Þjóðviljinn - 13.01.1988, Page 5
Umsjón
SigurðurÁ.
Friðþjófsson
Verkaskiptingin
Vísað aftur til föðurhúsa
Bandormur ríkisstjórnarinnar um verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga mœtir mikilli andstöðu á þingi.
Stjórnarandstaðan leggur til að málinu verði vísað aftur til ríkisstjórnarinnar og endurunnið ísamráði
við sveitarstjórnir og þingflokka
Stefán Valgeirsson var ekki par hrifinn af hugmyndum ríkisstjórnarinnar um breytta verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga:
„Þrátt fyrir aö þeir fáu sem hafa fjallað um frumvarpið hafi mótmælt: því ætla embættismenn ríkisstjórnarinnar að keyra
jíað í gegn.“ Mynd E.ÓI.
Ljóst er að bandormur ríkis-
stjórnarinnar um breytingar á
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga mætir mikilli andstöðu á
þingi og einangrast sú andstaða
ekki við stjórnarandstöðuna,
heldur er mikil óánægja með
frumvarpið hjá ýmsum lands-
byggðarmönnum ríkisstjórnar-
flokkanna, einkum þó innan
Framsóknarflokksins.
Guðni Agústsson, þingmaður
Framsóknar á Suðurlandi, lýsti
þannig yfir andstöðu við frum-
varpið við aðra umræðu um það í
neðri deild. Sagðist hann taka
undir margar af ábendingum
minni hlutans og lagði til að frum-
varpinu yrði vísað aftur til ríkis-
stjórnarinnar til frekari vinnslu í
samráði við sveitarstjórnir og
þingflokka, einsog minni hluti
félagsmálanefndar deildarinnar
leggur til.
Aukinn kostnaður
fyrir sveitarfélögin
Frumvarp þetta tekur á ýmsum
Spurt um...
...Eftirlit á innfluttri mat-
vöru
Stefán Valgeirsson spyr heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra um hvernig heilbrigðiseftir-
liti er hagað á innfluttri matvöru,
t.d. á grænmeti og ávöxtum.
...Innfiutning
á fatnaði
Ingi Björn Albertsson spyr fjár-
málaráðherra og viðskiptaráð-
herra um innflutning á fatnaði
með fölsuðum upprunaskírtein-
um. Hann spyr hvort fram hafi
farið könnun á því hvort slíkur
innflutningur sé stundaður og ef
svo er, hvað hún hafi leitt í ljós.
Loks spyr hann hvort ráðherra
hyggist beita sér fyrir slíkri könn-
un ef hún hafi ekki þegar verið
gerð.
...Stöðu ullar-
iðnaðarins
Hjörleifur Guttormsson spyr
iðnaðarráðherra hverjar séu
horfur í ullariðnaði á nýbyrjuðu
ári og til hvaða aðgerða stjórn-
völd hyggist grípa til að bæta rek-
strarstöðu hans.
...Byggingurafskauta-
verksmiðju
Hjörleifur Guttormsson spyr
iðnaðarráðherra með hvaða
hætti Alusuisse hafi staðið við
ákvæði bráðabirgðasamnings við
ríkisstjórnina frá 23. september
1983 um að „gera hagkvæmnisat-
huganir á því að koma upp raf-
skautaverksmiðju á bræðslulóð-
inni og á stækkun steypuskála,“
samanber einnig „bréf um sam-
komulag“ milli ríkisstjórnarinnar
og Alusuisse frá 5. nóvember
1984.
mismunandi málefnum, málefn-
um fatlaðra, breytingu á íþrótta-
lögum, Félagsheimilasjóði,
skemmtanaskatti, rekstri og
byggingu dagvistarheimila, tón-
listarskólum, byggðasöfnum, að-
stoð við vatnsveitur og lands-
höfnum. Eitt eiga þó allar
breytingarnar sameiginlegt en
það er að kostnaður við alla þessa
þætti færist frá ríki til sveitarfé-
laga. f stað þess á að minnka
skerðinguna á Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga.
Frumvarpið gerir ráð fyrir að
lög þessi taki gildi í upphafi þessa
árs en meiri hluti félagsmála-
nefndar neðri deildar flytur
breytingartillögu um tónlistar-
skólana og leggur til að sá kafli
taki ekki gildi fyrr en 1. septemb-
er 1989. Þá leggur meirihlutinn
einnig til að sérdeild Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga greiði hlut rík-
issjóðs og sýslusjóða vegna
kostnaðar við eyðingu refa og
minka en þessi liður mun hafa
gleymst á fjárlögum 1988. Hér er
um að ræða 7 milljónir og er því
skerðing á ráðstöfunarfé sjóðs-
ins.
Rök stjórnar-
andstöðu
Meginástæðurnar fyrir því að
minni hluti félagsmálanefndar
leggur til að frumvarpinu verði
aftur vísað til ríkisstjórnarinnar
eru samkvæmt nefndarálitinu 10
talsins. í fyrsta lagi gerir frum-
varpið ráð fyrir að verkefni séu
flutt til sveitarfélaga og muni það
hafa í för með sér meiri útgjöld
fyrir sveitarfélögin en ríkið tekur
að sér á móti. Iöðru lagi fjallar
frumvarpið aðeins um hluta af
þeim mörgu viðfangsefnum sem
tillögur hafa komið fram um að
breyta í núverandi verkaskipt-
ingu ríkis og sveitarfélaga. Hér
séu því ekki á ferðinni lög um
heildarstefnumörkun í þessum
málum.
Þá telur minni hlutinn að
fjármögnunarþáttur verkaskipt-
ingarinnar sé í lausu lofti þannig
að engin drög hafa verið gerð að
uppgjöri við einstök sveitarfélög
vegna þeirra framkvæmda sem
ríkissjóður hefur tekið þátt í.
Ekki hafi heldur verið kynntar
reglur eða drög að reglugerð
varðandi fjárframlög til jöfnunar
milli sveitarfélaga, en framlag til
jöfnunarsjóðs hefur verið skert
um árabil og er svo einnig á fjár-
lögum þessa árs.
Minni hlutinn bendir á að ein-
stakir kaflar frumvarpsins, svo
sem um byggðasöfn, tónlistar-
fræðslu og íþróttastarfsemi,
snerta verkefni sem ekki hafa
verið bundin við einstök
sveitarfélög eða verið á þeirra
vegum.
Þá gagnrýnir minnihlutinn að
frumvarpið hafi ekki verið sent til
kynningar eða umsagnar sveitar-
stjórna eða annarra aðila og álit
þeirra liggur því ekki fyrir. Einn-
ig hefur komið í Ijós að við samn-
ingu frumvarpsins var ekkert
samráð haft við aðila sem hafa
unnið að viðkomandi málum í
áratugi. Þá hefur einnig komið í
ljós að flestir sem kallaðir voru á
áind nefndarinnar voru andvígir
breytingunum eða töldu að vinna
þyrfti málið betur. Þá er ljóst að
frumvarpið var unnið að fá-
mennum hópi manna sem allir
eru búsettir á höfuðborgarsvæð-
inu og aðeins einn maður utan
Suður- og Vesturlands kom á
fund félagsmálanefndar til við-
ræðna um frumvarpið.
Víðtæk andstaða
og mótmæli
í nefndarálitinu segir að víðtæk
andstaða og mótmæli hafi komið
fram um fyrirætlanir frumvarps-
ins um tónlistarskóla. Þá hafi full-
trúar íþróttasambands íslands og
Ungmennafélags íslands lýst
þungum áhyggjum af ákvæðum
um breytingu á íþróttalögum.
Þjóðminjavörður og talsmenn
byggðasafna eru örvæntingarfull-
ir vegna breytinga á stuðningi
ríkis við byggðasöfn og deildar-
stjóri í menntamálasráðuneyti,
sem fer með dagvistarheimili,
lýsti þungum áhyggjum vegna
þess að veikja á faglega umsjón
stjórnvalda með dagvistarheimil-
um.
Stjórnarandstaðan gagnrýnir
einnig að þarna sé verið að grípa
inn í sérlög um einstaka mála-
flokka án þess að ráðrúm gefist til
heildarendurskoðunar á lögun-
„Minnihlutinn telur að með
frumvarpinu sé byrjað á öfugum
enda. í stað þess að tryggja fyrst
fjárhagslega stöðu sveitarfélag-
anna gagnvart ríkinu er ráðist í
„áfanga“ í verkefnatilfærslu og
valdir úr þættir sem orka tvímælis
að því er verkaskiptingu áhrærir
og gagnast sveitarfélögum lítið
fjárhagslega. Reynt er að láta líta
svo út af talsmönnum frumvarps-
ins að í því endurspeglist vilji
sveitarfélaga í landinu, en þau
hafa raunar ekki fengið að segja
orð um efni þess.
Með vísan til ofangreindra at-
riða ftrekar minnihlutinn það álit
sitt að vinna beri þetta mál í heild
frá grunni áður en lögfest verði
breytt verkaskipting ríkis og
sveitarfélaga. Það er því tillaga
minni hlutans að málinu verði
vísað til ríkisstjórnarinnar," segir
í lok nefndarálitsins. Undir þetta
ríta Kristín Einarsdóttir og Oli Þ.
Guðbjartsson en Steingrímur J.
Sigfússon sat fundi nefndarinnar
og lýsir sig sammála nefndarálit-
inu.
Verði niðurstaðan ekki sú að
vísa málinu aftur til ríkisstjórnar-
innar áskilur stjórnarandstaðan
sér að flytja breytingartillögur
við frumvarpið og þegar hefur ein
komið fram, en það er tillaga
Steingríms J. Sigfússonar um að
frumvarpið taki ekki gildi fyrr en
í upphafi næsta árs.
Ríkisstjórnin hefur lagt mikla
áherslu á að frumvarpið verði að
lögum sem fyrst en nú þykir ljóst
að það nái ekki fram áður en
þingheimur fer í frí nú um helg-
ina.
-Sáf
Spurt um...
...Nauðungaruppboð
Svavar Gestsson spyr dóms-
málaráðherra hversu mörg
nauðungaruppboð hafi farið
fram á ári hverju frá 1982 til og
með 1987. Annarsvegar alls og
hinsvegar eftir lögsagnarum-
dæmum. Hann fer fram á skri-
flegt svar.
...Gjaldþrotamál
Svavar Gestsson spyr dóms-
málaráðherra hversu margir úr-
skurðir hafi verið kveðnir upp um
gjaldþrot á ári hverju frá l982 til
og með 1987. Annarsveg^r alls og
hinsvegar eftir lögsagnarum-
dæmum. Skriflegt svar óskast.
...Vísitölu framfærslu-
kostnaðar
Svavar Gestsson spyr ráðherra
Hagstofu íslands um hvað líði
verðupptöku vegna nýs grund-
vallar vísitölu framfærslukostn-
aðar.
um.
Miðvikudagur 13. janúar 1988 þjóÐVILJINN - SÍOA 5