Þjóðviljinn - 27.01.1988, Blaðsíða 10
I
•sfcx «
Myndbandagerð (video)
innritun
6 vikna námskeið í myndbandagerð hefst 1. fe-
brúar nk. Kennt verður 2 sinnum í viku, mánu-
daga og miðvikudaga, 4 klst. hvert kvöld. Megin-
áhersla er lögð á: Kvikmyndasögu, myndupp-
byggingu, eðli og notkun myndmáls í kvikmynd-
um, handritsgerð auk æfinga í meðferð tækja-
búnaðar ásamt upptöku, klippingu og hljóðsetn-
ingu eigin myndefnis nemenda. Kennari Ólafur
Angantýsson, kennslustaður Miðbæjarskóli.
Kennslugjald kr. 5000.
Innritun í símum 12992 og 14106 kl. 13-19 þessa
viku (til föstudags 29. jan.)
ST. JÓSEFSSPÍTALI, LANDAKOTI
Ræstingar - býtibúr
Okkur vantar gott fólk til starfa við ræstinqar oq í
býtibúr.
Upplýsingar ásamt umsóknareyðublöðum fást á
skrifstofu ræstingastjóra, 5. hæð, A-álmu milli kl.
10 og 14 virka daga.
Upplýsingar ekki gefnar í síma.
Reykjavík,
26.01. 1988
Reykjavík -
Norræna eldfjallastöðin
Leitað er eftir húsnæði fyrir Norrænu eldfjalla-
stöðina.
Helst kemur til greina u.þ.b. 300 fermetra sérbýli í
nágrenni Háskólans sem hentaði til skrifstofu- og
rannsóknastarfa.
Tilboðum óskast komið á framfæri við eignadeild
fiármálaráðuneytisins, Arnarhvoli, 150 Reykja-
vík, í síðasta lagi föstudaginn 5. febrúar nk.
Þökkum innilega öllum þeim er sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu
Hjörtínu Guðrúnar Jónsdóttur
Efra-Skarði, Svínadal
Olafur Magnússon
Þorgerður Ólafsdottir Guðm. Óskar Guðmundss.
Jón Gunnlaugsson
Guðjón Þ. Ólafsson
Anna Gr. Þorbergsdóttir
Sigurður Valgeirsson
Sigríður Ólafsdóttir
Jóna Kr. Ólafsdóttir
Magnús Ólafsson
Selma Ólafsdóttir
barnabörn og langömmubörn
ERLENDAR FRÉ1TIR
Scargill með sítt hár, barta ogfiakandi hálsmál í hópi félaga og vopnabræðra.
Breskir kolanámumenn
Scargill endurkjör
inn leiötogi
Hyggst berjastgegn áformum Thatchers um sex daga
vinnuviku og lokun náma
Arthúr Scargill var endurkjör-
inn leiðtogi megin verkalýðs-
sambands breskra kolanámu-
manna á dögunum og hefur ekki í
hyggju að leggja árar í bát.
Kvaðst hann í gær ætla að berjast
af hörku gegn áformum yfir-
manna hinna ríkisreknu kola-
náma um lokun sumra þeirra.
„Það er búið að troða á okkur
alltof lengi,“ sagði Scargill og
bætti við að fyrr myndi hann
dauður til jarðar falla en bresk
stjórnvöld fengju að hrinda í
framkvæmd áformum sínum um
að lengja vinnuviku kolanámu-
manna úr 5 dögum í 6 og loka
nokkrum arðbærum námum.
90 þúsund menn eru í Lands-
sambandi kolanámumanna og
var Scargill endurkjörinn forseti
þess á sunnudaginn. Fékk hann
um 53 af hundraði atkvæða en
hinn hægri sinnaði John Walsh
fékk minna. Hann er í frétta-
skeytum sagður bæði háttvís
maður og hógvær enda reiðubú-
inn að láta undan gerræði og yfir-
gangi Margrétar Thatchers.
Scargill öðlaðist heimsfrægð
árið 1984 er hann veitti kola-
námumönnum forystu í mjög
hatrömmu verkfalli sem stóð í
heilt ár. Hann hefur ítrekað sak-
að Thatcher valdaklíkuna um að
vinna gegn hagsmunum bresks
kolaiðnaðar með því að beita sér
fyrir innflutningi á ódýrum kol-
um erlendis frá.
Reuter/ -ks.
Ástralía
Hvrtir halda
afmælisfagnað
ígœr voru liðin
nákvœmlega 200 árfrá
þvífyrstu hvítu
mennirnir voru skikkaðir
til búsetu í Eyjaálfu
Höfnin við borgina Sidney í
Ástralíu iðaði af lífi og litum í
gær þegar seglfley komu hvaða-
næva úr heiminum í tilefni 200
ára búsetu hvítra manna í ál-
funni.
Alls lónuðu um 200 skip frá
Ástralíu og 40 öðrum löndum á
haffletinum við borgina í gær og
er talið að um þrjár miljónir
heimamanna hafi fylgst með há-
tíðarsiglingunni. En ekki gerðu
allir sér glaðan dag; frumbyggjar
mótmæltu með því að ganga
fylktu liði um götur Sidney. Vildu
þeir andæfa því er þeir nefndu
„fegrun innrásar hvítra manna í
Ástralíu.“
Sjaldan eða aldrei kváðu jafn
margir frumbyggjar hafa verið
samankomnir við mótmælaað-
gerðir. Lögregluyfirvöld giska á
að um 10 þúsund blökkumenn
hafi verið í mótmælagöngunni
auk fjölda hvítra stuðnings-
manna þeirra. Frumbyggjarnir
eru um eitt prósent 16 miljóna
íbúa Ástralíu en siðir þeirra og
menning hafa löngum verið lítils-
virt af hvítum íbúum.
Þegar frumbyggjar voru í þann
mund að leggja af stað í göngu
sína skreið herskipið Cook inní
höfnina með sjálfan Karl Breta-
prins um borð. Fley þetta er nefnt
eftir James þeim Cook skipstjóra
er fyrstur hvítra manna kom að
strönd Eyjaálfu, nánar tiltekið
austurströndinni. Það gerðist
árið 1770. Átján árum síðar,
þann 26.janúar árið 1788, rak Ar-
þúr Filip Brought skipstjóri 800
meinta og raunverulega breska
sakamenn í land og þar með var
fanganýlendan Ástralía komin í
gagnið.
Reuter/-ks.
Kólombía
Saksóknarí
myrtur
Eiturbarónar í styrjöld við ríkisvaldið
Eiturlyfjabarónar í Kólo íu
berjast með oddi og egg n
því að verða framseldir til Ba. a-
ríkjanna og vfla ekkert fyrir sér til
að koma í veg fyrir það. í gær
lýstu þeir yfir ábyrgð á ráni og
morði ríkissaksóknara landsins
og hafa gert því skóna að fleiri
framámenn í stjórnmálum og
embættiskerfi verði teknir af Iffi.
„Við lýsum því yfir að við höf-
um tekið Carlos Mauro Hoyos
saksóknara af lífi fyrir föður-
landssvik og landráð...þið megið
geta þess að styrjöldinni er ekki
lokið,“ segir í tilkynningu þess
hóps eiturlyfjaframleiðenda er
myrti Hoyos.
Lík hans fannst á búgarði,
steinsnar frá staðnum þar sem
bófar sátu fyrir bifreið hans og
náðu honum á sitt vald daginn
áður. Hafði hann verið bundinn
og keflaður og skotinn þannig.
Atburðir þessir áttu sér stað í
annarri stærstu borg Kólombíu,
Medellin, þar sem allir helstu
eiturbarónar landsins hafa höf-
uðstöðvar sínar.
Talið er að um 70 af hundraði
kókaíns á Bandaríkjamarkaði
komi frá Kólombíu og því sömdu
stjórnvöld í Bogota og Washing-
ton árið 1979 um framsal allra
handtekinna eiturbaróna til
Bandaríkjanna. Ástæðan kvað
fyrst og fremst vera sú að dómar-
ar þar eru ekki alveg jafn ginn-
keyptir fyrir mútufé og kollegar
þeirra syðra.
Síðan hafa nokkrir hinna
moldríku eiturframleiðenda ver-
ið handteknir í Kólombíu og
fluttir norður á bóginn. Víst er að
eiturbarónarnir óttast ekkert
jafnmikið og framsal til Banda-
ríkjanna, þótt hæstiréttur Kól-
ombíu hafi úrskurðað í fyrra-
sumar að samningur ríkisstjórn-
anna tveggja frá 1979 brjóti í
bága við stjómskipunarlög lands-
ins.
Framsalsmálin eru nú í óvissu
og hafa eiturbarónarnir sagt
stjórnvöldum stríð á hendur. Ho-
yos er hæst setti embættismaður
réttarkerfisins sem þeir myrða frá
því Rodrigo Lara Donilla
dómsmálaráðherra var skotinn til
bana á götu í höfuðborginni árið
1984. Virgilio Barco forseti ford-
æmdi hryðjuverkið í gær og sagði
stjórn sína staðráðna í að berjast
gegn glæpastarfsemi hér eftir sem
hingaðtil.
Reuter/-ks.
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 27. janúar 1988