgræðslu.
- að rannsaka ástand og nýt-
ingu haglendis við ólík skilyrði.
- að leita eftir því skipulagi
landnýtingar, sem arðbærast
reynist án náttúruspjalla og að
aðstoða við gerð áætlana um nýt-
ingu lands, jafnt til landbúnaðar
sem annarra nota.
Ræktun nytjaplantna
- að rannsaka ræktun á fóður-
jurtum og plöntum til manneldis
og iðnaðar með tilliti til hag-
kvæmni, öryggis og fjölbreytni.
- að rannsaka eiginleika jarð-
vegs með hliðsjón af uppruna og
flokkun og kanna hvernig mis-
munur á efnasamsetningu og eðl-
isgerð jarðvegs hefur áhrif á
gróður- og ræktunarskilyrði.
- að rannsaka ferli plöntunær-
ingarefna til þess að finna hag-
kvæmnustu not áburðar við ólík
skilyrði og draga úr hættunni á
mengun.
- að rannsaka erfðaeðli nytja-
plantna og vinna að því að fá fram
ný afbrigði og stofna með kyn-
bótum.
- að rannsaka eðli og út-
breiðslu plöntusjúkdóma og
meindýra og leita leiða til að
draga úr skaðsemi þeirra.
- að efla þekkingu á líftækni og
lífeðlisfræði í þágu plöntunæring-
ar, plöntukynbóta og varna gegn
skaðvöldum á gróðri.
3. Búfjárrækt
- að rannsaka erfðaeðli búfjár,
grasbíta, loðdýra og eldisfiska.
- að finna leiðir og innleiða
nýja tækni til kynbóta á búfé í því
skyni að auka afurðagetu þess,
fjölbreytni, gæði og verðgildi
afurðanna og hagkvæmni við
framleiðslu.
- að rannsaka fóðrun og með-
ferð búfjár, hagnýtingu inn-
lendra fóðurefna af landi og úr
sjávarfangi til framleiðslu búfjár-
afurða.
4. Bútækni
- að fylgjast með nýjungum á
sviði tækni og framleiðsluþátta í
landbúnaði, reyna þær og aðhæfa
íslenskum aðstæðum.
- að rannsaka vinnubrögð og
tækni við jarðrækt, fóðuröflun og
hirðingu búfjár.
- að rannsaka byggingar og
annað vinnuumhverfi í því skyni
að stuðla að aukinni hagkvæmni
og vernda heilbrigði þeirra er bú-
skap stunda.
5. Matvæla-
rannsóknir
- að rannsaka efnainnihald
matvæla úr íslenskum landbún-
aði til að ávallt verði til sem rétt-
astar upplýsingar um næringar-
gildi og hollustu þeirra.
- að bæta meðferð, gæði og
geymsluþol matvæla og halda um
leið notkun á aukaefnum og
hjálparefnum innan eðlilegra
marka.
- að bæta samkeppnisaðstöðu
iandbúnaðar með því að bæta
nýtingu afurðanna og draga úr
framleiðslukostnaði.
- að auka fjölbreytni með þátt-
töku í þróun nýrra vörutegunda
úr landbúnaðarafurðum.
6. Hagrannsóknir
- að rannsaka hagræna þætti
landbúnaðar, bæði búrekstrar og
markaðsskilyrða.
7. Þjónusturann-
sóknir og eftirlit
- að annast eftirlit með að-
föngum til landbúnaðar og inn-
flutningi plantna.
- að veita bændum og fyrir-
tækjum tengdum landbúnaði
þjónustu með rannsóknum á bú-
vélum, jarðvegi, plöntum,
áburði, fóðri og fæðu.
7. Kynning á
niðurstöðum
- að koma niðurstöðum
rannsókna á framfæri og tryggja
árangursríkt streymi upplýsinga
til bænda, samtaka landbúnaðar-
ins og stjórnvalda um þau verk-
efni, sem stofnunin fæst við.
- mhg
Þorsteinn Tómasson, forstöðumaður
Rannsóknastofnunar landbúnaðar-
ins.
Landbúnaðarrannsóknir
Atta meginmaricmið
Starfsáœtlun RALA nœstu fimm árin
Þriðjudagur 12. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7