Þjóðviljinn - 27.01.1988, Qupperneq 7
Sjónmál, blað um kvikmyndir
Hugsjón?
Umsjón:
Lilja Gunnarsdóttir
Bjarni Þór Sigurðsson: Kannski erum
við bara svona miklir húmoristar
Sjónmál er nýlegt blað á íslenska
tímaritamarkaðnum, kom fyrst út
íágústífyrra. Þriðjatölublaðið
kom út í desember, og þar er að
finna margvíslega umfjöllun um
kvikmyndir og vídeó. Þar skrifa
meðal annars Sjón um „bláar
vídeómyndir" á íslenskum mark-
aði, Friðrik Þór Friðriksson um
Þótt nú séu misseraskipti hjá
Sinfóníuhljómsveit íslands og
fyrstu reglulegu tónleikar hljóm-
sveitarinnar á síðara misseri ekki
fyrr en í næstu viku, situr hún þó
engan veginn auðum höndum.
Áfimmtudagskvöld, kl. 20.30,
verða haldnir tónleikar í Loga-
landi í Borgarfirði og á laugardag
kl. 15 verða tónleikar í íþróttahús-
inu í Mosfellsbæ. Auk Sinfóníu-
hljómsveitarinnar taka kórar í
þessum sveitum þátt í tónleikun-
um og Selma Guðmundsdóttir pí-
anóleikari leikur einleik.
„Síðasta keisarann", nýjustu
stórmynd ítalska kvikmyndaleik-
stjórans Bertoluccis, og Freyr
Þormóðsson um íslenska kvik-
myndagerð. Einnig eru í blaðinu
viðtöl viö Ettore Scola og Roman
Polanski, og birt er kaflabrot úr
bók Andrei T arkovski: „Tími for-
maður".
í Logalandi syngja kirkjukórar
Hvanneyrar og Reykholts og
Kveldúlfskórinn í Borgarnesi
með hljómsveitinni. Á efnisskrá
eru Fangakórinn úr Nabucco
eftir Verdi, Finlandia eftir Sibe-
lius, Píanókonsert eftir Khatsjat-
urian og Sinfónía nr. 41, Júpiter,
eftir Mozart. Kórstjórar eru Ingi-
björg Þorsteinsdóttir og Bjarni
Guðráðsson.
í íþróttahúsinu í Mosfellsbæ
syngur Karlakórinn Stefnir með
hljómsveitinni, undir stjórn Lár-
usar Sveinssonar. Efnisskrá verð-
ur óbreytt að öðru leyti en því að í
- Þetta var hugmynd mín og
Helga Hilmarssonar, segir Bjarni
Þór Sigurðsson sem er fram-
kvæmdastjóri Sjónmáls og jafn-
framt ritstjóri þriðja tölublaðs-
ins. - Við stefndum að þessu frá
því í mars 1987, og fyrsta tölu-
blaðið kom svo út í ágúst, eftir
mikinn barning. Þessi hugmynd
var eiginlega tvíþætt; annars veg-
ar að gefa út Sjónmál og hinsveg-
ar nokkur sérrit um mismunandi
málefni. Við gefum til dæmis út
tvö alveg á næstunni, í fyrsta lagi
blað um vídeótækni, ætlað leik-
mönnum, en þar er að finna allt
um vídeótækni. Hitt er uppfletti-
rit um allar löglegar vídeómyndir
á íslandi. Þetta gengur betur og
betur, þetta þriðja tölublað gekk
mun betur en þau tvö fyrstu.
Hvernig stóð á að þið réðust í
þessa blaðaútgáfu?
- Okkur fannst vera vöntun á
kvikmyndaumfjöllun á íslandi.
Nú, við Helgi erum gamlir Fjala-
kattarmenn og kannski erum við
bara svo miklir húmoristar að við
stað Fangakórsins flytur hljóm-
sveitin, ásamt Stefni, Þér land-
nemar, eftir Sigurð Þórðarson.
Stjórnandi hljómsveitarinnar í
báðum ferðunum verður Páll P.
Pálsson.
Sinfóníuhljómsveitin hefur
undanfarið notið aðstoðar
heimamanna við tónleikahald
utan Reykjavíkur í æ ríkari mæli.
Hefur það mælst vel fyrir, eflt
tónlistaráhuga á viðkomandi
stöðum og skapað fleiri mögu-
leika á fjölbreytni í efnisvali.
- mhg
lítum á það sem köllun að gefa út
svona rit. En því er ætlað að vera
vettvangur fyrir umfjöllun um ís-
lenska og erlenda kvikmynda-
gerð, og við tökum gjarnan við
greinum frá fólki, blaðið er sem
sagt opið öllum. Og við reynum
að sinna markmiði okkar sem er
að fjalla um kvikmyndir á
gagnrýninn hátt. Þó að íslending-
ar séu mikil kvikmyndaneyslu-
þjóð, þá er framboð á kvikmynd-
um hér mjög einhæft og það má
spyrja sig hvers vegna það er: Er
framboðið einhæft vegna þess að
fólk vill ekki sjá nema eina teg-
und mynda, eða er það vegna
þess að það hefur vanist því að
ekki sé boðið upp á annað?
Kannski er þetta vegna skorts á
kvikmyndauppeldi. Við viljum í
það minnsta auka umræðuna og
taka fyrir sem flesta þætti, ekki
bara kvikmynda, heldur líka ví-
deómynda, samanber greinina
um bláar vídeómyndir í þriðja
tölublaðinu.
Hvert verður áframhaldið?
Páll P. Pálsson.
Fyrirlestur
Að lesa Rimbaud
Á morgun heldur prófessor Mic-
hel Decaudin fyrirlestur í Háskól-
anum, og leggur út af temanu: Að
lesa Rimbaud ídag. Fyrirlestur-
inn hefst kl. 17:15og erístofu
101, Lögbergi.
Michel Decaudin er fæddur
1919, doktor í bókmenntum og
hefur kennt við háskólana í Lille,
Gand, Toulouse og Paris-
Nanterre. Síðan 1972 hefur hann
verið kennari við Nýja-Sorbonne
(Université de Paris III).
LG
Sinfóníuhljómsveitin
Tónleikar í Borgar-
firði og Mosfellssveit
Heimamenn þátttakendur
Mlðvlkudagur 27. janúar 1988 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 7
- Við höldum auðvitað áfram
að gefa út bæði Sjónmál og sérrit-
in og vonumst til að fá nóg af
áskrifendum, því það er grund-
völlurinn fyrir að blaðið geti
gengið vel. Það er ýmislegt sem
við erum að velta fyrir okkur
núna þegar þessi þrjú tölublöð
eru komin út og þannig komin
reynsla á fyrirtækið, til að mynda
hvort við eigum að breyta blað-
inu eitthvað. Það gæti til dæmis
komið til greina að taka inn fleiri
sjónræna miðla, og opna blaðið
fyrir umfjöllun um leikhús og
myndlist, svo eitthvað sé nefnt.
LG
Tónlist
Fjórhent
á píanó
Örn Magnússon og
Robert Birchall á
Háskólatónleikum
Þriðju Háskólatónleikarþessa
misseris verða í Norræna húsinu
í dag, miðvikudag 27. janúar kl.
12.30. Þar leika þeir Örn
Magnússon og Robert Birchall
fjórhent á píanó.Á efnisskránni
eru þrírungverskirdansareftir
Johannes Brahms og „Gæsa-
mamma“,eftirMauriceRavel.
Örn Magnússon er frá Ólafs-
firði. Hann lauk burtfararprófi
frá Tónlistarskóla Akureyrar og
síðan starfaði hann og stundaði
nám við Tónskóla Sigursveins í
Reykjavík, auk framhaldsnáms í
Manchester, Berlín og London.
Helstu kennarar hans hafa verið:
Soffía Guðmundsdóttir, George
Hadjinikos og Louis Kentner.
Robert Birchall er frá Englandi.
Hann stundaði nám við Chetham
tónlistarskólann og síðan fram-
haldsnám við Royal College of
Music í Manchester frá 1978-
1982. Þar var aðalkennari hans
George Hadjinikos. Hann starfar
nú sem kennari við Tónlistar-
skóla Fljótsdalshéraðs á Egils-
stöðum.