Þjóðviljinn - 27.01.1988, Síða 1
Vestfjarðasamningurinn
Heimatilbúnar forsendur
Gert ráðfyrir 14% verðbólgu á árinu - samningurinn metinn uppá
12-14%. Bætir ekki kjaraskerðinguna. Pétur Sigurðsson, form.
Alþýðusambands Vestfjarða: Legið á hálsi fyrir að semja um oflítið,
hvað sem um vœrisamið
Við stóðum frammi fyrir þeim
valkosti að semja núna eða
vera á eftir og fá þá ekki þær
hækkanir sem aðrir semja um,
jat'nvel að undangengouverkfalli
og vinnustöðvun. Það er alveg
sama hvað við hefðum samið um,
okkur hefði alltaf verið legið á
hálsi fyrir að semja um of lítið. Eg
harðneita því að með þessum
samningi sé verið að bera blak af
ríkisstjórninni, sagði Pétur Sig-
urðsson, formaður Aiþýðusam-
bands Vestfjarða, og hann vildi
lítið gera úr þeirri gagnrýni sem
samningur ASV hefur sætt frá
ýmsum forsvarsmönnum verka-
lýðsfélaga.
í samningnum er gengið út frá
því að almennar verðhækkanir
fari ekki yfir 14% á árinu. Þykir
mörgum sem þar sé teflt á tæp-
asta vað. Gangi þessar forsendur
eftir gerir samningurinn ekki
annað en að halda óbreyttum
kaupmætti út árið, án þess að 9%
kjaraskerðing á síðasta ársfjórð-
ungi og útgjaldaauki af völdum
matarskattsins sé að nokkru
bættur.
í samningnum er gert ráð fyrir
að framfærsluvísitalan fari ekki
yfir 258 stig 1. júní og 266 stig 1.
október. Þess má geta að fram-
færsluvísitalan stendur nú í
233",41 stigi.
Hækki framfærsluvísitalan um-
fram gefin mörk, getur ASV
krafist endurskoðunar á launalið
samningsins. Náist ekki sam-
komulag um endurskoðun innan
20 daga, fellur launaliðurinn úr
gildi.
Aðspurður um hvort hann væri
trúaður á að verðlagsforsendur
samningsins kæmu til með að
standast, sagði Pétur að það væri
aldrei hægt að sverja fyrir slíkt
fyrirfram. - Þetta er heimatilbú-
ið dæmi. Við gengum út frá
ákveðnum forsendum sem við
gáfum okkur, sagði Pétur. í verð-
lagsforsendunum er gengið út frá
því að gengið verði ekki fellt um-
fram 6%, en eins og kunnugt er
hefur VSÍ og Sambandið þegar
viðrað hugmyndir um nauðsyn
þess að gengið verði fellt um í það
minnsta 10%.
Ari Skúlason, hagfræðingur
Alþýðusambandsins, sagði að
ekki hefði verið leitað til Alþýðu-
sambandsins um mat á verðlags-
þróun fyrir árið, enda ekki samn-
ingar á þess vegum.
Vestfjarðasamningurinn verð-
ur borinn undir atkvæði í vik-
unni. Baldur á ísafirði er fyrst fé-
laga tii þess að halda fund um
samningana, en þar verður
gengið til atkvæða í dag.
-rk
Sjá viðbrögð síðu 3
Thor Vilhjálmsson tekur við blómvendi og hamingjuóskum frá Þjóðviljanum að heimili sínu síðdegis f gær. (Mynd: E.ÓI.)
Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs
Olfldndin svo rík í okkur
Thor Vilhjálmssonfœr bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs: Fagna
fyrir mig, fagna vegna þjóðarinnar
Þorrafurður
Hrútspungar
-100%
hækkun
Dýr myndi
Hafliði allur
Hrútspungar hafa hækkað um
rúm 100% í verslunum síðan í
desember. Kostar kflóið af þeim
frá 700 krónum upp í 900 krónur,
en kostaði í desember 341 krónu
þjá Sláturfélagi Suðurlands.
Foxillur lesandi hafði samband
við Þjóðviljann og sagði að það
yrði erfitt að þreyja þorrann að
þessu sinni og sennilega yrði
hann að sleppa hrútspungunum í
ár. Sagðist hann hafa kannað
verðið á þremur stöðum. í Hóla-
garði kostaði kflóið 898 krónur.
Hjá Sláturfélaginu 809 krónur og
hjá Hagkaupum 699 krónur.
Hjá Verðlagseftirlitinu fékk
lesandinn þær upplýsingar að
álagning á hrútspunga væri frjáls
og því gæti Verðlagseftirlitið ekk-
ert gert í málinu.. Þar var hinsveg-
ar kannað verðið á hrútspungum
í desember og kostaði kflóið þá
341 krónu hjá Sláturfélagi Suður-
lands.
-Sáf
Skák
Jafntefii
Jáhann með IV2 vinning
en KortsnojV2
Jóhann þáði jafnteflisboð
Kortsnojs eftir að leikið hafði
verið einum leik í skákinni sem
fór í bið í fyrradag.
í Þjóðviljanum í dag er skýrð
önnur einvígisskák Sax og
Shorts.
Sjá skákfréttir frá Helga
Ólafssyni stórmeistara á
bls. 6
Eg tek þessu mæta vel, er
kampakátur og leik á als oddi,
sagði Thor Vilhjálmsson f gær
eftir að tilkynnt var að hann hlyti
bókmenntaverðlaun Norður-
landaráðs í ár. „Ég fagna þessu og
hef gleði af því, ekki bara vegna
þess að þetta var mín bók, heldur
vegna þess að heiðurinn er okkar
þjóðar.“
Thor er þriðji íslenski höfund-
urinn sem hlýtur þessa viður-
kenningu og Grámosinn glóir
fyrsta íslenska skáldsagan sem
verðlaunuð er með þessum hætti.
Ólafur Jóhann Sigurðsson fékk
verðlaunin árið 1976 fyrir ljóð sín
í bókunum Að laufferjum og Að
brunnum, og Snorri Hjartarson
hlaut þau árið 1981 fyrir ljóða-
bókina Hauströkkrið yfir mér.
í stuttu samtali við Þjóðviljann
milli símtala og heillaóska síð-
degis í gær sagði Thor að hann
væri sístur manna til að dæma um
það hvort Grámosinn glóir væri
sinna bóka verðugust til slíkra
verðlauna; „ég afneita engri bóka
minna, - þær eru hver með sínum
hætti mikilvægar fyrir mig, og ég
vona að engin þeirra hafi verið
óþörf“.
Thor minntist þess að nú væri
annar uppi á Norðurlöndum en
áður þegar sænskir bókmennta-
menn kröfðust þess sem ákafast
að bækur væru fyrir den enkla
mánniskan; „þetta er óþýðan-
legt, hinn einfalda mann?, - þetta
er ekki til á íslensku, enda bað ég
þá að koma með þennan grip og
sýna mér, ef ég ætti að skrifa fyrir
hann. Við skiljum þetta ekki ís-
lendingar, - í okkur er svo sterkt
þetta margsæi, ólíkindin svo rík í
okkur. Við megum ekki skáld-
skaparlausir lifa“.
Norræna dómnefndin tók
ákvörðun sína á fundi í höfuðstað
Færeyja og færði fyrir henni þessi
rök á blaðamannafundi í gær:
„Með tungutaki sem sameinar
íslenska frásagnarhefð og mann-
leg tjáningarform lýsir Thor ör-
lagaríkri ferð dómara um töfra-
þrungið landslag þar sem glímt er
við grundvallarspurningar tilver-
unnar um ábyrgð og sekt, um
skáldskap og veruleika frá ótal
sjónarhornum.“ Thor er um
þessar mundir að vinna að nýrri
skáldsögu, en metsölu- og verð-
launabókin um grámosann
glóandi kemur út í haust í Dan-
mörku og Noregi, og útgefand-
inn, Svart á hvítu, stendur að
auki í viðræðum við forlög í Finn-
landi, Svíþjóð og Vestur-Þýska-
landi.
Thor tekur við verðlaununum,
125 þúsund dönskum krónum, á
Norðurlandaráðsþingi í Ósló 8.
mars.
-m